Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Síða 30
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 >4 Tilvera DV Reynt aö plata börnin. Hér er Trölli (Jim Carrey) bú- irm aö dressa sig upp sem jólasvein og reynir aö hafa áhrif á börnin Þegar Jim Carey stal jólunum Þegar Trölli stal jól- unum (The Grinch) hefur á aðeins tuttugu dögum náð því afreki að ná inn um 200 milljón dollurum í aðgangseyri í Banda- rikjunum og ljóst er að myndin á eftir að fara í hóp þeirra kvikmynda sem mesta aðsókn hafa fengið frá upphafi. Myndin er gerð eftir klassískri barnasögu, How the Grinch Stole Christmas eftir Dr. Seuss, og hefur hún komið út á íslensku undir nafninu Þeg- ar Trölli stal jólun- um. Þessi vin- sæla saga hefur heillað börn alla tíð síðan og þykir sjálf- sögð lesning í jólaamstrinu. Dr Seuss, sem heitir fullu nafni Theodor S. Geisel, hafði hvað eftir annað neitað Hollywood um að fá að kvikmynda einhverja af bókum hans og það var ekki fyrr en nú að ekkja hans, Audrey Geisel, lét und- an þrábeiðni framleiðandans Brians Grazers (Apollo 13, The Nutty Pro- fessor, Liar, Liar) að leyfi fékkst. Þegar Grazier var svo búinn að fá leyfið leitaði hann til tveggja fyrr- um samstarfsmanna, Leikarans Jim Carreys og leikstjórans Rons Howards, til að fullkomna verkið. Og hver er betri en Jim Carrey til að leika þann útsmogna og skap- vonda persónuleika Trölla en Jim Carrey sem virðist geta allt þegar kemur að þvi að taka fettur og brett- ur enda finnur hann sig vel i hlut- verkinu og hefur lagt á sig að vera í langan tíma á hverjum degi í um- sjón förðunardeildarinnar og víst er að hann á stóran þátt í vinsældum kvikmyndarinnar. Aðrir leikarar í myndinni eru Jeífrey Tambor, Christine Bar- anski, BiU Irwin, MoUy Shannon og Taylor Momsen. AUt frekar óþekkt- ir leikarar. Sögumaður er aftur á móti í sama Uokki og Jim Carrey. Anthony Hopkins sér um að leiða áhorfendur um söguslóðirnar. Ron Howard, sem er fyrrum barna- stjama í kvikmyndum, er einn eftir- sóttasti leikstjórinn í HoUywood. Hann á að baki margar vinsælar kvikmyndir, má þar nefna ApoUo 13, Cocoon, Splash, Backdraft og Ransom. The Grinch verður frum- sýnd á morgun. -HK Trölll. Jim Carrey viröist kunna vet viö sig í gervi Trölla sem er illa viö jólin. Dancer in the Dark ★★★★ Dancer in the Dark er há- melódramatísk sápuópera, gerð af hjartans einlægni og miklu næmi - en um leið læðist stöðugt að manni sá grunur að Von Trier sé að skemmta sér við að hafa áhorfand- ann að fífli. -ÁS Snaicft ★★★ Snatch er fyndin, hröð og per- sónur fjölbreyttar og skrautlegar. Ef áhorfendur geta liðið ofbeldið, sem er mikið og gróft, þá er Snatch frábær skemmtun með sterkum höfundarein- kennum leikstjórans Guy Ritchies. Stíll Ritchies gerir út á hraða, stutt samtöl, ofbeldi og margar persónur sem fá að mestu leyti jafnmikið pláss í myndinni. Þetta tekst honum af snUld, sérstaklega þegar að þvi er gáð að handritið er innantómt. -HK Den eneste ene Den eneste Ene ★★★ Den eneste Ene er bæði ósköp dönsk og alls ekki. Það má eiginlega segja að þetta sé róman- tisk gamanmynd af amerískri sort sem flutt hefur verið til Danmerkur: einfeldningsleg trú á ástina, árang- urslaus framvinda sögunnar, ham- ingjusamur endir og feel-good-andi sem svífur yfir vötnunum. Persón- umar eru hins vegar danskar og samfélagið skandinavískt. Það að þessi blanda skuli ganga upp gerir Den eneste Ene nokkuð merkUega mynd. -GSE Nurse Betty ★ ★★ í Nurse Betty er flest vel gert. Það er helst að frásagnarmátinn verður flatur og áhorfandinn fær það á tilflnninguna að sagan hafi ekki snert við sögumanninum. Á móti kemur að persónurnar em snyrtilega frágengnar af höfundum og leikurum. Morgan Freeman er traustur að vanda, Chris Rock hefur ekki í ann- an tíma verið betri, Greg Kinnear er hégómlegur og sjálfupptekinn sem leikari í sápuóperu og Renée ZeUweger fer vel með hlutverk góð- mennskunnar sjálfrar. -GSE Kjúklingafióttinn ★★★ Það sem gerir teiknimyndir góðar er það sama og gerir aðrar kvikmyndir góðar: gott handrit, góð myndræn útfærsla og góður leikur. Slík mynd er Kjúklingaflóttinn (Chicken Run) sem ber nokkurn ferskleika með sér í flóru teikni- mynda þar sem vel hefur heppnast að blanda saman brúðum og teikni- myndum. Mynd sem öU fjölskyldan getur sameinast um. -HK 101 Reykjavik ★★★ Hilmir Snær leikur auðnuleys- ingjann Hlyn sem lifir og hrærist í hverfi 101 Reykjavík. Lif hans er í fóstum skorðum þar tU vinkona móð- ur hans kemur í heimsókn og úr verður einhver sérkennUegasti ástar- þríhyrningur íslenskrar kvikmynda- sögu. Fjörug mynd sem býr þó yfir þungri og alvarlegri undiröldu. -BÆN Átök í undirheimum Lundúna Bretar eru duglegir við að fram- leiða gæðamyndir sem segja frá lífi undirheimalýðsins í London. Síð- asta dæmið er hin ágæta Snatch sem sýnd er í kvikmyndahúsum þessa dagana. Ein slík er Love, Honour and Obey sem tekin verður tU sýningar í Háskólabíói á morgun. Þetta er spennumynd með dökkum húmor þar sem fylgst er með hópi krimma í Norður-London, glæpa- mennsku þeirra, fjölskyldum, vin- um og ástriðu þeirra á karaoke. Að- alpersónan er Jonny, sem hundleið- ist í starfí sínu sem sendUl. í gegn- um besta vin sinn Jude, sem er frændi Rays, eins alræmdasta glæpaforingja í London, fær hann inngöngu í harðsvíraðan glæpa- flokk Rays sem starfar í Norður- London. Jonny hungrar í almenni- legan hasar og verður þess valdandi að stríðsástand myndast á milli tveggja voldugra glæpaflokka. Vinir og skúrkar Jonny Lee Miller og Jude Law í hlutverkum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.