Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Blaðsíða 9
24 MÁNUDAGUR 5. MARS 2001 MÁNUDAGUR 5. MARS 2001 25 Sport Sport Undanúrslit í bikarkeppninni í blaki: Bæði liöin í úrslit - stúdentar stefna á tvo bikara í blakinu Stúdentar komust um helgina 1 úrslit bikarkeppninnar í blaki með sigri á Þrótti frá Neskaupstað. Leikurinn var einstefna frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu en skemmst er að greina frá þvi að heimaliðið skellti gestunum í Haga- skólanum í þremur hrinum gegn engri. Hrinurnar enduðu 25-15, 25-13, 25-17. Það var sama hvar var gripið niður í leikinn: leikmenn stúdenta voru þeir sem höfðu öll tök á leiknum og hleyptu andstæðingunum aldrei neitt áfram. Hinn nýi rússneski uppspilari Þróttar, Vitali Akimov, virkaði ekki afgerandi leikmaður en það var þó ekki hægt að skella skuldinni á hann þar sem kantskellar liðsins skiluðu fáum sóknum í heildina og móttakan var heldur ekki neitt til að hrópa húrra fyrir. Stúdentar tryggðu sér með sigrinum farseðil- inn í bikarúrslitaleikinn en þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem félagið nær því. Stjarnan lagöi KA Leikmenn Stjörnunnar tryggðu sér sæti í bikarúrslita- leiknum en liðið skellti KA í þremur hrinum gegn engri í Ásgarði á laugardaginn. Hrinurnar enduðu 25-17, 25-14 og 28-26. Leikur KA var hvorki fugl né fiskur á köflum ef undan er skilin þriðja hrinan sem endaði 28-26, en þá var Vignir Hlöðversson út af allan tímann hjá Stjörnunni. Klaufagang- ur KA-manna var mikill þar sem liðið átti tvívegis mögu- leika á klára hrinuna. Hinn erlendi leikmaður KA, Shailen Ramdo, var allt í öllu hjá KA en það dugði ekki til en hann sótti nánast úr öllum stöðum á tímabili og bar uppi leik liðsins. Það verður lika að teljast einkennileg ráðstöfun hjá KA að mæta ekki með þá Sigurð Arnar Ólafsson og Haf- stein Jakobsson í svo mikilvægan leik, en þeir félagar hafa verið aðalkantskellar liðsins í vetur og því kom ekki á óvart að liðið náði aldrei að bíta almennilega frá sér. Stúdínur unnu létt Stúdínur voru mun betri aðilinn þegar þær skelltu KA í þremur hrinum gegn engri í Hagaskólanum á laugardag- inn. Stúdínur tryggðu sér með sigrinum farseðilinn í bik- arúrslitaleikinn. Hrinurnar enduðu, 25-9,25-14 og 25-16. Það voru fyrst og fremst góðar uppgjafir stúdína sem að kláruðu leikinn en móttakan var að sama skapi í molum hjá gestunum sem náðu aldrei að komast almennilega inn í leikinn þrátt fyri góða viðleitni. Það var líka sérstakt að sjá stúdínur fara í uppgjafarreitinn og skora mörg stig beint úr uppgjöf en það létti þeim lifið til muna í leiknum og kaffærði andstæðingana. Birna Baldursdóttir átti ágæta spretti fyrir KA-stúlkur á köflum og ógnaði talsvert úr afturlínu en hún var auk Maríu Indriðadóttur best. Stúdínur léku flestar ágætlega og liðsheild þeirra var sterk. Leikur Víkings og Þróttar N. var frestað þar sem að Norð- fjarðarliðið komst ekki í bæinn þar sem allt flug lá niðri. Stjarnan-Valur 21-24 0-1, 2-2, 5-4, 7-5, (9-9). 