Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Síða 4
FIMMTUDAGUR 4. JANUAR 2001
Fréttir
I>V
Geðveikur maður hættulegur konum:
Hefur ráðist á fjölda kvenna
Það fór um þær Mörtu Maríu Jón-
asdóttur og Sigurrós Jóhannsdóttur
þegar þær lásu í blöðunum um árás
manns á unga konu í skiptistöðinni
í Mjódd í síðasta mánuði.
„Þessi sami maður hafði ráðist á
mig þremur vikum áður,“ sagði Sig-
urrós, en Marta María varð fyrir
árás hans fyrir rúmu ári siðan.
Maðurinn er 28 ára gamall og á við
alvarleg andleg veikindi að stríða.
Hann á langa sögu að baki af árás-
um á konur sem hann þekkir lítið
eða ekkert en yfirvöld virðast
gera fátt í hans mál-
um. Bæði Sigurrós
og Marta María
könnuðust við mann-
inn sem viöskiptavin
þeirra fyrirtækja sem
þær unnu hjá og vissu
að hann átti við veik-
indi að stríða en þekktu
hann að öðru leyti ekk-
ert. Báðar kærðu árás-
irnar á hendur sér en
tóku það fram að með
kærum sínum vildu þær
ekki láta loka manninn
inni í fangelsi, heldur
vekja athygli á vandamál-
um hans og þeirri hættu
sem hann skapar konum.
„Ég veit hann hefur verið
inni á geðdeild og það er eini
staðurinn þar sem hann á að
vera. Hann er náttúrlega bara
hættulegur samfélaginu,"
sagði Marta María. Sigurrós
bætti við: „Hvorug okkar er að
gera þetta því við viljum að
þessi maður fari í fangelsi en
það verður að fara að gera eitt-
hvað.“
Marta María og Sigurrós vita
einnig um fleiri konur sem maður-
inn hefur beitt ofbeldi á einn eða
annan hátt.
Arásin á Sigurrós
Sigurrós var að vinna í bókabúð
skömmu fyrir jólin þegar maðurinn
kom inn og réöst á hana. Hann
greip í hárið á henni, dró hana um
búðina sem var full af fólki og hót-
aði því að drepa hana.
„Hann byrjaði að öskra á mig að
ég væri helvítis tík og ætti það skil-
ið að vera myrt og sagði bara öll ljót
orð sem til eru um konur,“ sagði
Sigurrós. „Það frusu allir,“ bætti
hún við.
Sigurrós barðist um og reyndi að
losna og ein kona sem stóð nálægt
reyndi að hjálpa henni. Sigurrós
tókst að lokum að losa tak manns-
ins á sér og kallað var á lögreglu.
Orðaskipti áttu sér stað á milli
þeirra tveggja sem enduðu á því að
maðurinn fór hlæjandi út úr búð-
inni skömmu áður en lögreglan
mætti á staðinn.
„Hann sagði áður en hann fór:
„Ég þarf ekkert að passa mig, það
ert þú sem þarft að passa þig þvi þú
verður myrt,“ sagði Sigurrós.
Hún kærði málið til
lög-
DV-MYNDIR INGÓ
Vilja að eitthvaö verði gert
Sami maðurinn hefur ráðist á þær Mörtu Maríu Jónasdóttur og Sigurrós Jóhannsdóttur sem er hér á myndinni fyrir
ofan. Þær kærðu báðar árásirnar til lögreglu en lítið viröist vera gert í máium mannsins. Hann á við andleg veikindi
að stríða og vilja konurnar að tekið verði á vandamálum mannsins því hann hefur ráðist á fjölda kvenna.
Greín
sem
fyrir jó' um
eina konun£-
áras
mannsins_
reglu en þar
sem henni var ekki bent á að
sækja sér áverkavottorð frá lækni
er kæra hennar byggð á vitnisburði
þeirra fjölda vitna sem voru að at-
burðinum. Þegar maðurinn réðst á
stúlkuna í Mjódd, þremur vikum
eftir árás hans á Sigurrós, hafði
hann ekki verið kallaður í viðtal hjá
lögreglu vegna kærunnar.
„Ef hann ræðst á konu og mánuð-
ur líður án þess að við hann sé rætt
vegna málsins þá heldur hann í sín-
um veika huga að það sé allt í lagi
að gera svona,“ sagði Sigurrós.
Árásin á Mörtu Maríu
Marta María Jónasdóttir varð
einnig fyrir árás af hendi mannsins.
Hún var að vinna á veitingastað í
miðbæ Reykjavikur I september
1999 og sagði manninn hafa verið
tíðan gest á staðnum.
