Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Side 5
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001 21 Inga Lára Þórisdóttir reynir hér að koma boltanum á Guönýju Gunnsteinsdóttir en til varnar hjá Víkingi eru Geröur Beta Jóhannesdóttir og Kristín Guömundsdóttir. DV-mynd ÞÖK - niðurstaðan eftir sigur Stjörnunnar i Vikinni á laugardaginn, 14-18 Ekkert spennandi Fram sigraði FH með 30 mörkum gegn 26 og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum Islandsmóts kvenna í hand- knattleik. Þetta var annar sigur liðsins á FH í jafnmörgum leikj- um og í raun þróaðist hann ekki á ósvipaðan hátt og sá fyrri og náði því miður aldrei að verða neitt sérstaklega spennandi. Þar með er ekki sagt að leik- urinn hafi verið leiðinlegur því hann bauð upp á margvísleg til- þrif og töluverðan hraða. Fram náði frumkvæðinu snemma leiks og mest náði liðið þriggja marka forystu en FH náði góðum leikkafla seint í fyrri hálfleik og náði foryst- imni, 15-14, þegar rúm mínúta var eftir af honum en Fram tókst að skora tvö mörk á þeim tíma sem eftir var og ná eins marks forystu, 15-16, þegar flautað var til leikhlés. Síðari hálfleikur var lengst af jafn og liðin skiptust á um að skora þótt Fram væri með frum- kvæðið en þó tókst FH að kom- ast yfir, 22-21, þegar tólf minút- ur voru liðnar af síðari hálfleik. Fljótlega eftir það náði Fram heljartökum á leiknum með frá- bærri vörn og góðri markvörslu og þær breyttu stöðunni úr 23-23 í 23-26, og liðið sté ekki feilspor á lokakafla leiksins og innbyrti öruggan og sanngjarn- an sigur. „Þetta var ekki ósvipað og í fyrri leiknum þar sem við héld- um út þangað til tíu mínútur voru eftir en gáfumst þá upp en það þýðir ekkert annað en að bita á jaxlinn og mæta sterkari til leiks næst,“ sagði Dagný Skúladóttir í leikslok. Gústaf A. Bjömsson, þjálfari Fram, var sáttur í leikslok. „Ég er mjög ánægður með að hafa klárað þetta í tveimur leikjum og mér fannst við spila betur nú en í fyrri leiknum. Það var lyk- iiatriði fyrir okkur að ná að stöðva hraðaupphlaup FH og það tókst vel í síðari hálfleik og nú biður okkar krefjandi verk- efni og ég tel að liðið eigi tölu- vert inni.“ -SMS Oddaleik þarf til að fá fram úrslit í. viðureign Víkings og Stjörnunnar í átta iiða úrslitakeppni kvenna eftir sigur þeirra siðarnefndu 14-18 i Vík- inni á laugardaginn. Jafnt var á öllum tölum þangað til að staðan var 6-6, þá náðu Stjömu- stúlkur tökum á varnarleik sínum og sóttu skyttur Víkings framar á völl- inn og við það kom fát á sóknarleik heimastúlkna. Gestimir nýttu sér það og náðu þriggja marka forskoti, og var það fyrst og fremst fyrir stórleik Lijönu Sadzon. Steinunn Bjarnason kom þá inn á hjá Víkingum og skor- aði næstu tvö mörk í leiknum og minnkaði muninn í eitt mark. Undir lok fyrri hálfleiks fengu heimastúlkur tækifæri til að jafna en mistókst og Þóra B Helgadóttir skoraði fyrir Stjörnuna og leiddu þær í hálfleik 9-11. I upphafi seinni hálfleiks skoraði Hrund Schving tvö mörk fyrir Stjöm- una úr vinstra horninu og náðu þær við það fjögurra marka forskoti. Vík- ingar gátu minnkað muninn í tvö mörk þegar tíu mínútur vorc liðnar af seinni hálfleik en misfórst. Stjörnu- stúlkur náðu fimm marka forskoti þegar tiu mínútur voru eftir og fengu fjölmörg