12-10, 15-11, 15-13, 18-16, 18-18. 19-20, 20-22, 21-24. Stiarnan Mörk/víti (Skot/viti): Magnús Sigurðsson 5/1 (10/1, Konráð Ólafsson 4/2 (4/2),Björgvin Rúnarsson 4 (5), Eduard Moskalenko 3 (5), Bjarni Gunnarson 3 (4),David Kekelia 1 (4), Amar Pétursson 1 (7). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3( Björgvin 2, Moskalenko Vítanýting: Skorað úr 3 af 3. Varin skot/viti (Skot á sig): Birkir ívar Guðmundsson 10 (28/1, 36%) Gunnar Erlingsson 3 (6, 50%.) Brottvísanir: 16 mínútur Arnar Pétursson rautt spjalt beint. Valur Mörk/viti (Skot/viti): Júlíus Jónasson 5 (6), Valgarð Thoroddsen 5 (6), Daníel Ragnarsson 4 (7), Valdimar Grímsson 3/1, Freyr Brynjarsson 2 (3), Sigfús Sigurðsson 2 (4), Snorri Guðjónsson 2 (5), Markús M. Mikaelsson 1 (3) Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 ( Valdimar, Markús Máni. Vitanýting: Skorað úr 1 af 1. Varin skot/víti (Skot á sig): Roland Eradze 8 (20/2, 40%), Egidijus Petkevicius (1/1). Brottvisanir: 8 mínútur. Sigfús rautt fyrir brot. Dómarar (l-10):Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (4) Gœöi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 215 Maöur leikins: Júlíus Jónason Val FH-Breiðablik 33-20 1-0, 4-2, 5-3, 9-5, 11-8 (18-8), 17-8,18-10, 21-11, 22-14, 27-14, 30-16, 33-20. FH Mörk/víti (skot/viti): Guðmundur Ped- ersen 8 (8), Jason Ólafsson 6/4 (9/4), Logi Geirsson 5 (8/1), Sigurgeir Ægisson 4 (9), Sverrir Þórðarson 3 (4), Finnur Hansson 2 (3), Lárus Long 2 (3), Gunnar N. Gunn- arsson 1 (1), Victor Guðmundsson 1 (2), Valur Arnarson 1 (5). Mörk úr hraóaupphlaupum: 14 (Guð- mundur 5, Logi 2, Lárus 2, Finnur 2, Sverrir 2, Sigurgeir). Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Bergsveinn Bergsveinsson 9 (16/4,56% 1 víti í slá), ív- ar Bragason 4 (17/2, 24% 1 víti í slá). Brottvísanir: 4 mínútur Breiöablik Mörk/viti (skot/viti): Zoitan Belanyi 11/6 (17/8), Andrei Lazarev 3 (7), Kristinn Hallgrímsson 2 (7), Guðmundur Guðjóns- son 1 (1), ísak Jónsson 1 (1), Orri Hilmars- son 1 (4), Björn Hólmþórsson 1 (10), Slavisa Rakanovic (1), Sigtryggur Kol- beinsson (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Belanyi 2, Kristinn 2, ísak). Vítanýting: Skorað úr 6 af 8. Varin skot/viti (skot á sig): Guðmund- ur Geirsson 7 (30/4, 23%), Rósmundur Magnússon 4/1 (14/1, 29%). Brottvisanir: 8 mínútur (ísak Jónsson rautt fyrir brot). Dómarar (1-10): Gisli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson (6). Gœöi leiks (1-10): 4. Áhorfendur: 150. Maður leiksins: Guömundur Pedersen, FH Svart útlit Stjörnumenn töpuðu fyrir Val í gærkvöld, 21-24, í framlengdum leik í Garðabæ. Leikurinn verður ekki í minnum hafður fyrir skemmtileg- heit þvi leikurinn var stöðvaður ótrúlega oft og hefðu dómaramir mátt reyna að láta leikinn fljóta meira. Stjömumenn höfðu frumkvæðið lengst af og spiluðu 3:3 vörn á Vals- menn og áttu þeir í mesta basli með að komast í gegnum