„Hann var farinn að
vera mjög dónalegur,
vaða inn í eldhús og fleira, og
ég var sú eina sem var eitthvað að
rexa í honum og reyna að banna
honum þetta. Þá varð honum illa
við mig,“ sagði Marta María. Einn
Sér eftir að hafa dregið kæruna til baka
Hinn geðsjúki maður réðst á Mörtu Maríu Jónasdóttur þar sem hún var viö
vinnu á veitingastaö. Hún kærði en dró kæruna til baka enda taldi hún aö
maöurinn hefði verið lagður inn.
laugardaginn var hún að vaska upp
hnífapör þegar maðurinn kom inn,
vatt sér að henni og réðst á hana
þar sem hún stóð við vaskinn.
„Hann ýtti höfðinu á mér ofan í
hnífapörin og það var mikil mildi
að bæði eigandinn og kokkurinn
voru þarna inni,“ sagði Marta Mar-
ía. Það fólk greip inn í atburðarás-
ina og lögregla var kölluð til en
maðurinn hafði þá flúið af vett-
vangi.
Marta María hélt áfram að vinna
eins og ekkert hefði í skorist en
seinna um daginn brotnaði hún
saman og leitaði læknis á slysavarð-
stofunni þar sem hún fékk áverka-
vottorð. Á mánudeginum kærði hún
manninn svo fyrir líkamsárás og
honum var meinaður aðgangur að
veitingahúsinu eftir þennan atburð.
Hálfu ári síðar var hringt í Mörtu
Maríu og hún spurð hvort hún vildi
halda áfram með kæruna.
„Þá var ég alveg búin að jafna mig
og hélt það væri búið að leggja hann
inn svo ég hætti við en ég sé eftir því
núna,“ sagði Marta María.
-SMK
Veðríð í kvöld
Sólargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.51 15.15
Sólarupprás á morgun 11.14 11.22
Síðdegisflóö 13.29 18.02
Árdeglsflóó á morgun 02.10 18.43
Skýringar á veðurtáknum
10V-HITI
immsm
Afram kalt á landinu
Noröan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s og
él norðan- og austanlands, einkum úti viö
sjóinn, en léttskýjað suövestan til. Frost 0 til
12 stig, kaldast í uppsveitum suðvestanlands.
-10°
NviNÐSTYRKUR I metrum á Mköndu ^FROST HEIÐSKÍRT
O O
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF* SKÝJAO SKÝJAÐ AISKÝJAÐ
w W Q
RIGNÍNG SKÚRIR SLYODA SNJÓKÖMA
Q F
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA
Léttskýjað suðvestanlands
Á morgun verður norðan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s og él norðan-
og austanlands, einkum úti við sjóinn, en léttskýjað suðvestan til. Frost 0
til 12 stig, kaldast í uppsveitum suðvestanlands.
Færðin á landinu
Upplýsingar um færö á vegum er hægt
að fá á heimasíöu Vegagerðarinnar
sem er www.vegag.is. Einnig er hægt
aö fá upplýsingar í síma 1777.
Laugardagur
Vindur:
8-13 m/%
Hlti 0° til -5°
Norðaustan 8-13 m/s og
él norðan- og austanlands,
en hægarl og skýjað með
köflum suðvestan tll. Frost
viða 0 til 5 stlg en frost-
laust vlð austurströndlna.
SunnudagixjT
Vindur. /Z’
5-8 m/%
:©
Hiti 0° til -5° * Vo
Noröaustiæg átt, S-8 m/s
og él víöa um iand. Hiti
veröur kringum frostmark
á láglendi.
Vindur: /■r'
5-8 m/s
Hiti 0° til -5
,o
Breytlleg átt og él eða
dálítll snjókoma um land
allt. Fremur kalt í veðri.
1 Veðriö kl. 6
AKUREYRI snjóél -5
BERGSSTAÐIR léttskýjað -6
BOLUNGARVÍK snjóél -4
EGILSSTAÐIR -4
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -4
KEFLAVÍK léttskýjaö -5
RAUFARHÖFN alskýjað -3
REYKJAVÍK heiðskírt -10
STÓRHÖFÐI léttskýjað -3
BERGEN skúrir 5
HELSINKI snjókoma 0
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 3
ÓSLÓ þoka 0
STOKKHÓLMUR sandbylur 2
ÞÓRSHÖFN rigning 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 5
ALGARVE alskýjaö 15
AMSTERDAM rigning 7
BARCELONA léttskýjaö 10
BERLÍN léttskýjað 0
CHICAGO alskýjað -2
DUBLIN skýjaö 3
HALIFAX snjóél -7
FRANKFURT skýjaö 2
HAMBORG rigning 2
JAN MAYEN snjóél -8
LONDON alskýjaö 10
LÚXEMBORG skúr á síö. kls. 4
MALLORCA skýjaö 13
MONTREAL -3
NARSSARSSUAQ alskýjaö 5
NEWYORK skýjaö -3
ORLANDO alskýjaö 7
PARÍS alskýjaö 8
VÍN þokumóöa -3
WASHINGTON skýjaö -7
WINNIPEG heiöskírt —6
■Wrl.tMlliiilim'lillg.W.tmj.ill.L-H.lillHW