Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2001, Qupperneq 14
30
MÁNUDAGUR 5. MARS 2001
Sport
Götu- og vídavangs-
hlaupaskrá FRÍ 2001
Mars
31. Marsmaraþon hefst kl. 9.30 viö Ægisíðu, Reykja-
vík (forgjafarhlaup, skráning þarf að berast viku fyrir
hlaup). Maraþon með tímatöku. Upplýsingar Pétur I.
Frantzson í símum 551 4096 og 898 9902 og á hlaupasíðu
Félags maraþonhlaupara.
Apríl
8. Flóahlaup UMF Samhygðar. Hefst kl. 14.00 við
Félagslund, Gaulverjabæjarhreppi. Vegalengdir: 3 km, 5
km og 10 km með tímatöku. Upplýsingar Markús ívars-
son í síma 486-3318.
19. Víðavangshlaup ÍR. Hefst kl. 13.00 við Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km með tímatöku. Skráning
i Ráðhúsinu frá kl. 11.00. Upplýsingar Gunnar Páll
Jóakimsson í síma 565-6228, Jóhann Kristjánsson i síma
587-9000 og ÍR-heimilið við Skógarsel í sima 587-7080.
19. Víðavangshlaup Hafnarfjarðar. Hefst kl. 13.00
á Víðistaðatúni í Hafnarflrði. Vegalengdir: 1 km, 1,4 km
og 2 km með tímatöku. Upplýsingar Sigurður Haralds-
son i síma 565-1114.
19. Víðavangshlaup Vöku. Upplýsingar Fanney
Ólafsdóttir í síma 486-3317.
19. Víðavangshlaup Skeiðamanna. Upplýsingar
Valgerður Auðunsdóttir í síma 486-5530.
Maí
01. 1. mal hlaup UFA. Hefst kl. 13.00 við Sportver.
Vegalengdir: 4 km og 10 km með tímatöku. Upplýsing-
ar Sigurður Magnússon í síma 898-0468 og 46-1150.
01. 1. maí hlaup Fjölnis og Olís. Hefst kl. 14.00 við
íþróttamiöstöðina Dalhúsum. Skráning frá kl.
12.00-13.45. Vegalengdir: 1,6 km og 10 km með tímatöku.
03. Flugleiðahlaup. Hefst kl. 19.00 við Hótel Loftleið-
ir. Vegalengd: 7 km með tímatöku. Skráning á staðnum
frá kl. 17.00 og Netinu á hlaup.is.
05. Vimuvarnarhlaup Lions í Hafnarfirði. Hefst kl.
11.00 á Víðistaðatúni í Hafnarfirði (10 ára afmælis-
hlaup). Skráning frá kl. 9.00 í skátaheimilinu við Víði-
staðatún. Vegalengdir: 2,2 km, 4,5 km og 10 km án tíma-
töku.
12. Neshlaup TKS. Hefst kl. 11.00 við sundlaug Sel-
tjamamess. Vegalengdir: 3,25 km, 7 km og 14 km. Upp-
lýsingar Kristján Jóhannsson í sima 561-1594 og Katla
Kristvinsdóttir í síma 561-2611.
13. Smárahlaup. Hefst kl. 13.00 við Smáraskóla.
Vegalengdir: 2,5 km og 7 km með tímatöku. Upplýsing-
ar í Smáraskóla í síma 554-6100.
19. Námsflokkahlaup. Hefst kl. 13.00 við Miðbæjar-
skólann. Vegalengd: 10 km með tímatöku. Upplýsingar
Pétur I. Frantzson í símum 551-4096 og 898-9902.
24. Breiðholtshlaup Leiknis. Hefst kl. 13.00 við
sundlaugina í Austurbergi. Vegalengdir: 2 km, 5 km og
10 km með tímatöku. Upplýsingar Ólafur I. Ólafsson í
síma 557-9059 og Jóhann Úlfarsson í síma 587-2853.
Júní
06. Víðavangshlaup HSÞ. Upplýsingar á skrifstofu
HSÞ í síma 464-3107.
07. Heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins Hefst kl.
19.00 við hús Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 (af-
mælishlaup, Krabbameinsfélagið 50 ára). Vegalengdir: 2
km, 4 km og 10 km með tímatöku. Upplýsingar á skrif-
stofu Krabbameinsfélagsins í síma 540-1900.
07. Bændadagshlaup UMSE. Upplýsingar á skrif-
stofú UMSE í sima 462-4477.
09. Akraneshlaup USK. Keppni í hálfmaraþoni með
tímatöku hefst kl. 10.30 á Akratorgi. Upplýsingar Krist-
inn Reimarsson í síma 861-6221.
09. Hólmadrangshlaup. Hefst kl. 14.00 við hafnar-
vogina á Hólmavík. Vegalengdir: 3 km, 10 km með tima-
töku. Upplýsingar Ragnar Bragason í síma 451-3592.
09. Akureyrarmaraþon. Hefst kl. 12.00 á íþróttavell-
inum á Akureyri. Vegalengdir: 3 km skemmtiskokk, 10
km og hálfmaraþon með tímatöku. Meistaramót íslands
í hálfmaraþoni. Upplýsingar Gunnar Ragnars í símum
462-1672 og 898-5560 og netfang: gragnars@nett.is.
