Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 17
17 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000___________________________________ I>V ______________________________________Menning Braggar og tilurð borgar Llklega standa fá sagnfræðileg efni okkur nær en saga húsanna sem við búum í. Bókin Undir bárujárnsboga eftir Eggert Þór Bern- harðsson sagnfræðing fjallar að vísu ekki um þau heldur hús sem voru þar sem sum okkar búa nú en hurfu síðan, braggana sem spruttu upp eins og gorkúlur um alla Reykjavík þegar herinn kom hingað árið 1940, settu svip á eft- irstríðsárin og urðu svo hluti bókmenntanna í sögum Einars Kárasonar. Þetta er mikil bók að vöxtum, nærfellt 300 síður. Textinn segir aðeins hálfa sögu því að eins og ýmis fyrri verk Eggerts er þessi bók einstaklega myndauðug og hefði talsvert gildi þó að ekki væri nema fyrir myndirnar sem fæstar hafa sést áður á prenti, þar á meðal all- margar loftmyndir. Bókin er fagmannlega hönnuð af Búa Kristjánssyni. Það var herinn sem kom með braggana og þandi út Reykjavík, ýmis braggahverfi urðu til þar sem engin eða mjög strjál byggð var áður. Þorri Reykjavíkur austan við Hlemm en vestan við Elliðaár byggðist á sjötta og sjö- unda áratugnum og sú byggð leysti meðal annars bragga af hólmi. Húsnæðisskorturinn í hinni ört vaxandi Reykjavík olli því að braggamir voru notaðir áfram þó að herinn hyrfi og það tók sinn tíma að losna við þá, þeir seinustu hurfu ekki fyrr en nálægt 1980. Bókmenntir Saga Eggerts snýst einum þræði um hús- næðisvandann sem orsakaði braggabyggðina og tilraunir yfirvalda til að leysa þann vanda. Þetta er saga um tilurð borgar, um innreið nú- tímans í Reykjavík. Öðrum þræði snýst hún um daglegt líf fólks í bröggimum, félagsleg DV-MYND INGÖ Eggert Þór Bernharösson sagnfræöingur. vandamál og bágan aðbúnað en ekki siður menningarléga stöðu þeirra sem þar bjuggu. Mörgum þótti aðbúnaðurinn í bröggunum fyr- ir neðan allar hellur, en vel meint umræða um það gat ýtt undir fordóma gagnvart braggabúum. Litið var niður á þá sem bjuggu í bragga. Eggert leggur áherslu á að þeir sem bjuggu í bröggum hafi ekki verið einsleitur hópur, en vissulega var þar ekki yfirstétt Reykjavíkur á ferð og utanbæjarmenn bjuggu þar fremur en gamalgrónir Reykvíkingar. Aðbúnaðurinn var misgóður, sumar braggaíbúðir voru síst verri en íbúðir í húsum og ekki áttu allir braggabúar við félagsleg vandamál að stríða. Mörgum tókst að lifa þar sæmilegasta lífi. Um aðra gegndi öðru máli. Braggasaga Eggerts Bernharðsson- ar er merkt framlag til húsnæðis-, fé- lags- og menningarsögu þessarar ald- ar. Hún hefur víða skírskotun, snýst í raun ekki aðeins um bragga heldur um hvernig borgin sem við þekkjum mótaðist. Þar fyrir utan er þetta skemmtileg saga sem ætti að höfða til margra. Yngri lesendur geta þar kynnst Reykjavík sem var gjörólík borg- inni sem nú blas- ir við þó að ekki sé langt um liðið. Þeir eldri komast að því að þeirra eig- in ævi er orðin hluti af sögunni og fá jafnvel nýja sýn á hana í þessari braggasögu. Ármann Jakobsson Eggert Þór Bernharðsson: Undir bárujárnsboga. Braggalíf í Reykjavík 1940-1970. JPV FORLAG 2000. Segðu speglinum Sónata er samkvæmt orðabók tónverk fyrir einleikshljóðfæri í þremur til fjórum köflum, sbr. Tunglskinssónötuna eftir Beethoven sem vel er þekkt og nokkuð vísað til í skáldsögu Þóreyjar Friðbjörns- dóttur, Spegilsónata. í ritgerða- safni sínu List skáldsögunnar (á ísl. 1999) ræðir Milan Kundera hvernig hann hefur nýtt sér sónötuformið og eina reglu segir hann þar vera ófrávíkjanlega: að skiptast skuli á hraðir og hægir kafla. Ekki er hægt að segja að Þórey Friðbjömsdóttir fylgi þessari reglu í skáldsögu sinni því kaflarnir eru yfirleitt hægir, og þó að nokkur hraðamunur sé á er vart hægt að segja að skipt- ist á hægt og hratt, aðeins mishægt. Þrískipting sögunnar er hins vegar augljós því sagan gerist á þremur plönum: Fyrsti þátt- ur gerist við kistulagningu þar sem sögumað- ur segir frá kirkjuverði, hugsunum