hana. Valsmenn náðu ágætum leikkafla undir lok fyrri hálfleiks og náðu að jafna en á þeim kafla voru Stjörnumenn oft ein- um færri. Stjörnumenn komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og náðu góðu forskoti, 15-11. Þá voru 18 mínútur eftir af leiknum en þá tóku Vals- menn leikhlé og réðu ráðum sínum og tókst loksins að finna ráð til að komast í gegnum vöm heimamanna og á næstu mínútum minnkuðu þeir muninn. Sigfús Sigurðsson Valsmað- ur fær beint rautt spjalt eftir að hafa kljáðst við Arnar Pétursson Stjörnumenn náðu að rífa sig aft- ur frá gestunum og komast í 18-15. Þegar staðan var 18-17 varð umdeilt atvik í leiknum. Eduard Moskalenko fékk boltann inn á línuna og braut Geir Sveinsson á honum gróflega og dómarar leiksins hefðu áttu að dæma viti og reka Geir út af en í staðinn hélt leikurinn áfram. Vals- menn fóru 1 sókn og Daníel Ragnars- son jafnaði i 18-18. Framlenging var staðreynd, fyrri hluti framlengingar er jafn en seinni hlutinn varð eign Valsmanna sem ná tveggja marka forustu. Björgvin Rúnarsson fer inn úr ágætu færi en skýtur yfir og Vals- menn fara í sókn og innsigla sigur sinn og fagna vel i leikslok enda dýr- mætt stig í höfn. „Leikir Stjörnunn- ar og Valsmanna hafa alltaf verið hörkuleikir og jafnir. Viö vomm meira eða minna undir allan leikinn en ég er stoltur af strákunum að ná að rífa sig upp og klára leikinn þeg- ar flestir voru búnir að bóka Stjömusigur. Við vorum einfaldlega betur tilbúnir í framlenginguna. Það eru fimm leikir eftir og við ætlum okkur að ná í eitt af fiórum efstu sæt- unum i deildinni," sagði Geir Sveins- son, þjálfari Vals, eftir leikinn. Björgvin Rúnarsson, leikmaður Stjörnunnar, var ekki eins ánægður eftir leikinn. „Hvað er hægt að segja? Ég er ekki vanur að gagnrýna dóm- ara en í þetta sinn er ég orðlaus. Ég hélt að þetta væri ekki til. Við gáfum allt í þetta en því miður náðum við ekki að vinna. Nú er útlitið orðið svart í tilraun okkar að komast í úrslitakeppnina," sagöi Björgvin. -BB Stórsigur FH FH-ingar unnu auðveldan sigur, eins og vænta mátti, á stigalausu Breiðabliksliði i Kaplakrika á fóstu- dagskvöld, 33-20, og em nú líklegir til þess að tryggja sér sæti í úrslita- keppninni 10. árið i röð. Breiðablik hélt í við FH-inga lengst af í fyrri hálfleik en eftir að Zoltan Belanyi misnotaði vítakast í stöðunni 11-8 og fimm mínútur vom eftir af fyrri hálfleik, hrukku FH-ing- ar í gang og skomðu fimm sfðustu mörk hálfleiksins. Þetta hefur oft verið raunin í leikjum Breiðabliks í vetur. Þeir hafa staðið í andstæðing- um sínum fram á lokamínútur fyrri hálfleiks en með lélegum lokakafla staðið frammi fyrir töpuðum leik strax í hálfleik. Sóknarleikurinn gekk illa hjá Breiðabliki sem skoraði fimm af átta mörkum fyrri hálfleiks af vítalínunni og eftirleikurinn var auðveldur fyrir FH-inga. Seinni hálfleikur var betur leik- inn af beggja hálfu og brá oftar fyrir skemmtilegum tilþrifum i sókninni. FH-ingar juku hins vegar