Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Síða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Skoðun
I>V
Spurning dagsins
Er vorið komið?
Dagfari
Yetrarnotkun hjólhýsanna
Ættleiðingar barna
Ingibjörg ógildi kosninguna
Ragnheiður Ragnarsdóttir
s krífar:
Nú þegar enn eru nokkrir dagar
þar til kosningin um flugvöllinn á
sér stað, þá velti ég því fyrir mér
hugmynd sem ég held að borgar-
stjórinn ætti að skoða. Hún á að
nota þessar 40 - 50 milljónir sem
kosningamar kosta og byggja nýtt
barnaheimili. Það er farið að upp-
nefna R-listann „Bið-listann“ vegna
þess að biðlistamir á barnaheimil-
um hafa lengst svo mikið að þegar
að börnunum kemur að fá inni er
helsti bjargvættur biðlistans, og sá
er styttir hann, orðinn maðurinn
með ljáinn.
Mér skilst að það sé alveg sama
hvernig kosningin fer, hún skiptir
„Mér skilst að það sé alveg
sama hvemig kosningin fer,
hún skiptir engu máli. í
fyrsta lagi, verði kosningin
bindandi bindur hún bara
fólkið sem nú er í borgar-
stjóm til nœstu borgar-
stjórnarkosninga. “
engu máli. I fyrsta lagi, verði kosn-
ingin bindandi bindur hún bara
fólkið sem nú er í borgarstjórn til
næstu borgarstjórnarkosninga. En
hvernig hún bindur það að gera eitt-
hvað eftir árið 2016 eða láta þá eitt-
hvað ógert skil ég ekki. í öðru lagi,
verði kosningin ekki bindand má
ætla að hún bindi engan að gera
neitt - eða gera eitthvað eftir árið
2016. - Niðurstaðan hlýtur því að
vera sú að kosningin er rándýr
markleysa.
Einhvers staðar las ég að Sigrún
Magnúsdóttir borgarfulltrúi ætli að
greiða báðum möguleikum atkvæði
sitt þannig að völlurinn verði í
Vatnsmýrinni eftir árið 2016 og fari
líka eftir árið 2016! Þetta er senni-
lega bráðsnjallt hjá henni, að halda
og sleppa i sömu andránni. - Enn er
lag fyrir borgastjórann að ógilda
kosninguna og nýta það fé sem i
hana fer til uppbyggilegs starfs eins
og barnaheimilin eru.
Eva María Hallgrímsdóttir nemi:
Já, tími til kominn aö skipta út dún-
úlpunni fyrir þynnri jakkann.
Saga Ýrr Jónsdóttir nemi:
Alla vega var mér ekki kalt á
djamminu um helgina.
Dagbjört Einarsdóttir nemi:
Já, þaö er komiö svo gott veöur.
Erla Víðisdóttir nemi:
Já, prófveðriö er komiö.
Konráð Friðfinnsson
skrifar:
Mörg munaðarlaus
bömin eru saman
kominn í heiminum í
dag og ekki er það
mjög erfitt verk fyrir
heilbrigt fólk að eign-
ast barn. Slíkt gerist
hjá fólki við nánast
hvaða aðstæður sem
er. Eftir vissa athöfn
karls og konu verður
hún þunguð og barn
fæðist í heiminn. Og
böm koma undir hvar-
vetna, jafnvel á bak
við ruslatunnu eða
hól, svo gripið sé til
kaldhæðnislegra orða-
tiltækja. Fólk bara
eignast sitt bam,
punktur og basta,
hvort sem manneskjan
er hæf til barnauppeld-
is eður ei. - Ekkert
leyfi, enga uppáskrift
þarf frá svokölluðum
„uppeldisfræðingum"
eða sálfræðingum.
Svo er það hinn hóp-
urinn, sem einhverra
hluta vegna getur ekki
getið af sér afkvæmi.
Tvennt kemur þar til.
Konan er ófrjó eða
maðurinn. Likams-
starfsemi þessara ein-
staklinga er ekki eðli-
leg og getnaður því úti-
lokaður. Oft þráir
þetta fólk að ala upp
bam en skilur stöðu
sína og leitar á mið
ættleiðingarinnar. Það
gengur þó ekki allt
þrautalaust fyrir sig.
Þeir sem hafa með slík
mál að gera setja fram
Jóhanna Rikarösdóttir nemi:
Já, alla vega á góöri leiö.
Ólöf Halla Guörúnardóttir nemi:
Já, þaö er komiö alveg
frábært veöur.
Munaöariaus börn á götunni.
