Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2001, Side 28
tilboösverö kr. 2.750,-
Merkilega he milistækiðS
Nú er unnt að "o
merkja allt á §
heimilinu,
kökubauka,
spólur, skóla-
dót, geisla-
diska o.fl.
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Rafoort
SYLVANIA
Stakk gat á dúkku:
Krefst bóta fyrir
uppblásna dúkku
Aðfaranótt laugardagsins var lög-
reglan i Reykjavík kölluð að veit-
ingastað í miðborginni vegna upp-
blásinnar dúkku. Karlmaður utan
af landi hafði mætt á staðinn en
virtist að sögn lögreglunnar ragur
við að nálgast konur höfuðborgar-
innar því hann hafði uppblásna
kvendúkku með sér í fór. Öðrum
gesti veitingahússins, erlendri
konu, misbauö uppátækið og stakk
gat á dúkkuna sem þá lyppaðist loft-
laus niður. Maðurinn krefst nú bóta
fyrir tjónið og segir á heimasíðu
lögreglunnar að kvöldið hafi liklega
orðið tilbreytingarsnautt hjá hon-
um fyrir vikið. -SMK
Kópavogur:
Lögregla stöðv-
aði á fjórða tug
' ♦ Lögreglan í Kópavogi stöðvaði á
fjórða tug ökumanna fyrir of hraðan
akstur á síðasta sólarhring. Flestir
þessara ökumanna voru stöðvaðir
við skóla í austurbæ Kópavogs og
voru að sögn lögreglunnar margir
hverjir foreldrar á leið með böm sín
í skólann.
Auk þessa var einn ökumaður
grunaður um ölvun við akstur í nótt
og um miðjan dag í gær var annar
ökumaður stöðvaður grunaður um
að hafa verið undir áhrifum ein-
^ hvers konar lyfja.
Lögreglan ætlar að halda áfram
að mæla hraða ökumanna við skól-
ana í Kópavogi næstu daga. -SMK
Vorglaðningur:
Opiö í Bláfjóllum
Bláfjöllin verða opnuð í dag fyrir
skíðafólk, öllum að óvörum. Ein-
göngu verður opið í stólalyftuna í
Kóngsgili en snjórinn þar ætti að
duga fyrir 300 gesti eða svo. Fyrstir
koma - fyrstir fá. Bláfjöllin verða
opnuð klukkan 12 á hádegi og verð-
ur opið til klukkan 21 í kvöld - ef
snjóbirgðir endast. -EIR
,im Loðnukvótinn um
100 þúsund tonn
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 2001
Hafrannsóknarstofnun hefur
ákveðið að auka loðnukvótann um
100.000 tonn. Meðal þeirra þátta sem
leiddu til ákvörðunar stofnunarinnar
var að vænni loðna var við landið
núna en í fyrra og því þótti ástæða til
þess að endurreikna stofhstærðina.
Stjórnvöldum hér á landi ber hins
vegar samkvæmt samningi um nýt-
ingu loðnustofnsins á milli íslands,
Grænlands og Noregs að kynna til-
lögu Hafrannsóknastofnunar um
aukninguna fyrir stjórnvöldum í
Grænlandi og Noregi. Að því búnu
mun ráðherra taka ákvörðun um
aukningu kvótans. -DVÓ
HRÆDDIST ERLENDA
ÆRÚIN SAMKEPPNINA?/
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
DVWVND GVA
Sippað í sólinni
Fátt er skemmtilegra en að fagna vorkomunni með góðu sippi á skólalóðinni. Þessi kátu börn lyftust frá jörðinni eins og fuglar himinsins
í samhentri gleði yfir góðri tíð og bjartri framtíð við Laugarnesskóia í gær.
Breskar nektardansmeyjar í felum í miðbæ Reykjavíkur og vilja heim:
jji cðivai 11CÍS.LCII u.diiöincj jcii 1 íciuiii i iiuuucc -Lvcj' js.j d v iis. u.i ug viijd iicim.
Neituðu vændi í Club 7
Bfiheímar
Flugslysið í Skerjafirði:
Rannsóknarnefnd enn með flakið
- en hreyfillinn farinn
i
i
i
i
i
i
i
Rannsóknarnefnd flugslysa hefur
sent frá sér fréttatilkynningu þar sem
fullyrt er að hún hafi enn undir hönd-
um flak flugvélarinnar sem hrapaði í
Skerjafjörð í ágúst í fyrra. Fimm
manns létust af völdum slyssins og
glímir sá sjötti enn við áverka sem
hann hlaut í slysinu.