forskotið og varð munurinn mestur 14 mörk, 30-16. FH-ingar þurftu óvenjulítið til þess að tryggja sér 13 marka sigur á Breiðabliki sem sýnir engin bata- merki. Varnarleikurinn var traustur hjá FH lengst af þessum leik og voru FH-ingar eins og svo oft áður i ess- inu sínu í hraðaupphlaupunum og skoruðu úr þeim alls 14 mörk. Allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig nema Hálfdán Þórðarson, sem er meiddur, ásamt Héðni Gfissyni. Guðmundur Petersen var frískastur leikmanna liðsins og sýndi hinn 18 ára Logi Geirsson góð tilþrif. Jason Ólafsson lék fyrsta leik sinn með FH og stóð sig nokkuð vel. Sóknarleikurinn er höfuðverkur Breiðabliksliðsins en liðið vantar til- finnanlega leikmenn sem geta skotið af löngu færi. Zoltan Belanyi og And- rei Lazarev léku vel hjá Breiðabliki en aðrir voru slakir. -HRM Róbert Gunnarsson, línumaður Fram, er hér í fangbrögðum við varnarmenn Gróttu KR, þá Magnús Agnar Magnússon og Hörð Gylfason, en eins og svo oft í þessum leik hafði Framarinn betur. DV-mynd E. Ól Framarar rifu sig upp eftir tvo tap- leiki í röð og hreinlega rúlluðu yfir Gróttu/KR á heimavelli sínum í Safa- mýrinni. Þó má geta þess að Vesturbæ- ingar og Seltirningar gerðu þeim þar einstaklega auðvelt því tæplega helm- ingur marka Fram kom úr hraðupp- hlaupum eftir að Grótta/KR hafði misst boltann í sókninni, oft á ansi klaufaleg- an hátt. Nokkurt jafnræði var þó með liðunum framan af en snemma kom þó í ljós hvernig Fram hafði hugsað sér að spila á Gróttu/KR. Liðið lék 5:1 vörn með Þorra sem fremsta mann og gekk hann vel út á móti Aleksander Pettersons enda átti hann mjög erfitt uppdráttar í leiknum og þar sem Hilmar Þórlindsson lék ekki með sínum mönnum vegna veikinda var bitið þar með farið úr sóknarleik Gróttu/KR og það var einna helst Davíð Ólafsson sem sýndi lit þar. Sóknarleikur Fram var reyndar heldur ekki mikið til að hrópa húrra fyrir en munurinn fólst í hraðupphlaupunum. Það var á þeim sem fram náði forystu í fyrri hálfleik en þar breyttu þeir stöð- unni úr 6-6 í 14-7 rúmum ellefu mínútum þar sem sjö af þessum átta mörkum komu úr hraðupphlaupum. Forystan var svo fimm mörk í leikhléi, 16-11. Gróttu/KR liðið hélt í horfinu framan af síðari hálfleik, en í stöðunni 21-16 slokknuðu öll ljós og við tók myrkur í heilar 17 mínútur. Á þessum kafla skor- uðu Framarar tíu mörk í röð, þar af sex úr hraðupphlaupum, og fór Gunnar Berg sérstaklega mikinn á þessum kafla. Ráðleysið í sóknarleik Gróttu/KR var al- gjört enda fóru 17 sóknir í röð forgörð- um. Mikið var um tæknileg mistök í þessum leik, slæmar sendingar, ruðn- ingur eða að menn hreinlega misstu boltann í hendurnar á Frömurum og þegar þeir komust í færi hittu þeir Sebastian Alexandersson þar fyrir i stuði. Eftir þennan kafla snerist leikur- in í hálfgerða vitleysu enda úrslitin löngu ráðin og algjört formsatriði að ljúka honum. „Það er gott að vinna leiki en ég held að það sé lítið að marka þennan leik. Það