Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 5
MÁNUÐAGUR 5. FEBRÚAR 2001
21
DV
Sport
Eyjastúlkur unnu mikilvægan
sigur í baráttunni um annað sætið
þegar þær sigruðu stöllur sínar úr
Fram, 21-20, i Fram-húsinu. Leikur-
inn var spennandi en góður kafli
Eyjastúlkna um miðjan síðari hálf-
leik og frábær markvarsla Vigdísar
tryggði þeim sigurinn.
Leikurinn gaf nokkuð vel til
kynna að spennan var mikil á báða
bóga. Handknattleikurinn var ekki
áferðarfallegur og spennustigið var
einnig hátt hjá þjálfurunum sem
báðir fengu gult spjald í fyrri hálf-
leik. Spennan virtist hins vegar fara
nokuð illa í dómara leiksins því oft
var ekki hægt að fá mikinn botn í
dómgæsluna hjá þeim og samræmið
var ekki fyrir hendi en þetta kom þó
nokkuð jafnt niður á báðum liöum.
Það var nokkuð jafnræði með lið-
unum til að byrja með og liðin
skiptust nokkuð á um að hafa for-
ystuna. En það má segja að viss
vendipunktur hafi verið undir lok
fyrri hálfleiks. Þá lentu Eyjastúlkur
í því að missa þrjár í brottvísanir
með stuttu millibili og þurftu að
leika þrjár á móti sex í rúma mín-
útu. Þetta náðu Framstúlkur hins
vegar ekki að nýta sér, Eyjastúlkur
héldu í horfmu og náðu síðan að
jafna fyrir leikhlé þegar þær voru
komnar með fullskipað lið að nýju.
Eftir þetta tóku Eyjastúlkur
smám saman frumkvæðið og tókst
betur að nýta það þegar Framstúlk-
ur lentu svo líka i því aö vera þrjár
á móti sex. Vigdís hrökk í gang svo
um munaði og varði alls 13 skot í
síðari hálfleik og munar um minna,
sérstaklega á meðan Hugrún í
marki Fram varði aðeins tvö skot í
þessum sama háifleik. Þrátt fyrir
þennan mun fengu Framstúlkur
tækifæri til að minnka muninn en
þær virtust ekki höndla spennuna
og gerðu afdrifarík mistök þegar
tækifærin komu. I stöðunni 18-20
kom t.a.m. ekki mark í sjö mínútur.
Framstúlkum tókst að minnka
muninn í eitt mark þegar ein og
hálf mínúta var eftir og gátu svo
jafnað leikinn en misstu boltann út
af þegar 40 sekúndur voru eftir.
Eyjastúlkur héldu boltanum út leik-
tímann.
„Þetta var hrikalega sætt,“ sagði
Vigdís Sigurðardóttir, markvörður
ÍBV, eftir leikinn. „Það var góð liðs-
heild sem skapaði sigurinn. Við vor-
um að spila vel saman í fyrri hálf-
leik og sýndum ótrúlegan karkter
með því að ná að halda jöfnu þegar
við misstum þrjár út af í brottvisan-
ir í fyrri hálfleik. Eftir það held ég
að liðið hafi fengið trú á því að við
myndum vinna þetta þó að þetta
hafi verið stress í lokin. Liöið er aö
smella saman nú eftir að Tamara
kom í nóvember." Vigdís var best í
sínu liði en Tamara Mandzec,
Amela Hegic og Anita Adreasen
áttu allar góðan dag.
„Þetta var hörkuleikur og nú
heldur baráttan um annað sætið
áfram. Við fengum tækifæri undir
lokin til að jafna leikinn en við
klikkuðum illa einn á móti
markmanni og þá var það erfitt,"
sagði Gústaf Adolf Björnsson og
hann vandaði dómurunum ekki
kveðjurnar. „Það er synd að fá
svona menn á slíka leiki sem koma
hingað með hangandi hendi og réðu
ekkert við þetta. Og þetta kom niður
á báðum liðum. Þetta var
skrípaleikur frá upphafi til enda.“
Eins og svo oft áður var það Marina
Zoueva sem bar uppi sóknarleik
Fram og Irena Sveinsson átti góða
innkomu í síöari hálfleik. -HI
Fram-ÍBV 20-21
0-1, 2-2, 4-3, 4-6, 8-7, 10-8, (11-11), lf-12,
12-14,15-14,15-18, 17-19,18-21, 20-21.
