Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2000, Page 33
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 2000 37 Datek á íslandi • Smiðjuvegur 50 • 520 3100 Notið þægindin Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni. 131 Bílastæðasjóður : Tilvera DV Fjölnotavélin Jolly sem býður upp á marga möguleika. Eigum fyrirliggjandi vélar, einnig hús og fylgihluti. Snorri og Karó Hundurinn er eöalborinn og meö langa ættarskrá en hann lætur þaö ekki aftra sér í því aö hlaupa um allt og atast í hrossunum. Mættur klukkan átta um helgar „Ég reyni að vera í hesthúsinu eins mikið og ég get og um helgar er ég kominn hingað upp úr klukkan átta og er fram á dag. Ég byrja á því að gefa og bera undir hestana svo hleypir maður út og ríður út ef veð- ur leyfir. Við tökum hrossin yfir- leitt inn rétt fyrir jól og íorum með þau austur í Biskupstungur í byrj- un júní. Það er reyndar alveg hægt að stunda hestamennsku í Reykjavík á sumrin þvi aðstaðan er alveg frá- bær, það eru bara allt of fáir sem notfæra sér hana.“ Kip SiCfu-rskart, nýjar gerðir. CfrdSært verð. ' V M Sendum í póstkjöfu. r\/ j Ján Sigmunikssan Laugavegi 5, sími 551 3383 Ekki allir keppnismenn „Mig langar að koma því á fram- færi að ég fór ekki út í framboð vegna neinnar óvildar við fráfarandi stjórn, þetta eru allt kunningjar mínir og Fáksmenn. En það fer náttúrlega eng- inn út í formannskjör nema hann vilji breyta einhverju. Ég er staðráðinn í leggja áherslu á ferðamálin og beita mér í reiðvega- málum. Það er mikil áhugi á hesta- ferðum hjá hinum almenna félags- manni og ég vil auka vægi þeirra en mótin eru að sjálfsögðu fastur liður í starfseminni. Þegar mótin eru orðin eins stór og hjá okkur eru gerðar miklar kröfur til mótssvæðanna og kostnaðurinn er gífurlegur. Fáksmótin eru bæði stór og dýr, þetta eru hreinlega eins og fjórðungsmót og það fer allt of mikil vinna í þau. Mótin vekja litla athygli og það fylgjast of fáir með þeim. Það er fullt af fólki innan félagsins sem vill mikið fremur ríða út en vera á mótum - við erum ekki allir keppn- ismenn. Félag eins og Fákur þarf að sinna öllum félagsmönnum sínum en ekki bara fámennum hópi. Það eru mörg vandamál í gangi í sambandi við reiðvegina. Við vitum ekkert hvað verður um vegina eftir að nýju íbúðahverfín í Kópavogi og Grafarvogi eru risin. Það er mjög þrengt að okkur í Víðidal og við verð- um fljótlega að fara að huga að nýju svæði, okkur líst vel á Norðlingaholt- ið og ég mun að sjálfsögðu beita mér í því máli.“ Öll fjölskyldan í þessu „Fjölskyldan er öll á kafi í hesta- mennsku og við eigum fimmtán hross. Við reynum að ríða út eins oft og við getum og erum í þessu af heilum hug. Ég er hestamaður af lífl og sál, mér fínnst gaman að um- gangast hestana og hugsa um þá, ég gef sjálfur, járna og tem. Ég er bindindismað- ur og kem ekki hingað til að skvetta í mig. Fjölskyldan á sumaraðstöðu austur í Biskups- tungum, við erum þar mikið á sumrin og heyj- um fyrir hrossin. Börnin okkar hafa svolítið ver- ið að keppa á mótum en hvoki ég né konan höf- um gert það. Við erum bæði frem- ur hlédræg og þetta er eitthvað sem við höfum bitið i okkur.“ Er í hesthúsinu eins mikið og eg get Hundurinn Karó, Snorri B. Ingason, formaöur Fáks, ónefndur hestur og María Rasmusdóttir tamningamaöur. Fyrirsætan með lungnaþembu Fyrirsætan Christy Turlington upplýsti fyrir helgi að hún hefði greinst með lungnaþembu á byrjun- arstigi. Christy Sagði í viðtali við breska blaðið Times að sjúkdómur- inn hefði greinst þegar hún lét taka af sér lungnamynd til að vekja al- menning til vitundar um nýja tækni. Christy hætti að reykja fyrir fimm árum en svo virðist sem skaðinn hafi . verið skeður, enda byrjaði hún 13 ára að púa og reykti pakka á dag 16 ára. Frá því faðir hennar lést úr lungnakrabba hefur hún barist ötullega gegn tóbaks- reykingum. Sá orðrómur gengur nú íjöllunum hærra vestur í Am- eríku að kvikmyndaleikkon- an Anne Heche sé ófrisk. Anne er sennilega frægust fyrir ástarsamband sitt við sjónvarpsleikkonuna Ellen DeGeneres, samband sem nú er búið. Umboðsmaður Anne hefur ekki undan að bera óléttusögumar til baka og segir ástæðumar fyrir aðeins meira holdi á maga hennar einungis vera þær að hann, umboðsmaðurinn, hafi skipað ungfrúnni að fita sig aðeins. Alkunna er jú að Anne Heche var hálfgerð hor- rengla. Óléttuorðrómurinn fór fyrst á kreik fyrir nærri tveimur mánuðum. Þá fyrst lagði Anne í að sýna sig opinberlega með karlmanninum sem stakk und- an Ellen DeGeneres. Sá heitir Coley Laffoon og er kvikmyndatöku- maður. Hann vann með þeim stöllum á vinnuferðalagi þeirra um Bandarík- in i sumar. Orðrómur um að Heche sé ófrísk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.