vantaði tvo máttarstólpa í liðið hjá þeim, þar á meðal manninn sem skorar nánast helminginn af mörkunum þeirra þannig að það er kannski erfitt fyrir þá að finna lausn á því. Við bara klipptum Petersons út úr spilinu hjá þeim, leyfð- um þeim að skjóta fyrir utan og Basti tók þá bolta sem hann átti að taka. Við nýttum okkur það. Við erum mjög sáttir við þennan leik og gott að rifa sig upp úr sleninu og gera eitthvað af viti,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson eftir leikinn en hann var besti maður vallarins ásamt Sebastian markverði. Þá sýndi horna- maðurinn Þorri Ólafsson góða takta. „Það gerðist hreinlega allt þegar byrj- aði að ganga illa. Við klikkuðum í dauðafærum og sendum oft beint í hend- urnar á þeim enda skoruðu þeir mikið úr hraðupphlaupum. Vörnin var ekki skelfileg sem slík en sóknarleikurinn var hræðilegur. Við lögðum upp með að spila langar sóknir og að þær myndu í versta falli enda á því að við fengjum á okkur leiktöf. Þá hefðu við allavega tap- að með minni mun. En við fórum bara ekki eftir því sem þjálfarinn var að segja. Það var bara andleysi í liðinu. Það vantaði reyndar þrjá lykilmenn og það er sérstaklega slæmt að vera án Hilmars því hann er mjög mikilvægur í sóknar- leiknum og við erum ekki með aðra skyttu. Við verðum bara að vinna heimavinnuna okkar betur,“ sagði Magnús Agnar Magnússon, fyrirliði Gróttu/KR. Davíð Ólafsson lék ágætlega í fyrri hálfleik en að öðru leyti lék liðið langt undir getu. -HI NISSAIM j ■ deildin Fram 17 13 4 459-377 26 Haukar 15 13 2 435-354 26 KA 16 11 5 413-387 22 Grótta/KR 17 11 6 410-409 22 FH 17 9 8 408-377 18 Afturelding 16 9 7 435409 18 Valur 17 8 8 411-375 17 ÍR 16 8 8 369-364 16 ÍBV 17 7 10 444-456 14 Stjarnan 17 6 10 430-435 13 HK 16 3 13 370435 6 Breiðablik 17 0 17 343-549 0 Þýska bundeslígan í handknattleik: Sjö mörk Duranona dugðu skammt fvrir Nettelstedt - Gústaf Bjarnason skoraði fimm mörk fyrir Minden sem sigraði Nordhorn Vegna þátttöku þýsku handknatt- leiksliðanna á Evrópumótunum um helgina fóru aðeins fram fiórir leik- ir í deildinni. íslendingar komu við sögu í öllum þeirra og misjöfnu gengi áttu þeir að fagna. Minden kom verulega á óvart þegar liðið sigraði Guðmund Hrafn- kelsson og félaga í Nordhorn, 22-24, á útivelli. Gústaf Bjarnason skoraði fimm mörk fyrir Minden og Guð- mundur Hrafnkelsson stóð í marki Nordhorn og átti ágætan leik. Slæmt tap Dormagen Dormagen, sem berst fyrir að halda sæti sínu í deildinni, tapaði á heimavelli fyrir Willstatt, 25-28, og voru þau úrslit gífurleg vonbrigði fyrir Guðmund Guðmundsson og lærivsina hans hjá Dormagen, Róbert Sighvatsson skoraði þrjú Julian Róbert Duranona. mörk af línunni fyrir Dormagen í leiknum. Wuppertal tapaði enn einum leiknum, nú fyrir Solingen á úti- velli, 31-28, og skoraði Heiðmar Fel- ixsson fiögur mörk fyrir Wuppertal í leiknum. Stíft verður leikið í deildinni á næstunni og ljóst að línur eiga eftir að skýrast verulega eftir þá