- Beöiö eftir upprunavottorum
„Er mönnum ekki kunnugt um að milljónir
munaðarlausra barna eru til víða um heim,
börn sem hvorki eiga föður né móður og hafa
engan annan samastað en götuna eina,
kalda og miskunnarlausa...?“
alls konar skilyrði.
Parið þarf að uppfylla
þetta og hitt til að eiga
einhvern möguleika. Og
ef fólkið stenst prófið er
það sett á biðlista. - Sú
bið getur svo staðið í
mörg ár.
En því þarf fólkið að
bíða? Er mönnum ekki
kunnugt um að miljónir
munaðarlausra barna
eru til víða um heim,
böm sem hvorki eiga
föður né móður og hafa
engan annan samastað
en götuna eina, kalda
og miskunnarlausa, og
eiga í raun enga mögu-
leika á að „plumma" sig
í lífinu? Erum við
kannski ekki að tala um
þetta fólk þegar ættleið-
ingar ber á góma? Vilj-
um við máski að ættar-
tala bamsins sé pottþétt
og sakarvottorð „ekta“
foreldranna sé hreint
áður en við tökum ætt-
leitt bam inn á heimil-
ið?
Sannleikurinn er sá
að hver manneskja sem
fæðist í þennan heim
hefur jafnan rétt á við
aðra að fá aöhlynningu,
njóta ástríkis fullorð-
inna og eiga sitt heim-
ili.
Engum sem kemur í
heiminn er fyrirfram
ætlaður staður í hita-
veitustokkum, kjöllur-
um yfirgefinna bygg-
inga eða á götunni, þótt
það verði hlutskipti
alltof margra, já millj-
óna barna, í þessum
heimi.
íslendingar nenna ekki lengur að vinna í fiski.
Skiptir þar engu þótt stjórnvöld haldi því fram á
hátíðarstundum að sjávarútvegurinn sé undir-
staða efnahagslegrar velferðar þjóðainnar. Það
þykir ekki flnt að vinna í slorinu, starfið fer illa
með fingurna og allt lyktar af fiski. Það er ekki
góð latína á upphafsdögum nýrrar aldar. Bónus-
drottningar og -kóngar vilja í önnur störf, rólegri
og í hlýrra umhverfi. í góðærinu hefur enda ver-
ið nóg annað að hafa.
Þetta hefur leitt til þess að vinnuaflið er flutt
inn í stríðum straumum. Einhver verður jú að
hreinsa ormana úr þorskinum og ganga frá af-
urðunum í neytendapakkningar. Vestflrska heyr-
ist því varla í þeim góða fjórðungi heldur allt
önnur tungumál þótt pólskan sé algengust. Þótt út-
lenda vinnuaflið sé um allt land er umhverið þó al-
þjóðlegast á Vestfjörðum. Þar talar hver upp í ann-
an og enginn skilur neitt, nema Pólverjarnir inn-
byrðis.
Þekkt er að Islendingar eru með ferðaglöðustu
þjóðum. Það er gott og blessað í sjálfu sér en eykur
á viðskiptahallann sem er ærinn. Því hefur það
komið til tals að efna til hópferða vestur á firði til
þess að heyra útlensku talaöa í stað þess að sækja
þá upplifun með ferðum út fyrir landsteinana.
Vandinn er bara sá að það dýrara að fljúga innan-
„Því hafa hugmyndaríkir verktakar
fundið það snjallræði að koma Pól-
verjunum fyrir í hjólhýsum. íslending-
ar eiga nóg af þeim og nota ekki nema
rétt í júlí og ágúst. Það er því tilvalið
að planta slíkum húsum á byggingar-
lóðimar og fylla af Pólverjum. “
lands en í hópferðum til útlanda. Því er ólíklegt að
vesturferðir verði stundaðar í einhverjum mæli.
En það má skoða Pólverjana víðar en á Vest-
Qörðum. Þótt íslendingum þyki enn ekki jafn
óflnt að vinna í byggingarvinnu eins og í fiski
vantar samt iðnaðar- og ve'rkamenn í þá grein
vegna þenslunnar á markaðnum. Því hafa fyrir-
tækin gripið til þess ráð að flytja inn iðnaðar -
og byggingarverkamenn víða að en einkum frá
Póllandi, líkt og í fiskinum. Pólverjar og aðrir
gestir íslensku þjóðarinnar búa í ágætum húsum
á Vestfjörðum og viðar um land en alkunna er
að húsnæði er dýrara en annars staðar á land-
inu í höfuðborginni. Því hafa hugmyndaríkir
verktakar fundið það. snjallræði að koma Pól-
verjunum fyrir í hjólhýsum. íslendingar eiga
nóg af þeim og nota ekki nema rétt í júlí og
ágúst. Það er því tilvalið að planta slíkum húsum á
byggingarlóðimar og fylla af Pólverjum.
