Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
37
Sport dv
Michael von Griinigen frá Sviss
vann í gær stórsvigskeppni í Val
d’Isére í Frakklandi. Fyrir keppnina
leiddi Hermann Maier frá Austur-
ríki stigakeppni stórsvigsins en þar
sem honum var vísað úr keppni áð-
ur en hún hófst hefur von Grúnigen
nú tekið forystu. Maier hefur einnig
verið meinað að taka þátt í næstu
stórsvigskeppninni í heimsbikam-
um.
Þá fóru um helgina einnig fram
tvö brunmót kvenna, bæði í St.
Moritz í Sviss. Liðskonur austur-
riska liösins voru drjúgar að hala
inn verðlaunapeningana en á laug-
ardag vann Brigitte Obermoser og
stalla hennar Renate Götschl vann
daginn eftir. Sú síðarnefnda hlaut
einnig silfur á laugardag.
Þá kepptu karlarnir einnig í
bruni á laugardag, í Val d’Isére og
röðuðu þrír menn frá sama landi
sér á verðlaunapallinn eins og ger-
ist af og til - en í þetta sinn voru sig-
urvegaramir frá Ítalíu, ekki frá ná-
grannaþjóðinni Austurríki sem hef-
ur oftast séð um að útvega verð-
launahafa.
Alessandri Fattori hlaut sigur-
launin og Kristina Ghedina varð
annar en hann hefur undanfarið
verið að ná sér af meiðslum. Ghed-
ina var helsti keppinautur Her-
manns Maiers í bruni á síðasta
tímabili og ljóst að hann er allur að
koma til.
Hermann Maier var dæmdur úr
leik í gærmorgun áður en keppni í
stórsvigi hófst. Keppendum er leyft
að æfa í brautinni fyrir keppni en
þó eru sett tímamörk svo að starfs-
menn geti unnið í brautinni og gert
hana keppnishæfa. Maier var of
lengi í brekkunni og braut því þess-
ar reglur og var þar með vikið úr
keppni.
Maier brást hinn versti viö
þessum fregnum og þaut niður
keppnisbrekkuna eins og um sjálft
ólympíugullið væru að keppa. FIS,
alþjóðlega skíöasambandið, íhugar
nú að kæra Maier fyrir að stefna
þeim starfsmönnum keppninnar
sem voru í brekkunni i lifshættu
með atferli sínu. í kjölfarið var
honum einnig meinað aö taka þátt í
næstu stórsvigskeppni, í Bormio á
Ítalíu á fimmtudag.
Von Grúnigen hefur því með
sigrinum tekið forystu i stigakeppni
stórsvigsins en Maier var með flest
stig fyrir keppni. Annar varð Heinz
Schilchegger frá Austurríki en
hann var fljótastur niður brekkuna
í fyrri umferð keppninnar. -esá
Úrslit:
Karlar:
Brun, Val d’Isére:
1. A. Fattori, Ítalíu ............1:52,25
2. K. Ghedina, ttalíu .......1:52,57
3. R. Fischnaller, ttalíu......1:52,66
4. Bruno Kernan, Sviss.........1:52,72
5. Werner Franz, Austurr. . . . 1:52,81
Heildarstaða bruns:
1. S. Eberharter, Austurr. . . 240 stig
2. Hermann Maier, Austurr. 231 stig
3. Lasse Kjus, Noregi.......140 stig
Stórsvig, Val d’Isére:
1. M. Von Grúnigen, Sviss ... 2:31,33
2. H. Schilchegger, Austurr. . 2:31,92
3. Bode Miller, BNA ..............2:31,98
4. Frederic Covili, Frakkl. . . . 2:32,35
5. A. Schifferer, Austurr.......2:32,37
Heildarstaða stórsvigs:
1. M. Von Grunigen, Sviss . . 300 stig
2. Hermann Maier, Austurr. 260 stig
3. H. Schilchegger, Austurr. 212 stig
Samanlögð heildarstaða:
1. Hermann Maier, Austurr. 631 stig
2. S. Eberharter, Austurr. . . 409 stig
2. Lasse Kjus, Noregi...... 409 stig
4. M. von Grúnigen, Sviss . 342 stig
5. A. Schifferer, Austurr. ... 333 stig
Konur:
Brun, St. Moritz (laugardagur):
1. B. Obermoser, Austurr, . . . 1:38,68
2. Renate Götschl, Austurr. . . 1:39,03
3. Emily Brydon, Kanada . . . 1:39,11
4. M. Dorfmeister, Austurr. . . 1:39,15
5. A. Meissnitzer, Austurr. . . 1:39,16
Brun, St. Moritz (sunnudagur):
1. Renate Götschl, Austurr. . . 1:36,49
2. Isolde Kostner, ttalíu...1:36,59
3. R. Cavagnoud, Frakkl.....1:37,13
4. B. Obermoser, Austurr. . . . 1:37,27
5. Carole Montiilet, Frakkl. . . 1:37,32
Heildarstaða bruns:
1. Isolde Kostner, Ítalíu .... 296 stig
2. Renate Götschl, Austurr. . 253 stig
3. B. Obermoser, Austurr. . . 211 stig
Samanlögð heildarstaða:
1. Martina Erú, Þýskalandi . 560 stig
2. Régine Cavagnoud, Frakkl. 509 stig
3. M. Dorfmeister, Austurr. . 478 stig
4. Renate Götschl, Austurr. . 439 stig
5. Isolde Kostner, Ítalíu .... 410 stig
Michael Von Grúnigen fagnar hér
sigri i stórsvigskeppninni í Val
d’lsére í gær og á innfelldu
myndinni er austurríska skíöakonan
Renate Götschl að skíöa til sigurs í
keppni í bruni í St. Moritz í Sviss.
Reuters
Franska skíöakon-
an Melanie Suchet
datt ansi illa í
skíöabrekkum St.
Moritz í Sviss í
gær en þar fór
fram brun kvenna
í heimsbikar-
keppninni. Stööva
þurfti keppni í 15
mínútur en í Ijós
kom síöar aö
Suchet haföi slitiö
liöbönd í vinstra
hné. Reuters
Það sem koma skal?
Náttúran og laxveiðiárnar
eiga undir högg að sækja, það
vita allir sem hafa fylgst meö
síðustu vikumar og árin. Fisk-
eldið vill meira og meira pláss,
fleiri og fleiri laxar eiga eftir aö
sleppa úr kvíaeldinu sem að öll-
um líkindum verður sett upp
víða um land.
Verður reyndar fróðlegt að
fygjast meö hvað veiðimálastjóri
gerir með leyfið til þeirra sem
ætla að stofna kvíaeldi út um all-
ar jarðir. Er veiðimálastjóri ekki
maður sem á að standa vörð um
íslenska laxastofna? Ef ekki
veiðistjóri, hver þá?
En það er fleira sem steðjar að
laxveiðiánum eins og í Elliöaán-
um sem hafa verið í bullandi
vandamálum í nokkrun tíma og
nýjasta nýtt er Leirvogsáin. Þar
kallar formaður veiðifélagsins á
hjálp til að koma klóakmálunum
í lag svo að laxarnir þurfi ekki
að mæta skít og drullu næstu
árin.
Byggðin þrengir að Korpu og
það verður að gæta þess að ekki
fari illa.
Við Elliðavatnið, þar sem
þúsundir silungsveiði-
manna eiga sínar
góðu stundir, á að
byggja og byggja. ___________
Af þessu hafa
veiðimenn sem
stunda vatnið
miklar áhyggjur.
Elliðavatnið hef-
ur veriö kallað ----------
háskóli veiði-
mannsins og það er
ekki lygi. Silungurinn
í vatninu er vænn og
Veiðiljós
Gunnar Bender
skemmtilegur á færi.
Hætturnar verða
alltaf til staðar og
það er fast sótt að
________ þessum náttúru-
perlum sem við
eigum. Við
verðum að
standa vörð um
þessar perlur, ef
við gerum það
ekki, hver gerir
það þá?
Fluguveiðimaður-
Valgeir Skagfjörð
skrifar grein um villtan eldislax
fyrir nokkrum dögum í Morgun-
blaðið, grein hans var fróðleg
og holl lesning. Það sem Valgeir
segir um framtiðina og hvernig
við förum í hringi í ruglinu er
hlutur sem veröur jafnvel stað-
reynd eftir nokkur ár.
Þá verður ekki aftur snúið
með eldisárnar og villta eldislax-
inn sem enginn nennir að veiða.
Við viljum veiða okkar náttúru-
lega lax.
-G. Bender
■±-