Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Side 12
28 MÁNUDAGUR 5. MARS 2001 Sport Hermann Maier er heimsbikarmeistari karla í alpagreinum: Tvisvar tvöfalt - tveir sigrar og tveir titlar til Maiers um helgina Einn besti sigur minn „Sigurinn [á föstudaginn] er einn af þeim bestu á ferli mínum,“ sagði Maier eftir brun fostudagsins. Honum hafði ekki gengið vel í æfingum fyrir keppnina og ákvað því að byrja aftarlega, með rásnúmer 31, og fylgjast þannig með helstu keppi- nautum sínum áður en hann færi sjálfur niður brekkuna. Það bar árangur og skilaði hann sér í mark á 0,15 sekúndna betri tíma en Þjóðverjinn Florian Eckert, sem varð annar. Á laugardaginn varð Eckert svo aftur í öðru sæti og tókst þar með endanlega að sanna að bronsið sem hann hlaut á HM í St. Anton hefði ekki verið nein tilviljun. Þar með hefur hinn 22 ára Þjóðverji skipað sér á stall á meðal þeirra bestu í bruninu í dag. Sigurvegarinn var hins vegar Austurríkis- maðurinn Stephan Eberharter sem með sigrinum vann aftur forystuna í stigakeppni bruns- Hermann Maier frá Austurríki tryggöi sér um helgina heimsbikartitilinn í samanlögðu í brekkum Kvitfjells i Noregi. Reuter Maður helgarinnar í skiða- brekkum Kvitfjells í Noregi, þar sem tvær keppnir i bruni og ein í risasvigi voru haldnar, var án efa Austurríkismaðurinn Hermann Maier. Hann byrjaöi föstudaginn á því að vinna fyrri brun-keppn- ina. í þeirri siðari á laugardaginn varð hann „aðeins" fimmti en gulltryggði engu að síður heims- bikartitilinn í samanlagðri stiga- keppni karla með árangrinum. í gær vann hann svo sigur í risasviginu og tryggði sér þar með einnig heimsbikartitilinn í þeirri grein þrátt fyrir að ein keppni væri eftir. Landi hans, Christoph Gruber, er í 2. sæti stigakeppninnar en er 174 stigum á eftir Maier. ins sem Maier hafði unnið af honum daginn áður. Maier var, eins og áður segir, í 5. sæti í síðara bruninu. Einvígi fram undan Það stefnir því í algert einvígi Eberharters og Maiers í stiga- keppni brunsins en aðeins sex stig skilja kappana að. Síðasta keppni vetrarins í bruni karla fer fram á miðvikudaginn í Áre í Svíþjóð og ræðst þar hvor þeirra hlýtur titilinn. Brunið markar upphaf lokaátakanna í heims- bikarkeppninni en keppt verður í öllum greinum alpagreina karla og kvenna til sunnudags. Með sigri Maiers í risasviginu í gær bætti hann persónulegt met með því að vinna 11. heims- bikarsigurinn á þessu tímabili. Á fyrri tímabilum náði hann mest 10 sigrum en enn getur Maier bætt við í safnið en hann á eftir að keppa í þremur keppnum í Áre. „Næsta takmark mitt er að jafna met Pirmins Zurbriggers sem vann 40 heimsbikarsigra," sagði Maier en hann hefur nú unnið samtals 39 slíka. Þetta er einnig fjórða árið í röð sem Maier vinnur heimsbikartitilinn í risasvigi sem er greinilega hans sterkasta grein hans. -esá Stórmót kylfinga í Dubai: Danskur sigur - Thomas Björn nýtti sér slæma spilamennsku Woods Heimsbikarinn: Úrslit Rnin tnctnHnímr* Brun, fostudagur: 1. Hermann Maier, Austurr. 1:45,90 2. Florian Eckert, Þýskal. 1:46,05 3. Lasse Kjus, Noregi 1:46,09 Brun, laugardagur: 1. S. Eberharter, Austurr. 1:45,17 2. Florian Eckert, Þýskal. 1:45,26 3. Fritz Strobl, Austurr. 1:45,42 Stigakeppni bruns: 1. S. Eberharter, Austurr. 482 stig 2. Hermann Maier, Aus. 476 stig 3. Fritz Strobl, Austurr. 373 stig 4. Hannes Trinkl, Austurr. 277 stig 5. Lasse Kjus, Noregi 269 stig Risasvig, Kvitfjell: 1. Hermann Maier, Austurr. 1:28,58 2. Hannes Trinkl, Austurr. 1:28,64 3. S. Eberharter, Austurr. 1:29,42 Stigakeppni risasvigs: 1. Hermann Maier, Austurr. 420 stig 2. Christoph Gruber, Austurr. 246 stig 3. Josef Strobl, Austurr. 228 stig Samanlögð stigakeppni: 1. Hermann Maier, Austurr. 