hans og viðbrögðum þegar gömul kona mætir góðri stundu fyrir athöfnina. Annar þáttur er eintöl tveggja radda sem þó virðist vera sama per- sónan ung og aldurhnigin. Þriðji þátturinn segir frá elskendum, Guðrúnu og Kjartani, og er í raun minning Guðrúnar um samband þeirra. Það hefst með barnaleikjum, er inn- siglað með bernskum kossi og þróast yfir í átakamikið ástar- samband. Elskendunum sem ekki fá að njótast er þar líkt við tvö tré sem flétta saman rótum í moldinni, ágætis líking þótt hún minni á líkingu í Tristrans- kvæði. Auðvitað þarf ekki skarp- skyggnan lesanda til að átta sig á að saga þar sem einu nafn- kenndu persónurnar heita Guð- rún og Kjartan hljóti að vera ástarsaga og endi sennilega illa. Ástarsaga er að visu býsna víð- feðmt hugtak. Innan þess rúmast bæði þær lit- skreyttu kiljur sem við blasa í sjoppum, Lax- dæla, Salka Valka og íslenskur aðall, svo fátt eitt sé nefnt. Spegilsónata líkist ekki þeim fyrstnefndu, að sögn sérfræðings mins í þeim ritum, í það minnsta er í sjoppubókmenntum lítið gert af því að nota vísanir í fornsögur, og ekki líkist hún heldur þeim síðamefndu því Spegilsónata gerist i einhvers konar samfé- lagslegu tómarúmi sem ekki verður sagt um þær sögur. Þess utan voru þær nema þá máske Laxdæla skrifaðar af körlum en Speg- ilsónata af konu. Þó er mér til efs að sagan teljist til hreinræktaðra kvennabókmennta en það hugtak er einnig ansi víðfeðmt. Þó er ljóst að þrátt fyrir kvenraddirnar gætir ekki mjög femínískra viðhorfa. Þórey Friðbjörnsdóttir skrifar nokkuð lipr- an, myndrikan en umfram allt ljóðrænan stíl, svo ljóðrænan að mjög hægir á allri fram- vindu sögunnar og endurtekningar eru of tíð- ar í myndmáli. Þá fannst mér öll frásögnin af kistulagningunni ótrúlega smásmyglisleg en þaö kann að stafa af andúð minni á seremon- íum með rotnandi hræ, svo vitnað sé í meist- ara Þórberg. Þess utan fer starfsheitið kirkju- vörður ákaflega illa í mig. i minni sveit nefn- ist sá meðhjálpari og sé ég enga ástæðu til að nota enskuslettu yfir það göfuga starf. En þrátt fyrir ýmsa annmarka er Spegiisónata þokkalega vel uppbyggð saga og athyglisverð sem slík. Geirlaugiu- Magnússon Þórey Friðbjörnsdóttlr: Spegilsónata. JPV FORLAG 2000. Tveir heimar Aðalsteinn Ás- berg er þekktur fyr- ir skemmtileg ævin- týri fyrir börn og nýjasta bókin, Brúin yfír Dimmu, er enn ein rós í hnappagat hans. Þetta ævintýri er óvenjulegt þar sem söguhetjumar eru vöðlungar, æv- intýraverur sem gera sér ferð inn í mannheima. Við kynnumst Kraka, Míriu og Póa sem búa í Stöpli undir Brúarsporði. Brúin liggur yfir ána Dimmu sem aðskilur Mángalíu og mann- heim, eða Myrkland eins og vöðlungar kalla hann. Dagvarður faðir Kraka og Póa er annar tveggja varðmanna brúarinnar. Það þarf að gæta hennar dag og nótt vegna gamals spá- dóms þess efnis „að einn góðan veðurdag myndi ófreskja frá Myrklandi ráðast inn í ríki vöðlunga og leggja þar allt í eyði“. Fyrir undarlega tilviljun kemst Kraki yfir bók sem inniheldur leiðbeiningar um það hvernig komast megi yfir brúna og aftur til baka án þess að mannfólkið verði þess vart. Þetta verður til þess að krakkarnir takast á hendur ferð sem reynist hin mesta svaðilfór. Nálgun höfundar við efni og boðskap er frumleg og athyglis- verð. Það opnar les- anda aðra sýn á mann- lífið að hafa söguhetj- urnar úr annarri vídd og skoða mennina með gests auga ef svo má segja. Til að ýkja þann mun sem er á okkur og þessum ágætu ævintýrahetj- um málar höfundur ansi dökka mynd af mannskepnunni. Mynd sem er þó sann- ferðug að gefnum for- sendum. Mángalía er aftur á móti heillandi heimur. Á okkar mælikvarða er hann gamaldags þar sem vöðlungar eru ekki komnir á okkar tæknistig og hefðbund- in verkaskipting kynj- anna rikir á heimilinu. Vöðlungar eru ekki eins fyrrtir og við. Þeir eru friðelskandi verur sem lifa í sátt við nátt- úruna og hún skipar stóran sess í lífi þeirra, ekki síst tunglið sem heimur þeirra dregur nafn sitt af. Þessi tilraun Aðal- steins til að