Fram
Mörk/viti (skot/viti): Marina Zoueva
10/2 (16/4), Irena Sveinsson 4 (11), Díana
Guðjónsdóttir 2 (6), Olga Prokhorova 1 (1),
Katrín Tómasdóttir 1/1 (3/2), Kristín
Brynja Gústafsdóttir 1 (4), Björk Tómas-
dóttir 1 (5), Hafdís Guðjónsdóttir (3),
Svanhildur Þengilsdóttir (1).
Mörk úr hraðaupphlaupmn: 1 (Díana).
Vítanýting: Skoruðu úr 3 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Hugrún
Þorsteinsdóttir 8/1 (28/5, 29%), Guðrún
Bjartmarz 0 (1/1,0%).
Brottvisanir: 8 mín. (Gústaf Adolf
Bjömsson þjálfari fékk rautt spjald fyrir
mótmæli á lokasekúndum leiksins.)
ÍBV
Mörk/viti (skot/viti): Tamara Mandzec
8/4 (13/5), Amela Hegic 7/1 (8/1), Anita
Andreasen 5 (8), Ingibjörg Ýr
Jóhannsdóttir 1 (5),
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Anita).
Vitanýting: Skoruðu úr 5 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 21/2 (41/6, 51%), eitt víti í
stöng.
Brottvisanir: 18 mín. (Anita Andreasen
fékk rautt fyrir þijár brottvisanir á 52.
mínútu).
Dómarar (1-10): Ingvar Reynisson
og Einar Hjaltason (3).
GϚi leiks (1-10): 5.
Áhorfendur: 120.
Maður leiksins:
Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV.
Haukar-Víkingur 27-20
o-l, 3-1, 5-2, 7-2, 9-3,11-4,13-5,15-5, (16-7).
16-9, 18-11, 19-13, 21-14, 23-16, 25-16, 26-17,
27-20
Haukar
Mörk/víti (skot/víti): Harpa Melsteð 7/5
(8/6), Tinna Halldórsdóttir 4 (8), Auður Her-
mannsdóttir 3 (5), Hanna Stefánsdóttir 3 (4),
Brynja Steinsen 2 (2), Björk Hauksdóttir 2
(2), Hjördis Guðmundsdóttir 2 (3), Inga Friða
Tryggvadóttir 2 (4), Heiða Erlingsdóttir 1 (1),
Telma Ámadóttir 1 (3), Sandra Anulyte 1.
Mörk úr hraóaupphlaupunv 3 (Tinna,
Telma, Inga Friða)
Vitanýting: Skorað úr 5 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Jenný Ás-
mundsdóttir 14 (30/5,46%), Berglind Hafliða-
dóttir 0 (4,0%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Vikineur
Mörk/viti (skot/viti): Kristín Guðmunds-
dóttir 7/1 (16/2), Guðrún Olgeirsdóttir 5 (5),
Gerður Beta Jóhannesdóttir 2/2 (3/2), Mar-
grét Egilsdóttir 2 (4/1), Guðbjörg Guðmanns-
dóttir 2 (6), Steinunn Bjamason 1 (3), Eva
Halldórsdóttir 1 (3).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Guðrún 3,
Guðbjörg).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 5, eitt fram hjá og
eitt í stöng.
Varin skot/viti (skot á sig): Helga Torfa-
dóttir 11 (35/6, 40%), Laufey Jörgensdótth
(3/0,0%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur
Erlingsson og Tómas Sigurdórsson (6).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 70.
Maður leiksins: Jenný
Ásmundsdóttir, Haukum.
