Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2001, Blaðsíða 25
29 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 I> V Tilvera Disney 2001 Sá risi í kvikmyndaiönaðinum sem er hvað íhaldssamastur er Disn- ey. Þaó má ganga að því vísu á hverju ári að Disney geri nokkrar miólungsdýrar fjölskyldumyndir, nokkrar gamanmyndir, tvœr til þrjár stórar, leiknar kvikmyndir sem kosta á bilinu 100 til 200 milljón doll- ara og svo teiknimyndirnar sem yjir- leitt eru þrjár, ein tölvugeró og tvœr hefóbundnar þó erfitt sé oróið aö gera greinarmun á gömlu og nýju aóferóinni. Áriö í ár er engin undan- tekning frá reglunni og er hér stikl- að á stóru og aóeins sagt frá nokkrum skrautfjöórum hjá hinu fjölskylduvœna Disney. Pearl Harbour Dýrasta kvikmyndin frá Disney á þessu ári er Pearl Harbour sem Michael Bay (Armageddon) leik- stýrir. Um er að ræða kvikmynd sem segir frá þegar Japan- ar gerðu árás á herstöðina Pearl Har- bour á Hawaii árið 1941 og segir frá tveimur ungum flugmönnum og hjúkrunarkonu. Inn í myndina er síðan fléttað sögulegum staðreyndum. Með aðal- hlutverkin fara Ben Afflect, Josh Hartnett, Kate Beckinsale, Cuba Cooding jr., Jon Voight, Tom Sizemore, Dan Aykroyd og Alec Baldwin. Atlantis: The Lost Empfre Stóra teiknimyndin í sumar heitir Atlantis: The Lost Empire. Aðalpersónan er Milo Thatch sem dreymir um að klára verk sem afi hans, frægur landkönnuður, hafði byrjað á, það er að finna hina týndu borg, Atlantis. Þegar hann flnnur dagbók afa sins kemur milljónamæringur til sögunnar sem býðst til aö kosta leiðangur. Leikarar sem ljá raddir sínar eru meðal annars Michael J. Fox, James Garner, Leonard Nimoy, John Mahoney og David Ogden Sti- ers. Big Trouble Barry Sonnenfield, sem síðast leikstýrði Men in Black, verður með nýja mynd á árinu, Big Trou- ble. Miðpunkturinn í myndinni er dularfull ferðataska sem þvælist á milli persóna og breytir lífi þeirra. Meðal þeirra sem koma nálægt töskunni er fráskilinn faðir, óham- ingjusöm húsmóðir, atvinnumorð- ingjar, strætisrónar, tveir ástfangn- ir unglingar og FBI-löggur. í aðal- hlutverkum eru Tim Allen, Rene Russo, Stanley Tucci og Tom Sizemore. Monsters Inc. Monsters Inc. er tölvugerð teiknimyndi og í dýrari kantinum. Myndin gerist innan fyrirtækis sem sérhæfir sig í að gera hryllingsleik- fong og við kynnumst nokkrum per- sónum sem hafa það að atvinnu að hræða fólk. Aðalpersónan er James sem er blár að lit, risi meö horn. Hans besti vinur er Mike, græn, lítil ófreskja. James stjórnar af hörku en það kemur þó ekki í veg fyrir að aðrar ófreskjur vilji velta honum af stalli. Meðal leikara sem ljá raddir sínar má nefna John Good- man, BOly Crystal, James Cobum, Jeffifer Tilly og Steve Buscemi. Just Vlsiting Hollywood hefur nokkrum sinn- um tekið franskar myndir upp á sína arma og endurgert þær upp á amerísku. Just Visiting er ein slík. Er hún endurgerð Les Visite- urs sem fjallaði um kostulegt tíma- ferðalag tveggja miðaldamanna. Það sem er merkilegt viö amer- ísku útgáfuna er að frönsku leikar- arnir Jean Reno og Christina Claver endurtaka iilutverk sín á ensku og Jean-Marie Gaubert, sem leikstýrði Les Visiteurs, leikstýrir einnig amerísku útgáfunni. Vinir og boxarar Woody Harrelson og Antonio Banderas leika fyrrum boxara sem fá annað tækifæri. Uppgjör í Las Vegas Sambíóin taka til sýningar á morgun dramatíska spennumynd, Play It to the Bone, sem fjallar um tvo vini sem báðir eru fyrrum hnefaleikakappar. Þeir verða báðir hissa og glaðir þegar þeir fá boð um að keppa hvor gegn öðrum í Las Ve- gas. Þeim er ekki til setunnar boðið, eiga vera mættir í hringinn í hvelli. Félagarnir tveir, Vince og Cesar, hafa áður boxað hvor gegn öðrum án þess að það hafi haft áhrif á vin- skapinn og þeir reikna ekki með öðru en að um verði að ræða harð- an bardaga án nokkurs haturs og fullt af peningum. Annað á þó eftir að koma í Ijós. Þeir leggja í ferðina á gömlum bíl og er bílstjórinn vin- kona þeirra, Grace. Fljótt koma upp ýmis vandamál sem gera það að verkum að þeir fara að tortryggja hvor annan. Ekki batnar ástandið þegar þeir taka með sér puttaling- Stúlkurnar Meðreiöarfélagar Vinces og Cesars á ferð þeirra til Las Vegas eru tvær stúlkur, Grace og Lia, sem Lolita Davidovich og Lucy Liu leika. inn Liu sem hefur afgerandi áhrif á samband þeirra. Þegar loks er kom- ið til Las Vegas mega vinirnir ekki sjá hvor annan án þess að vera með skítkast svo það er ljóst að