10. Grindavíkurhlaup. Hefst kl. 10.00 við Sundmið-
stöðina. Vegalengdir: 3,5 km og 10 km. Upplýsingar
Ágústa Gísladóttir í síma 426-8206.
12. Álafosshlaup. Hefst kl. 19.00 við Álafosskvosina
að Varmá, Mosfellsbæ. Skráning frá kl. 17.30 og bún-
ingsaðstaða við sundlaug Varmár. Vegaleng: 9 km.
13. Víðavangshlaup HSÞ. Upplýsingar á skrifstofu
HSÞ í sima 464-3107.
14. Boðhlaup í Laugardal. Hefst kl. 19.00 við
Skautahöllina í Laugardal. Skráning frá kl. 17.00 í
Skautahöllinni.
16. Kvennahlaup ÍSÍ.
17. 17. júnf hlaup UMFS. Upplýsingar Vilhjálmur
Bjömsson á Dalvík í síma 466-1121.
20. Vlðavangshlaup HSÞ. Upplýsingar á skrifstofu
HSÞ í sima 464-3107.
22. -23. Mývatnsmaraþon. Keppni í maraþoni fer
fram 22. og hefst kl. 21.00 með tímatöku. Keppni í öðr-
um vegalengdum fer fram 23., hálfmaraþon hefst kl.
13.00,3 km og 10 km kl. 14.00 með tímatöku, mæting við
Skútustaði í öll hlaupin. Meistaramót íslands i mara-
þoni.
23. Miðnæturhlaup á Jónsmessu. Hefst kl. 23.00
við sundlaugina í Laugardal, Reykjavík. Vegalengdir: 3
km og 10 km.
30. Óshliðarhlaup. Hlaupið er á milli Bolungarvík-
ur og tsafjarðar. Vegalengdir: 4 km, 10 km og hálfmara-
þon með tímatöku. Hefst kl. 14.00. Upplýsingar Marinó
Hákonarson í símum 456-5079 og 456-4103.
- DV-Sport á æfingu hjá eldhressum blakmönnum
Menn þurfa ekki endilega að vera korn-
ungir til að geta stundað líkamsrækt. Það
sannast sennilega hvað best á hressum
hópi karlmanna sem hittist reglulega og
æfir saman blak.
Þessi hópur byrjaði að hittast í Álftamýr-
arskólanum fyrir hartnær 40 árum og hef-
ur hist reglulega síðan. Vissulega hefur
hópurinn tekið breytingum en þrír hafa þó
verið í hópnum alveg frá upphafi. Sá elsti
er Páll Guðmundsson, 75 ára, en hann
kenndi þessa íþrótt mikið á
árum áður og félagar hans í
hópnum segja í léttum dúr að
hann hafi fundið upp blakið á
íslandi!
Það hafa reyndar fleiri í
hópnum, einn þeirra kenndi
blak mikið á Akureyri og ann-
ar á Kópaskeri þannig að þeir
eru alls engir nýgræðingar í
íþróttinni. Enda sást það
greinilega á tilþrifunum sem
þeir sýndu í íþróttasalnum.
„Þó að mikil reynsla búi í
þessum hópi hefur hún nýst
okkur takmarkað á þeim mót-
um sem við höfum tekið þátt í.
Við gleðjumst þó mikið yfir
hverri hrinu sem við vinnum
og höfum reyndar sjaldan
unnið jafnmargar og i fyrra.“
í upphafi var þetta reyndar
hjónablak þar sem hjón komu
saman og spiluðu. Síðar þró-
aðist þetta út i að karlarnir
fóru að hittast einir með fram
hjónablakinu og að lokum
lagði hjónablakið upp
laupana. En þeir eru ánægðir
með þessa íþrótt. „Þetta er
eitthver albesta íþrótt til að
læra þegar maður er ungur
því þetta geta menn iðkað í
heilan mannsaldur," segir
einn úr hópnum og annar bæt-
ir við: „Þetta er náttúrlega
stórhættulegt engu að síður og
þess vegna erum við bæði með
sjúkraþjálfara og lækni í
hópnum. Sjúkraþjálfarinn er
reyndar sá eini sem hefur Mikil tilþrif á
meiðst eitthvað að ráði í þessum æfingum!"
Mikill hlátur kveður við eftir þessi orð og
það segir í raun allt um móralinn sem er
mjög góður og menn spjalla saman í léttum
dúr fyrir og eftir tímana, þó svo að alvaran
sé yfirleitt meiri á meðan á tímanum stend-
ur.
Þegar blaðamaður spyr hvemig þessum
hóp hafi tekist að halda saman í öll þessi ár
er ein skýring talin vera annarri líklegri.
„Við höfum ekki veriö að taka mikið upp á
æfingu blakhópsins knáa.
því að fara eitthvað saman út utan blaktím-
anna. Við höfum kannski einstaka sinnum
hist í afmælum en ekkert annars. Við áætl-
um reyndar að fara til Akureyrar í keppn-
isferð í vor sem verður þá okkar fyrsta ferð
saman ef af verður.“
Það geta eflaust margir lært af þessum
hópi, ekki síst að aldur skiptir ekki máli
þegar hreyfing er annars vegar og einnig
að það er hægt að halda sér í góðu formi
langt fram eftir ævinni." -Efí
DV-myndir Hari