Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Page 12
28
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001
Sport unglinga
- á Islandsmótunum í borðtennis sem fram fóru fyrir stuttu og voru Víkingar sigursælir að vanda
Keppni í íslandsmótunum í
borðtennis er lokið en keppt hefur
verið i liðakeppni, einliðaleik og
tviliðaleik.
Helgina 24.-25. febrúar fór fram
flokkakeppni unglinga hjá BTÍ, en
það er íslandsmót liða. Keppt var
í tveimur stúlknaflokkum og
tveimur drengjaflokkum.
Víkingur sigraði í þremur
Qokkum en KR í einum. KR
stúlkur sigruðu í Qokki 16-18 ára
stúlkna. Keppni í þessum Qokki
var jöfn og spennandi. Þrjú lið
mættu til leiks og lauk öllum leikj-
unum 3-2.
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
Víkingar voru sigursælir á íslandsmótinu að vanda eins og sést hér á þessari mynd. Frá vinstri: Tryggvi Rósmundsson, Óli
Páll Geirsson, Signý Pétursdóttir, Daði Guðmundsson, Magnea Ólafs, Matthías Stephensen og Halldóra Ólafs.
Óli Páll og Tryggvi unnu
Hjá drengjum 16-18 ára léku til
úrslita annars vegar Víkingarnir
Magnús F. Magnússon og Tryggvi
Áki Pétursson og hins vegar Óli
Páll Geirsson og Tryggvi Rós-
mundsson. Eftir jafnan leik urðu
þeir Óli PáU og Tryggvi Rós-
mundsson að lúta í lægra haldi.
TU úrslita í Qokki stúlkna undir
15 ára léku Víkingur A og Víkingur
B. Þeirri viðureign lauk með sigri
Vikings B 3-2, þar sem úrslit réðust
ekki fyrr en í oddalotu fimmta leiks.
Greinilegt er að hinar ungu Vík-
ingsdömur eiga framtíðina fyrir sér
ef áfram verður vel haldið á borð-
tennisspöðunum.
Hjá drengjum undir 15 ára voru
það félagarnir Daði Freyr Guð-
mundsson og Matthías Stephensen
sem báru sigurorð af Sölva Péturs-
syni og Magnúsi K. Magnússyni.
Þessir leikmenn koma aUir úr sama
borðtennisfélaginu, Víkingi.
80 unglingar
Síðustu helgi fór fram keppni í
einliða- og tvQiðaleik. AUs voru um
80 unglingar sem kepptu á mótinu
frá Garpi, HSÞ, ÍFR, KR, Stjöm-
unni, og Vlkingi. Keppt var í 16
Qokkum og voru Víkingar sigursæl-
ir að vanda. Þeir sigruðu í eUefu
Qokkum, KR í fjórum, og Stjarnan í
einum Qokki. Víkingar fengu sam-
tals 36 verðlaun á Islandsmótinu,
KR 15, Garpur tvö, HSH og Stjarnan
eitt hvort félag.
Matthías vann fjórfalt
Matthías Stephensen Vikingi fór
fyrir sínu liði og náði einn kepp-
enda að sigra fjórfalt, sigraði í ein-
liðaleik, tvUiðaleik, og tvenndar-
keppni auk þess að bera sigur úr
býtum í liðakeppninni.
Mörg glæsUeg tilþrif sáust á mót-
unum og sýndu unglingamir það í
mótunum að þarna gætu verið
margir meistaraQokksmenn fram-
tiðinnar ef vel verður haldið utan
um þessa krakka.
Það er greinUegt að starf félag-
anna er að bera ávöxt og ekki laust
við það að bjartir tímar séu
framundan í borðtennisíþróttinni
hér á landi.
-BG
LYFJAVERSLUN ÍSLANDS H F.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Lyfjaverslunar íslands hf.
verður haldinn að Grand Hótel
mánudaginn 2. apríl 2001 og hefst hann kl. 16.00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingu á 12. grein samþykkta félagsins,
á þá leið að aðalfund skuli boða með minnst viku
fyrirvara í stað tveggja vikna fyrirvara áður.
3. Tillaga stjómar um að félaginu sé heimilt að kaupa
eigin hluti samkvæmt 55. grein laga um hlutafélög.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa
að vera komnar í hendur stjómarinnar eigi síðar en 7 dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og reikningar félagsins,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir
aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað við upphaf fundarins.
Stjóm Lyfjaverslunar íslands hf.
Þessar stóöu sig best í 12-13 ára flokki stúlkna.
Magnús Magnússon og Tryggvi Pétursson kunnu aö meta sigurinn í 16—18
ára flokknum á Flokkamóti BTÍ.
Úrslit
- á íslandsmótunum í
borðtennis unglinga
Liðakeppni:
Stúlkur 16-18 ára
1. Aldís Rún Lárusdóttir og Kristín
Hjálmarsdóttir ............KR-A
2. Guörún G. Bjömsdóttir og Valgerð-
ur Benediktsdóttir ........KR-B
Stúlkur yngri en 15 ára
1. Jóhanna Elíasdóttir og Thelma
Steingrímsdóttir......Víkingi-B
2. Jóna Svanhvit Þorvaldsdóttir og
Magnea J. Ólafsdóttir .. Víkingi-A
Dréngir 16-18 ára
1. Magnús F. Magnússon og Tryggvi
Áki Pétursson ........Vikingi-A
2. Óli Páll Geirsson og Tyggvi Rós-
mundsson .............Víkingi-B
Drengir 15 ára og yngri
1. Daði Freyr Guðmundsson/Matthí-
as Stephensen ........Víkingi-A
2. Magnús K. Magnússon og Sölvi Pét-
ursson ...............Víkingi-B
Tvenndarleikur:
1. Halldóra Ólafs/Matthias Stephen-
sen.....................Vikingi
2. Kristin Hjálmarsdóttir/Ingvar Áka-
son..........................KR
Einliðaleikur:
Sveinar 15 ára og yngri
1. Daði Guðmundsson/Matthias
Stephensen .............Víkingi
2. Hjálmar Karlsson/Marel Helgason
Vikingi
Drengir 16-17 ára
1. Óli Páll Geirsson/Tryggvi Rós-
mundsson ...............Víkingi
2. Ásgeir Birkisson/Ingvar Ákason
KR
Stúlkur 17 ára og yngri
1. Kristín Hjálmarsdóttir/Valgerður
Benediktsdóttir .............KR
2. Halldóra Ólafs/Magnea Ólafs .. .
Víkingi
Einliðaleikur:
Hnokkar 11 ára og yngri
1. Ágúst Jónasson....Stjörnunni
2. Hjalti Arnarson...........KR
Tátur 11 ára og yngri
1. Signý Pétursdóttir ..Víkingi
2. Anna Sigurðardóttir . .. Víkingi
PUtar 12-13 ára
1. Skapti Jónsson ...........KR
2. Björn Bjömsson ...........KR
Stúlkur 12-13 ára
1. Magnea Ólafs ........Víkingi
2. Thelma Steingrímsdóttir Víkingi
Sveinar 14-15 ára
1. Matthías Stephensen . . . Víkingi
2. Magnús Magnússon .... Vikingi
Meyjar 14-15 ára
1. Jóhanna Eliasdóttir .... Víkingi
2. Jóna Þorvaldsdóttir .... Víkingi
Drengir 16-17 ára
1. Tryggvi Rósmundsson . . Víkingi
2. Þórólfur Matthíasson . . Víkingi
Stúlkur 16-17 ára
1. Kristín Hjálmarsdóttir ..KR
2. Halldóra Ólafs ......Víkingi