leikja- hrinu. Flensburg er i efsta sæti með 41 stig eftir 24 umferðir. Magdeburg er í öðru sæti með 37 stig, Wallau Massenheim og Lemgo hafa 36 stig, öll eftir 24 leiki. Á botninum eru Bayer Dort- magen meö 13 stig, Wuppertal hefur 6 stig og Hildesheim hefur 4 stig og unnið aðeins einn leik í deildinni. -JKS Evrópumótin í handknattleik: Magdeburg lá heima fyrir Lemgo - liöiö samt komið áfram 8-liða úrslitum á Evrópumót- unum í handknattleik lauk um helgina. í EHF-keppninni komust auk Hauka, Magdeburg, RK Metkoviv og Bidasoa áfram í undanúrslit. Mag- deburg, sem sigraði Lemgo með sex marka mun á útivelli í fyrri leiknum, beið lægri hlut á heima- velli um helgina, 23-26. Þetta var ann- að tap Magdeburg á heimavelli í tvö ár og bæði gegn Lemgo. Ólafur Stefánsson var markahæstur hjá Magdeburg með sex mörk en hjá Lemgo skoraði Marc Baumgar- tner sjö mörk fyrir Lemgo. Bidasoa frá Spáni sigraði ung- verska liðið Pick Szeged, 26-23, en Ungverjamir unnu fyrri leik- inn með einu marki. í gærkvöld sigraði Brodomerkur frá Spilt í Júgóslavíu lið Metkovic frá Króa- tíu, 27-20, en Metkovic vann fyrri leikinn, 27-18, og fer áfram á betri markatölu. í Meistaradeild Evrópu komust Barcelona, meistarar undanfar- inna ára, spænska lið- ið Portland San Anton- io, Kiel, og Pivovarna Lasko frá Slóveníu áfram. Pivovama sigraði Montpellier í síðari leiknum í gær, 29-23, og samanlagt, 52-47 San Antonio sigraði Braga, 24-21, og samanlagt, 49-37. Kiel tapaði fyrir Lovcen Cetinje frá Júgóslavíu, 29-24, en Kiel vann fyrri leikinn í Þýskalandi, 35-22, og fer áfram samanlagt, 59-51. -JKS Steinlágu - ÍR hafði betur gegn ÍBV í Breiðholtinu, 31-20 Eyjamenn fóru enga frægðar- för í Breiðholtið á föstudags- kvöldið þegar þeir mættu ÍR. Heimamenn burstuðu gestina, 31-20, eftir að jafnt hefði verið mestallan fyrri hálfleik. ÍR-ingar áttu greinilega ekki von á að Eyjamenn tækju Einar Hólmgeirsson úr umferð frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu í leiknum og riðlaði það leik heimamanna mjög mikið. ÍR-ing- ar komu mun betur stemmdir til seinni hálfleiks og spiluðu góða vörn með Finn Jóhannsson fyrirliða í miðju vamarinnar. Á fyrstu mínútum seinni hálf- leiks náðu ÍR-ingar að gera út um leikinn með góðum varnarleik sem skilaði þeim ódýrum hraða- upphlaupsmörkum. Eyjamenn geta sjálfum sér um kennt hvernig fór. í staðinn fyrir að hlaupa aftur og reyna að verjast hraðaupphlaupum ÍR-inga eyddu þeir orku sinni í að nöldra í dómumm leiksins og fengu að- eins brottvísanir að launum. Eyjamönnum tókst ekki að fylgja eftir góðum sigri á útivelli frá síðustu umferð og leikmenn liðsins léku langt undir getu. ÍR- ingar náðu sér á strik í seinni hálfleik og þar liggur munurinn á liðunum í þessum leik. „Við vissum að þetta yrði erfitt og Davíð gat ekki komið með okkur og þar fór einn hluti af vöminni því hann var að vinna. Það komu smáfeilar í vörnina og sóknarleikur okkar -var ekki nógu beittur. Þetta er því miður svona upp og niður hjá okkur og við erum í bölvuðu basli að tryggja okkur í átta liða úrslit- in,“ sagði Guðfinnur Krist- mannsson, leikmaður ÍBV. -BB Fram-Grótta/KR 32-18 0-1, 3-2, 5-3, 6-6, 9-6, 14-7, (16-11). 