Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Page 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
r>v
Fréttir
Borgarnes og Selfoss bjóða í sameinaða kjötvinnslu og 100 störf:
Keppa um að fá Goða
Sveitarfélögin Árborg og Borgar-
byggð keppa nú um að fá sameinaða
kjötvinnslu Goða til sín. Henni fylgja
um 100 störf. Að sögn Róberts Jónsson-
ar hjá Atvinnuþróunarsjóði Suður-
lands hefúr forráðamönnum Goða ver-
ið boðið að byggja yfir fyrirtækið verði
það flutt til Selfoss. Að sögn Stefáns
Kaimanssonar, bæjarstjóra í Borgar-
nesi, hefur sveitarfélagið m.a. boðið
Goðamönnum að liðka fyrir um íbúð-
arhúsnæði fyrir starfsfólk það sem
kynni að flytja til Borgamess verði fyr-
irtækið flutt þangað. Ólafur Sveinsson
stjómarformaður vonast til að ákvörð-
un um staðsetningu sameinaðrar kjöt-
vinnslu liggi fyrir í þessari viku.
Eins og DV greindi frá í gær verða
fjórar kjötvinnslur fyrirtækisins í
Reykjavik, Borgamesi og Selfossi sam-
einaðar. Um sl. áramót var ákveðið að
hið sameinaða fyrirtæki yrði flutt f
Mosfellssveit. Framkvæmdastjórinn,
Kristinn Þór Geirsson, mun vera því
mjög fylgjandi. Siðan komu fleiri val-
kostir inn í stöðuna, bæði Borgames
og Selfoss. Goði hefur sótt um lán upp
á hundrað milljóna til Byggðastofnun-
ar. Sú umsókn miðast við að fyrirtæk-
ið verði í Borgamesi. Er horft til þess
að gamla mjólkursamlagið geti hýst
kjötvinnsluna. Reykjagarður hafði fest
kaup á því húsi fýrir nokkra og hugð-
ist flytja sláturstarfsemina þangað frá
HeOu. Af því hefur ekki orðið og mun
húsið nú vera til sölu.
Róbert Jónsson hjá Atvinnuþróun-
arsjóði Selfoss sagði að Goða hefði ver-
Topparnir farnir frá Gen.is:
Þetta varð
að gerast
- segir stjórnarformaöurinn
„Nú liggur fyrir að endurskipu-
leggja fyrirtækið og koma því í lag.
Starfsfóikið er eftir þó toppamir séu
famir,“ sagði Tryggvi Pétursson,
stjómarformaður útgáfúfyrirtækisins
Genealogia Islandorum, um brotthvarf
tveggja lykOmanna frá fyrirtækinu,
þeirra Jóhanns Páls Valdimarssonar
og Þorsteins Jónssonar. Jóhann PáO
yfirgaf fyrirtækið vegna samstarfsörð-
uglefta við Þorstein Jónsson og tók
með sér bókaútgáfú sína, JPV-forlag. í
kjölfarið var Þorsteini Jónssyni gert
að segja upp en hann stjómaði ætt-
fræðiútgáfú fyrirtækisins. .
Þorsteinn hvarf frá störfum Hnlni"tll 'x!in fyrirtækinu fyrir bestu. Þetta er eitt- f
þó svo hann sé stærsti ein- . hvað sem varð að gerast,“ sagði
staki hluthafinn í Genea- Tryggvi Pétursson en vildi ekki ;
logia Islandorum, með um l að öðra leyti tjá sig um ástæð- j
40 prósent hlutafjár. V>0* ur átakanna í fyrirtækinu.
„Þorsteinn verður í |j»£, ; Þau væra einkamál sem •
stjóm fyrirtækisins en fcj " Báðir farnir ekki væri hægt að hafa
með því að hætta dagleg- I %,JÍ Sr Fréttir DV um eftir. Ekki náðist í 1
um störfum hér er hann JÍSSSÍ.;/brotthvarf topp- Þorstein Jónsson í j
aðeins að gera það sem er anna, morgun. -EIR
Tryggvi
Pétursson
ÁstæOur einka-
mál sem ekki
eru hafandi eftir.
Þorsteinn Jónsson
Hverfur frá störf-
um en situr í
stjórn sem stærsti
hluthafi.
ið boðið að byggja 4000 fermetra hús
yfir sameinaða kjötvinnslu. Slíkt hús
kostaði 350-400 milljónir og yrði leigt
fyrirtækinu. Mánaðarleiga væri einn
hundraðasti af byggingarkostnaði.
