Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Blaðsíða 4
Fréttir
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001
DV
Einn milljarður króna í bætur til öryrkja í framhaldi hæstaréttardóms:
Ekki verið að afnema
allar tekjutengingar
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
Davíð Oddsson á fundl í Ráöherrabústaönum
Tekjutenging er pólitísk leió til stýringar tekjujöfnun í þjóöfélaginu.
Ríkisstjóm íslands kom saman í
gærmorgun til aö fjalla um nýtt
frumvarp til að framfylgja dómi
Hæstaréttar í svokölluðu öryrkja-
máli. Óskað verður eftir að þing
komi saman til að fjalla um frum-
varpið. Þar var einnig samþykkt til-
laga heilbrigðisráðherra, Ingibjargar
Pálmadóttur, um að endurskoðunar-
nefnd hraði sinni vinnu varðandi
aðra hópa og ljúki henni á næstu
þrem mánuðum.
í gær kynnti Davíð Oddsson for-
sætisráðherra niðurstöðu starfshóps
fjögurra lögfræðinga undir stjórn
Jóns Steinars Gunnlaugssonar um
viðbrögð við dómi Hæstaréttar frá 19.
desember sl. í framhaldi af þeirri
skýrslu ákvað ríkisstjómin að 1200
til 1400 manns af 8900 öryrkjum í
landinu fái nú auknar bætur. Ákveð-
ið hefur verið að greiða til baka
skerðingu tekna fjögur ár aftur í tím-
ann og mun það kosta um einn millj-
arð króna. Til framtiðar munu breyt-
ingar leiða til 100 milljóna króna
minni skeröingar vegna tekjuteng-
inga á ári.
Davíð Oddsson sagði að það skipti
ekki máli hvort mönnum líkaði dóm-
ur Hæstaréttar betur eða verr, það
yrði að fara eftir honum. Bæði Davíð
og Halldór Ásgrímsson utanrikisráð-
herra bentu á að tekjutenging væri
pólitísk leið til stýringar tekjujöfnun
i þjóðfélaginu.
Dregið úr möguleikum
„Hæstiréttur hefur nú dregið úr
möguleikum þess að þetta sé notað til
að jafna kjör á milli hópa í landinu,"
sagði Davíð í samtali viö DV. „Menn
reyna ekki að komast fram hjá dómi
Hæstaréttar, en reyna að túlka dóm-
inn. Þegar skýringar á honum eru
skoðaðar átta menn sig á því að allar
kröfur um aö greitt væri eftir dómn-
um hafa verið út í hött. Það hefði ver-
ið kraftaverk ef Tryggingastofnun
hefði getað greitt út samkvæmt þess-
um dómi,“ segir Davíð og likti hann
því viö aö mönnum væri gert að
greiða reikning með engum tölum á.
Ekki afnám tekjutengingar
- Munu öryrkjar í framtiðinni
halda óskertum lágmarksbótum án
skerðingar vegna tekjutengingar?
„Niðurstaöa lögfræðinga okkar er
að með þessum dómi sé ekki verið að
afnema allar tekjutengingar á bótum
maka. Tekjutengingar eru notaðar
alls staðar á Norðurlöndum og hvar-
vetna þar sem við þekkjum til.
Þannig aö ef menn vitna í alþjóðlega
samninga þá er fróðlegt að taka eftir
þeirri grein Hæstaréttar sem vitnar
sérstaklega til 67. greinar vinnumála-
sáttmálans sem Hæstiréttur vitnar
til án þess að nefna hvað er í grein-
inni. Þegar því er flett upp, sem ég
veit ekki hvort Hæstiréttur hefur
gert, þá stendur þar beinlínis að það
megi skerða tekjur bótaþega ef það er
gert meö tilliti til íjölskyldutekna."
- Hvað um aðra hópa í þjóðfélaginu?
„Nú mun þessi nefnd sem starfar
undir forystu ráðuneytisstjóra forsæt-
isráðuneytis, Ólafs Davíðssonar, halda
áfram sinni vinnu og hraða henni.
Hún mun eiga samstarf við þá aðila
sem að málinu koma og vonandi skila
niðurstöðu ekki seinna en um miðjan
aprU.“
- Kaliar það á margra mUljarða út-
gjöld ríkissjóðs?
