Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Fréttir
DV
Réttarhöld í máli ríkislögreglustjóra gegn sjö sakborningum í stóru smyglmáli:
Fýrrum tollvörður
ber af sér sakir
- félagi hans viðurkennir brot þar sem ríkistollstjóri krefst 41 milljónar greiðslu
Fyrrum tollvörður, sem ákærður er
fyrir tollalagabrot og brot í opinberu
starfi með því að aðstoða félaga sinn
við að flytja inn stóran gám af áfengi
frá Bandaríkjunum skömmu fyrir jól
árið 1996 og annan frá Frakklandi í
júní sama ár, neitaði i gær öllum sak-
argiftum íyrir dómi. Félagi mannsins,
31 árs Reykvíkingur, sem ríkistoll-
stjóri krefur um 41 milljón króna í að-
tlutningsgiöld sem ríkið varð af þegar
hann flutti inn umrædda áfengisgáma,
gekkst að mestu við því sem honum er
gefið að sök.
Á hinn bóginn var framburður
mannsins gagnvart hinum fyrrum toll-
verði á þá leið að þeir hefðu vissulega
farið saman til New York með tveimur
öðrum mönnum - þar á meðal rann-
sóknarlögreglumanni - en tilgangur
þeirrar farar hjá öllum hefði verið að
kaupa bíla. Ákærði sagði síðan að
tveimur vikum síðar hefði hann aftur
farið til Bandaríkjanna - þá hefði hann
gengið frá kaupunum, ekki þegar hann
var með tollverðinum - hann hefði
ekkert vitað um kaupin eða hvað í
gámnum var þegar hann fékk tollvörð-
inn til að afgreiða gáminn á milli
svæða.
Samtals 17 þúsund lítrar af áfengi
voru í gámunum tveimur.
í DOMSALNUM
Óttar Sveinsson
Gámur með ólífuolíu reyndist
áfengisgámur
Tollvörður frá rikistollstjóra sem
vann við rannsókn málsins kom fyrir
dóminn í gær og sagði að grunsemdir
hefðu fyrst vaknað í desember 1996
þegar gámurinn frá New York hafði
komið inn á tollsvæðið í Sundahöfn.
Þegar hann fór að grennslast fyrir um
gáminn var honum sagt að hann hefði
verið sendur upp í Tollvörugeymslu.
Þar fékkst hins vegar upplýst að
gámurinn væri farinn - bilstjóri
greindi síðan frá að gámurinn hefði
verið fluttur á gámasvæði við Lang-
Þingholtin:
Lögregla stöðv-
aði sýningu
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði sýn-
ingu sem haldin var í Þingholtunum á
fóstudagskvöldið eftir að borgari
kvartaði undan henni. Á sýningunni,
sem auglýst var undir nafninu „is-
lenskt lambakjöt", var myndum af fá-
klæddum og nöktum stúlkubömum
varpað á átta glugga í húsi í hverfinu.
Að sögn lögreglunnar hafði sýningin
verið auglýst með veggspjöldum í mið-
bænum undir áðumefndu nafni. Lög-
reglan ræddi við aðstandanda sýningar-
innar sem gaf skýringu á uppátækinu
en enginn var handtekinn. -SMK
Reykjavík:
Köttur réðst
á barn
Lögreglan í Reykjavík var köiluð að
íbúð i vesturbænum um helgina þar
sem ókunnur köttur hafði komist inn.
Kötturinn hafði ráðist að bami sem í
íbúðinni var og var búinn að skemma
sófasett er lögreglu bar að garði. Mein-
dýraeyðir aðstoðaði við að fjarlægja
hinn óvelkomna gest. Bamið meiddist
ekki við árás kattarins. -SMK
Reykjavík:
Verðmætum
skartgrip stolið
Tveir þjófar stálu skartgrip að
verðmæti um 100 þúsund krónur úr
skartgripaverslun við Laugaveg í
Reykjavík um helgina. Þjófamir fóru
inn í verslunina á afgreiðslurtima
hennar og dreifði annar þeirra at-
hygli starfsfólksins á meðan hinn
teygði sig í skartgripinn. Þeir komust
svo báðir undan en lögreglan í
Reykjavík er með málið í rannsókn.
Jafnframt var rúmteppi stolið úr
sængurfataverslun í miðborginni.
