Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2001, Síða 14
í f ó k u s
Jennifer Tzar fæddist í New York, óx þar úr grasi og starfaði sem stílisti í níu ár.
Fyrir þremur árum fór hún að taka Ijósmyndir og nú vinnur hún m.a. fyrir glans
tímaritið Fidget sem gefið er út í Bandaríkjunum og Evrópu. Hún var á íslandi á
dögunum til að mynda flotta fólkið í Reykjavík. Margrét Hugrún fletti Ijósmynda
möppunni hennar og sá myndir af Snoop Dogg, Indverja í Playboybol með úlfalda í
bandi og dánum hermanni í Kosovo.
Tekur myndir af Snoop Dogg
og íslenskum plötusnúðum
Jennifer Tzar starfaöi sem stílisti í níu ár áöur en hún byrjaöi aö taka myndir. Þaö var fyrir þremur árum og hefur henni
gengiö allt í haginn síöan. Hún dvaldist á íslandi á dögunum, í sinni fjórðu heimsókn hingað, og tók m.a. myndir af ís-
lenskum plötusnúöum fyrir næsta tölublaö Fidget. Meö henni á myndinni er Michael Sturgeon, vinur hennar, sem einnig
hefur dvalist mikiö hérlendis.
HOSCUVBLADIB
BRÉF
TIL BLAÐSINS
KrátfoiuiiH03fU, y»v*«SúniS69 1100 •Símbn'15691»
Dálkurinn Bréf til blaösins í Mogganum er ein-
hver mesti skemmtilestur síðan Gunnar Dal
gaf síðast út bók. Þarna virðast bréfin hafna
sem ekki eru alveg nógu normal til að fá skika
á umræðusíðunum með mynd af höfundi. Mik-
ið eru þetta greinar um kristileg gildi I þjóðfé-
laginu, boðorðin tiu og ábendingar um sóknar-
starf, ritdeilur sem staðið hafa lengur en ár og
ekki síst þúsaldarumræðan. Já, fólkið sem er
enn að karpa um það hvenær árþúsundaskipt-
in gengu í garð skiptir sér þarna í tvær and-
stæðar fylkingar og skylmist hatrammlega
með bleki. Rúsínan í pylsuendanum er svo
fólgin í þeim bréfum sem engin leið er að
skilja inntakið í eftir þriðju lesningu og vekja
þá tilfinningu hjá manni að þau séu skrifuð af
verandi vistmönnum rikisspítalanna, fyrrver-
andi og verðandi. Orsakasambandið þar á
milli er greinilegt, en á hvorn veginn það virk-
ar er erfitt að átta sig á. Það kaldhæðnislega
við þau bréf er að þeim svipar ískyggilega til
þeirra sem birt eru á fremri siðum (með
mynd). Stundum les maður um stúdentapóli-
tik, kvótaeign, flugvallamál eða sérhæfðar
læknispælingar um grindarbotnsvöðva gamal-
menna og veltir því enn fyrir sér eftir þriöja
iestur hvert inntakið var og hvenær greinarhöf-
undur verður færður undir dálkinn Bréf til
blaðsins og sviptur myndinni.
ú r f ó k u s
Bíla- og tryggingaauglýsingar eru leiðinieg-
asta efnið sem sést á sjónvarpsskjám lands-
manna nú um stundir. Myndir af hressri fjöl-
skyldu í bílferð þar sem kynslóðabil okkar
tíma virðist gleymt ganga hreinlega ekki upp í
þessu hraða samfélagi sem við lifum í. Þá er
eftir að minnast á þær auglýsingar sem virð-
ast gefa það í skyn að strákar eða stelpur geti
pikkað upp aðila af hinu kyninu með það eitt
að vopni að aka um á nýjustu týpunni af við-
komandi bíl um auðnir landsins. Tryggingaaug-
lýsingarnar eru heldur ekki mikið skárri, hæg
myndskeið með rólegri og taktfastri tónlist
undir er uppskriftin sem höfundar þessarar
hörmungar viröast halda að gangi upp. Ein-
hvern veginn verður maður að efast um að
margir áhorfendur þessara auglýsinga hafi
rokið til og keypt nýjasta Landcrulserinn eða
fjólskyldupakkann hjá VÍS eða eitthvað á
þeim nótunum. Væri ekki nær lagi að trygg-
ingafélögin lækkuðu iðgjöldin og bílaumboðin
lækkuðu verðið I stað þess að sóa peningun-
um í þessa vitleysu. Eina fólkið sem hefur
gaman af að horfa á auglýsingar horfir á Sjón-
varpskringluna ogværi þá ekki nær að smella
þessum auglýsingum bara þangað?
