Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Blaðsíða 3
g f n i
Fjórum bráðefnilegum piltum úr skóla þeim er við verslun kennir sig hefur tekist að
troða í sig oggulítilli sneið af rjómatertu auglýsingamarkaðarins en hafa ekki einu
sinni efni á .is-viðskeytinu vinsæla. Hugmyndunum eiga þeir hins vegar gnótt af og
eru að hefjast handa við gerð aiíslenskra teiknimyndaþátta um Einfætlingana.
Þeir Hjörtur Hjartarson, Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Guölaugur Aöalsteinsson og Valdimar Kristjónsson eru haröjaxlar og þurfa engan umboösmann.
„Við rákum umboðsmanninn. Það
gerðu Spice Girls líka og sjáðu hvar
þær eru í dag,“ segja fjórmenning-
amir á Kringlukránni og eru á því
að þetta sé masterlykill að velgengn-
inni. Þeir hafa brallað ýmislegt sam-
an og meðal annars búið til auglýs-
ingar fyrir ljósvakamiðla, sett upp
heimasíður og blöð fyrir fyrirtæki
og búið til teiknimyndir. „Við erum
líka með fylgdarþjónustu og svo
spilar Valdi líka á skemmtara í
þorrrablótum," segir Gulli við góðar
undirtektir Dodda og Hjartar. „Ég
vil ekki sjá að þú skrifir skemmtara,
ég spila á píanó,“ leiðréttir Valdi
hörundsár og uppsker frekari hlát-
ur. Hann og Gulli leika einnig sam-
an í söngleiknum Wake Me up
before You Go Go í Loftkastalan-
um og hafa lítinn tíma til annars nú
um stundir.
Ósmekklegt að sleppa
fleiri útlimum
Auk auglýsinganna hafa strákarnir
nú hrundið gamalli hugmynd í fram-
kvæmd, gerð teiknimyndaþátta fyrir
sjónvarp, og sótt um styrk í Ball-
antinessjóðinn. „Þetta er ádeila á ís-
lenskt þjóðfélag og við myndum taka
fyrir áberandi fólk og málefni og gera
grin að íslenskum siðum. Við erum
nefnilega gæddir þeim einstaka hæfi-
leika að gera grín að fólki á þess
kostnað,“ segja þeir „Það vantar líka
íslenska teiknimyndaseríu. Eina
teiknimyndin sem ég man eftir er aug-
lýsing fyrir skólaost," segir Gulli. All-
ar persónur þáttanna eru einfættar,
enda eiga þeir að heita Einfætlingam-
ir. „Það er mjög skemmtilegt og býður
upp á marga möguleika. Þarna mótast
kynþáttafordómar af því hvort menn
eru með vinstri eða hægri löpp og það
eru allir öryrkjar. Þeir sem hafa tvær
lappir eru sendir á Ólympíuleika fatl-
aðra og í venjulegum einfættum fót-
boltaleikjum detta leikmenn eftir
hvert skot, alveg eins og í ítalska bolt-
anum,“ segja Doddi og Valdi. „Svo
sparar það bæði tíma og peninga að
hafa kallana einfætta en kannski
ósmekklegt að sleppa fleiri útlimum,"
játa þeir.
Dreymir um
dömubindaauglýsingu
Frægasta auglýsing strákanna til
þessa, og reyndar sú eina sem þeir
vilja láta bendla sig við er auglýsing
sem þeir gerðu fyrir markaðsstjóra
BSR, sjálfan Fjölni Þorgeirsson.
„Þeir leyfðu okkur alveg að ráða öllu.
Ef við værum stórt auglýsingafyrir-
tæki þyrftum við að gera auglýsingar
eftir annarra höfði. Það er miklu
skemmtilegra að fá að vera grófir. Af
hverju má til dæmis ekki segja typpi í
auglýsingum," spyrja þeir. „Óskaaug-
lýsingin hlýtur að vera dömubinda-
auglýsing,“ segir Hjörtur og hinir
samsinna. „Við verðum að gera dömu-
binda-, bleiu- og bílaauglýsingu áður
en við hættum." Timinn er nægur því
þeir eru eiginlega ekki byrjaðir og
ætla að ljúka náminu i Versló áður en
þeir snúa sér að fullu að auglýsinga-
geiranum. „Við viljum gera eitthvað
kreatíft og erum í startholunum með
margmiðlunarfyrirtæki fyrir þetta
allt,“ tilkynna þeir. „Því Internetið er
komið til að vera,“ smyr Gulli ofan á
með beyglað bros á vör. Fyrirtækið
ber nafnið Hugmyndir. „Það væri
reyndar fyndið að hafa það Hugmynd-
ir.is, en við höfum ekki efni á því. En
við borðum mikið skyr.is og hlustum
á Buttercup.is," segja þeir að endingu.