Þjófurinn komst inn í verslunina um
glugga á annarri hæð hússins. -SMK
Maður slasaðist
við flutning á
spennistöð
Karlmaður slasaðist á fæti er ver-
ið var að hífa sjö tonna spennistöð
af palli á vinnusvæði Orkuveitunn-
ar i Höfðahverfi á föstudag. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík var verið
að setja spennistöðina á vöruflutn-
ingabíl þegar stuðningsfótur á bif-
reiðinni brotnaði og lá við að hún
legðist á hliðina. Spennistöðin skall
utan í aðra sams konar stöð. Stjórn-
andi kranans meiddist á fæti og var
fluttur á slysadeild. Hann var ekki
talinn í lífshættu. -SMK
Verjendur viö aöalmeðferö í héraösdómi í gær.
Samtals voru um sautján þúsund lítrar af áfengi í smyglgámunum tveimur sem teknir voru.
DV-MYND HILMAR ÞOR
holtsveg. Eftir þetta leiddi eitt af öðru
og farið var að kanna fyrri innflutning
þess manns sem hafði flutt áfengið inn.
Kom þá í ljós að hann haföi flutt inn
ólífuolíu frá Frakklandi í júní - olíu
sem reyndist aldrei annars staðar en á
vörureikningi og tollpappírum frá því
um sumarið. Síðan kom i ljós að
gámurinn hafði verið fullur af áfengi.
Ríkistollstjóri telur að með því hafl að-
alsakborningurinn komist hjá því að
greiða 32 milljónir í aðflutningsgjöld.
Hann og tollvörðurinn fyrrverandi
ásamt þriðja aðila í málinu eru allir
kraföir um þær 8 milljónir króna sem
tollayfirvöld urðu af þegar gámurinn
frá New York var fluttur inn.
Ekkert athugavert við að taka
við flösku
í fyrri gáminum voru hátt í tíu þús-
und lítrar af áfengi. Gámurinn kom
með Dísarfelli, skipi Samskipa. Aðal-
sakbomingurinn í málinu flutti áfeng-
ið inn en tollverðinum fyrrverandi er
gefið að sök að hafa aðstoðað með því
að gefa út svokallað neyðarleyfi til fyr-
irtækis sem skráð var á innflytjanda
gámsins. Vegna þessa gáms fer rikis-
lögreglustjóri fram á að sakbomingur-
inn verði dæmdur til refsingar fyrir
brot á tollalögum og hegningarlögum,
t.a.m. með þvi að falsa vörureikninga.
Síðari gámurinn kom með leigu-
Lítill hluti gáma skoöaöur
Fyrrum tollvöröurinn sem ákæröur er
í smyglmálinu stóra segir aö innan
viö 1 prósent gáma séu vöruskoöaö-
ir vegna manneklu - þeirgámar
sem fái neyöarleyfi séu enn síöur
skoöaöir.
skipi Eimskips til landsins í desember
1996,872 kassar af áfengi, samtals rúm-
lega 7.800 lítrar. Ákæravaldið heldur
þvi fram að mennimir hafi komið
áfenginu inn í landið án tollafgreiðslu
með því að blekkja starfsmenn Eim-
skips og Tollstjórans til að afhenda
gáminn milli tollsvæða. Við þann
verknað hafi mennimir afhent aðstoð-
arverkstjóra eina flösku af áfengi.
Tollvörðurinn fyrrverandi viður-
kenndi þá afhendingu en sagðist ekki
hafa átt flöskuna og liti því svo á að
maður gefi ekki það sem maður á ekki.
Hann kvaðst ekkert hafa séð athuga-
vert við að taka sjálfúr við einni flösku
enda væri slíkt ekki óvenjulegt í starfi
tollvarða.
Rannsókn hefur dregist
New York-gámurinn var afhentur út
af frísvæði Tollvörageymslunnar að
beiðni annars mannanna, undir því yf-
irskini að flytja ætti hann án tafar aft-
ur á tollsvæði Eimskips til endurút-
flutnings. Tollvörðurinn fyrrverandi
haföi þá innsiglað gáminn á frísvæði
Tollvörugeymslunnar sem ekki var
vinnusvæði hans. Eftir það var gámur-
inn svo fluttur á athafnasvæði fyrir-
tækis við Langholtsveg þar sem góssið
var tekið úr honum.
Einn maður er ákærður með hinum
tveimur vegna seinni gámsins og ann-
ar fyrir að hafa veitt liðsinni við að
geyma áfengið á Langholtsvegi.
