Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 5. MARS 2001
21
Skallagrímur-Kefiavík 86-84
64, &-9, 17-17, 19-20 (23-26), 29-32, 31-37,
34—12, 41-45 (46-50), 48-52, 54-54, 59-59,
63-61 (69-61), 69-68, 72-70, 79-72, 81-80,
(86-84).
Stig Skallagrims: Warren Peebles 20.
Hlynur Bæringsson 18. Sigmar Egilsson
14. Alexander Eromolinskij 10. Pálmi
Sævarsson 10. Birgir Mikhaelsson 9.
Hafþór Gunnarsson 3. Evgenij
Timolovski 2.
Stig Keflavikur: Calvin Davis 23. Guð-
jón Skúlason 17. Jón Hafsteinsson 12.
Gunnar Einarsson 12. Falur Harðarson
11. Magnús Gunnarsson 5. Birgir Ö.
Birgisson 4.
Fráköst: Skallagrímur 37,12 í sókn og
25 í vörn (Hlynur 13), Keflavík 30, 7 í
sókn og 23 í vöm (Davis 11).
Stoðsendingar: Skallagrímur, 20
(Peebles 9) Keflavík 24 (Falur 5).
Stolnir boltar:
Skallagrimur 16 (Peebles 6), Keflavík 10
(Jón H. 4).
Tapaóir boltar: Skallagrímur 18, Kefla-
vík 21.
Varin skot: Skallagrímur 5 (Eromol-
inskij 2, Peebles 2,)
Keflavík 3 (Davis, Jón H., Birgir Birgis).
3ja stiga: Skallagrímur 23/9, Keflavíkur
23/9.
Víti: Skallagrímur 16/21, Keflavík
11/11.
Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson
og Erlingur Erlingsson (8).
Gϗi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 385.
Maöur leiksins:
Warren Peebles, Skallagrími.
Haukar-Tindastóii 31-78
2-0, 10-10, 19-14 (22-19), 25-19, 36-29,
40-35 (44-42), 46-42, 47-52, 55-62,
(65-65), 67-70, 76-76, 81-76, 81-78.
Stig Hauka: Marel Guðlaugsson 22,
Jón Arnar Ingvarsson 17, Mike
Bargen 15, Guðmundur Bragason 11,
Bragi Magnússon 10, Eyjólfur
Jónsson 6.
Stig Tindastóls: Shawn Myers 24,
Lárus D. Pálsson 14, Adonis
Pomones 9, Mikhail Antropov 8,
Svavar Birgisson 7, Kristinn
Friðriksson 7, Ómar Sigmarsson 6,
Friðrik Hreinsson 3.
Fráköst: Haukar 36 (18 í sókn, 18 í
vörn), Tindastóll 38 (15 í sókn, 23 í
vöm).
Stoósendingar: Haukar 23 (Jón
Arnar 7), Tindastóll 16 (Myers 6).
Stolnir boltar: Haukar 4, Tindastóll
5 (Myers 3).
Tapaóir boltar: Haukar 11,
Tindastófl 15.
Varin skot: Haukar 4 (Guðmundur
3), Tindastóll 3 (Antropov 2).
3ja stiga: Haukar 8/31, Tindastóll
7/25.
Víti: Haukar 10/21, Tindastóll 23/31.
Dómarar (1-10): Jón Bender og
Sigmundur Herbertsson (7).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 200.
Maður leiksins: Marel
Guölaugsson, Haukum.
Njarðvík-Valur 117-77
9-2,13-8, 30-8 (39-14), 45-20, 47-30, 53-30
(58-34), 69-36, 7643, 80-51 (86-55), 98-61,
105-65, 110-67, 117-77.
Stig Njaróvikur:
Brenton Birmingham 31, Teitur Örlygs-
son 20, Jes Hansen 17, Ragnar Ragnars-
son 16, Halldór Karlsson 11, Friðrik
Stefánsson 11, Sævar Garðarsson 8, Ás-
geir Guðbjartsson 2, Páll Þ. Scheving
Torsteinsson 1.
Stig Vals: Brian Hill 16, Bjarki Gúst-
afsson 15, Herbert Arnarson 14, Pétur
Már Sigurðsson 10, Hjörtur Hjartarson
8, Hjalti Vilhjálmsson 6, Guðmundur
Björnsson 6, Ragnar Steinsson 2.
Fráköst: Njarðvík 34 (11 sóknar, 23
varnar, Friðrik Stef, Hansen 6 hvor),
Valur 39 (16 sóknar, 23 vamar, Hjörtur
8)
Stoósendingar: Njarðvík 29 (Friðrik
Ragnarsson 11), Valur 13 (Brian Hill 3)
Stolnir boltar: Njarðvík 29 (Brenton
7), Valur 10 (Bjarki 3)
Tapaóir boltar: Njarðvík 12, Valur 25
Varin skot:
Njarðvík 5 (Hansen 2, Friðrik S. 2), Val-
ur 0.
