Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
23
Andy Cole skrifaöi undir nýjan fjögurra ára samning við Manchester United nokkrum tímum fyrir leikinn á móti Everton sl. laugardag. Hann sést hér á
fleygiferð og David Weir, varnarmaður Everton, reynir að fylgja honum eftir. Reuter
Enska knattspyrnan um helgina:
- Manchester United lagði Everton og hefur 15 stiga forystu
Engin breyting varð í
toppbaráttu ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu
um helgina. Manchester
United siglir sem fyrr lygn-
an sjó í efsta sætinu með 15
stiga forystu á Arsenal. Lið-
ið sigraði Everton á Old
Trafford.
Machester United þurfti
ekki á neinum stórleik að
halda til að koma þessum
þremur stigum í hús. Eina
markið í leiknum telst vera
sjálfsmark en skot frá Andy
Cole breytti um stefnu af
Dave Watson. United átti
átta skot að marki Everton
og aðeins eitt þeirra hitti
rammann. Þess má geta að
Andy Cole skrifaði
nokkrum tímum fyrir leik-
inn undir nýjan fjögurra
ára samning við United.
Roy Keane lék ekki með
Manchester United og Dav-
id Beckham var tekinn út af
í síðari hálfleik. Teddy
Sheringham og Ryan Giggs
byrjuðu báðir á varamanna-
bekknum en Giggs kom
reyndar inn á í síðari hálf-
leik þegar Paul Scholes
meiddist. Alex Ferguson,
knattspymustjóri United,
sagði þetta ekki hafa verið
neinn sérstakan leik og svo-
lítil heppni hefði fylgt þess-
um sigri.
„Við erum í þægilegri
stöðu og því er hægt að
hvila menn fyrir átökin i
meistaradeild Evrópu. Þeg-
ar hún skellur á að nýju
verður álagið mikið. Ev-
erton barðist vel og ég skal
viðurkenna að þeir voru
óheppnir," sagði Ferguson.
Arsenal hefur ekki á
þessu tímabili státað af
góðu gengi á útivöllum og
því var sigurinn á Coventry
kærkominn. Liðið hafði fyr-
ir leikinn unnið tvo leiki á
útivelli og skorað I þeim
átta mörk. Dennis Berg-
kamp skoraði eina mark
leiksins.
„Við réðum gangi leiks-
ins og ég var ánægður með
það sem liðið var að gera,“
sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, eftir
leikinn.
Robbie Fowler lék sinn
besta leik fyrir Liverpool
gegn West Ham á þessum
tímabili og fannst mörgum
timi til kominn að hann
sýndi hvað í honum býr.
Hann skoraði tvö af
mörkum liðsins en Tékkinn
Vladimir Smicer, sem lagði
upp bæði mörkin fyrir
Fowler, gerði fyrsta markið
í leiknum með skoti af 25
metra færi.
Ipswich leikur ekki af
sama kraftinum og áður og
liðið beið sinn flórða ósigur
þegar Leeds kom í heim-
sókn á Portman Road.
Fyrra mark Leeds var
sjálfsmark en Robbie Keane
gerði annað markið fyrir
leikhlé. Mark Venus, sem
gerði sjálfsmarkið, bætti
fyrir þau mistök þegar
hann skoraði gott mark um
miðjan síðari hálíleik.
Stuttu síðar var Marcus
Stewart vikið af leikvelli
fyrir brot á Ian Harte.
Chelsea hefur ekki unnið
leik á útivelli í vetur og nú
varð liöið að láta í minni
pokann fyrir Leicester.
Muzzy Izzet kom Leicester
yfir. Jimmy Floyd
Hasselbaink jafnaði á 75.
mínútu en Adam var ekki
lengi paradís þvi aðeins
mínútu síðar skoraði Gary
Rowett sigurmark
Leicester.
Aston Villa, sem hafði
aðeins tekist að skora eitt
mark í fimm leikjum, bætti
um betur og gerði þrjú
mörk í útisigri á Bradford.
Ekkert annað en fall bíður
nú Bradford-liðsins sem átti
undir högg að sækja allan
leikinn. Derby vann mjög
mikilvægan sigur á
Sunderland. Craig Burley
skoraði mark Derby og átti
að auki stangarskot.
-JKS
ENGLAND
Hermann Hreidarsson var í byrjunarliði Ipswich en
var skipt út af á lokamínútu leiksins gegn Leeds.
Arnar Gunnlaugsson var á varamannabekknum hjá
Leicester sem vann góðan sigur á Chelsea á Filbert
Street.
Guóni Bergsson stóð fyrir sínu aö vanda í vörninni hjá
Bolton sem gerði jafntefli við Q.P.R. á Loftus Road í
Lundúnum.
Bjarki Gunnlaugsson kom inn á 84. mínútu hjá
Preston sem vann góðan
útisigur á Portsmouth í 1.
deildinni.
Heióar Helguson lék all-
an leikinn með Watford
sem sigraði botnlið Shef-
field Wednesday á útivelli.
Graham Taylor, knatt-
spyrnustjóri Watford, taldi
þennan sigur mikilvægan
upp á framhaldið.
Stoke City varö að sætta sig við jafntefli á heimavelli,
1-1, gegn Northampton. Birkir Kristinsson, Brynjar
Björn Gunnarsson, Bjarni Guöjónsson léku allan
leikinn með Stoke en Ríkharöur Daðason kom inn á
á 72. minútu. Stoke er í fimmta sætinu með 49 stig en í
efsta sætinu er Millwall
með 57 stig.