Fimmti aðilinn er ákærður fyrir að
kaupa 280 kassa af áfengi og selja hluta
af því. Tveir era ákærðir fyrir að
kaupa lítinn hluta af góssinu.
Eins og fram kemur hér að framan
er smyglmálið orðið 4 ára sem þykir
langt í réttarkerfmu í dag. Þegar verj-
andi aðalsakbomingsins bar fram
spumingu til skjólstæðings síns í gær
kom fram að hann heföi ítrekað hringt
til ákæravaldsins og spurt hvort málið
yrði ekki fljótlega tekið fyrir. Hann
upplýsti að hann heföi unnið á góðum
vinnustað eftir að málið kom upp og
væri nú í námi. Maðurinn sagði að
dráttur málsins heföi hins vegar óneit-
anlega haft slæmt áhrif á nám sitt og
framtíðarákvarðanir. -Ótt
VeðTíö í kvöíd
- jio ííSjj
ytr
% ***
á?7
fSfífit
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.23 19.06
Sólarupprás á morgun 07.49 09.20
Siódegisflóð 21.19 01.52
Árdegisflóð á morgun 09.39 14.12
Sii^du^wávQðurtiálkiuim
10
VINDATT
-10“
VINÐSTYRKUR
í metruifi á sekúndu
^3 O
tETTSKYJAO HALF-
SKÝJAD
SKYJAÐ ALSKYJAÐ
Slydduél suðaustanlands
Norðaustlæg átt, 8 til 13 m/s norðvestan til
og allra austast í fyrstu, en annars fremur
hæg austlæg eða breytileg átt. Dálítil
snjókoma eða él á Austurlandi fram eftir degi.
Slydduél suöaustanlands. Annars skýjað með
köflum og úrkomulítið.
w
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
:o ■ W ir =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR Þ0KA
Færö
Ofærö á Norðausturlandi
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinnni er ófært um Mývatns- og
Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiöi og
Breiödalsheiði. Hálka er á Steingrims-
fjaröarheiöi, Öxnadalsheiöi og Fagradal.
Að öðru leyti er góð færö á vegum
landsins.
Austlæg eða breytileg átt
Hæg austlæg eöa breytileg átt. Dálítil slydduél suðaustanlands en annars
úrkomulítið. Hiti O til 4 stig sunnanlands en um eða rétt undir frostmarki
norðantil.
F5rmrrtaö
- . ■'i, j
í£iM.
Vindur:'^'
3-8 m/s
Hiti 0° tii «3*
Austlæg átt, yflrleltt hæg.
Stöku él austanlands en
annars skýjað með köflum.
Vægt frost norðanlands en
víða frostlaust að deginum
sunnanlands.
Fostuú
ws*
Vindur:
Laugarú
Vindun
3-8.
Hiti 0° tii -3°
Austlæg átt, yflrleitt hæg.
Stöku él austanlands en
annars skýjað með köflum.
Vægt frost norðanlands en
víða frostlaust að deglnum
sunnanlands
3-8 m/»
Hiti O" til -3‘
Austlæg átt, yflrleltt hæg.
Stöku él austanlands en
annars skýjað með köflum.
Vægt frost norðanlands en
víða frostlaust að deglnum
sunnanlands.
AKUREYRI alskýjað 1
BERGSSTAÐIR hálfskýjað 0
BOLUNGARVÍK skýjað 0
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 2
KEFLAVÍK léttskýjað 1
RAUFARHÖFN súld 0
REYKJAVÍK skýjað 1
STÓRHÖFÐI skýjað 3
BERGEN skýjaö 2
HELSINKI þokumóða «
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 2
ÖSLÓ alskýjaö 0
STOKKHÓLMUR 2
ÞÓRSHÖFN skýjað 4
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 1
ALGARVE heiðsktrt 10
AMSTERDAM skúrir 6
BARCELONA léttskýjað 7
BERLÍN rigning 4
CHICAGO alskýjað 2
DUBLIN rigning 4
HALIFAX léttskýjaö -3
FRANKFURT skýjað 6
HAMBORG rigning 4
JAN MAYEN snjóél -8
LONDON skúrir 5
LUXEMBORG skýjað 4
MALLORCA heiöskírt 13
MONTREAL heiðskírt -6
NARSSARSSUAQ hálfskýjað 6
NEW YORK rigning 3
ORLANDO skýjaö 23
PARÍS skýjað 6
VÍN rigning 11
WASHINGTON rigning 5
WINNIPEG þoka -2