Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Page 11
MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001
27
Sport
Körfuknattleikur kvenna:
framtið
margar efnilegar stelpur eru á leiðinni og sumar farnar að láta að sér kveða
Kvennakörfubolti hefur verið í
sókn að undanfomu eftir að hafa
verið í þó nokkurri lægð. Breidd-
in í 1. deild kvenna er að aukast og
fleiri lið en Keflavík og KR eiga
loks möguleika á að hampa ís-
landsmeistarabikarnum í vor.
KFÍ er komið með skemmtilegt
lið sem er sterkt og hefur sett
skemmtilegan svip á deildina.
Sömuleiðis hefur lið eins og
Grindavík verið í framfor.
Keflavík í sérflokki
Mikið er af ungum stelpmn i
deildinni sem eru að gera það gott
þrátt fyrir ungan aldur. Keflavík
hefur nánast verið í sérfiokki í
yngri flokkunum og hefur öflugt
yngri flokka starf hjá kvenna-
flokkunum séð til þess að Kefavík
er ávallt í fremstu röð. Nú hafa
fleiri lið gert sér grein fyrir því að
til þess að eiga meistaraflokk í
fremstu röð þarf að huga vel að
yngri flokka starfinu. Stelpumar
era famar að fá betri þjálfara,
meiri æfingatima og betri um-
gjörð. Þótt það séu einungis 5 lið í
efstu deild kvenna þá eru fleiri lið
í annarri deild sem eru að byggja
upp sin lið i rólegheitum.
Umsjón
Benedikt Guðmundsson
Unglingasíðunni lá forvitni á að
vita hverjár væri stjörnur framtíð-
innar í kvennakörfunni og fékk af
því tilefni Karl Jónsson, þjálfara
KFÍ og fyrrum þjálfara stúlkna-
landsliðsins, til að tilnefna efnileg-
ustu stúlkur landsins í körfúnni.
Hann fékk Ellert Sigurð Magnús-
son, þjálfara yngri landsliðanna,
sér til hjálpar og settu þeir saman
lista yflr 10 efnilegustu stúlkur
landsins og síðan þær sem koma
næstar á eftir. Listinn er settur
upp eftir aldri stúlknanna þar sem
þær elstu koma fyrst og síðan koll
af kolli.
Margir möguleikar
Það vekur athygli að á listanum
er ein stelpa sem leikur sem at-
vinnumaður í Noregi. Ekki hefur
verið mikið um það að kvenmenn
hafi farið utan til að leika
körfuknattleik. En þetta sýnir að
það eru möguleikar fyrir hæfi-
leikaríkar stelpur sem vilja ná
langt í greininni og það eru ekki
einungis möguleikar fyrir strák-
ana. Einnig á listanum er stúlka
sem leikur 1 mekka körfuboltans,
Ameríku, og þar er annar mögu-
leiki fyrir stelpur með metnað.
-BG
Keflvíkingurinn Svava Stefánsdóttir er ein af mörgum sem hafa komið í gegnum öflugt yngri flokka starf félagsins.
Topp tíu listi Karls
Sólveig Gunnlaugsdóttir, KFÍ (1981)
Bakvöröur
Er með frábæra undirstöðu, er mjög útsjónarsamur
leikmaður sem gert getur flest það á velli sem hægt er
að gera. Bar Grindavíkurliðið á herðum sér á síðasta
tímabili og var valin í 5 manna úrvalslið 1. deildar
kvenna. Með meiri snerpu verður hún illviðráðanleg.
Hildur Sigurðardóttir, KR (1981)
Bakvöröur
Hefur yflr miklum líkamsstyrk að ráða og er mjög
kjarkmikill leikmaður. Knattmeðferð hennar er með
eindæmum góð og hún er mikill frákastari þrátt fyrir
að leika stöðu leikstjórnanda. Leikur lykilhlutverk í
toppliði KR. Þarf að huga betur að skotinu hjá sér en
komist hún á ferðina upp að körfunni ráða fáir við
hana.
Stella Rún Kristjánsdóttir, ÍS (1981)
Bakvöröur
Útsjónarsamur leikmaður og sérlega hittinn úr
langskotum. Getur spilað bæði skotbakvörð og leik-
stjómanda. Yflrveguð og gerir fá mistök. Með aukn-
um líkamsstyrk og meiri snerpu getur hún orðið enn
öflugri leikmaður.
Guörún Karlsdóttir, Keflavík (1982)
Framherji
Líkamlega sterkur leikmaður með ágætt skot af
millifærunum. Fínn frákastari og með hugann við
boltann á hún framtíðina fyrir sér.
Dúfa D. Ásbjörnsdóttir, Gimle, Noregi
(1982) Bakvöröur
Kraftmikill og drífandi leikmaður með mikið
keppnisskap. Er góður varnarmaður, hefur skot-
lengd út fyrir þriggja stiga línu og býr yfir fyrirtaks-
tækni. Leikur sem atvinnumaður í Noregi.
Helga Jónasdóttir, Njarövík / USA (1982)
Miöherji
Hávaxinn leikmaður, sterkur frákastari og skot-
blokkari. Leikur eins og er í Bandaríkjunum.
Stefanía B. Lúövíksdóttir, Keflavík (1982)
Bakvöröur
Útsjónarsamur leikmaður sem býr yfir góðum
hraða og fyrirtaks knattmeðferð. Hefur einnig ágætt
skot. Hefur leikið vel með Keflavík í vetur.
Fjóla Eiríksdóttir, KFÍ (1983)
Framherji
Hávaxinn leikmaður en hefur yfir góðri boltameð-
ferð að ráða og skottækni. Er mikill skotblokkari og
góður frákastari. Hefur spilað vel á sínu fyrsta ári í
1. deild í vetur.
María A. Guömundsdóttir, Keflavík (1983)
Bakvörður
Mjög skemmtilegur leikmaður sem leikur stöðu
leikstjómanda. Er óhrædd við að taka af skarið, hef-
ur gott skot utan af velli og finnur aðra leikmenn vel
með góðum sendingum. Er að ná sér á strik á ný eft-
ir erfið meiðsli.
Svava Ósk Stefánsdóttir, Keflavík (1984)
Bakvörður
Enn einn leikmaðurinn úr góöu prógrammi Kefl-
víkinga. Fjölhæf stúlka sem leggur sig 100% fram í
öllum leikjum. Líkamlega sterk og mikið efni.
Næstu tíu inn á listann.-
Ólöf Pálsdóttir Grindavík, Erna Magnúsdóttir Grindavík, Theodóra
Káradóttir Keflavík, Petrúnella Skúladóttir Grindavík, Sigríður
Anna Ólafsdóttir Grindavik, Hekla M. Sigurðardóttir ÍS, Halldóra
Andrésdóttir USA/Tindastóli, Eva María Grétarsdóttir KR, Sólborg
Hermundsdóttir Tindastóli, Guðrún Baldursdóttir ÍA
-BG