Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
11
DV
Utlönd
Húsbréf
Hundgá í stað vopnaskaks
í þorpi við hlutlausa svæðið
Frá og meó 15. mars 2001 hefst innlausn á útdregnum
húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 29. útdráttur
4. flokki 1994 - 22. útdráttur
Vopnahlé ríkir nú milli al-
banskra skæruliða og serbneskra
öryggissveita i Presevo-dalnum við
landamærin að Kosovo og Makedón-
íu.
Allt var með kyrrum kjörum þeg-
ar vopnahléið gekk í gildi þegar
klukkan var eina mínútu gengin i
eitt eftir miðnætti. Embættismenn
viðurkenndu þó að mikið verk og
erfitt væri fram undan við að koma
á varanlegum friði. Átök hafa öðru
hverju blossað upp á þessum slóð-
um í meira en eitt ár.
„Vinnan fram undan er mikil.
Við þurfum að koma á ró í hérað-
inu, við verðum að tryggja öryggi
íbúa svæðisins, veita þeim ferða-
frelsi og eðlilegt líf,“ sagði Nebojsa
Covic, aðstoðarforsætisráðherra
Serbíu.
Rúmlega þrjátíu menn hafa týnt
Vopnin á hilluna
Albanskir skæruliöar í sunnanverðri
Serbíu hafa fallist á vopnahlé. Þessi
vígalegi náungi var í þorpinu Turija.
lífi á þessu svæði þar sem NATO
hefur komið upp hlutlausu svæði.
Vestrænar ríkisstjómir hafa haft
áhyggjur af þvi að átökin myndu
breiðast út um Balkanskaga. Það
var sendimaður NATO sem hafði
milligöngu um vopnahléið.
I þorpinu Lucane, þar sem aðeins
100 til 200 metrar skilja að stöðvar
albanskra skæruliða og serbnesku
lögreglunnar, heyrðist aðeins hund-
gá í morgunsárið. Þorpið er við jað-
ar hlutlausa svæðisins vestur af Bu-
janovac, helsta bæ héraðsins.
„Við getum aftur heyrt I bömun-
um í þorpinu. Það er góðs viti,“
sagði serbneskur lögregluþjónn í
samtali við fréttamann Reuters.
Lögregluþjónninn sagði að hann
hefði heyrt síðasta skothvellinn í
þorpinu klukkan ellefu 1 gærmorg-
un en síðan hefði veriö rólegt.
2. flokki 1995 - 20. útdráttur
1. og 2. flokki 1998 - 11. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 13. mars.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, i bönkum,
sparisjóðum og veróbréfafVrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Alfred Sirven
Höfuöpaurinn í franska mútuhneyksl-
inu neitar aö tjá sig um mátiö.
Sirven vill láta
stöðva réttarhöld
Alfred Sirven, sem eitt sinn var
næstæðsti maður franska ríkisolíu-
félagsins Elf, neitaði í gær að svara
spurningum fyrir dómi um spilling-
armál tengd félaginu og krafðist
þess að réttarhöldin yfir sér yrðu
stöðvuð.
Yfirlýsing Sirvens olli miklum
vonbrigðum þar sem margir hlökk-
uðu til að heyra frásögn hans af
spillingarmálinu sem Roland
Dumas, fyrrum utanríkisráðherra,
er meðal annarra tengdur.
Hinn 74 ára gamli Sirven var á
flótta undan réttvísinni í næstum
fjögur ár. Hann var handtekinn á
Filippseyjum og framseldur þaðan i
síðasta mánuði. Sirven er ákærður
fyrir að hafa dreift milljónum doll-
ara úr leynisjóðum Elf.
Lækkandi gengi
í kauphöllunum
Gengi á hlutabréfamörkuðum í
Asiu féll í morgun, rétt eins og gerð-
ist á mörkuðunum í Bandaríkjun-
um í gær. Vísitalan á markaöinum í
Tokyo fór niöur fyrir tólf þúsund
stig í fyrsta sinn síðan 1985.
Nasdaq hlutabréfavisitalan vestra
féll um meira en sex prósent og fór
niður fyrir tvö þúsund stig í gær.
