Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Blaðsíða 2
18
MÁNUDAGUR 5. MARS 2001
Sport unqlinga
DV
m;<isr
- norðanstúlkur fóru heim með bikarinn í 3. flokki kvenna
Úrslitin í íslandsmótinu innanhúss
hjá 3. flokki kvenna fóru fram sl.
sunnudag í ValsheimUinu. Margir
leikimir voru þrælskemmtilegir á að
horfa og ekki vantaði mörkin í þá
suma. Það voru stúlkurnar í Þór, Ak-
ureyri, sem tryggðu sér íslandsmeist-
aratitilinn eftir að hafa hafa sigrað
sterkt lið Stjörnunar í úrslitaleik, 4-3.
í A-riðli fóru Valur og Þór, Ak„ upp
úr riðlinum og skildu Fjölni og
Leikni, F„ eftir. En í B-riðli sigraði
Stjarnan nokkuð örugglega og vann
meðal annars BÍ, 9-1. Það vom síðan
stelpurnar í Breiðabliki sem hrepptu
annað sætið og fylgdu Stjömunni í
undanúrslitin.
Fjölnir og BÍ léku um 7. sætið en
leikurinn endaði 4-4 og því urðu liðin
að deila með sér 7.-8. sætinu. Um 5.
sætið léku Leiknir, F„ og Fram og þar
voru Leiknisstelpur mun sterkari og
unnu sannfærandi 5-0 sigur.
Umdeilt mark
í fyrri undanúrslitaleiknum mætt-
ust Þór, Ak„ og Breiðablik og var sá
leikur æsispennandi. Kolbrún Stein-
þórsdóttir kom Breiðabliki yfir eftir
aðeins 12 sekúndur. Elma Grétars-
dóttir jafnaði síðan stuttu seinna eftir
mistök í vörn Blika. Elma skoraði
síðan annað mark fyrir hlé og kom
Þór, Ak„ í 2-1 eftir önnur varnarmis-
tök í vörninni hjá Blikum og þannig
var staðan í hálfleik.
Seinna mark Þórs var frekar um-
deilt þar sem vafamál var hvort bolt-
inn hefði verið allur fyrir innan
marklínuna en dómari leiksins var
viss í sinni sök. Blikar sóttu mikið í
seinni hálfleik og fengu nokkur
dauðafæri en inn vildi boltinn ekki og
því endaði leikurinn 2-1 fyrir Akur-
eyrarstelpumar.
Harpa skæð
í hinum undanúrslitaleiknum
mættust Stjarnan og Valur og var sá
leikur kattarins að músinni. Stjaman
var miklu sterkari og réðu Valsstelp-
ur ekkert við Hörpu Þorsteindóttur
sem sýndi hversu skæð hún er í fram-
línunni hjá Stjörnunni. Stjarnan sigr-
aði 7-1 og var Harpa með sex fyrstu
mörk Stjömunar. Hún var síðan tekin
út af um miðjan hálfleikinn þar sem
úrslitin vom ráðin.
Fyrir fram var reiknað með sigri
Stjömunar í úrslitaleiknum gegn Þór,
Ak„ en noröanstelpur sýndu mikinn
styrk. Þær komust í 3-0 og flest gekk
þeim í haginn. Stjaman gafst þó
aldrei upp og sótti látlaust seinni
hluta seinni hálfleiks. Þrátt fyrir
mörg marktækifæri tókst liðinu ekki
að jafna en minnkaði muninn í 3-4 en
lengra komst það ekki.
Sterk liðsheild
Þórsstelpur geta verið ánægðar með
árangurinn og sýndu þær frábæra
baráttu. Þær eru með sterka liðsheild og
vinna allar saman. Þrátt fyrir tap getur
Stjaman vel við unað því liðið sýndi að
það er fimasterkt, þó svo að ekki hafi
tekist að landa titlinum að þessu sinni.
Það eru margar efnilegar stelpur í
þessum tveimur árgöngum og framtíðin
björt í kvennaboltanum. -BG
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni, sýndi frábær tilþrif á mótinu og
skoraði meöal annars sex mörk í undanúrslitaleiknum gegn Val.
DV-myndir BG
Úrslit:
Þór Ak-Valur ....................14
Fjölnir-Leiknir F ..............1-3
Valur-Fjölnir ..................1-1
Leiknir F-Þór Ak ...............0-3
Fjölnir-Þór Ak .................2-5
Valur-Ijeiknir F ...............1-1
Staðan:
1. Þór Ak 2 0 1 9-6 6
2. Valur 1 2 0 6-3 5
3. Leiknir F 1 1 1 4-5 4
4. Fjölnir 0 12 4-9 1
Fram-Breiðablik ...............2-7
Stjarnan-BÍ ................. 9-1
Breiðablik-Stjarnan ............24
BÍ-Fram .......................2-3
Stjarnan-Fram .................5-0
Breiðablik-BÍ .................2-1
Staðan:
1. Stjarnan 3 0 0 18-3 9
2. Breiðablik 2 0 1 11-7 6
3. Fram 1 0 2 5-14 3
4. Bí 0 0 3 4-14 0
Leikið um 7. sætið:
Fiölnir-Bí .....................44
Leikið um 5. sætið:
Leiknir F-Fram . . ............5-0
Undanúrslit:
Þór Ak.-Breiðablik ............2-1
Elma Grétarsdóttir 2 - Kolbrún Sten-
þórsdóttir.
Valur-Stjarnan ................1-7
Signý Heiða Guðnadóttir - Harpa
Þorsteinsdóttir 6, Hjördís Hugrún S.
Leikið um 3. sætið:
Breiðablik-Valur ...............3-2
Kolbrún Steinþórsdóttir 2, Gréta
Mjöll Samúelsdóttir - Rúna Sif Rafns-
dóttir, Signý Heiða Guönadóttir
Úrslitaleikurinn:
Þór Ak-Stjaman .................4-3
Regína María Árnadóttir 2, Ragnhild-
ur E. Arnórsdóttir, Signý Heiða
Guðnadóttir - Auður Lilja Harðar-
dóttir 2, Harpa Þorsteinsdóttir.
I
! ;
I