1482 stig 2. S. Eberharter, Austurr. 795 stig 3. B. Raich, Austurr. 785 stig 4. Lasse Kjus, Noregi 771 stig 5. H. Schilchegger, Austurr. 751 stig Danski kylfingurinn Thomas Bjöm fagnaði sigri á stórmóti at- vinnumanna sem lauk i Dubai í gær. Bjöm lék síðasta hringinn á þremur undir pari en á sama tíma gekk ekkert upp hjá Tiger Woods. Woods, sem hafði verið forystu allt mótið, lék tvo síðustu hringi afar illa sem varð þessa valdandi að hann horfði á eftir sigrinum til Dan- ans. Woods hefur af einhverjum ástæðum ekki náð sér á strik á þessu ári og ekki tekist að vinna mót enn þá. Thomas Bjöm lék á 266 höggum og þeir Tiger Woods og Padraig Harrington léku á 268 höggum. í sætum þar á eftir urðu Mathias Gronberg og Ian Wosnam á 270 höggum. Daninn var að vonum í sjöunda himni eftir sigurinn og sagði þetta hafa verið besta árangur sinn til þessa. Sjálfstraustiö hefur aukist til muna „Sjálfstraustið hefur aukist og eft- ir þennan sigur hef ég enga minni- máttarkennd gegn frægustu stjörn- unum, á borð við Tiger Woods,“ sagði Björn eftir sigurinn. Hann dvelur lengstum við æfmgar í Dubai á vetuma. Woods var hins vegar fáorður eft- ir mótið, greinilega mjög svekktur og óánægður með spilamennsku sína. -JKS Thomas Björn fagnar sigrinum meö eiginkonu og dóttur. Reuter Deildarbikarinn: Skagamenn lögðu Fylki Skagamenn sigruðu Fylki, 3-1, í deildarbikamum í knattspyrnu um helgina. Baldur Aðalsteins- son, Háifdán Gíslason og Jó- hannes Gíslason skoruðu fyrir Skagamenn en Pétur Björn Jóns- son markið fyrir Fylki. Þess má geta að Steingrímur Jóhannes- son, sem gekk í raðir Fylkis fyr- ir helgina, var i byrjunarliðinu. Grindavik sigraði Víking, 6-2. Hallur Ásgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Grindvíkinga og þeir Sinisa Kekic, Sverrir Þór Sverr- isson, Goran Lukic og Róbert Sigurðsson eitt hver. Ágúst Guð- mundsson skoraði bæði mörk Víkings. • Fram sigr- aði Stjörnuna, 2-0, og skoraði Þorbjörn Atli Sveinsson bæði mörk Framara, það fyrra úr víta- spyrnu. Keflvíking- ar unnu KA, 3-1, með mörkum frá Þórarni Kristjánssyni, Hólmari Erni Rúnarssyni og Magnúsi Þorsteinssyni. Hreinn Hringsson skoraði fyrir KA. Þá sigruðu KR-ingar lið Vals, 2-1. Magnús Lúðvíksson og Gunnar Einarsson skoruðu fyrir KR en Ármann Bjömsson gerði mark Valsmanna. Keppni í neðri deild hófst um helgina þegar Skallagrímur sigraði KS, 5-2. -JKS Stigamót í borötennis: Guðmundur og Lilja Rós unnu Guðmundur Stephensen úr Vikingi sigraði í einliðaleik í karlaílokki á stigamóti Borðtenn- issambandsins í gær. Guðmund- ur mætti Adam Harðarsyni í úr- slitaleik og sigraði, 2-1. í kvennaflokki mættust Vík- ingsstúlkurnar Lilja Rós Jóhann- esdóttir og Halldóra Ólafs i úr- slitaleik og bar Lilja Rós sigur úr býtum, 2-1. -JKS Góður árangur í göngu í Noregi Ólafur Th. Árnason lenti í 36. sæti af 160 keppendum 18-19 ára í 10 km göngu á norska unglinga- meistaramótinu í gær. Ólafur var 2,12 mínútum á eftir heimsmeist- ara unglinga frá Póllandi. Jakob Einar Jakobsson, sem einnig keppti á mótinu, lenti í 20. sæti í flokki 17 ára. Þessi árang- ur strákanna er sérlega glæsileg- ur. -JKS Halldór í þriðja sæti í Sofiu Halldór Birgir Jóhannsson, þolfimimaður úr Ármanni, hafn- aði í þriðja sæti á heimsbikar- móti sem haldið var í Sofiu í Búlgaríu um helgina. Halldór varð í fjórða sæti eftir und- ankeppnina en hækkaöi sig um eitt sæti í úrslitunum. Spánverj- inn Jonatan Canada sigraði með yfirburðum, hlaut 19,15 stig en Halldór fékk 17,00 stig. Með ár- angri á stigamótunum í vetur hefur Halldór tryggt sér þátttöku- rétt í úrslitakeppninni sem verð- ur á Rimini á Ítalíu í júlí í sum- ar- -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.