Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Blaðsíða 20
32
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Tilvera
I>V
A5 gefa bra bra
Þaö var glaðlegur hópur barna aö gefa öndunum brauö viö Tjörnina um helg-
ina.
Jackson tafði
giftingarathöfn
Segja má að popparinn Michael
Jackson hafi verið í hefðbundnu hlut-
verki brúðarinnar um daginn þegar
hann varð þess valdandi að töf varð á
því að góðvinur hans, skeiöabeyglar-
inn Uri Geller, gæti gengið að eiga
sína heittelskuðu í annað sinn. Mich-
ael, sem var svaramaður Gellers, kom
nefnilega hálfum öðrum tima of seint
til kirkjunnar. Ástæðan var sögð vera
sú að popparinn hefði þurft að láta
lækni líta á brotinn fót sinn.
Þegar gestir voru farnir að ókyrrast
greip GeDer til þess að ráðs að bjóða
til veislunnar fyrir fram. Hann afsak-
aði sig i bak og fyrir og tóku gestirnar
það gott og gilt og gæddu sér á veiting-
unum.
Popparinn kom um síðir og athöfn-
in gat farið fram. Daginn áður hafði
poppdrottningin látið bíða eftir sér í
þrjá tíma í Oxford.
Vorstemning
í Reykjavík
Engu er líkara en það sé komið vor
í Reykjavík þrátt fyrir að mars sé
ekki hálfnaður. Mannlífið var með
besta móti og alls staðar fólk að spóka
sig og njóta lífsins. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Veðurstofunni mun
veðrið verða svipaö næstu daga en bú-
ast má við úrkomu um helgina.
DV-MYNDIR EJ
Æft af kappi
Þessir ungu knattspyrnumenn, sem eru í 3. flokki Víkings, voru aö æfa fót-
bolta í sandinum í Nauthólsvik um helgina.
.1S
exxxotica
www.exxx.is
GERUM GOTT
KYNLÍF BETRA!
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF
UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS
Barónsstíg 27 - S: 562 7400
A Vesturgotunni
Mæögurnar Hrönn og Hlökk á göngu í vesturbænum. Hlökk er aö taka sín
fyrstu „skref“ á þríhjólinu.
Vor á Ingólfstorgi
Hann var léttklæddur, drengurinn sem var aö æfa sig á hlaupabretti á Ing-
ólfstorgi ásamt félögum sínum sem geröu nokkrar listilegar æfingar.
9-Cið vinsæía fermingarBíað
fytgir OV miðviíqidaginn 21. mars.
Þetta blað hefur þótt
nauðsynlegt upplýsinga- og
innkaupablað fyrir alla þá
sem eru að undirbúa
fermingu og eru í leit að
fermingargjöfum.
Auglýsendum er bent á að hafa samband við
Selmu Rut Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV,
í stma 550-5720,
netfang: srm@ff.is,
fyrir 15. mars svo unnt reynist
að veita öllum sem besta þjónustu.
EH3
Framkvæmdir að hefjast við endurbætur bókasafnsins:
Bókasafnið fer
í gamla Skiphól
„Við erum búin að vera i sama hús-
næði í yfir fjörutíu ár og það er löngu
sprungið. Til okkar koma um 150 þús-
und manns á ári hverju, aukningin
hefur verið mikil síðustu árin, líklega
um 170% á tæpum áratug," sagði
Anna Sigríður Einarsdóttir, forstöðu-
maður Bókasafns Hafnarfjarðar, í
samtali við DV. í fyrradag var undir-
ritaður verksamningur Hafnaríjarðar-
bæjar og Hábergs ehf. um endurbætur
á húsnæðinu að Strandgötu 1 fyrir
Bókasafnið, en í því húsnæði var fyrr-
um landsfrægur skemmtistaður, Skip-
hóll, en Iðnaðarbankinn á jarðhæð.
Húsnæðið nær þrefaldast í haust,
verður meira en 1400 fermetrar. Anna
Sigríður sagði að safnið yrði á fjórum
hæðum. Þar yrði gott rými fyrir
glæsilegt tónlistarsafn sem nær allt til
ársins 1958, en hefur nánast verið í
felum. Þarna verða líka 40 tölvur til
almenningsnota í stað tveggja í dag.
Það var Magnús Gunnarsson bæj-
arstjóri sem undirritaði samninginn
fyrir hönd bæjarins. Háberg mun lag-
færa burðarvirki og innviði hússins
og innrétta það fyrir Bókasafn Hafn-
arfjarðar og skjalasafn bæjarins.
Samningurinn hljóðar upp á rúmar 99
milljónir króna og gert er ráð fyrir að
framkvæmdum verði lokið 1. október.
-DVÓ/JG
DV-MYND JG
Nýtt bókasafn
Myndin var tekin við undirritun samnings um nýtt bókasafn fyrir Hafnfiröinga.
Frá vinstri Sófus Bertelsson og Andrés Ásmundsson frá Hábergi ehf., Sigurö-
ur Haraldsson, forstöðumaður byggingardeildar og Magnús Gunnarsson bæj-
arstjóri.