Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Side 3
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
19
DV
Heimsmeistaramótinu í handknattleik lauk í París í gær:
Sport
- eftir tvíframlengdan dramatískan úrslitaleik við Svía, 28-25
Frakkar urðu heimsmeistarar í
handknattleik í annað sinn í gær
þegar þeir sigruðu Svía í háspennu-
úrslitaleik í Bercy-höllinni í París.
Framlengja þurfti leikinn til að
knýja fram úrslit en að loknum
venjulegum leiktíma var staðan
jöfn, 22-22, en Frakkar jöfnuðu á síð-
ustu sekúndum leiksins. í framleng-
ingunni reyndust Frakkar sterkari,
léku á ais oddi og vel studdir af 14
þúsund áhorfendum, og sigruðu með
28 mörkum gegn 25.
Annar heimsmeistaratitill
Frakka
Fyrsta heimsmeistaratitilinn
unnu Frakkar í Reykjavík þegar
keppnin var haldin hér á landi 1995
og var það til þess að áhugi Frakka
á handknattleik jókst til muna. Víst
má telja að sigur Frakka verði
íþróttinni enn til framdráttar í land-
inu en leikurinn var jafn og spenn-
andi allan tímann og mjög góður á
köflum.
Frakkar byrjuðu leikinn mjög
hvasst og skoruðu fyrstu fjögur
mörkin en Svíar komust smám sam-
an meira inn í leikinn og jafna, 7-7.
Það sem eítir lifði fyrri hálfleiks var
leikurinn í jafnvægi en Frakkar
höfðu forystu í hálfleik, 11-10.
Um miðjan síðari háifleik ná Sví-
ar þriggja marka forystu og í þeirri
stöðu hafa þeir alltaf verið sterkir
en Frökkum tókst af miklu harðfylgi
að jafna metin, 17-17. í hönd fór
leikkafli þar sem markverðir beggja
liða fóru á kostum. Þegar fáar sek-
úndur voru eftir af venjulegum leik-
tíma jafnaði Greg Anquetil, fyrirliði
Frakka, metin, 22-22, og framleng-
ing óumflýjanleg.
Hún var rafmögnuðu framan af
en Frakkar sýndu mátt sinri og meg-
in og tryggðu sér sigurinn með frá-
bærum lokaspretti og Svíar sáu á
eftir titlinum sem þeir unnu í Eg-
yptalandi 1999.
Patrick Cazal, sem meiddist í upp-
hafi síðari hálfleiks, kom inn á aftur
eftir að hafa náð sér og lék við hvem
sinn fingur á lokakaflanum fyrir
Frakka. Þáttur Bruno Martini í
markinu var stór, hann lokaði á
köflum markinu. Hreint frábær
markvörður þarna á ferð og ekki
ónýtt að eiga slíkan I fremstu röð
fyrir aftan vömina. Einokun Svía og
Rússa er lokið, Frakkar sáu til þess
að stöðva hana.
Daniel Costantini, sem hefur ver-
ið meö franska landsliðið síðan 1985,
gat ekki leynt gleði sinni og sagðist
vera mjög hreykinn af sínu liði.
Frábær stund
„Þetta var stórkostlegur úrslita-
leikur og hann tók mikla orku, bæði
fyrir mig og leikmenn. Stuðningur-
inn frá áhorfendum fleytti okkur
yfir erfiða hjalla. Þetta er frábær
stund,“ sagði Costantini eftir leikinn
og svarði ekki þeirri spurningu
hvort hann héldi áfram að þjálfa lið-
ið og margt bendir til þess að hann
láti nú af störfum.
Vítið hjá Lövgren skipti
sköpum
„Byrjunin var afleit og enn frem-
ur var það afdrifalríkt þegar
Lövgren misnotaði vítakast í stöð-
unni, 17-14, fyrir okkur. Ég held að
við höfum sýnt betri leik gegn
Júgóslövum í undanúrslitunum en
við em enn þá með lið í heimsklassa
þrátt fyrir þennan ósigur," sagði
Bengt Johannsson, þjálfari Svía.
Mörk Frakka: Fernandez 8,
Cazal 6, Richardson 3, Anquetil 3,
Gille 2, Narcisse 2, Golic 2, Abati 2.
Mörk Svía: Lövgren 8, Andersson
5, Wislander 4, Vranjes 3, Ernelind
2, Ericsson 2, Frandsjö 1.
-JKS
Heimsmeistarar Frakka fögnuöu lengi vel og innilega aö lokinni verölaunaafhendingu í Bercy-höllinni í París í gær.
Reuter
Nýr Subaru
: .
Verið velkomin
í reynsluakstur
á nýjum og
stórglæsilegum
Subaru Impreza GX og WRX