Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Side 24
28 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001 Tilvera DV lí f iö Antígóna á fjöl- unum í kvöld í kvöld kl. 20 verður Antígóna eftir Sófókles sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson en aðalhlut- verk eru meðal annars í höndum Halldóru Björnsdóttur og Arn- ars Jónssonar. Örfá sæti laus. Klúbbar ■ FONKAÐ A GAUKNUM Fönkað á Gauk á Stöng í kvöld með CIVAD; Einar Valur Scheving, Davíð Þór, Ingi (jagúar), Ómar Guðjóns, og Óskar Guöjóns. ■ NÝTT KVIKMYNDAÁR HJÁ FILMUNDI I tilefni nýs árs verður hin frábæra kvikmynd Billy Elliot sýnd í kvöld kl. 22.30 í Háskólabíói. Billy Elliott vakti gríðarlega athygli erlendis og er að margra mati ein besta mynd síðasta árs. Myndin er bresk og leikstýrt af Stephen Daldy. Myndin gerist áriö 1984 i námubæ þar sem verkfall er í fullum gangi. Billy Elliot er 11 ára, pabbi hans og bróðir eru í verkfalli, en móðir hans er látin. Andrúmsloftið á heimilinu er hlaðið spennu sem oft er erfitt að eiga við. Billy er gert að stunda hnefaleika en er lítið gefinn fyrir það. Hann hefur miklu meiri áhuga á ballett og sýnir hæfileika í þá átt. Billy lendir í vandræðum þegar fjölskylda hans kemst að áhugamáli hans. Klassík B VINARTONLEIKAR SINFONI- UNNAR Vínartónleikahefð Sinfóní- unnar fyllir brátt þriðja tuginn. Fyrstu tónleikarnir þóttu takast með stakri lukku en samt sem áður varð nokk- urra ára bið eftir þeim næstu en nú duga ekki færri en þrennir tónleikar í Laugardalshöll. Umgjörð tónleik- anna í ár er með besta móti. Nýir pallar í sal veita betri sýn aö sviði og allir ganga aö sínum sætum númeruðum. Höllin mun skarta sinni bestu ásýnd, skreytt í hólf og gólf og freyöandi kampavíniö bíður þegar prúðbúnir gestirnir svífa inn í Höllina. Óhætt er að lofa spennandi tónleikum; stjórnandinn Peter Guth er að öðrum ólöstuðum einn vinsæl- asti stjórnandi Vínartónleika hér á landi - auk þess að vera afbragðs fiðluleikari eins og gestir munu fá að heyra. Glæsileg söngkona, Arn- dís Halla Ásgeirsdóttir, mun syngja nokkrar eftirlætisperlur Vínarborgar og heyrst hefur að félagar úr kór Is- lensku óperunnar komi til með að bregða fyrir sig betri fætinum auk kórflutningsins sem varla þarf að kynna frekar! Fyrstu Vínartónleikarn- ir af þremur, þetta árið, hefjast í Laugardalshöllinni kl. 19.30 í kvöld. Örfá sæti laus. Síðustu forvöð ■ HÆRRA TIL ÞIN I dag lýkur sýn- ingunni Hærra til þín - Kristin minni í norrænni myndlist sem Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og Ásmundar- safn efndu til í tilefni þess að árið 2000 voru liðin þúsund ár frá þeim merka viöburði er íslendingar tóku kristna trú. Á sýningunni eru valin verk eftir norræna myndlistarmenn tuttugustu aldar, bæði málara og myndhöggvara. Sérstaklega var horft til þeirra listamanna sem hafa ekki fengist við hefðbundna kirkjulist en sem engu að síður hafa fjallað um kristin og trúarleg minni í verk- um sínum. A sýningunni eru meðal annars verk eftir myndhöggvarana Ásmund Sveinsson og Sigurjón Ólafsson, færeyska málarann Samu- el Joensen-Mikines, norsku veflistar- konuna Hannah Ryggen og danska myndhöggvarann Robert Jacobsen.. Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Flugvöllur í Skerjafirði Myndin sýnir hugmyndir Hrafns Gunnlaugssonar um stóran alþjóölegan flugvöll á Lönguskerjum. Útsýnisturn í Laugarnesi Hér sést hvernig hægt heföi veriö aö nýta reykháfinn, sem jafnaöur var viö jöröu, i útsýnisturn og veitingastaö. Hrafn Gunnlaugsson sýndi höfuðborgina í öðru ljósi: Reykjavík framtíðarinnar Mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Reykjavík í öðru ljósi, sem sýnd var í Sjónvarpinu 30. desember, vakti verðskuldaða athygli og umræður. Ýmsum þóttu hugmyndirnar út- ópískar og ekki væri nóg að reisa byggingamar upp á rönd til að bæta borgarlífið. í myndinni er Reykjavík skoðuö í nýju ljósi og ýmsum möguleikum, sem snerta þróun borgarinnar, velt upp; hvernig Reykjavík lítur út við aldahvörf og hvernig hún gæti litið út ef breski herinn hefði ekki gert flugvöll í Vatnsmýrinni og ibúða- byggin þróast meðfram ströndinni en ekki upp til fjalla. Hvað býður borgarstæðið upp á og hvernig er það nýtt? í myndinni er borgin skoðuð með því að stilla saman for- tíð, nútíð og framtíð og leikið sér með möguleikana sem það býður upp á. Háhýsi við ströndina / myndinni var tögö áhersla á háhýsabyggö meöfram ströndinni fremur en þá heiöabyggöastefnu sem rekin hefur veriö um langa hríö í borginni. Ekki nóg að reisa byggingarnar upp á rönd „Ég fagna allri umræðu um græn svæði og græna pólitík í borginni. Það er löngu orðið tímabært að gera athugun á hver þörfin er,“ segir Auður Sveinsdótt- ir landslagsarkitekt. „Hing- að til höfum við fengið hug- myndir okkar frá nágranna- löndunum þar sem nýtingar- þörfin er annars eðlis. Það eru aðrar aðstæður hér á landi og veðrið er öðruvísi. Mér finnst þess vegna gam- an að fá málið upp á borð en hins vegar einkennist um- ræðan um grænu svæðin af því að við notum þau ekkert og þess vegna eigi að byggja á þeim. Það er rangt og Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt Urmull af krökkum aö leika sér á Klambratúni á vet- urnar. eigum að greina þörfina og auka nýtinguna á svæðun- um.“ Auður segir að sér hafi þótt myndin skemmtileg og útópísk. „Menn verða að átta sig á því að það er ekki nóg að reisa byggingarnar upp á rönd. Það þarf einnig að huga að praktískum málum eins bílastæðaþörf. Svo er sólin lægra á lofti hér en í öðrum borgum Evrópu mestan hluta árs- ins. Svona byggingum fylgja stór skuggasvæði og sviptivindar. Þeir sem búa á efstu hæðunum njóta sól- arinnar en mjög margir koma til með að búa í menn mega ekki detta í þann pytt, við skugganum. Það getur vel verið að komandi kynslóðir hafi ekki sömu þörf fyrir útsýni og við og sætti sig betur við nálægðina sem fylgir borg- arlífinu. Hugmyndin um að setja flugvöUinn út í Skerjafjörð er mjög athyglisverð en ég vil ekki að það verði byggt í Við- ey. Myndin er í raun akademiskt og þarft innlegg í viðkvæma umræðu og getur komið í veg fyrir skítkast, ágreining og deilur. Margar af þessum hugmyndum hafa verið lengi í um- ræðunni og Hrafni tókst að gera þær mjög sjónrænar. Ég vU aUs ekki láta minnka opnu svæðin heldur bæta nýtinguna á þeim, það er ekki rétt að það noti þau enginn. Ef maður fer upp á Klambratún á vetumar er heill urm- uU af krökkum að leika sér þar,“ seg- ir Auður að lokum. -Kip Inga Jóna Þórðardóttir: Eigum að vera djarfari að byggja há hús Þessi mynd er skemmtilega ögrandi og verður vonanadi til að veita nýju lífi í umræðuna um skipulagsmál," segir Inga Jóna Þórðardóttir oddviti minnihlutans í borgarstjórn Reykja- víkur. Að mati Ingu Jónu eru hug- myndirnar sem settar eru fram i myndinni afar frumlegar og stinga á ýmsum kýlum sem hafa einkennt skipulagsmál undanfarin ár. „Ég vil fyrst nefna hugmyndina um að byggja með strönd fremur en til heiða. Nýjar hugmyndir um nýtingu eyjanna finnast mér mjög athyglis- verðar og ég hef sjálf lagt mikla áherslu á að Geldinganesið verði nán- ast allt tekið undir íbúðabyggð en þetta er einmitt eitt helsta ágreinings- málið i skipulagsmálum borgarinn- ar.