„Ég veit ekki hvað það kaUar á.
Hins vegar vona ég að við getum eftir
sem áður reynt að nota það tækifæri
tU að bæta kjör fólks í þeim hópum
sem lakast standa, en ekki fara þá leið
sem Hæstiréttur fór að bæta aðeins
kjör þeirra 10 prósenta sem best
standa í hópi öryrkja."
Davíð ítrekaði að dómurinn sneri
eingöngu að þeim öryrkjum í sambúð
sem hafi verið með hæstar heimilis-
tekjur, eða um 250-300 þúsund á mán-
uði. Aðrir hafi ekki hagsbætur af
þessum dómi. Davíð sagðist óska eft-
ir góðu samstarfi við stjómarand-
stöðu svo ömggt væri að hægt yrði að
byija á greiðslu bóta fýrir 1. febrúar.
-HKr.
Dæmi um breytingu tekjutryggingar gifts öryrkja nri^a
Tekjur í þúsundum króna á mánu&i Tekjutrygging á mánu&i Breyting á tekjutryggingu
Ljfeyiisþegj Maki Samtals f dag Verður Krónir á máfluði Kafbeimistelgum
0 100 100 32.566 32.566 0 0,0%
0 150 150 29.029 29.029 0 0,0%
0 200 200 17.779 25.000 7.221 3,6%
0 250 250 6.529 25.000 18.471 7,4%
0 400 400 0 25.000 25.000 6,3%
Dæmi um breytlngu tekjutryggingar glfts öryrkja. Miöað viö 25 þúsund kr. tryggingu á mánuöi og skeröingu um 2/3.
Halldór Ásgrímsson:
Algjör samstaða
„Það er algjör
samstaða innan
ríkisstjómar um
hvemig á málinu
verður tekið,“
sagði Halldór Ás-
grímsson, formað-
ur Framsóknar-
flokksins, eftir
ftmd rikisstjómar-
innar um öryrkjamálið í gær.
„Við byggjum fyrst og fremst á lög-
fræðilegu mati. Pólitíkin í þessu var
ákveðin 1993 með frumvarpi sem flutt
var á Alþingi af ráðherra Alþýðu-
flokksins. Siðan var pólitíkinni breytt
í ársbyijun 1999 eftir að umboðsmaður
Alþingis hafði gert athugasemdir.
Hvað farið er langt aftur í timann er
fýrst og fremst lögfræðilegt álitamál.
Niðurstaða þehra lögfræðinga sem að
þessu komu er afskaplega skýr og þeir
telja að okkur beri að fara fjögur ár aft-
ui' í tímann og við hlítum því.“
- Kom ekki til greina að greiða sex
ár aftur í tímann?
„Það kom ekki til greina að áliti lög-
fræðinganna. Að mínii mati ber ríkis-
stjóminni að byggja á þeirra áliti.“-HKr.
Ingibjörg Pálmadóttir:
Hækkun um 140%
Ingibjörg Pálma-
dóttir lagði áherslu
á gott samstarf við
Öryrkjabandalagið í
framtíðinni. „Ég vil
auka það og bæta og
tel það grundvallar-
atriði að svo verði,“
sagði heilbrigðis-
ráðherrann í samtali við DV.
Hún sagði að lágmarksbætur til ör-
yrkja hefðu verið 18 þúsund krónur á
mánuði fyrir þær breytingar sem nú
verða gerðar og þá tengdar tekjum
maka. Eftir breytingar fái enginn
minna en 43 þúsund krónur. Það eina
sem geti breytt því séu eigin tekjur
einstaklingsins. Samkvæmt þessu
hækka bætumar um 140%.
Ingibjörg segir að dregið hafi verið
úr tekjutengingum siðustu tvö árin og
ef það hefði ekki verið gert hefði ríkis-
sjóður nú þurft að leggja út um tvo
milljarða króna i stað eins milljarðs.
Margir þeirra 8900 öryrkja í landinu
byggju við mjög slæman kost og fengju
ekkert út úr breytingum sem gerðar
em vegna dóms Hæstaréttar. Til að
koma til móts við það fólk og aðra sem
treysta á bætur almannatrygginga er
endurskoöunamefnd með fulltrúum
öryrkja, aldraðra og aðila vinnumark-
aðarins nú að störfum.