„Ég tók með mér föt og hluti
sem tónlistarfólkið leikur sér eitt-
hvað að, klæðir sig í eða gerir eitt-
hvað skemmtilegt við. Þetta eru
vörur eftir hönnuði frá Chanel,
Diesel, Givenchy, As Four, Yohji
Yamamoto og fleiri flotta. Blaðið
sem kemur út næst fjallar um tón-
list og þetta verður tískuþátturinn
- það fylgir líka plata. Þetta er
íjórða blaðið sem er gefið út und-
ir nafninu Fidget, sem þýðir eirð-
arleysi. Hvert blað er mjög sér-
stakt og ekkert er i eins broti. Eitt
var risastórt, annað í A4-stærð og
næsta verður ferkantað eins og
plata. Fyrir síðustu blöð ferðaðist
ég m.a til Lapplands, Júgóslavíu
og Indlands. Nú er ég hér og búin
að hitta fullt af fólki; Árna E, Stef
úr Gus Gus, Margeir og Árna
Sveins, svo einhverjir séu nefnd-
ir,“ segir Jennifer þegar hún er
fyrst spurð um pælinguna að baki
þessu öllu.
Stelpurnar bíða eftir að
þeim sé riðið
Hefurðu ekki hitt neinar stelpur?
„Nei, það virðist vera að þetta
sé bara einhvers konar stráka-
klúbbur hérna. Eina fólkið sem ég
hef eitthvað talað við eru strákar.
Þetta er mjög skrýtið hérna í
Reykjavík. Strákarnir virðast all-
ir hanga saman og stelpurnar
saman. Ekkert verið að blanda
neitt saman nema ef það á að para
sig eða eðla. Það virkar líka eins
og strákarnir séu einir um að
gera eitthvað spennandi, stelpurn-
ar virðast bara hanga utan i þeim
og bíða eftir því að þeim sé riðið
eða eitthvað álíka. Þetta er mjög
furðulegt og ólíkt því sem ég á að
venjast í New York. Það blandast
allt saman þar og stelpurnar eru
jafngildar strákunum í öllu.“
Hefurðu komið hingað á eyjuna
áður?
„Já, þetta er í fjórða sinn sem
ég kem til íslands. Tvisvar sinn-
um fór ég til Vestmannaeyja til að
mynda stelpu sem heitir Björg.
Þegar ég hitti hana fyrst var hún
bara 13 ára og var á skrá hjá lítilli
módelskrifstofu hér í bæ. Hún
hafði þá ekkert fengið að gera og
mér var fengin mynd af henni án
þess að það væri mikið gert úr
því. Bara svona eitthvað í fram-
hjáhlaupi. Ég féll strax fyrir
henni og við fórum til Vest-
mannaeyja að mynda. í dag er
þessi stelpa komin með góða
samninga hjá stórum umboðs-
skrifstofum, Select í París og Next
í New York. Ég myndaði hana aft-
ur núna um daginn og þá var hún
nýkomin frá Mílanó," segir Jenni-
fer hreykin af þessari ungu
stjörnu sem hún uppgötvaði.
Boltinn rúllaði með
Levi’s
„Ég er búin að taka 100 myndir
af fólki sem er frægt í New York.
Alls konar fólk sem er „in“ fyrir
eitthvað. Fólk úr auglýsinga-
bransanum, tískuheiminum, tón-
listarbransanum, m.a. er Moby í
hópnum og mikið af fólki sem ég
veit ekki hvort er þekkt hérlendis.
Með þessum myndum erum við
svolítið að setja andlit við nöfn
sem fólk hefur kannski oft heyrt
um en veit ekkert hvernig lítur
út. Þó að það eigi kannski ekki
akkúrat við um Moby þá eru mjög
margir þarna eiginlega bara nöfn
sem fólk heyrir oft minnst á en
hefur aldrei séð,“ segir hún um
annað efni í blaðinu. En hvenær
byrjaði hún að taka Ijósmyndir?
„Það er ekki langt síðan. Bara
þrjú ár. Þá vissi ég varla hvað
sneri upp né niður á myndavél.
Vissi varla hvað myndavél var.
Þetta atvikaðist þannig að ég var
beðin um að stílisera tískuþátt og
ég sagði svona meira upp á djókið
að ég skyldi gera það ef ég fengi
að taka myndirnar líka. Mér til
mikillar furðu var sagt já. Ég tók
bara sénsinn og smellti af. Mynd-
irnar komu meiri háttar vel út og
stuttu seinna þegar ég var að
stílisera fyrir Levi’s í Suður-Afr-
íku tók ég myndir í leiðinni. Þeg-
ar þær komu úr framköllun kom í
ljós að þær voru bara alveg
meiriháttar vel heppnaðar. Levi’s
buðu mér stórar peningaupphæð-
ir fyrir þessar myndir, en til þess
að geta selt þær þurfti ég að vera
með umboðsmann. Ég fékk mér
náttúrlega umboðsmann og bolt-
inn sem þá fór að rúlla hefur ekki
stoppað síðan.
Eftir að ég fer héðan fer ég til
New York í viku, svo er það
London í viku, París í viku og svo
aftur til New York. Ég er meiri
háttar heppin," segir þessi
sjarmerandi tískukona að lokum.
hverjir voru hvar
Prikið var opnað aftur á föstudag eftir óvænta
lokun helgina á undan. Þar mátti sjá fólk eins
og ísa af SkjáEinum, Agnar Tr., Egil Tómas-
son og Michael Sturgeon frá Thomsen,
Andreu Róberts, Barða í BangGang, meistar-
ann Egil Sæbjörnsson og þá Eggert og Blgga
úr Maus.