Brentford með þá Ólaf
Gottskálksson og ívar
Ingimarsson innanborðs
gerði jafntefli við
Wycombe, 1-1, á útivelli í 2.
deildinni. Þeir félagar léku
allan leikinn en Brentford
er i 11. sæti með 39 stig.
Bjarnólfur Lárusson og
félagar hans í 3. deildarliöinu Scunthorpe fengu skell á
móti Blackpool, 6-0, og lék Bjarnólfur allan leikinn.
Scunthorpe er í 12. sæti meö 34 stig en efst er Chester-
field með 67 stig.
-JKS
Sport
ENGLAND I
Úrvalsdeild
Bradford-Aston Villa........0-3
0-1 Vassel (50.), 0-2 Vassell (58.), 0-3
Joachim (87.).
Coventry-Arsenal ...........0-1
0-1 Bergkamp (78.)
Derby-Sunderland............1-0
1-0 Burley (42.)
Ipswich-Leeds ..............1-2
0-1 Venus (28. sjálfsm.), 0-2 Keane
(41.), 1-2 Venus (63.)
Leicester-Chelsea...........2-1
1- 0 Izzet (24.), 1-1 Hasselbaink (75.),
2- 1 Rowett (76.)
Liverpool-West Ham .........3-0
1-0 Smicer (20.), 2-0 Fowler (45.), 3-0
Fowler (57.)
Manchester United-Everton . . 1-0
1-0 Watson (52. sjálfsm.)
Middlesborough-Man. City . . 1-1
0-1 Vickers (28. sjálfsm.), 1-1 Cooper
(62.)
Tottenham-Charlton .......0-0
Newcastle-Southampton......Fr.
Man. Utd 26 19 5 2 58-16 62
Arsenal 26 13 8 5 42-23 47
Liverpool 25 13 5 7 46-27 44
Sunderland 26 12 7 7 31-24 43
Ipswich 25 12 4 9 37-32 40
Leicester 25 11 6 8 26-27 39
Leeds 25 11 5 9 37-33 38
Chelsea 25 10 7 8 47-32 37
Newcastle 25 11 4 10 32-35 37
Charlton 26 10 7 9 34-38 37
Tottenham 26 8 9 9 30-34 33
Aston Villa 24 8 8 8 27-26 32
S’hampton 25 8 8 9 29-34 32
West Ham 25 7 10 8 32-30 31
Everton 25 7 6 12 26-37 27
Derby 26 6 9 11 27-43 27
Middlesbro 26 5 11 10 30-33 26
Man. City 26 5 8 13 30-45 23
Coventry 26 5 6 15 23—45 21
Bradford 25 3 7 15 16-46 16
1. deild
Birmingham-Norwich.........2-1
Blackburn-Barnsley ........0-0
Crewe-Burnley .............4-2
Crystal Palace-W.B.A.......2-2
Grimsby-Wimbledon .........Fr.
Huddersfield-Nott. Forest ... 1-1
Portsmouth-Preston ........0-1
Q.P.R.-Bolton..............1-1
Sheff. Wed.-Watford .......2-3
Stockport-Tranmere ........1-1
Wolves-Gillingham .........1-1
Fulham-Sheff. United ......l-l
Staöan í 1. deild
Fulham 30 22 5 3 68-22 71
Bolton 30 18 7 5 50-24 61
Blackburn 29 16 8 5 45-28 56
W.B.A. 30 16 6 8 41-34 54
Birmingh. 28 16 5 7 40-28 53
Watford 29 16 4 9 52-40 52
Nott. For 29 14 5 10 38-33 47
Preston 29 13 5 11 36-39 44
Sheff. Utd 30 12 8 10 32-30 44
Burnley 28 12 6 10 30-34 42
Wimbledon 28 10 8 10 42-33 38
Norwich 30 9 8 13 27-37 35
Wolves 29 8 10 11 30-33 34
Portsmouth 30 7 13 10 30-35 34
Gillingham 29 7 12 10 38—40 33
Crystal P. 29 8 9 12 43—46 33
Barnsley 30 8 7 15 30-41 31
Stockport 30 6 12 12 3949 30
Grimsby 28 8 6 14 2740 30
Crewe 28 8 4 16 26-39 28
Huddersf. 28 6 9 13 28-35 27
Tranmere 28 7 6 15 2946 27
Q.P.R. 29 4 14 11 3043 26
Sheff. Wed 30 7 5 18 32-54 26
SKOTLAND
Aberdeen-Hibernian ........Fr.
Dundee Utd-St. Johnstone ... 1-1
Kilmarnock-Motherwell .... 1-2
Rangers-Dunfermline ........2-0
St. Mirren-Dundee...........2-1
Hearts-Celtic...............0-3
Staða efstu liða
Celtic 25 21 3 1 69-21 66
Rangers 25 18 3 4 53-24 57
Hibernian 26 16 7 3 45-16 55
Kilmarnock 26 12 4 10 32-35 40
Hearts 27 10 6 11 38-40 36
Motherwell 26 9 5 12 3340 32
St. Johnst. 26 7 10 9 26-36 31
Dunferml. 26 8 7 11 23-3 31