Haukar 14 13 1 353-252 26
Stjarnan 14 10 4 331-279 20
ÍBV 14 10 4 303-289 20
Fram 14 9 5 358-298 18
Víkingur 14 8 6 301-273 16
Grótta/KR 14 7 7 313-294 14
FH 14 6 8 335-322 12
Valur 14 5 9 249-292 10
KA/Þór 14 2 12 259-329 4
ÍR 14 0 14 171-345 0
Nœstu leikir i deildinni
verða á föstudag og leika þá ÍBV
og Víkingur í Vestmannaeyjum
og Valur og Fram að Hlíðarenda
og hefjast báðir leikirnir
klukkan 20. Á laugardeginum 10.
febrúar tekur Stjarnan á móti
efsta liðinu, Haukum, í Garðabæ
og hefst leikurinn klukkan 14.
„Stefnt á allt“
- Haukar lögðu Víking að Ásvöllum, 27-20
Haukar unnu Víking í Nissan-deild kvenna á
laugardaginn á heimavelli, 27-20. Gestimir
skoruðu fyrsta mark leiksins og við það fóru
Haukarnir í gang, spiluðu góða vöm næstu 15
mínútur leiksins, og skoruðu 9 mörk á móti
tveimur mörkum gestanna. Á þessum tíma var
algjört ráðleysi í sóknarleik Víkinga, vörnin
hriplek og heimastúlkur gengu á lagið og juku
forskotið jafnt og þétt til hálfleiks með öguðum
og skipulögðum sóknarleik. Víkingar þurfa að
laga sinn varnarleik ef þeir ætla að fara vinna
leiki. Gestirnir, sem höfðu unnið fjóra leiki í
röð og komið sér í annað sæti deildarinnar,
hafa nú tapað síðustu tveimur leikjum og dott-
ið niður í fimmta sætið.
Haukamir eru með langbesta liðið í dag ef
tekið er tillit til stöðunnar og árangurs í vetur.
Hópurinn er jafn og sterkur og Haukar geta
leyft sér að hvíla lykilmenn þegar þeir vilja og
er það munaður sem fæst lið geta leyft sér.
Víkingsstúlkur komu grimmar tfl leiks í
seinni hálfleik enda væntanlega ekki ánægðar
með leik sinn í fyrri hálfleik og minnkuðu for-
skot heimastúlkna í sex mörk. Á þessum tíma
kom smábakslag í leik Hauka og hefðu gestirn-
ir eflaust náð að minnka forskotið enn frekar
hefði ekki komið til góð mark-
varsla Jennýjar í marki Hauka á
þessum tíma. Heimastúlkur náðu
sér aftur i gang áður en í óefni fór,
kláruðu leikinn og fögnuðu sigri
sínum vel. Til að strá salti í sár
Víkinga skoruðu Heiða Erlingsdótt-
ir (1) og Hjördís Guðmundsdóttir
(2), leikmenn sem eru uppaldir í
Víkingi, undir lok leiksins. Heiða
Erlingsdóttir er öll að koma til og
styrkir hún Hauka mjög mikið
enda er þar virkflega góöur leik-
maður á ferð.
haldi áfram. Við hættum aö spfla sömu hluti og
við vorum að gera i fyrri hálfleik sem tókust
mjög vel og Víkingar græddu á því,“ sagði
Ragnar Hermannsson, þjálfari Hauka. „Það er
erfitt að halda einbeitingu þegar maður er kom-
inn með gott forskot. Við keppum í
undanúrslitum bikarkeppninnar á
þriðjudaginn þar sem við ætlum okk-
ur sigur enda er stefnan sett á alla
titla sem eru í boði.“
Hrikalegt í einu oröi sagt
„Þetta var hrikalegt í einu orði
sagt, við náðum að vinna seinni hálf-
leikinn, það er líklega eina jákvæða í
leiknum. Sóknarleikurinn í þessum
Jenný Ásmundsdóttir átti leik lenti allt of mikið á Kristínu
góðan leik (markí Hauka. sem er besti sóknarleikmaður okk-
ar, aðrir leikmenn þurfa að láta
„Þegar maður er með níu marka forskot í meira tO síns taka í leikjum," sagði Helga Torfa-
háífleik vifl maður ekkert leikhlé og ieikurinn dóttir, markmaður Vikings. -BB