Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Page 15
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 39 I>V Sport - Örn Arnarson vann sitt annað gull með því að setja Evrópumet fyrstur íslenskra sundmanna Örn Arnarson, 19 ára sundmaður úr Hafnarfirði kórónaði frábært ár með því að vinna sitt annað Evr- ópugull á fjórum dögum í 100 metra baksundi og setja um leið Evrópumet fyrstur íslenskra sundmanna. Örn sigraði í 100 metra sundinu eftir mikla keppni við Króatann Gor- dan Kulzulj og Darius Grigalionis frá Litháen. Líkt og vanalega synti Örn úthugsað sund og var sterkastur af þeim í lokin og kom í mark á 52,28 sekúndum Örn stendur uppi eftir þetta Evr- ópumót með besta árangur íslensk sundmanns frá upphafi. Hann stakk sér átta sinnum til sunds á mótinu í Valenciu á Spáni á fjórum dögum, setti sex íslandsmet, tvö Norður- landamet og eitt Evrópumet og vann alls þrenn verðlaun, tvö gull og eitt silfur. Fimm guli á þremur árum Á síðustu þremur mótum hefur Örn alltaf bætt sig og bætt við verð- launum og hefur nú alls unnið fimm Evrópugull á þremur árum. Auk þess að verða fyrsti íslendingurinn tU að verja Evrópugull tvö ár í röð gerði Örn, annar fremstur á myndinni hér að ofan, vann sín fyrstu Evrópuverðlaun í 200 metra baksundi í Sheffield í Englandi 12. desember 1998 þegar hann vann gull. Örn enn betur með þvi að verja tvö gull á sama mótinu. Það er orðið erfitt að finna lýsing- arorð tU að lýsa þessari frábæru frammistöðu sem gerir Öm einn af allra mestu iþróttamönnum íslands frá upphafi og strákur er enn þá á táningsaldri. Ekki má heldur gleyma því að þetta er annar toppur Amar á árinu því í lok september náði hann besta árangri íslensks sundmanns á Ólympíuleikum með því að verða íjórði í 200 metra baksundi. Tími Arnar var 52,28 sekúndur sem er eins og áður sagði nýtt glæsi- legt Evrópumet og þar með bæði ís- lands- og Norðurlandamet líka. Ann- ar í sundinu varð Gordan Kozulj frá Króatíu, en hann synti á nákvæm- lega sama tíma og hann gerði í und- anúrslitunum í fyrradag, 52,59 sek- úndum þegar hann kom rétt á undan Emi. Annar í 50 metrunum Örn vann til sigurverðlauna í 50 metra baksundi á fóstudaginn þegar hann synti á 24,81 sekúndum en úr- slitasundið var geysilega jafnt þar sem aðeins 74/100 úr sek. skildu að sigurvegarann og 8. sætið. Örn synti mjög vel og varð annar i sundinu, flestum á óvart, synti á 24,81 sek. eða A 2/100 úr sek. hægar en í undanúrslit- unum þegar hann setti íslandsmet á 24,79 sekúndum. Úrslitin í 50 m sund- inu sýna það að Örn er orðinn sterk- ari og hefur því meiri hraða. Fram- farir um 66/100 úr sek. á 50 m vega- lend eru ótrúleg bæting. „Mér líður mjög vel, ég get nú ekki verið annað en sáttur við árangurinn á þessu móti. Ég ætlaði mér að vinna 100 m og 200 m baksundskeppnirnar og svo hafði ég ekki hugmynd um hvað ég ætlaði að gera i 50 m sund- inu. Evrópumetið i 100 m baksundi er auðvitað mjög góður bónus og get ég ekkert kvartað undan því. Það gekk einfaldlega allt upp.“ Betri á næsta ári » - Hverjum augum lítur þú keppnis- árid sem er aö líóa? „Ég held að allir geti verið sam- mála um það að þetta hafi verið besta árið mitt hingað til. Ég ætla bara að reyna að halda áfram að bæta mig og verða betri á næsta ári.“ -Hvaö tekur vió hjá þér núna? „Ég tek núna smáfrí og í janúar fer undirbúningurinn fyrir heimsmeist- aramótið í Japan næsta sumar á full- an skrið. Á meira inni í 50 m lauginni - Hvernig ertu búinn undir keppni * í 50 m laug? „Mjög vel, mér líst einkar vel á það allt. Ég hef tekið miklum framfórum í 50 m lauginni og nú er bara að bíða og sjá hvað maður getur þar næsta sumar. Ef ég held áfram að æfa eins og ég hef gert að undanfórnu ætti ég að eiga eitthvað þar inni,“ sagði Örn í samtali við DV eftir sundið. ’*• -ÓÓJ/esá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.