Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Blaðsíða 4
Heilbrigt fólk tekur jafn mikið mark á kúkandi nasista og nasista í ræðustól. Enginn tekur mark á mellum. Hversu bágt eiga þá Ingvar Valgeirsson og Stefán Örn Gunnlaugsson sem mynda dúettinn nýskipaða, Nasistamellurnar? „Hvað viltu okkur?“ spyrja bein- skeyttu Nasistamellurnar og trú- badorarnir Ingvar og Stefán þegar þeir eru sestir í betri stofu Fókuss. Það liggur beinast við að forvitnast um söguna. „Við höfum spilað mikið hvor í sínu lagi. Við erum líka sam- an í tveimur hljómsveitum, Mið- bunuþvag og Scandal. Við höfum bara troðið tvisvar upp á Dubliner sem Nasistamellurnar ... og fengið borgað í bæði skiptin." Nýbúinn að fá sér tattú (hvaða nýbúi?) Stefán var hálfgildur meðlimur Ríó tríós tíunda áratugarins, Skíta- mórals. „Ég var óvart ráðinn eftir síðustu verslunarmannahelgi þegar ég spilaði blindfullur með þeim í Miðgarði," segir kempan og bætir svekkt við: „Ég var nýbúinn að fá mér tattú þegar þeir hættu.“ Ingvar hefur afplánað rúman lífstíðardóm í bransanum, ellefu ár, aðallega í ein- angrun. „Trúbadorar eru bara svo leiðinlegir," viðurkennir hann. „Ég hef oft verið í samstarfi við aðra, en það er bara til skemmri tíma og svo er ég rekinn. Ætli ég verði ekki áfram trúbador þegar Stebbi er kom- inn í einhverja nýja fræga hljóm- sveit,“ segir mellan. „Kannski endar þetta á því að ég drepi þig, eða lama þig,“ segir Stebbi hugsi. „Ég myndi nú alveg fyrirgefa þér það,“ svarar Ingvar að bragði og greinilegt að vin- skapurinn ristir djúpt. í gamlársmat til svertingja Hið stúfstingandi nafn, Nasista- mellumar, er sótt i orðaforða Zúkka P, kollega þeirra úr sukkinu . „Hann notar orðið allmikið, og merkingin getur bæði verið góð og vond.“ Þannig aö þið eruó þá engir nasist- ar? „Nei, við erum alveg lausir við það. Ef það eru einhverjir sem við hötum um þessar mundir þá eru það þessi lélegustu eintök hvítra manna, þjóðemissinnarnir, sem predika kyn- þáttafordóma. Eins og þessi Ola gefni fermingardrengur undan Eyjafjöllum sem var á forsíðu DV um síðustu helgi.“ Þessu velta mellurnar fyrir ’MiiSSV'tMi msmSM Nafnið Nasistamellurnar er sótt í orðaforða eins félaga þeirra og segjast þeir í raun ekki vera neinir nasistar. Strákarnir segja að annað hvort skilji fólk brandarann sem nafnið er eða ekki og leggja þeir ríka áherslu á að hljómsveitin eigi ekkert skylt með íslenska þjóðernisflokknum. sér nokkra stund og spá í að bjóða fram lista í borgarstjórnarkosning- um sem gæti meinað „redneckum undan Eyjafjöllum" að komast inn fyrir borgarmörkin. „Mtn reynsla af útlendingum er bara góð,“ segir Ingvar. „Gítarkennarinn minn til margra ára er til dæmis af gyðing- aættum og hann er frábær. Svo býr svertingi i sama húsi og ég og hann bauð mér í mat á gamlárskvöld, með öllu.“ En misskilur fólk ekki nafnið? „Það skiptist eiginlega í tvo flokka, þeir sem ná brandaranum og þeir sem misskilja hann. Við lentum til dæmis í því, um daginn þegar við vorum að spOa, að það kom til okkar einhver úr hópi þjóðemissinna og hann var svona rosalega ánægður með nafnið og hélt bara að þarna væri komin hljómsveit flokksins, NasistameOurnar. Það lýsir kannski greindarvísitölu þeirra best.