17-11, 18-14, 22-16, 31-16,31-17,32-18. Fram Mörk/viti (Skot/viti): Gunnar Berg Vikt- orsson 10/1, (13/2), Þorri Bjöm Gunnarsson 5 (6), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 4 (7), Guðlaugur Amarsson 3 (3), Róbert Gunn- arsson 3 (5), Maxim Fedioukine 2 (4), Guð- jón Drengsson 2 (4), Ingi Þór Guðmundsson 1 (1), Sebastian Alexandersson 1 (1), Björg- vin Björgvinsson 0 (2), Hjálmar Vilhjálms- son 0 (2), Níels Benediktsson 0 (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 16 (Gunnar Berg 4, Guðlaugur 3, Maxim 2, Þorri 2, Guð jón, Ingi, Vilhelm, Róbert, Sebastian). Vítanýting: Skorað úr 1 af 2. Varin skot/viti (Skot á sig): Sebastian Al- exandersson 23 (41/2, 56%) eitt víti fram- hjá). Brottvisanir: 8 mínútur Grótta/KR Mörk/viti (Skot/viti): Davíð Ólafsson 7/1 (13/1), Alexander Pettersons 5 (14), Mgnús Agnar Magnússon 2 (3), Atli Þór Samúels- son 2 (8), Kristján Þorsteinsson 1/1 (4/2), Al- freð Finnsson 1 (2), Davíð B. Gíslason (2), Hörður Gylfason (1) Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 ( Atli 2, Davíð, Magnús). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Varin skot/viti (Skot á sig): Hlynur Mortens 6 (25/6, 24%, eitt viti framhjá og eitt í slá), Hreiðar Guðmundsson 3 (16, 19%). Brottvísanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. (5) Gœði leiks (1-10): 5. Áhorfendur: Um 200. Maöur leiksins: Gunnar Berg Viktorsson, Fram. ÍR-ÍBV 31-20 0-2, 2-2, 3-4, 5-5, 7-6, 9-7 (11-8), 12-9, 13-10, 17-10, 18-11, 21-14, 23-18, 25-19, 28-20, 31-20. ÍR Mörk/víti (skot/viti): Sturla Ásgeirsson 6/2 (7/3), Róbert Rafnsson 4 (7), Kári Guðmundsson 5 (8), Brynjar Steinarsson 4 (4), Finnur Jóhannesson 3 (4), Ragnar Helgason 3 (4), Einar Hólmgeirsson 2 (6), Andri Úlfarsson 2 (2), Bjarni Fritzson 2 (3), Kristin Björgúlfsson (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 8 ( Ragnar 2, Bjarni 2, Andri 2, Kári og Sturla Vitanýting: Skorað úr 2 af 3 . Varin skot/viti (skot á sig): Hallgrimur Jónsson 7/1 (24/2, 29%, Hrafn Margeirsson 4/1 (7/1, 57%, Ámi Gíslason 4/1 (4/1 100%.) Brottvísanir: 2 mínútur ÍBV Mörk/viti (akot/viti): Minkaugas Andriska 7/2 (15/3), Jón Andri Finnsson 6/2 (8/3), Guðfinnur Kristmannsson 4 (11/1), Davíð Hallgrímsson _ 1 (2),Kári Kristjánsson 1 (2), Davíð Þór Óskarsson 1 (2), Sigurður Ari Stéfánsson (1). Mörk úr hradaupphlaupunu 3 (Jón Andri 2, Minkaugas.) Vítanýting: Skorað 4 úr af 7. Varin skot/viti (skot á sig): Gísli Guðmundsson 5 (23/2, 23%, eitt víti yfir.), Kristinn Jónatansson 4 (17/1, 23%.) Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (6) Gœöi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 150. Maður leiksins: Róbert Rafnsson ÍR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.