Það er að vísu kalt í þeim yfir háveturinn og þau
leika á reiðiskjálfi þegar eitthvað er að veðri en
það er ekki frágangssök. Pólverjarnir mega vel við
una, segja verktakarnir. Þeir eru í vinnu í ríku
vestrænu þjóðfélagi og einhver not þarf að finna
fyrir öll hjólhýsin yfir vetrartímann.
Það má því halda áfram að veiða og byggja þótt
við nennum því ekki sjálf. Nóg er af Pólverjunum -
og hjólhýsunum. ^ o .
Fleiri skattþrep
Árni Guðjónsson skrifar:
Nú er lag fyrir ríkisstjórnina að
koma til móts við allan almenning
með því að fjölga skattþrepum. Eftir
nýtt samkomulag við ASÍ nú fyrir
stuttu um að tryggja félagsmönnum
þess kjarabætur án frekari aðgerða er
það beinlínis skylda ráðamanna að
virða það samkomulag með þeim
breytingum einum sem duga launa-
fólki mest og best. Þar eru breytingar
á tekjuskatti efstar á blaði. Auk þess
sem það hefur áratugum saman verið
á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins að
útrýma tekjuskattinum ætti forráða-
mönnum flokksins að vera létt verk
að standa saman um það nýmæli að
fjölga skattþrepunum um leið og
tekjuskatturinn er skorinn við trog að
stórum hluta. Ég segi: Skattalækkun
er besta kjarabótin.
Á Keflavíkurflugvelli
Ein þjóö, einn flugvöllur?
Áróður fyrir Reykja-
víkurflugvelli
Haraldur Ólafsson skrifar:
Vissulega mátti alltaf búast við því
að Reykjavíkurflugvöliur yrði hita-
mál, svo miklir fjármunir sem eru í
húfi fyrir ríki og borg vegna fram-
kvæmda nýs flugvallar og fyrir þau
fyrirtæki sem nota Reykjavíkurflug-
völl fyrir starfsemi sína. Fyrst og
fremst Flugleiðir hf. sem tengjast bæði
innanlands- og utanlandsfluginu með
starfsemi sinni á vellinum. Mörgum
finnst þó býsna skoplegt hvemig ýms-
ir þeir sem hæst láta tO stuðnings
Reykjavíkurflugvelli bera sýnilega
mikla umhyggju fyrir hinu annars
ágæta flugfélagi Flugleiðum, þótt þeir
virðist ekkert tengjast starfsemi flugs-
ins sérstaklega. Halda mætti að þarna
væru á ferð þeir sem gjarnan ganga
undir viðurnefninu „frílansarar" í
ferðalögum, þ.e. þeir sem sækja af
hvað mestri áfergju í „frimiðabætur"
Flugleiða undir ýmsu yfirskini. Þeir
telja víst að þeir vinni Flugleiðum
mikið gagn með því að hamast gegn
brotthvarfi flugvallarins úr Vatnsmýr-
inni. Staðreyndin er þó sú að með því
að flytja allt flug til Keflavíkur yrði
Flugleiðum þá fyrst sköpuð sú aðstaða
við allt þeirra flug sem félagið hefur
svo sárlega skort um áratuga skeið.
Forsetahúsið við Laufásveg
Var keypt fyrír erlenda gesti forseta-
embættisins.
í fríu húsnæði?
Jóhann Sigurðsson skrifar:
Ef rétt er sem maður les í fréttum á
vefsíðum Netmiðla, og víðar, að dóttir
forseta íslands búi í fríu húsnæði
ásamt sambýlismanni sínum í húsi
sem rikið keypti fyrir forsetaembættið
til að hýsa erlenda gesti er það regin-
hneyksli. Það ætti ekki að þurfa að
koma upp á þessum síðustu og upp-
lýstu tímum að í kerfinu séu embætt-
ismenn eða aðrir þjónar þjóðarinnar,
hver svo sem i hlut á, að notfæra sér
þær gloppur sem skapast vegna slæ-
legs aðhalds á reglum og skyldum
hinna kjörnu eða skipuðu embættis-
manna. Ég tel það ábyrgðarhlut ráða-
manna að kanna ekki svona fréttir eða
hvort þær hafa við rök að styðjast.
Orðrómur um spillingu eða yfirhylm-
ingu á ekki að þurfa að ganga órann-
sakaður lengi.
ESSESBi^
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasífta DV,
Þverhotti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.