Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 16
32
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
>
Adam Keefe, Golden State, sækir hér að körfu Dallas í leik liöanna á laugardaginn en risinn Shaun Bradley er til
varnar. Reuter
- sumir vilja þó gleyma þeim sem fyrst
Minnesota Timberwolves í NBA-
deildinni unnu á laugardag sinn
10. leik í röö sem er met hjá félag-
inu, þegar þeir unnu góðan útisig-
ur á Toronto Raptors. Þeir mega þó
teljast heppnir aö hafa náð aö
krækja í sigurinn þar sem Toronto
náði aö jafna í lokin en því miður
náði Tracy Murray ekki að sleppa
hendinni af boltanum áður en
flautan gall.
Karl Malone fór fyrir Utah í
sigri á Seattle, skoraði 28 stig og
jafnaöi persónulegt met sitt með 12
af 12 skotnýtingu. Utah halda enn
efsta sætinu í Miðvesturdeildinni
á undan San Antonio sem unnu
Houston heima og var þetta sjötti
sigurleikur Spurs í röð og i 11.
skipti í röð sem þeir leggja
Rockets.
Jerry Stackhouse, annar stiga-
hæsti maður deildarinnar, var ekki
á skotskónum í leik Detroit gegn
Cleveland á heimavelli Cavaliers
og hitti aðeins sjö af 34 skotum. Það
kom þó ekki í veg fyrir að Pistons
sigruðu í leiknum. Eric Piatkowski
var hins vegar í réttu skónum þeg-
ar hann leiddi LA Clippers til sig-
urs á Portland í Los Angeles. Þetta
var annar sigurleikur Clippers í
röð en slíkt hefur aðeins gerst
þrisvar á þessu tímabili. Tap Trail-
blazers var aðeins það fimmta í síð-
ustu 22 leikjum og þeir höfðu
einnig unnið Clippers í 13 af síðu-
istu 14 viðureignum liðanna.
Það á ekki af gamla stórveldinu
Chicago Bulls að ganga en þeir töp-
uðu sínum 14. leik í röð gegn
Vancouver. Þetta er met hjá félag-
inu sem aðstandendur þess vilja
sjálfsagt gleyma fljótt.
Tvíframlengt
Sjö leikir fóru fram í deildinni á
fostudag. í Philadelphia tóku
heimamenn í 76ers á móti Orlando
Magic og réðust úrslitin í 2. fram-
lengingu, 117-123 fyrir Orlando,
nokkuð óvænt. Darrell Armstrong
var maður leiksins og skoraði 34
stig sem er persónulegt met.
Boston Celtics vann sinn fimmta
leik í röð gegn Detroit Pistons á
útivelli, 95-102, þó að í liðið vantaði
Antoine Walker en Paul Pierce tók
sig til og skoraöi 40 stig fyrir
Boston. -ÓK/HRM
Jón Arnar fimmti
- á boðsmóti Erki Nool um helgina
Jón Arnar Magnússon, tugþrautarkappi úr Breiðabliki, varð um helg-
ina fimmti á sjöþrautarmóti í Tallin í Eistlandi, móti sem kennt hefur
verið við Ólympíumeistarann og heimamanninn Erki Nool. Jón Amar
náði 6056 stigum og varð rúmum 200 stigum á eftir sigurvegaranum Rom-
an Sebrle frá Tékklandi. Gestgjafinn Nool varð einungis sjötti með 6026
stig.
Jón var í þriðja sæti eftir fyrri dag meö 3460 stig. Hann hljóp þá 60 m
á 6,99 sek. og varð fimmti. Því næst stökk hann 7,65 m í langstökki, sem
er mjög góður árangur, og varð annar rétt á eftir Sebrle. Þriðja greinin
var siðan kúluvarp og þar kastaði Jón 15,88 m og varð einnig annar á eft-
ir Lev Lobodin. Síðasta grein fyrri dags var hástökk en þar náði Jón sér
ekki alveg á strik og stökk 1,95 m.
Síðari dagurinn hófst á 60 m grindahlaupi og Jón kom vel stemmdur
til þess og hljóp á 8,00 sek. sem er aðeins 2/100 úr sekúndu frá íslands-
meti hans. Þá tók stangarstökkiö við og þar stökk Jón 4,95 m og féll við
það úr verðlaunasæti. Síðasta greinin, 1000 m hlaup, hefur kannski
aldrei verið sterkasta grein Jóns en hann lauk hlaupinu á 2:54,47 mín. og
varð þrettándi í greininni.
Árangur Jóns Amars ætti að duga til þess að hann komist á
heimsmeistaramótið innanhúss í Lissabon í byrjun mars, þó svo að hann
hafi ekki náð lágmarkinu fyrir mótið sem er 6100 stig. -ÓK
Metin falla
NBADEILDIN
Úrslit á laugardag:
Washington-Denver........100-105
Whitney 24, Hamilton 18, Howard 18 -
McDyess 24 (16 frák.), Van Exel 23 (11
stoös.), LaFrentz 17 (11 frák.).
Toronto-Minnesota .......105-108
Davis 25 (13 frák., 3 varin), Carter 19,
Murray 14 - Garnett 30 (13 frák.), Szczer-
biak 19, Ellis 18 (11 frák.).
Orlando-Atlanta ...........96-84
McGrady 26 (15 frák.), Armstrong 22 (10
frák., 3 stolnir), MiUer 15 - Terry 22,
Wright 20, Mutombo 11 (15 ffák.).