Forráðamenn Árborgar hefðu viljað
sjá einhverjar tryggingar frá Goða fyr-
ir greiðslu á leigunni en þá hefði
þyngst hljóðið í Goða-mönnum. Engu
hefði þó verið hafnað. Þá hefðu fjár-
festar á svæðinu verið tilbúnir til að
koma inn í starfsemi Goða. Loks hefðu
forráðamenn Árborgar verið tilbúnir
til að aðstoða Goða við að sækja um
styrk í Byggðastofnun og koma á nám-
skeiðum fyrir kjötvinnslufólk á svæð-
inu í samstarfi við Fjölbrautaskóla
Suðurlands og fleiri.
„Við erum að sjálfsögðu að keppa
við Borgames," sagði Róbert.
Stefán Kalmansson sveitarstjóri
sagði að sveitarstjórnin hefói boðið
Goða að iiðka fyrir um húsnæði fyrir
starfsfólk ef fyrirtækið flytti til Borgar-
ness. Fleiri atriði hefðu verið viðrað
en ekki væri ástæða til að tíunda þau
að svo komnu máli.
„Það yrði visst áfall ef við fengjum
fyrirtækið ekki hingað,“ sagði Stefán.
„Þeir era hér með 25 starfsmenn nú
sem myndu fara héðan ef þeir koma
ekki með sameinaða fyrirtækið."
Ólafur Sveinsson, stjómarformaður
Goða, sagði að allir möguleikar væra
opnir en ákvörðun um staðarval yrði
ekki tekin fyrr en ákvörðun Byggða-
stofnunar lægi fyrir. -JSS
DV-MYND HILMAR ÞOR
Aðalfundur Islandsbanka-FBA
Rekstraráætlun Íslandsbanka-FBA hf. gerir ráO fyrir aö hagnaöur bankans á
þessu ári veröi 3.561 milljón króna í staö 662 milljóna króna hagnaöar á
síöasta ári. Áætlunin var kynnt á aöalfundi bankans sem haldinn var i gær. Á
fundinum var kjörin ný stjórn bankans. Guömundur H. Garðarsson og Fmn-
bogi Jónsson gáfu ekki kost á sér áfram en í þeirra staö koma í stjórnina
Jón Ólafsson og Víglundur Þorsteinsson. Endurkjörnir voru Einar Sveinsson,
Eyjólfur Sveinsson, Helgi Magnússon, Jón Ásgeir Jóhannesson og Kristján
Ragnarsson sem er formaöur.
Portúgalsferð með Sól:
Kjarakjör í sólina fyrir áskrifendur DV
Áskrifendum DV býðst nú ein-
stakt tækifæri til að skella sér.í sól-
ina í Portúgal. Það eru DV og Ferða-
skrifstofan Sól sem efna til tveggja
vikna ferðar til Albufeira í Portúgal
fyrir áskrifendur. Flogið verður út á
vit ævintýranna þann 8. apríl og
komið heim þann 22. en gist verður
á að lágmarki þriggja sóla íbúðar-
hóteli. í boði eru vandaöir gististað-
ir, spennandi skoðunarferðir, falleg-
ar strendur, fjörugt skemmtanlíf og
frábærir golfvellir. Ef miðað er við
hjón með 2 börn á aldrinum 2 til 14
ára kostar ferðin 53.479 krónur á
mann og ef miðað er við tvo í stúd-
íóíbúð er ferðin á 64.600 krónur fyr-
ir manninn og eru flugvallarskattar
inni í því verði. Handhafar Atlas-
ávísunar fá 5000 króna aukaafslátt.
Bestu kjör fyrlr DV-áskifendur
DV og Feröaskrifstofan Sól efna til
tveggia vikna feröar til Portúgals.
Eldur laus um borð í Geirfugli GK
Kviknaði í
sjógöllum
DV, GRINDAViK: ~~
Betur fór en á horfðist þegur eld-
ur varð laus um borð í Geirfugli GK
þegar verið var að vinna með
logsuðutæki um borð í skipinu í
gærdag. Starfsmenn Þorbjarnar
Fiskaness voru að vinna með
logsuðutæki og gættu ekki að sér
með þeim afleiðingum að kviknaði i
sjógöllum sem geymdir voru í skor-
steinshúsi skipsins.
