Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
DV
Útlönd
Heimsókn í fangelsiö
Danielle og Gilbert Mitterrand heim-
sækja Jean-Christophe, son sinn og
bróöur, í fangelsið í París.
Mitterrand situr
áfram í fangelsi
Jean-Christophe Mitterrand, son-
ur fyrrum Frakklandsforseta, sem
hefur veriö sakaður um ólöglegt
vopnabrask, neitaði í gær að reiða
fram sextíu milljóna króna trygg-
ingafé svo hann gæti losnað úr
gæsluvarðhaldi.
Lögmenn Mitterrands sögðu að
hann ætti ekki fyrir tryggingafénu
og bróðir hans sagði að hann hefði
hafnað aðstoð vina sinna til að mót-
mæla framferði rannsóknardómar-
ans Philippes Courroyes. Dómarinn
hefur verið sakaður um að hafa
brotið reglur við meðferð málsins.
Mitterrand er grunaður um að
eiga aöild að vopnabraski og fjár-
drætti í tengslum við sölu rúss-
neskra vopna til Angóla snemma á
tíunda áratugnum.
Stoltenberg seg-
ir stór vatnsorku-
ver liðna tíð
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, lýsti því yfir í
nýársávarpi sínu til þjóðarinnar að
tími stóru vatnsorkuveranna væri
liðinn. Hann blés af þrjár fyrirhug-
aðar og umdeildar virkjanir í þjóð-
garði sunnan við Bodö í Norður-
Noregi sem norska Stórþingið hafði
samþykkt að yrðu reistar.
„Ég veit að þetta er ákvörðun sem
á eftir að valda deilum. En ávinn-
ingurinn af þessum mannvirkjum
er ekki nógu mikill til að réttlæta
óafturkræf náttúruspjöll," sagði
Stoltenberg.
Breið samstaða er um að stjórnin
hafl ekki átt annarra kosta völ.
Katherine Harris
Umdeildur innanríkisráöherra Flórída
fær víst ekki gott starfhjá Bush.
Harris á ekki von
á feitu embætti
Samstarfsmenn Georges W. Bush,
verðandi forseta Bandaríkjanna,
vísuðu í gær á bug fréttum um að
Katherine Harris, innanríkisráð-
herra Flórída, yrði boðið mikilvægt
embætti í stjórn nýja forsetans.
Harris var mjög umdeild vegna
framgöngu sinnar í kosningaklúðr-
inu í Flórída þar sem hún þótti hafa
sett of þröng tímamörk fyrir endur-
talningu til aö tryggja Bush sigur-
inn. „Þetta eru nýjar fréttir fyrir
okkur,“ sagði talskona Bush.
Sendimenn ísraela og Palestínumanna til Washington:
EamBia
Bill Clinton gefur
ekki upp alla von
Sendifulltrúar ísraela og Palest-
ínumanna munu væntanlegir til
Washington innan skamms til að
reyna að binda enda á margra mán-
aða átök fyrir botni Miðjarðarhafs-
ins.
Deilendur létu þó í ljós efasemdir
í gær um að einhverra stórtíðinda
væri að vænta af friðarviðræðunum
næstu daga.
Embættismenn í Hvíta húsinu
staðfestu að ísraelskur samninga-
maður væri væntanlegur til Was-
hington í vikunni. Á skrifstofu
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
ísraels, var tilkynnt að sett yrði á
laggirnar nefnd með fulltrúum
Bandaríkjanna, ísraels og Palestínu-
manna og væri henni ætlað að
reyna að koma í veg fyrir hryðju-
verk.
Vestrænn stjómarerindreki sagði
að samningamaður Palestínumanna
myndi væntanlega koma til Was-
hington í næstu viku, þótt ekki yrðu
Clinton gefst ekki upp
Bill Clinton Bandaríkjaforseti er nú í
miklu kapphlaupi viö tímann. Honum
er mjög í mun aö samkomulag um
fríö i Mið-Austurlöndum náist áöur
en hann lætur af embætti.
neinar beinar viðræður milli
deilendanna. Palestínumenn stað-
festu ekki í gær að þeir hefðu fallist
á að senda mann til Washington.
Þróun mála í gær varð til þess að
Bill Clinton Bandaríkjaforseti gat
leyft sér að halda enn í vonina um
að hann gæti haft milligöngu um
friðarsamning í Mið-Austurlöndum
áður en hann lætur af embætti þann
20. janúar.
Shlomo Ben-Ami, utanríkisráð-
herra ísraels og helsti samninga-
maður, sagði hins vegar að ekkert
nema kraftaverk gæti gert friðar-
samning að veruleika áður en Clint-
on færi frá.
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hitti Hosni Mubarak Eg-
yptalandsforseta í Kaíró í morgun,
áður en hann ráðfærði sig við utan-
ríkisráöherra arabaríkjanna um
friðartillögur Bandaríkjamanna.
Arafat mun að því loknu gefa svar
sitt við tillögum Clintons.
Mótmæli í Prag
Tugir þúsunda Tékka komu saman á Vaclavtorgi í Prag í gær til aö lýsa yfir stuöningi viö sjónvarpsfréttamenn sem
mótmæla ráöningu nýs sjónvarpsstjóra. Vaclav Havel forseti styöur aögeröir fréttamannanna og Alþjóöasamband
blaðamanna hvetur aöildarfélög til aö styöja verkfalliö.
Tugir þúsunda styðja
verkfall sjónvarpsmanna
Deilan um nýjan sjónvarpsstjóra
ríkissjónvarpsins er að verða alvar-
legasta stjómmálakreppan í Tékk-
landi í heilan áratug. í gær efndu 30
þúsund manns til mótmæla til að
lýsa yfir stuðningi við verkfall sjón-
varpsfréttamanna. Fjöldafundurinn
á Vaclavtorgi I Prag í gær var sá
stærsti frá 1989 þegar mótmæli á
þessum sama stað leiddu til falls
kommúnismans.