skemmta les- endum um leið og hann kennir þeim að líta í eig- in barm og velta fyrir sér hlutum eins og fordóm- um og þröngsýni gengur frábærlega upp. Sagan verður aldrei klisju- kennd, fenda hug- myndauðgi: höfundar við brugðið. Ekki skemma heldur dýrt kveðnar vís- umar sem hann virðist kasta fram áreynslu- laust. Bókina prýða ágætar teikningar eftir Halldór Baldursson en teikningar af söguhetjunum hefðu kannski mátt gefa meira svigrúm fyrir ímyndun- arafl lesanda. Kápumynd hans er sérlega vel heppnuð og það hefði verið gaman að sjá upp- drætti í bókinni af Mángalíu og Myrklandi. Oddný Ámadóttir Aöalsteinn Ásberg Slgurösson: Brúln yfir Dimmu. Myndir Halldór Baldursson. MSI og menning 2000. DV-MYND PJETUR Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson Skoöar mannheim frá óvæntu sjónar- horni. Ekki í einu bindi Það var rangt sem sagt var í þessum dálki fyrir skömmu að ævisaga Steins Steinars eftir Gylfa Gröndal væri í einu bindi og vona ég að ekki hafi margir keypt hana bara af þeirri ástæðu. Umsjónarmanni verður að fyrirgefast misskilningurinn því hvergi á hlífðarkápu eða titilblöðum er hægt að sjá að þetta sé fyrsta bindi en þegar hlifð- arkápu er ílett af kemur rómverska talan I í ljós á kili. Aðdáunarvert má heita að ætla sér að skrifa mörg bindi um ævi Steins því ekki er vitað til að hann hafi skrifað neitt hjá sér og varðveitt, engar dagbækur, nær engin bréf - eiginlega ekki neitt annað en ljóð. Vissulega mætti skrifa óteljandi bindi um skáldskap hans en hann er ekki til umræðu i þessari ævisögu, alltént ekki í þessu fyrsta bindi. En margir þekktu Stein og í skorti á upplýsing-. um um skáldið sjálft virðast hér samvisku- samlega sögð æviágrip þeirra allra - auk þess sem bókin heldur til haga á einum stað heil- mörgum skondnum þjóðsögum af skáldinu. íslensku bókmennta- verölaunin Jæja, þá kemur að stóru stundinni í kvöld þegar einvaldurinn tilkynnir um tilnefningar til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ekki er deilt um smekk einnar manneskju; hverj- um og einum leyfist að hafa sínar skoð- anir á bókum - og þá um- sjónarmanni líka. Ef valdið lægi hér yrði valið svona: Draumar á jörðu eftir Einar Má Guð- mundsson, söguleg skáld- saga í sérflokki; Þögnin eft- ir Vig- disi Grímsdóttur, meistara- leg rannsókn á áhrifum geðsjúks einstaklings á um- hverfi sitt; Heimsins heimskasti pabbi eftir Mik- ael Torfason, sársaukafull ævisaga ungs eiginmanns, sonar, föður og úrkasts; Leikur á borði eftir Ragn- heiði Gestsdóttur, næm at- hugun á barni undir miklu álagi; Öll fallegu orðin, tregróf Lindu Vilhjálmsdóttur. Hefði verið hægt að semja um þetta? Hvað segja rýnendur? Allir gagnrýnendur hafa til þessa verið sammála um að lofa Drauma Einars Más og eiginlega óhugsandi annað en hún verði til- nefnd - enda öllum minnisstætt að Englar al- heimsins voru ekki tilnefndir á sínum tima og mun samviskubit vegna þess hvíla í genum bókmenntanefndar að eilífu. (Sú bók fékk hins vegar DV-verðlaunin og ekki í eina skiptið sem sú nefnd hefur verið nösk á það sem skiptir máli - enda ævinlega þrír menn í henni!) Ekki man ég betur en Linda hafi fengið ein- tómt hrós fyrir sína bók og sömuleiðis Ragnheiður Gestsdóttir. Þögnin fékk harðan dóm hjá Kolbrúnu Bergþórsdóttur en lof frá öðrum og Mikael fékk haröan dóm í Mogga en lof annars stað- ar. Meðal bóka sem eindregið lof hafa hlotið og gætu verið nokkuð öruggt val hjá alvaldinum eru Gula húsið, smá- sagnasafn Gyrðis Elías- sonar sem fékk Laxness- verðlaunin í haust, Ert þú Blíðfinnur? eftir Þorvald Þorsteinsson, Fyrirlestur um hamingjuna eftir Guð- rúnu Evu Mínervudóttur og Vetrarmyndin, ljóða- bók Þorsteins frá Hamri. Djarfara væri kannski að velja til dæmis í allri sinni nekt, smásagnasafn Rúnars Helga Vign- issonar, eða Mýrina, spennusögu Arnalds Ind- riðasonar, sem báðar hafa fengið fm um- mæli... Allt verður þetta ljóst í kvöld kl. 19.30 í beinni útsendingu í sjónvarpinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.