“ Inga Jóna telur þá þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár með íbúðabyggð upp til heiða neikvæða vegna þess hversu óhagkvæm hún er. „Við eigum svo fallegt land með ströndinni sem við eigum að nota sem aðalbyggingarland okkar og nýta hæðimar i kring fyrir útivist." „Flugvöllur á Lönguskerj- um er ögrandi hugmynd, en byggir á því að þama sé al- þjóðlegur ílugvöllur. Óá- nægja með flugvöllinn i Vatnsmýrinni snýst um að losna við flugvöllinn þaðan þannig að þessi hugmynd kemur úr aUt annarri átt. Hér er gert ráð fyrir að Uytja aukna flugumferð inn i hjarta borgarinnar.“ Að mati Ingu Jónu erum við íslendingar allt of hrædd við að byggja upp í loftið. „Hrafn minnti okkur vel á þetta og mér fannst sérstaklega skemmtilegt þegar hann reisti lárétta byggð meðfram strönd- inni upp á rönd. Við eigum að vera djarfari að byggja há hús. Nútímalifn- aðarhættir krefjast fjölbreyttari Ograndi hugmyndir inga Jóna telur hug- myndir Hrafns Gunnlaugssonar í myndinni til þess fallnar aö veita nýju lífi í umræöuna um skipulagsmál. möguleika í íbúðabyggð og ekki má gleyma því að há- hýsabyggingar bjóða upp á fleiri opin svæði í kringum húsin.“ Inga Jóna telur að hug- myndir Hrafns um opin svæði í borginni hljóti að ýta við mörgum. „Þessi svæði þurfa að laða fólk til sín. Hugmyndin um gömul hús í Hljómskálagaröinum finnst mér mjög eftirsóknarverð og sé fyrir mér ýmsar laglegar útfærslur á þvi.“ Að lokum sagði Inga Jóna að sér hefði þótt skemmti- legt hvemig dregið var fram _____ í myndinni að „smávinir fagrir" í líki sóleyja og fífla væru slegnir um leið og þeir skytu upp kollinum og í staðinn plantað inn- fluttum túlípönum. „Það hlýtur að vekja okkur til umhugsunar.“ -ss Eggert Þór Bernharösson sagnfræð- ingur Myndin var bæði athygtisverö og skemmtiieg og gaman aö sjá þessar hugmyndir rísa upp úr iandinu. Athyglisverðar og skemmtileg- ar hugmyndir - útivistarsvæði minna mest á engi og tún Eggert Þór Bernharðsson, sagn- fræðingur og höfundur bókanna Saga Reykjavíkur 1940-1990 og Undir báru- járnsboga, segir að sér þyki hugmynd- irnar sem komu fram í myndinni mjög áhugaverðar og benda á ýmis- legt sem hægt er að gera öðruvísi. „Myndin var bæði athyglisverð og skemmtileg og gaman að sjá þessar hugmyndir rísa upp úr landinu. Það er til dæmis margt til í því að við höf- um gengið býsna langt í að vera með stór svæði sem minna frekar á tún og engi í sveit en almenningsgarða. Ég hef bæði búið við Miklatún og Hljóm- skálagarðinn og það er ekki mikið um að vera þar á sumrin. Hugmyndin um að flytja gömlu húsin af Árbæjarsafninu niður í Hljómskálagarð er mjög skemmtileg en það er spurning um hversu að- gengileg hún er. Það þyrfti eflaust að gera ýmislegt til að vernda húsin fyr- ir ágangi utan opnunartíma. Það þyrfti örugglega að girða svæðið af og hafa um það vakt en ég er svo sem ekki besti maðurinn til að svara því. Ég veit þó að erlendis eru svona söfn lokuð af utan opnunartíma. En í heild benti myndin á ýmislegt athyglisvert og horfði til nýrra átta.“ -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.