Hún hefur ekki farið jafnlangt niður
í tvö ár. Afkomuviðvörun frá tölvu-
fyrirtækinu Intel hafði áhrif á vísi-
töluna, svo og tilkynning Cisco Sy-
stems tölvufyrirtækisins um að 11
prósent starfsmanna myndu missa
vinnuna.
Innlausn
húsbréfa
Morð í Þýskalandi:
Stjórnarandstæð-
ingar vilja DNA-
skrá alla karla
Lögreglan í Brandenburg í Þýska-
landi er undir miklum þrýstingi að
fmna morðingja 12 ára gamallar
stúlku, Ulrike Brandt. Öll þjóðin
fylgdist með minningarathöfn um
Ulrike sem sjónvarpað var á sunnu-
daginn.
Talið er að lögreglan taki munn-
vatnspróf af öllum körlum á svæð-
inu og beri saman við DNA-leifar á
líkinu til að reyna aö finna morð-
ingjann. Slík aðferð hefur áður bor-
ið árangur.
Nú vilja kristilegir demókratar
DNA-skrá alla þýska karla, alls 41
milljón, til að koma í veg fyrir kyn-
ferðislegt ofbeldi og morð. Tölvu-
nefnd vísar tillögunni á bug og það
gera einnig stjómmálamenn úr röð-
um frjálslyndra.
Forsetahjón á leið á kjörstað
Forseti Úganda, Yoweri Museveni, og eiginkona hans, Janet, i biöröö fyrir utan kjörstaö i Rwakitura í gær. Útlit var fyrir
aö forsetinn heföi tryggt sér endurkjör og þar meö setu á forsetastóli fimm ár til viðbótar. Ásakanir komu fram um
kosningasvindl en samkvæmt eftirlitsmönnum fóru kosningarnar tiltölulega rólega fram.
Vopnahlé gengið í gildi í Presevo-dalnum í Serbíu:
að gulli Milosevics
Seðlabankastjóri Júgóslavíu, Mla-
djan Dinkic, heldur í dag til Kýpur
til þess að rannsaka meint smygl
Slobodans Milosevic, fyrrverandi
forseta, á gulli. Dinkic mun ræða
við fjölda embættismanna vegna
leitarinnar að 700 kílóum af gulli og
öðrum eðalmálmum sem hann fuil-
yrðir að Milosevic hafi smyglað frá
Serbíu síðustu þrjá mánuðina á for-
setastólnum. Saksóknari í Belgrad
hefur áður beðið innanrikisráðu-
neytið í Júgóslavíu um að rannsaka
ásakanir um að Milosevic hafi selt
173 kíló af gulli til Sviss i fyrra og
lagt hagnaðinn inn á bankareikn-
inga i Grikklandi og á Kýpur.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, Richard Boucher,
sagði ráðuneytið vonast eftir fullri
samvinnu yflrvalda á Kýpur í leit-
inni að gulli og fjármunum sem
kann að hafa verið smyglað frá
Júgóslaviu.
Undirskriftir gegn Milosevic
Hreyfmg námsmanna í Belgrad í Serbíu hefur hafiö herferö til aö auka á
þrýstinginn á stjórnvöld um aö handtaka Milosevic.
Serbneska blaðið Blic skrifaði í
gær að öryggislögregla Milosevics
hefði verið á kafl í flkniefnaviðskipt-
um. Fyrir síðustu helgi fundust nær
700 kíló af heróíni í bankahólfum ör-
yggislögreglunnar. Fíkniefnin voru
hvergi á skrá. Mirko Nicovic, fyrr-
verandi yfirmaður lögreglunnar í
Belgrad, segir fundinn styrkja grun
manna um að stjórnvöld hafl átt
beinan þátt i flkniefnaviðskiptum.
„Það leikur enginn vafi á því. Þetta
er gífurlegt magn miðað við innan-
landsmarkað. Hér finnst enginn
kaupandi að 10 kílóum af heróíni
sem er miklu minna magn en hálft
tonn. Verðið á kílói kostar 50 þúsund
dollara í Serbíu en hálfa milljón doll-
ara í New York,“ benti Nicovic á.
Hann óttast að uppljóstranirnar
seinki aðild Júgóslavíu að alþjóðlegri
samvinnu lögreglumanna. 98 prósent
embættismanna Milosevics gegna
enn stöðum sínum.
Bankastjóri í leit