Var slökkviliö Grindavíkur kall-
að út en búið var að slökkva eldinn
þegar það kom og aðstoðaði þaö við
að reykræsta. Svo vel vildi til að
einn af starfsmönnunum var
slökkviliðsmaður og má því segja að
fagmannlega hafi verið tekið á eld-
inum strax í byrjun og varla hægt
að tala um nokkurt tjón á skipinu.
Sagði Ásmundur Jónsson slökkvi-
liðsstjóri að lítil hætta hefði stafað
af eldinum vegna réttra viðbragða
starfsmanna en illa hefði getað farið
ef eldurinn hefói náð að breiðast út.
Verið er að byrja á vinnu við
skipið vegna breytinga og sagði
Guðmundur Ólafsson, þjónustu-
stjóri hjá ÞF, að til stæði að breyta
skipinu í línu- og netaskip en allt
væri þó óljóst um framhaldið. Áður
hét skipið Hrafn og síðar Háberg og
var loðnu- og síldarskip. -ÞGK
DV-MYND ÞKK
Sluppu vel
Eldurinn sem kom upp var fagmannlega slökktur af starfsmanni sem kunni
til verka. Hér er lögreglan á vettvangi í gærdag.
Stuttar fréttir
Búinn aö iofa lögum
Gísli Hjartarson
hjá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu
Bylgjunni á Vest-
fjörðum segir að
gömlu refirnir úr
samninganefnd sjó-
manna telji sig hafa
fundið það á lykt-
inni af útgerðarmönnum að forsæt-
isráðherra sé búinn að lofa þeim að
lög verði sett til þess að fresta verk-
falli sjómanna. - InterSeafood.com
greindi frá.
Ný umhverfissamtök
Miklar líkur eru á stofnun nýrra
umhverfissamtaka með aðsetur í
Mývatnssveit. Það eru nokkrir
heimamenn sem hafa þegar haldið
tvo óformlega undirbúningsfundi
um félagið og er stefnt að opinber-
um fundi í næstu viku. - Dagur
greindi frá.
Ekki af almannafé
Sveinn Hannesson framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, segir að
það sé bæði villandi og rangt að
halda því fram samtökin séu rekin
af almannafé eins og Haukur
Hauksson, formaður Samtaka versl-
unarinnar, fullyrti í ræðu sinni á
aðalfundi þeirra sl. föstudag.
Klámið rætt á Alþingi
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað-
ur Vinstri-grænna, spurði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra i
gær hvort hann hygðist skoða það
að klámefni væri dreift á Breið-
bandinu fyrir Skjá einn. Bjöm
minnti á breytingar á lögum frá
1995 og taldi óvíst hvort nokkur
gæti ritskoðað efnið.
Rætt var um við-
skiptahalla í utan-
dagskrárumræðu á
Alþingi í gær. Öss-
ur Skarphéðinsson,
formaður Samfylk-
ingarinnar, sagði
að viðskiptahallinn
væri meiri en ann-
ars stað í kringum okkur nema í
Portúgal. Taldi hann skuldsetningu
heimilanna „mesta þjóðarböT1
landsins.
Hverastrýtur friðlýstar
Að tillögu Náttúruvemdarráðs og
Náttúruverndar ríkisins hefur um-
hverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir,
í samráði við sjávarútvegsráðherra,
ákveðið að friðlýsa hverastrýtur á
botni Eyjafjarðar. Þetta er 84. frið-
lýsingin hérlendis, en sú fyrsta í
hafi.
Stefnir í gjaldþrot
Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir
á Vogi, segir að
hallinn á rekstri
vímuefhameðferð-
arinnar þar á síð-
asta ári hafi í fyrsta
sinn verið meiri en
svo að SÁÁ hafi get-
að greitt hann niður af sjálfsaflafé
sínu. Ekki verði hjá því komist að
draga úr kostnaði ella stefni sam-
tökin í gjaldþrot. - RÚV greindi frá.
833 milljóna gjaldþrot
Lýstar kröfur í þrotabú Nasco i
Bolungarvík nema rúmlega 833 milj-
ónum króna. Fyrsti skiptafundur í
þrotabúinu var haldinn í gær. Ólík-
legt er að eitthvað fáist greitt upp í
almennar kröfur en forgangskröfur
greiðast að hluta. - RÚV greindi frá.
-HKr.
Þjóðarböl