Stuttmyndadagarnir eru árlegur viðburöur í Reykjavíkurborg og í vor verða þeir : ^
haldnir í 10. skipti. Jóhann Sigmarsson kvikmyndagerðarmaður er einnig umsjón-
armaður hátíðarinnar og hann lofar að hátíðin verði stærri og glæsilegri en áður.
Stærri og flottari stuttmynd
„Þetta er í tíunda sinn sem þessi
stuttmyndahátíð er haldin og það
hafa myndast tengsl við aðrar
stuttmyndahátíðir erlendis. Við
fáum verðlaunamyndir að utan
sendar til okkar til að sýna og héð-
an í frá verða myndirnar hátt i
hundrað talsins, bæði íslenskar og
erlendar, en ekki 40-50 íslenskar
stuttmyndir eins og áður hefur
verið,“ segir Jonni.
Afmælishátíð
Þar sem þetta er afmælishátíð
Stuttmyndadaga verða gerðar ein-
hverjar breytingar og hátíðin verð-
ur töluvert stærri í sniðum og
glæsilegri en áður. Þetta verður
haldið í tveimur sölum í Háskóla-
bíói dagana 22.-25. maí. „Það er
miklu meira varið í að taka þátt í
þessu núna, þegar þetta er blanda
af erlendum og íslenskum stutt-
myndum og samkeppnin er meiri.“
Eins og áður hefur verið er það
borgarstjórinn sem í lok hátíðar-
innar veitir verðlaun fyrir fyrsta,
annað og þriðja sætið. „Fyrstu
verðlaun eru glæsilegur gripur úr
bronsi sem nefnist íslenska
skreiðin eftir Stefaníu Sverris-
dóttur myndhöggvara." Það er
líka verið að vinna í að fá hingaö
erlenda fyrirlesara. „Það á eftir að
koma í ljós nákvæmlega hver það
verður en við erum að gæla viö þá
hugmynd að fá hingað John
Waters sem gerði meðal anriars
myndimar Cry Baby, Serial
Mum og Hairspray."
Byrjað að taka við
umsóknum
Jonni segir að byrjað sé að taka
við umsóknum og hægt sé að
sækja um á visi.is eða á skrifstofu
Kvikmyndasjóðs við Túngötu 14
þar sem umsóknareyðublöð liggja
frammi. Þátttökugjaldið er 1500
krónur en eftir 4. apríl hækkar það
í 2000 krónur. Þann 6. maí er svo
allra síðasti séns að sækja um. Að-
spurður um tilgang hátíðar af
þessu tagi segir Jonni hann aðal-
lega vera að leiða saman unga
kvikmyndagerðarmenn svo þeir
geti sýnt sín verk, skoðað verk
annarra og skipst á skoðunum.
„Þetta er líka gott tækifæri fyrir
unga kvikmyndagerðarmenn sem
vilja og eru að reyna að koma sér
Jóhann Sigmarsson er umsjónarmaöur Stuttmyndadaga sem veröa haldnir í vor. áfram í greininni."
Nasistamell-
urnar:
Leita að
klámi á
Netinu
Ólympískir hnefaleikar:
Öruggari en að vera
klappstýra
Hvernig þú átt
að taka á móti barni:
í leigubfl!
Dr. Gunni:
Guðna í
varafor-
manninn
Uppstoppaðir
Islendingar:
Og líka
þeir sem
hafa
breyst
Crazy Toum:
Einnar
nætur
gaman
Rammstein:
Langar til
íslands
ís
Jennifer Tzar:
Myndar
flottu
Islendingana
www.visir-is/fokus
fokusSfokus • is
rl í f i ö
Múm oa Slowblow snúa aftur
Hannbal Lecter er ekki hættur
Hliómsveitin Delphi stefnir á olötu
Litla vámpiran í bíó
Forsíöumyndina tók Hilmar Þór
af Nasistamellunum
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
23. febrúar 2001 f Ó k U S
3