Faðir eins fórnarlambsins taldi að
flak flugvélarinnar hefði verið selt og
afhent dönsku tryggingarfélagi, en
rannsókn rannsóknarnefndar og lög-
reglu er enn ekki formlega lokið.
í fréttatilkynningunni kemur fram
að hreyfillinn hafi verið rannsakaður
Af vettvangi í Skerjafiröi.
í vikunni eftir slysið og að rannsókn-
arnefndin hafi látið hann frá sér eftir
það. Ekki kemur fram hvað gert var
við hreýfilinn.
Auk flaksins, segist nefndin enn
hafa undir höndum alla þá hluti flug-
vélarinnar og hreyfilsins (íhluti og
kerfi) sem máli skipta fyrir rannsókn-
ina, sem og dagbækur og gögn.
„Rannsóknamefnd flugslysa er að
vinna að lokafrágangi skýrslu sinnar
vegna flugslyssins og vonast til að
hún verði gefin út innan tveggja
vikna,“ segir í tilkynningunni, en eins
og kunnugt er hefur útgáfa skýrslunn-
ar dregist mikið og rannsóknarnefnd
flugslysa sætt gagnrýni aðstandenda
fómarlambanna fyrir vikið.
Ekki náðist í fóðurinn i morgun.
-SMK
FRJALST, O H A Ð DAGBLAÐ
- tómt kjaftæði, segir framkvæmdastjórinn - viðskiptin dragast saman
Tvær breskar nektardansmeyjar
fóru huldu höfði í miðbæ Reykjavík-
ur í gær og áttu sér þá ósk heitasta
að komast aftur
Olafur Arnfjörö
heim til Eng-
lands. Nektar-
dansmeyjarnar
komu hingað til
lands á fóstudag-
inn og höfðu
dansað í Club 7 á
Hverfisgötu 1 tvö
kvöld um síðustu
helgi þegar þær
ákváðu að strjúka:
„Við áttum að gera allt annað en
samningur okkar kveður á um. Úti
dönsum við bara. í Club 7 var lagt
hart að okkur að stunda vændi,“
sögðu þær Cynthia og Pam þegar
DV ræddi við þær á felustað þeirra
í gær. Stúlkurnar eru aðeins 19 ára
og óttuðust mjög að vinnuveitendur
þeirra i Club 7 heSu uppi á þeim
áður en flugið til London færi i loft-
ið snemma í morgun.
Eins og menntaskóiastúlkur
„Við erum dansarar, ekki vænd-
iskonur,“ sögðu Cynthia og Pam
sem við fyrstu sýn gætu virst
óbreyttar menntaskólastúlkur
utan af landi; íklæddar þröngum
gallabuxum og hettupeysum, með
sígarettu í annarri hendi og kók-
flösku í hinni. Þær sögðu starfs-
systur sínar á Club 7 og vaktstjóra
á staðnum hafa gert þeim grein
fyrir skyldum sínum og tekju-
möguleikum. Peningarnir væru í
vændinu.
Ólafur Arnfjörð Guðmundsson,
eigandi Club 7, vísar fullyrðingum
Cynthiu og Pam á bug. Segir þær
tómt kjaftæði.
Viöskiptin að dala
„Það er eins með þessar stelpur
og margar aðrar sem komið hafa.
Þær gera sér einhverjar vænting-
ar um vistarverur og annað hér á
landi eftir lýsingar umboðsmanna
ytra. Þegar þær svo sjá hvað býðst
Margir dansarar vilja aftur heim
- og viðskiptin dragast saman.
verða þær fyrir vonbrigðum og
vilja fara heim aftur. Ég er lík-
lega búinn að tapa flugmiðum
fyrir hátt í 300 þúsund krónur
vegna svona dansara," sagði
Ólafur Arnfjörð og þvemeitaði
því að vændi væri stundað á
Club 7. „Hitt telst líklega til tíð-
inda að þessi viðskipti eru að
dala. Nýjabrumið er farið af
súlustöðunum og þá minnka
viðskiptin. Enda út í hött að
ætla sér að reka 7 nektarstaði í
borg eins og Reykjavík," sagöi
Ólafur Arnfjörð sem er með
leigusamning vegna Club 7 í
gamla Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu fram á haust á næsta ári.
Þá má gera ráð fyrir að bygg-
ingin öll verði rudd því Ingi-
björg Pálmadóttir, einn af erf-
ingjum Hagkaupsveldisins,
festi nýverið kaup á húseign-
inni allri og hyggst opna þar
hótel.
-EIR