„Við erum aö koma til móts við
dóminn sem sagði að tekjutengingar
væra of miklar. Það veröa þó áfram
tekjutengingar því dómurinn sagði
sem betur fer ekki að allar tekjuteng-
ingar væm bannaðar." -HKr.
VtAriik i kvöM
Sunnan- og suövestanáttir
Vaxandi sunnanátt, 18 til 25 m/s vestan til í
kvöld. Suðvestan 10 til 15 m/s noröaustan til
og á Austfjöröum og úrkomulítiö. Suövestan
13 til 18 m/s og rigning suðaustanlands. Hiti
4 til 9 stig, en svalari í fyrstu suðaustanlands.
Sólariag í kvöld 16.09 15.33
Sólarupprás á morgun 11.01 11.05
Sí°lsflóð 19.46 00.19
Árdeglsflóð á morgun 08.06 12.3
Skýrihgpr á veöuitáltmim
<* vindátt
15)
■NVINDSTYBKUR
5 inetrum á sekúntíu
10 °4______HITI
FROST
HEIDSKiRT
3D O
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
í? 6?
RIGNING SKÚRIR SLYODA SNJÓKOMA
‘te// P ~\r =
EUAGANGUR ÞRUMU* VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Veruleg hálka
Samkvæmt upplýsingum
Vegageröarinnar er ófært um
Dynjandisheiöi á Vestfjöröum vegna
hálku, þá er veruleg hálka á
Steingrímsfjaröarheiöi. Einnig er
verulega hálka á Melrakkasléttu, milli
Kópaskers og Þórshafnar. Annars eru
atlir helstu þjóövegir landsins færir, en
hálka er einkum á Austurlandi.
Rigning vestanlands
Sunnanátt, 18 til 25 m/s og mikil rigning vestanlands. Suövestan 15 til
20 m/s og úrkomulítiö norðaustan til og á Austfjöröum. Suövestan 13 til
18 m/s og rigning aö mestu suðaustanlands.
Mru#irjlaj
Vindur:
18—23 m/*
Hiti 4° til
Sunnan 18 tll 23 m/s og
rignlng um sunnan- og
vestanvert landlö, en
hægarl og úrkomulítlð
norðaustanlands. Hltl 4 tll
9 stlg.
Sunnwlajjui
Vindur: > ,-'"0
13-18 m/a J
Hiti 3” til 8°
Miuiurla
Vindur:
5-13
Hitf 1- til 6°
m,j
Sunnanátt, 13 tll 18 m/s,
hvassast vestan tll.
Rlgnlng vestanlands, súld
sunnanlands, en
úrkomulítið um landlð
nor&anvert. Hltl 3-8 stlg.
Suðvestanátt og kólnandl
veður. Skúrir e&a slydduél
um sunnan- og vestanvert
landlö, en annars
úrkomulitlð.
Veftríð W. 6
AKUREYRI skýjaö 7
BERGSSTAÐIR skýjaö 5
BOLUNGARVÍK skúrir 5
EGILSSTAÐIR 5
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -3
KEFLAVÍK alskýjaö 6
RAUFARHÖFN alskýjaö 3
REYKJAVÍK skúrir 5
STÓRHÖFÐI skúrir 6
BERGEN skýjaö 3
HELSINKI snjókoma -5
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö -1
ÓSLÓ hálfskýjaö -1
STOKKHÓLMUR -1
ÞÓRSHÖFN skúrir 5
ÞRÁNDHEIMUR snjóél 0
ALGARVE rigning 14
AMSTERDAM þokumóöa 2
BARCELONA þokumóöa 7
BERLÍN léttskýjaö -3
CHICAGO hálfskýjaö -2
DUBUN skýjaö 4
HAUFAX heiöskírt -9
FRANKFURT súld 3
HAMBORG heiöskírt -5
JAN MAYEN skýjaö -4
LONDON skýjaö 5
LÚXEMBORG þoka 5
MALLORCA þokumóða 6
MONTREAL alskýjaö -10
NARSSARSSUAQ snjókoma -1
NEW YORK skýjaö -1
ORLANDO léttskýjaö 8
PARÍS skýjaö 9
VÍN þokuruðningur O
WASHINGTON heiöskírt -3
WINNIPEG alskýjaö -15
B :\'j efr ef llm É 3331