Cleveland-Detroit......81-88 (frl.)
Mihm 14 (12 frák.), MUler 14, Traylor 13 -
Smith 22 (13 frák.), Stackhouse 21, Barros
17.
Dallas-Golden State.......101-95
Nowitzki 23, Eisley 20, Laettner 15, Davis
15 - Sura 28, Jackson 27 (12 frák.),
Jamison 16.
Milvvaukee-Indiana....... . 104-85
Cassell 23, Robinson 22, AUen 20 - Rose
15, Best 13, Bender 13.
San Antonio-Houston ........90-88
Duncan 28 (11 frák., 4 varin), Anderson
15, Robinson 13 (4 varin) - Francis 29 (10
frák.), Mobley 28, Taylor 11.
Utah-Seattle ..............111-91
Malone 28, Marshall 22 (10 frák.), RusseU
21 - Lewis 19, Baker 17, Davis 13.
Vancouver-Chicago...........91-84
Bibby 26, Abdur-Rahim 21 (13 ffák., 3 var-
in), Long 12 - Fizer 26, Mercer 17, Brand
14 (15 ffák., 3 varin).
LA Clippers-Portland .......90-89
Piatkowski 26, Odom 18, Mclnnis 17 -
Wells 22, Stoudamire 15, Smith 15.
Úrslit á föstudag:
New Jersey-New York.........71-95
Marbury 14, Newman 12, Williams 11 -
Johnson 20 (3 varin), Houston 19,
SpreweU 18, Rice 16.
Philadelphia-Orlando 117-123 (2 frl.)
Iverson 47, Ratliff 21 (13 frák., 4 varin),
HUl 15 (10 frák.) - Armstrong 34 (13
stoðs.), McGrady 25, Miller 24.
Atlanta-Miami ..............80-91
Terry 31, Wright 17 (10 frák.), Glover 10 -
Jones 24 (12 frák., 3 stolnir), Hardaway 18,
Grant 16 (13 ffák.).
Detroit-Boston.............95-102
Stackhouse 40, Atkins 14, Cleaves 13,
WiUiams 6 (13 ffák.) - Pierce 40, Wiliiams
17, Stith 14, Potapenko 13 (10 frák.).
Indiana-Denver.............103-94
MUler 27, Rose 26, Best 16 (10 stoðs.) -
McDyess 25, Van Exel 19 (10 stoös.),
LaFrentz 15 (10 frák.), WUlis 15.
LA Lakers-Charlotte.........93-87
Bryant 44 (5 varin, 9 frák.), Fox 9, Rider 8,
Horry 8 - Mashburn 28, Davis 18, Camp-
beU 14 (11 frák.).
Sacramento-Vancouver .... 105-95
Webber 41 (15 frák.), Stojakovic 17, Divac
13 (10 ffák.) - Abdur-Rahim 27, Bibby 23,
Abdui-Rauf 14.
Tvíkeppni kvenna á HM um helgina:
Endurkoma Ertl
- hin þýska Martina Ertl
heimsmeistari eftir erfið meiðsli
Þar til í desember síðastliðn-
um var Þjóðverjinn Martina Ertl
með forystu í samanlagðri stiga-
keppni kvenna í heimsbikamum
en hún þykir sterk i öllum grein-
um alpagreina. Hún varð svo
fyrir því að slita liöbönd í hné og
þar til á fóstudag hafði hún ekki
tekið þátt í neinni keppni. Hún
hirti hins vegar gull í tvíkeppni
kvenna á heimsmeistaramótinu
í St. Anton og það með vænni
forystu á silfurhafann, hina
ungu Christinu Sponring frá
Austurríki.
„Þetta er besti dagur skíðafer-
ilsins míns,“ sagði Ertl eftir að
gullið var tryggt. „Að lenda í
svona erfiðum meiðslum og
koma svo aftur og vera heims-
meistari er ólýsanlegt."
Óvænt á palli
Christina Sponring er 17 ára
Austurríkismær og var að taka
þátt í sinni fyrstu heimsmeist-
arakeppni. Hún var einnig í
skýjunum með árangurinn sem
og Karen Putzer frá Ítalíu en
verðlaunapeningurinn kom
henni jafn mikið á óvart.
Fyrirfram var haldið að
keppnin myndi standa milli Jan-
icu Kostelic frá Króatíu og
Renate Götschl frá Austurríki en
báðar heltust þær úr lestinni áð-
ur en yfir lauk. Kostelic í fyrri
ferð svigsins og Götschl í þeirri
síðari en hún hafði þá verið
komin með væna forystu.
Martröö hjá Götschl
HM er því að breytast í
martröð fyrir Götschl en hún
datt einnig úr keppni í risasvig-
inu eftir að hafa verið með bestu
millitímana i brautinni. Kostelic
hefur unnið síðustu níu svigmót
sem hún hefur tekið þátt í en
hún datt óvænt í brekkunni í
fyrri ferð svigsins í tvíkeppn-
inni. Hún lætur hins vegar það
ekki á sig fá og segist koma tví-
efld til leiks í svigkeppni kvenna
sem fram fer á fimmtudaginn.
-esá
Urslit
Tvíkeppni kvenna:
1. Martina Ertl, Þýskalandi . .2:55,65
2. C. Sponring, Austurriki . . . 2:58,23
3. Karen Putzer, Ítalíu ...2:58,69
4. C. Rey Bellet, Sviss ...2:59,43
5. P. Haltmayer, Þýskalandi .2:59,79
J
l
%
irí
IB
IV
1U