bardag- inn á milli þeirra verður allt annað en vinsamlegur. í hlutverkum Vince og Cesars eru Woody Harrelson og Antonio Banderas og í hlutverkum stúlkn- anna eru Lolita Davidovich og Lucy Liu. Aðrir leikarar eru Tom Sizemore, Robert Wagner og Rich- ard Masur. Leikstjóri og handrits- höfundur er Ron Shelton sem hef- ur sérhæft sig í að gera kvikmynd- ir um íþróttamenn - undantekning er hinn ágæti pólitíski tryllir Blaze. Honum tekst misvel upp en á að baki nokkrar athyglisverðar íþróttakvikmyndir, eins og Bull Durham og White Men Can’t Jump. Alls hefur Ron Shelton leik- stýrt sjö kvikmyndum. -HK Klassísk barátta góös og ills Barn meö dularfullan bakgrunn Kim Basinger í hlutverki Maggie O’Connor sem eiur upp barn sem hún óvænt þarf að vernda. Bless the Child, sem Stjömubíó frumsýnir á morgun, er ein af nokkrum kvikmyndum sem komið hafa fram á undanfómum misser- um sem fjalla um persónur sem eru andsetnar. Oftast er um að ræða einhvem erfingja þess i neðra en nú ber svo við að í Bless the Child er lítil stúlka sem býr yfir einhverjum miklum innri krafti sem hún notar aðeins i þágu hins góða. í myndinni segir frá Maggie sem tekur að sér uppeldi systurdóttur sinnar þegar systir hennar, sem er eiturlyfjaneytandi, lætur sig hverfa. Það kemur síðan í ljós að litla stelp- an hefur fæðst þegar heilög stjama skein á himni. Þetta gerir það að Barn meö ógnarkraft Cody (Holliston Coleman) er þarnið sem djöflatrúarfólk hefur veriö að bíða eftir í margar aldir. verkum að stelpan er búin yfimátt- úrlegum kröftum sem hún notar eingöngu til góðra verka. Hins veg- ar er sértrúarflokkur sem vill hand- sama stúlkuna svo hægt verði að nota hana til að kalla fram hið illa. Maggie gerir allt til að bjarga stelp- unni frá hinu illa þegar hún fær að heyra allan sannleikann frá fyrrver- andi liðsmanni sértrúarflokksins, Cheri. Hefst nú hin klassíska bar- átta milli góðs og ills. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Kim Basinger, Jimmy Smits, Ian Holm, Christina Ricci og Holli- ston Coleman. Leikstjóri er Chuck Russell sem á að baki tvær stór- myndir, The Mask og Eraser. Russell hóf feril sinn hjá Roger Corman og var fyrsta kvikmynd hans Nightmare on Elm Street m og skrifaði hann handritið að þeirri mynd ásamt Frank Darabont (Shawshank Redemptation, The Green Mile). -HK Dancer in the Dark ★★★★ Dancer in the Dark er hámelódramatísk sápuópera, gerð af hjartans einlægni og miklu næmi - en um leið læðist stöðugt að manni sá grunur að Von Trier sé að skemmta sér við að hafa áhorfandann að fífli. -ÁS Saving Grace ★ ★★ Saving Grace er fyndin og skemmtileg mynd allt fram í lokin þegar endirinn verður að rútínu sem allt of oft er notuð. Leikur er frábær. Brenda Blethyn er slík yf- irburðaleikkona að það þarf mikið til að skyggja á hana en í heild er t gott jafnvægi í leiknum og mesti hláturinn kemur frá kostulegum persónum í litlum hlutverkum. -HK Ikíngut ★★★ Góð kvikmynd sem byggist á þjóðsagna- og ævintýrahefð. Myndin fjallar um grænlenskan dreng sem rekur á íslandsstrend- ur í vetrarhörkum. Aðall myndar- innar er, líkt og í góðum ævintýr- um, barnsleg einlægni sem skilar sér til áhorfenda. Mest áhersla er lögð á samband Bóasar og Ikínguts og þar mæðir mikið á hinum ungu leikurum, Hjalta Rúnari Jónssyni og Hans Tittus Nakinen. Drengirnir ná upp sér- lega góðum og einlægum samleik. Góð fjölskylduskemmtun. -HK Nurse Betty "kirk í Nurse Betty er flest vel gert. Það er helst að frásagnarmát- inn verður flatur og áhorfandinn fær það á tilfinninguna að sagan hafi ekki snert við sögumannin- um. Á móti kemur að persónurnar eru snyrtilega frágengnar af höf- undum og leikurum. Morgan Freeman er traustur að vanda, Chris Rock hefur ekki í annan tíma verið betri, Greg Kinnear er hégómlegur og sjálfupptekinn sem leikari í sápuóperu og Renée Zellweger fer vel með hlutverk góðmennskunnar sjálfrar. -GSE íslenski draumurinn krki, Líflegt og skemmtilegt hand- rit sem er uppfullt af lúmsku háði og skemmtilegum orðaleikjum. Styrkleiki myndarinnar er kannski einnig helsti veikleikinn. Persónurnar tala mikið í mynda- vélina og þótt handritið bjóði upp á skemmtileg tilsvör og orðaleiki, þar sem góðir leikarar skapa eftir- minnilegar persónur og fara vel með textann, er ekki laust við að atburðarásin hafi hæðir og lægðir. íslenski draumurinn lofar góðu um framtíðina hjá Robert Dou- glas. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.