“ Leita að klámi og selja hljóðfæri Fylgir þessu ekki mikill ólifnaöur? „Nei, við erum vinnandi menn og tökum ábyrgð á okkar lífi,“ segja þeir mjög ósannfærandi. „Við getum ekki sagt frá þessu skemmtilegasta, en við erum ljúflingspOtar. Mamma getur staðfest það,“ segir Ingvar og nefnir son sinn líka sem vott. „Við erum bara plebbar og fílum það, við förum í ljós,“ segir Stebbi. MeOurnar koma öOum andskotanum fyrir í prógramminu sínu, allt frá átta- tíuogeitthvað-lögum í auglýsingastef en þær eru ekki með plötuútgáfu á prjónunum og þetta er meira hobbí útskýra þær. Eitthvað tO að gripa í á mOli annarra verkefna. Báðir eru svo pikkfastir í tónlistarbransanum að þeir vinna saman í tónlistarbúð, með svohljóðandi starfslýsingu: „Við erum mjög uppteknir við að leita að klámi ávNetinu og pranga hljóðfær- um inn á fólk.“ Auk þess að semja og útsetja fyrir sjálfan sig vinnur Stebbi nú að R’n B-lögum fyrir hina bráð- huggulegu sænsku Yasmine, verð- andi júróvisjónfara. „Svo er maður auðvitað alltaf að stefna á sólóferO- inn,“ segir hann. „Nei, heyrðu, ég ætlaði að segja það,“ skýtur Ingvar inn. Þetta verður meOunum tOefni tO kýtinga þangað tO þeir eru krafðir um lokaorð. „Ja. Við biðjum að heOsa Helgu Finns og vOjum að skrOlinn mæti og horfi á okkur á Celtic Cross um helgina." seyöi hjá sveini waagef 4HP' Ut að Bretum „Ég er bókaður á Isafirði næstu helgi og var líka að skemmta um síð- ustu helgi. Maður gerir þetta svona af og til á árshátíðum, í veislum og þess háttar og það hefur gengið mjög vel. Svo stendur tO að fara tO Bretlands júlí eða ágúst að skemmta Bretunum," segir Sveinn og bætir því við að hann sé með tvær umboðsskrifstofur sem hafa verið að vinna í að útvega nokk- ur deit fyrir hann úti. „Ég er bara ekki þannig týpa að ég hlaupi beint í Séð og Heyrt í hvert sinn sem ég geri eitt- hvað,“ skýtur hann inn í. Hvemig kom til aó þú byrjaöir aö skemmta? „Það er langt síðan ég fór að gala fyrir framan fólk. Ég hef bæði verið í ræðumennsku og í leikfélaginu í Vest- mannaeyjum þar sem ég fékk tvisvar aðalhlutverk, meðal annars lék ég Mikka ref,“ segir hann og hlær. „Svo byrjaöi ég í stand-uppi þegar ég bjó í Bandaríkjunum á ýmsum amatör- klúbbum. Þegar ég svo Vann amatör- keppni fór ég að spá í hvort ég gæti ekki fengið fleiri til að brösa.“ Þegar Sveinn flutti aftur heim fór hann að skemmta á gamla Sir Oliver og Vegamótum. Það var í kjölfarið á því að keppnin fyndnasti maður ís- lands var sett af stað en Sveinn var fyrstur manna tO að vinna þann titO árið 1998. „Eftir þetta hef ég aldrei þurft að leita mér að vinnu heldur hef- ur fólk aOtaf hringt og bókað mig og ég hef haft alveg nóg aö gera. Þetta hefur samt aUtaf verið áhugamál í mínum huga en ekki framtíðarstarf þó maður hafi nánast ekki gert annað á árunum 98-99,“ segir Sveinn og bætir því við að hann sé nú deOdarstjóri hjá EUco með stand-uppið sem aukavinnu. Sveinn semur sjálfur aUt efnið sem hann flytur. „Ég hef leitað mikið á heimaslóðir þegar ég er að semja en það er margt fyndið sem gerist þar,“ segir Sveinn sem er Eyjamaður. „Svo notast ég við hluti sem eru mér hjart- fólgnir, svo sem trúarbrögð, stjómmál og einnig eru æskan og kynþroskinn aUtaf jafnfyndin tírnabU." Nú ertu aö fara til Bretlands, er ekk- ert mál aö ná til útlendinganna? „Ég hef oft veriö fenginn tO að skemmta útlendingum og aUtaf fengið mjög góðar viðtökur. Svo eru fyrir- myndirnar mínar flestar breskar, eins og hann BUly Connely sem ég hef reyndar verið sakaður um að vera að stæla og það löngu áður en ég vissi hver hann var. Ástæðan er sú að ég hef verið að leika með ýmiss konar framburði og mismunandi hreim, eins og tO dæmis skoska hreiminn, og það gerir hann líka þegar hann skemmtir." f Ó k U S 23. febrúar 2001 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.