3ja stiga: Njarðvík 31/14, Valur 19/5.
Víti: Njarðvík 27/17, Valur
Dómarar (1-10): Rúnar Gíslason og
Einar Þór Skarphéðinsson (7).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins:
Brenton Birmingham, Njarövík.
Míkhail Antropov, Tindastóli, og Guömundur Bragason, Haukum, sækjast hér eftir knettinum en hvorugur fær.
Sauðkrækingar í sigurhúsi Hauka:
Hnífjafnt
Haukar unnu góðan sigur, 81-78, á
Tindastóli í hnifiöfnum leik að Ásvöli-
um í gær. Haukar tryggðu við þennan
sigur stöðu sína í 5. sæti deildarinnar
fyrir siðustu umferðina en þeir eiga
ekki möguleika á að komast hærra.
Möguleikar Tindastóls á deildarmeist-
aratitlinum minnkuðu hins vegar til
muna við tapið.
Leikurinn byrjaði rólega og skipt-
ust liðin á að hafa forystuna fyrstu
mínútumar en Haukar tóku smám
saman frumkvæðið og héldu því út
fyrri hálfleikinn. Munurinn varð þó
aldrei mikiO, mest sjö stig í 2. leik-
hluta, eftir þriggja stiga skotsýningu
Marels Guðlaugssonar, en þá tók Lár-
us D. Pálsson í liði Tindastóls sig til
og setti niður fjórar körfur síðustu 5
mínútur 2. leikhluta og höfðu Haukar
því aðeins tveggja stiga forskot þegar
gengið var tO leikhlés, 44-42.
TindastóO byrjaði betur í 3. leik-
hluta. Haukarnir hittu iOa og skoraðu
aðeins 3 stig fyrstu fimm mínútur 3.
leikhluta en það bjargaði þeim að leik-
menn Tindastóls hittu heldur ekki
vel og gátu ekki hrist Haukana af sér
þrátt fyrir að Haukarnir skoruðu ekki
körfu utan af velli í meira en fjórar
mínútur. Það var ekki tO þess að bæta
ástandið að bæði Guðmundur Braga-
son og Bragi Magnússon fengu 4. viOu
sína snemma í Qórðungnum, auk þess
sem Mike Bargen var kominn með
þrjár viOur strax í fyrsta leikhluta.
TindastóO komst mest sjö stig yfir
þegar 3 minútur voru eftir af þriðja
leikhluta en Haukar létu það ekki á
sig fá, spiluðu góða vörn, sem sló gest-
ina út af laginu, og þegar 3. leikhluta
var lokið var staðan orðin jöfn, 65-65.
Síðasti leikhlutinn var hnífjafn og
þegar 3 mínútur voru eftir var staðan
enn jöfn, 76-76, en Haukamir voru
ákveðnari, komust yfir með körfu
Marels og á síðustu minútunni tóku
þeir mikOvæg sóknarfráköst á meðan
Tindastólsmenn hittu ekki úr sínum
skotum og það kom í hlut Guðmundar
Bragasonar að tryggja Haukum sigur-
inn af vítalínunni.
„Þetta var mikOvægur sigur til að
ná upp sjálfstrausti og vinna jafnan
leik fyrir úrslitakeppnina. Okkur
vantaði nokkuð upp á baráttuna
vegna þess að okkur skorti metnað til
þess að fara hærra. Við lentum í tölu-
verðum viOuvandræðum og áttum í
vandræðum með þá inni í teig en við
sýndum að við höfum góðan vara-
mannabekk", sagði Ivar Ásgrimsson,
þjálfari Hauka, sem er ánægður með
árangurinn á heimaveOi að undan-
fórnu en Haukar unnu þar nýverið
Njarðvíkinga. Liðið þarf hins vegar að
spOa betur í útOeikjum sínum ætli
það að ná lengra. -HRM
Særðu liónin
- bitu hressilega frá sér gegn Val
Njarðvíkingar tóku Valsmenn í
kennslustund í Ljónagryfjunni í
gærdag. Heimamenn sem komust í
42-14 leiddu i hálfleik 58-34 og
lokatölur urðu 117-77.
Njarðvíkingar pressuðu Vals-
menn og unnu marga bolta í fyrsta
leikhluta og þeir leiddu 39-14 að
honum loknum. Brenton og Han-
sen léku vel hjá Njarðvík í fyrsta
leikhluta, með 17 og 15 stig. Vals-
memi réttu þó sinn hlut í öðrum
leikhluta og virtist Teitur vera
eini Njarðvíkingurinn sem gat
skorað á tímabili en munurinn fór
samt aldrei undir 20 stigin.