Á tónleikum Stephens Malkmus á föstudags-
kvöld á Gauknum mátti sjá ýmsa eldheita að-
dáendur. Arnar Eggert Thoroddsen tónlistar-
spekúlant lét sig ekki vanta, Kristján Már
Ólafsson úr Útópíu, Þorsteinn Stephensen
prómóter, Kristinn J. Arnarson úr Stolið, með-
limir Úlpu, sem hituðu salinn eftirminnilega
upp, Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Höskuld-
ur Ólafsson úr Quarashi og Elnar Sonic og þá
eru ótaldir meðlimir Nýdanskrar, þeir Bjössi,
Jón og Stefán Hjörleifs sem gerðu sig klára til
að spila á eftir Malk-
mus.
Á Skuggabarnum
rriáttl sjá fólk eins
og Helga Björnsson
stórsöngvara,
Yesmine-bakrödd,
Unni eróbikk, at-
hafnamanninn Ingv-
ar Þóröar, Hólmgeir
Baldurs sjónvarps-
stjóra (hvar er stöð-
in?), Gunna Óla úr
Skímó, Jón Kára,
Halldór Kolbeins
Ijósmyndara, knatt-
spyrnumanninn
Villa VIII, Jón Óttar
Herbalife, Mörtu
Maríu fatahönnuð,
Gústa frá Globus,
Sigga Sveins hand-
boltamann, Óskar
Elvar Óskarsson úr
HK og hinn síunga
Á Astró tók Jón Óttar Herbalife dansgólfið
með trompi. Hrafnhildur Hafsteins fegurðar-
drottning geislaði að vanda. Dóri Ijósmyndari
lét sig ekki vanta, Heimir Guðjónson fótbolta-
maöur mætti með yngri meðspilarana í FH,
Birgir Leifur golfari skildi pútterinn eftir
heima, Palli Þórólfs
og Reynir Reynis-
son úr Aftureldingu,
Pálmi Guðmunds og
Kiddi Bigfoot komu
með Stöðar 2 staff-
ið, Lúðvík Bergvins-
son alþingismaður
skoðaði næturlífið,
Kristján Jónsson
Ólafssonar var
mættur, Bjarni Áka-
f ó k u s
23. febrúar 2001
!a&
son, forstjóri Aco, Hólmgeir Bald-
urs, Villi, söngvari 200.000 nagl-
bíta, var ferskur en þó ekki með
kúrekahattinn, Bjarni Ármanns-
son, bankastjóri íslandsbanka-
FBA, og Þorsteinn, forstjóri Coke,
fögnuðu kaupunum á Vífilfelli,
Doddi litli útvarpsmaöur, Gísli Jó-
hannsson flugstjóri, Siggi Johnny
Private, Marín Manda mætti með
vinkonum sínum, Hulda, „frú Bær-
ing“, mætti einnig með vinkonum
sínum og Sigurður Kári SUS. Af-
mælisbörn kvöldsins, Guðjón OZ og Andrés
Pétur, mættu með gesti, Anna Rakel, Dóra
Takefusa, Kristján Ragnar, Margrét Rós,
Helgi Björnsson, Guðmundur Jónsson úr SáF
inni, Díana Dúa frá X-18, Árni Snævarr frétta-
maður, Valdimar
Kristófersson fót-
boltamaöur, Gísli
Marteinn Kastljós-
maður, Ivan Burkni
stTlisti, Harpa Mel-
sted handbolta-
kella, Kalli Lú FM
957, Yesmine og
Nanna í Euro-fílíng,
Konráð Ólafsson
handboltastjarna og
konan hans, Bjarni
Frostason Haukamaður, Júlli
Kemp og Arna Playboy.
Á Næsta bar á laugardagskvöldið
sást til þeirra Grétars Mars Jóns-
sonar, sem ræddi við skipverja af
Arnari, og Kjartans úr Sigur Rós. I
Húsi málarans sást aftur á móti í
Gerði Betu handboltastelpu og
Vigdísi Másdóttur, fyrrum
Fordstúlku. Á Thomsen um nóttina
voru svo þau Maggi Jóns Blake úr
Gus Gus, Hjálmar Blöndal fram-
kvæmdastjóri og undirmaður
hans, Beta, Siggi Johnny Taboo með fjöl-
skyldunni, Vala úr Pétursbúð og Bibbi Curver.
Klaustrið var samt við sig um helgina og þar
sáust Ægir úr Háskólabíói, Maggi og Gunni
frá Laugarásbíói, Christof og Gummi Breið-
fjörð frá Skífunni,
Doddi litli útvarps-
maður, Hansi
Bjarna á Radíó-X,
Heiða Valmiki, sem
hélt upp á 23 ára af-
mælið, Hebbi úr
Skímó, meðlimir
Buttercup sungu
Hvenær í kór, Ingó
frá Hljóðfærahús-
inu, Kalli Lú FM 957
og Krissi King.
Tíska* Gæði* Betra verö
A