tækifæri til að innsigla sig- urinn t.d. þrjú víti sem Helga Torfa- dóttir varði og hélt Víkingi inn í leiknum en samherjum hennar tókst ekki að nýta sér það. Stjörnustúlkur unnu verðskuldaðan sigur í þessum leik, léku góða vörn og börðust vel. „Það verður barátta upp á líf eða dauða á mánudaginn, liðið sem sigrar fer áfram, svo einfalt er það. Liðið lék eins og ég lagði upp fyrir leikinn, spilaði sterkan varnarleik og agaðan sóknarleik. Ég vona að fólk sjái sér fært að mæta og hvetja liðin og skapi góða stemningu í Garðabænum á mánudaginn. Það var góður hópur sem mætti í Víkina í dag og munaði mikið um hann fyrir okkur,“ sagði Siggeir Magnússon, þjálfari Stjörn- unnar eftir leikinn. -BB Á síðustu stundu ÍBV tryggði sér sæti í undan- úrslitum íslandsmóts kvenna með sigri á Gróttu/KR í öðrum leik liðanna á Seltjarnamesi í gærkvöldi. Á æsispennandi lokamínútum réðust úrslitin þegar Tamara Mandzic skoraði úr aukakasti þegar aðeins ein sekúnda var eftir af leiktíman- um. Leikurinn var mjög ijörugur allt frá byrjun, ÍBV náði fljótlega frumkvæðinu og náðu nokkrum sinnum að komast tveimur mörkum yfir á jöfnum upphaf- smínútum. Leikmenn Gróttu/KR lögðu á það áherslu að stöðva skyttur Eyjamanna sem höfðu reynst þeim erfiðar í fyrsta leiknum, með því að senda einn og stundum tvo leikmenn út á móti þeim. Það gekk að vísu ekki upp því Eyjastúlkur voru að skjóta vel og markvarslan hjá Gróttu/KR var ekki góð ekki frekar en hjá ÍBV en markverðir liðanna vörðu aðeins eitt skot fyrstu 23 mínútur leiksins en fengu á sig 24 mörk. Grótta/KR hélt sér inn í leikn- um framan af með afar öguðum sóknarleik sem var vel stjórnað af Ágústu Björnsdóttur og skytt- ur liðsins þær Alla Gokorian og Jóna Björg Pálmadóttir voru í miklu stuði. Um miðjan hálfleik- inn kom svo góður leikkafli hjá Gróttu/KR þar sem þær breyttu stöðunni úr 5-7 í 14-11 þökk sé vel útfæröum sóknarleik en í öll- um fyrri hálfleik töpuðu þær boltanum aðeins tvisvar sinnum i sókninni. ÍBV byrjaði seinni háifleikinn af krafti og skoraði þrjú fyrstu mörkin, Vigdís var farin að verja í markinu og átti það eftir að reynast mikilvægt þegar upp var staðið. Þaö sem eftir lifði leiks voru Eyjastúlkur með þetta 1-2 marka forskot þrátt fyrir það að þær Tamara og Amela Hegic væru teknar úr umferð alian seinni hálfleikinn. Þegar aðeins tæpar þrjár mínútur voru eftir var staðan 20-23 en með mikilli þrautseigju náði Grótta/KR að jafna fyrst í 23-23 þegar rúm min- úta var eftir og aftur í 24-24 þeg- ar 20 sekúndur voru eftir á mögnuðum lokakafla. „Það var mjög gott að klára þetta héma á mjög erfiðum úti- velli. Við rúlluðum yfir þær heima og vissum að þær myndu koma dýróðar til leiks hérna. Við vorum að spila vamarleik- inn ágætlega, Vigdis náði sér ekki á strik í fyrri hálfleik en kom upp í þeim seinni en við verðum að haf^ hana í gangi með vöminni. Þetta varö allt léttara eftir að hún fór að verja,“ sagði Sigbjöm Óskarsson eftir leikinn. -HRM Sport Víkingur-Stjarnan 14-18 1-0, 2-2, 3-4, 5-5, 6-7, 6-9, 8-10, (9-11) 9-13, 11-14,11-16, 12-17 14-18. Vikineur: Mörk/víti (skot/viti): Kristín Guð- mundsdóttir 7/2 (22/4), Steinunn Bjarna- son 3 (4), Guðrún Hólmgeirsdóttir 2 (3),Eva Halldórsdóttir 1 (2),Gerður Beta Jóhannesdóttir 1 (3), Helga Guðmunds- dóttir (1), Gyða Ingólfsdóttir (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Guð- rún.) Vitanýting: Skorað 2 úr af 4. Varin skot/víti (skot á sig): Helga Torfadórttir 9/3 ( 23/7, 39%). Brottvísanir: 2 mínútur. Stiarnan: Mörk/víti (skot/víti): Halla María Helgadóttir 8/4 (12/6), Þóra B Jónsdóttir 3 (4), Anna Blöndal 3 (4), Hrund Schev- ing Sigurðardóttir 2 (4),Guðný Gunn- steinsdóttir 1 (1), Margrét Vilhjálmsdótt- ir 1 (1), Inga Lára Þórisdóttir (3). Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Anna 2, Margrét.) Vitanýting: Skorað úr 4 af 7. Varin skot/viti (skot á sig): Lijana Sadzon 12 (26/4, 46%, eitt víti I stöng og eitt framhjá). Brottvisanir: 4 minútur. Dómarar (1-10): Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson (7). Gœói leiks (1-10); 6 . Áhorfendur: 100. Maöur leiksins: Lijana Sadzon, Stjörnunni. FH-Fram 26-30 0-2, 3-4, 6-7, 10-11, 13-13, (15-16), 16-16, 18-20, 22-21, 23-23, 24-26, 26-30. FH: Mörk/viti (skot/viti): Dagný Skúladóttir 11 (18), Harpa Vífilsdóttir 7 (9), Hafdís Hinriksdóttir 6/2 (17/4), Dröfn Sæmunds- dóttir 2 (12), Judith Rán Esztergal 0 (6), Björg Ægisdóttir 0 (3), Hrafnhildur Skúla- dóttir 0 (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 13 mörk ( Dagný 7, Harpa 5, Hafdis 1) Vítanýting: Skorað úr 2 af 4. Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 11/1 (30/7, 37%). Brottvisanir: 4 mínútur. Franu Mörk/viti (skot/víti): Marina Zoueva 10/6 (14/6), Díana Guðjónsdóttir 7 (7), Svanhildur Þengilsdóttir 5 (5), Hafdís Guðjónsdóttir 3 (7), Olga Prokhorova 2 (4), Irina Sveinsson 2 (6), Björk Tómasdóttir 1 (7), Katrín Tómasdóttir 0/0 (0/1), Guðrún Þ. Hálfdánsdóttir 0 (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 mörk ( Díana 3, Svanhildur 2, Hafdís 1). Vítanýting: Skorað úr 6 af 7. Varin skot/viti (skot á sig): Hugrún Þor- steinsdóttir 20/2 (46/4, 43%). Brottvisanir: 6 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (7). Gceöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur:. Maður leiksins: Marina Zoueva, Fram. Grótta/KR-ÍBV 24-25 1-0, 1-3, 4-4, 5-7, 9-8, 10-10, 14-11, (14-13), 14-16, 16-18, 18-18, 19-22, 20-23, 23-23, 24-25. Grótta/KR: Mörk/viti (skot/viti): Ágústa E. Björnsdóttir 8/1 (15/2), Alla Gokorian 6 (20), Jóna B. Pálmadóttir 3/1 (3/1), Eva Hlöðversdóttir 3 (4), Edda Kristinsdóttir 2 (6), Eva Þórðardóttir 1 (3), Ragna Sig- urðardóttir 1 (4). Mörk úr hraöaupphlaupunu 3 (Eva H. 2, Ágústa 1). Vitanýting: Skorað úr 2 af 3. Varin skot/viti (skot á sig): Ása Ingi- marsdóttir 9 (24/3, 38%), Asa Ásgrims- dóttir 0 (10, 0%). Brottvisanir: 6 mínútur. ÍBV: Mörk/viti (skot/viti): Tamara Mandzic 11/3 (15/3), Anita Andreassen 7 (11), Gunnleyg Berg 3 (4), Ingibjörg Jóhanns- dóttir 2 (3), Edda Eggertsdóttir 1 (3), Amela Hegic 1 (5), Bjamey Þorvarðar- dóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupunu 2 (Anita 2). Vítanýting: Skorað úr 2 af 2. Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís Sigurðardóttir 14/1 (37/2, 38%), Árún Guðgeirsdóttir 0 (1/1,0%). Brottvisanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson (6). Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 200. Maöur leiksins: Áqústa E. Björnsdóttir, Gróttu/KR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.