Ekki öfundsveröir
Aðeins var formsatriði að klára
seinni hálfleikinn og náöu gestirn-
ir í rauri aldrei að koma til baka
og sigurinn var því stór. Vals-
menn voru þó ekki öfundsverðir af
því að mæta í Ljónagryfjuna því
að særðu ljónin bitu hressilega
frá sér eftir tap gegn KR á föstu-
dagskvöld.
Brenton Birmingham og Jes
Hansen léku mjög vel í fyrri hálf-
leik hjá heimamönnum og þeir
Teitur og Ragnar Ragnarsson tóku
svo við í seinni hálfleik. Þá átti
HaOdór góðan leik að vanda og
Þeir nafnar Friðrik Ragnarsson og
Stefánsson skiluðu einnig fínum
leik.
Hjá gestunum var fátt um fína
drætti. Margir tapaðir boltar og
mikið um mistök og það má segja
aö Bjarki Gústafsson hafi verið sá
eini sem lét eitthvað að sér kveöa.
Pétur Már kom inn i seinni hálf-
leik og gerði 10 stig en annars var
leikur þeirra Valsmanna dapur.
- -EÁJ
Sport
Þar lágu Kefl-
víkingar í því
Enn einn háspennuleikurinn
fór fram í Borgarnesi í gær þar
sem Skallagrímsmenn tryggðu
sér sæti i 8 liða úrslitum með
sigri á Keflvíkingum, 86-84, og
hafa Borgnesingar líkast tO liða
mest komið á óvart i vetur þar
sem liðinu var í upphafi spáð
falli.
í fyrsta fjórðungi var jafnræði
með liðunum þar sem þau skipt-
úst á að vera með forystuna. En
er annar fjórðungur var hálfnað-
ur höfðu gestirnir náð níu stiga
forskoti. Þá kom Alexander
Ermolinski aftur inn í leikinn og
tókst að binda saman varnarleik
heimamanna og saxa á forskot
gestanna sem leiddu með fjögurra
stiga mun í leikhléi.
Heimamenn komu mjög
ákveðnir til leiks í síðari hálfleik
og nú voru það þeir sem náðu
mest niu stiga forskoti og leiddu
með átta stiga mun eftir þrjá
fjórðunga. Síðasti Ijórðungur var
æsispennandi og er ein mínúta
var eftir af leiknum höfðu Kefl-
víkingar náð forustunni, 81-82, og
heimamenn lögðu af stað í sókn
þar sem brotið var á Hlyni Bær-
ingssyni og hann sendur á vítalín-
una.
Hann kom heimamönnum aft-
ur yfir, 83-82, og gestirnir lögðu af
stað í sókn en Warren Peebles
tókst að stela boltanum af þeim og
brunaði upp völlinn þar sem brot-
ið var á honum og hann sendur á
vítalínuna þar sem hann kom
heimamönnum í 85-82. Nú höfðu
Keflvíkingar aðeins 20 sekúndur
til að jafna og Jón Hafsteinsson
skoraði tveggja stiga körfu fyrir
gestina og minnkaði þar með
muninn í eitt stig.
Heimamenn lögðu því af stað í
síðustu sókn sina og brotið var á
Warren Peebles er 6,7 sekúndur
voru til leiksloka en Warren hitti
aðeins úr öðru vítinu og staðan
því 86-84 og gestirnir höfðu þá
sex sekúndur til umráða en síð-
asta skot þeirra geigaði og þar var
því sætur sigur heimamanna í
höfn.
Liðsheild Skallagríms virðist
vera feikisterk um þessar mund-
ir. „Ég ákvað að koma aftur og
reyna að
hjálpa lið-
inu til að
komast í
úrslita-
keppnina
því þar á
þetta lið
heima því
umgjörðin
og stemn-
ingin fyrir
körfubolta
er mikil í Birgir Mikaelsson
Borgar- hefur tekiö fram
nesi,“ skóna að nýju.
sagði Birg-
ir Mikaelsson sem hefur tekið
skóna fram að nýju og reynst
Borgnesingum vel.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflvíkinga, kom ekki með
þeim tU Borgamess. Hann eignað-
ist son snemma í morgun en
Hrannar Hólm stjómaði liði Kefl-
víkinga í hans stað. -EP
^EPSON
DEILDIHl
Staðan í deildinni:
Njarövík 21 16 5 1969-1695 32
Tindastófl 21 15 6 1868-1779 30
Keflavík 21 15 6 1938-1755 30
KR 21 15 6 1869-1724 30
Haukar 21 12 9 1736-1661 24
Hamar 20 11 9 1672-1705 22
Grindavik 21 10 11 1834-1799 20
Skallagr. 21 10 11 1719-1862 20
ÍR 20 8 12 1641-1759 16
Þór Ak. 20 6 14 1713-1842 12
Valur 21 3 18 1640-1807 6
KFÍ 20 3 17 1716-1927 6