Sjónvarpsfréttamennimir 40, sem
búið hafa um sig í sjónvarpshúsinu,
halda áfram að senda út sjóræn-
ingafréttir sínar í gegnum gervi-
hnetti. Flestir áhorfenda geta ekki
séð sendingarnar vegna mótaðgerða
sjónvarpsstjómarinnar sem auk
þess hefur látið loka salernum og
eldhúsi byggingarinnar.
Stuðningsmönnum fréttamann-
anna hefur tekist að koma til þeirra
matvælum og ferðasalemum í gegn-
um glugga.
Ástæða deilunnar er skipun Jiris
Hodacs í embætti sjónvarpsstjóra
fyrir rúmri viku. Meirihluti starfs-
manna sjónvarpsins segir ráðning-
una pólitíska. Hodac er í tengslum
við hægriflokkinn ODS sem er und-
ir forystu Vaclavs Klaus, fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Á neyðarfundi tékknesku ríkis-
stjórnarinnar í gær náðist sam-
komulag um lagabreytingar sem
áttu að geta leyst deiluna. En sjón-
varpsfréttamennimir sætta sig ekki
við reglur um hvemig skipa eigi
sjónvarpsstjóra í framtíðinni. Þeir
kreíjast þess að Hodac veröi strax
látinn víkja. Stjómmálafræðingar
segja stuðning almennings vera
vegna almenns vantrausts í garð
stóru stjómmálaílokkanna. Jafnað-
armannaflokkur Milos Zemans hef-
ur stýrt Tékklandi frá 1998 með að-
stoð flokks Vaclavs Klaus. Litið er
svo á að hann hafi fengið að skipa
sjónvarpsstjóra þar sem hann hafi
haldið loforð sitt um að fella ekki
ríkisstjómina.
Margir Tékkar eru þeirrar skoð-
unar að stóru flokkarnir hafi ekki
staðið sig. Atvinnuleysi er enn mik-
ið og spilling víðtæk. Auk þess eru
Tékkar tortryggnir gagnvart
pólitískri stjórnun fjölmiðlanna.
Núverandi forseti Tékklands,
Vaclav Havel, hvatti til mótmæla
vegna hreinsana í fjölmiðlum í kjöl-
far innrásar Sovétríkjanna 1968. Nú
hefur hann lýst yfir stuðningi viö
sjónvarpsfréttamenn. Reyndar er
Klaus helsti keppinautur Havels og
Havel óttast að þingið skerði völd
hans.
Sakaður um einræði
Austurríski
stjómmálamaður-
inn Jörg Haider
bælir kerfisbund-
ið niður alla and-
stöðu í Kamten
þar sem hann er
fylkisstjóri, að
því er íhaldsblað-
ið Die Presse
skrifar. Haider er
sagður hafa látið reiði sína bitna á
embættismönnum sem ekki hafa
viljað láta misnota sig í áróðurs-
skyni fyrir flokk hans.
Hálka í Texas
Hundruð ökumanna í Texas í
Bandaríkjunum urðu í gær, þriðja
daginn í röð, að leita skjóls á kaffi-
húsum og hjá Frelsishemum vegna
glerhálku á vegum.
Þrjótar verða netlöggur
Ungir tölvuþrjótar í Indlandi á
aldrinum 14 til 19 ára hafa verið
beðnir um að afhjúpa glæpi á Net-
inu.
Fregnum um slag neitað
Upplýsingaráðuneyti Iraks vísaði
i gær á bug fréttum um að Saddam
Hussein forseti hefði fengið alvar-
legt slag. Haft var eftir stjómarand-
stöðuleiðtoga að forsetanum hefði
verið ekið á sjúkrahús eftir hersýn-
ingu á gamlársdag.
Þroskaheft tekin af lífi
Yfirvöld í Oklahoma hafa ákveðið
að þroskaheft blökkukona, Wanda
Jean Allen, verði tekin af lifi í
næstu viku. Hún er dæmd fyrir
ástriðumorð á annarri konu fyrir 12
árum.
Fagnar vaxtalækkun
George W. Bush,
verðandi forseti
Bandaríkjanna,
fagnaði í gær
óvæntri lækkun
bandaríska seðla-
bankans á skamm-
tímavöxtum. Sagði
hann skattalækk-
un nauðsynlega í
kjölfarið til að koma í veg fyrir að
hægt verði á efnahagnum.
Stasi merkti andstæðinga
A-þýska öryggislögreglan Stasi
merkti stjórnarandstæðinga með
geislavirkum efnum. Hægt var að
rekja slóð þeirra með földum Gei-
germælum, að því er vísindaritið
New Scientist greindi frá í gær.
Margrét prinsessa veik
Margaret prinsessa,
systir Elisabetar Eng-
landsdrottningar,
kann að hafa fengið
vægt heilablóðfall, að
því er segir i tilkynn-
ingu frá Buckingham-
höll í gær. Læknar
útiloka ekki að um sé
að ræða afleiðingar heilablóðfalls
sem prinsessan fékk fyrir tveimur
árum. Margrét prinsessa er 70 ára.
Létust í lestarslysi
Tólf landbúnaðarverkamenn frá
Ekvador létust á Spáni í gær þegar
lest ók á sendiferðabíl sem þeir voru
í á mótum akbrautar og járnbrautar-
spors. Talið er að bílnum hafi verið
ekið á rauðu ljósi yfir teinana sem
engar hindranir voru við.