Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Blaðsíða 13
r MÁNUDAGUR 19. MARS 2001 29 I>V Sport mSftál 1 BSiiSS&KBi IIHUH TTT Michael Schumacher og Rubens Barrichello baöa hér Ross Brawn, tæknistjóra Ferrari, upp úr kampavíni eftir góða keppni Á innfelldu myndinni eru Barichello og Schumacher báöi komnir út fyrir braut í bleytunni. Reuters TÉ01 7 i Formúla 1 á Sepang-brautinni í Malasíu: Frábær Ferrari - Schumacher sigraði í sinni sjöttu keppni í röð og Barrichello varð annar Þjóðverjinn og Ferrari-ökumaður- inn Michael Schumacher sigraði i gær í sinni sjöttu keppni í röð er hann kom fyrstur yfir marklínuna í Malasiu- kappakstrinum sem háður var á Sepang-kappakstursbrautinni við Ku- ala Lumpur í gær. Enginn ökumaður hefur á seinni tímum sigrað í sex keppnum í sex atrennum og er þessi stórkostlegi ökumaður svo sannarlega að skrá sig í sögubækur framtiðarinn- ar. Félagi hans, Rubens Barrichello, var honum aldrei langt að baki og full- komnaði daginn fyrir ítalska liðið með því að koma annar í mark og tvöfaid- aði með því sigur Ferrari. McLaren-ökumennirnir David Coulthard og Mika Hakkinen áttu ekki eins glaðan dag því eitthvað áttu þeir erfitt uppdráttar en Skotinn kom langt á eftir Barrichello í þriðja sæti og heimsmeistarinn fyrrverandi mátti þakka fyrir að klára sjötti. Heinz H. Frentzen á Jordan varð fjórði á undan hetju helgarinnar, Ralf Schumacher, sem kom verulega á óvart í tímatökum á laugardag þar sem hann náði þriðja besta tíma. Hann kláraði í fimmta sæti þrátt fyrir að taka þrjú þjónustuhlé. Keppnin endurræst Keppnin fór illa af stað fyrir Benetton-ökumanninn Gianfranco * Offl O 'J Fisichella er hann missti af rásstað sínum eftir upphitunarhringinn og varð af þeim völdum að endurræsa keppnina. Það olli svo öðrum keppend- um vandræðum, s.s. Juan Pablo Montoya sem drap á WilliamsFl-bil sinum í seinni ræsingunni og varða að hlaupa í varabílinn. Eins og í síðustu keppni í Ástralíu, náði Michael Schumacher mjög góðri ræsingu af ráspólnum og skaust örugg- lega í gegnum fyrstu beygjumar. Ann- að var að segja um bróður hans Ralf sem gerðist fuilákafur i ræsingunni og sneri bíl sínum eftir samstuð við Rubens Barrichello. „Ef þú ætlar að berjast í gegnum beygju verður að gefa keppinautinum pláss, en það gerði hann ekki,“ sagði Brasilíumaðurinn eftir keppnina í gær. Ferrari í sérflokki Ferrari-félagamir geystust í forystu á fyrsta hring en tveim hringjum seinna byrjaði að rigna og báðir liðsfé- lagamir misstu stjóm á bílum sínum samtímis og fóm út af og máttu þakka fyrir að geta haldið áfram. Allir öku- menn fóm strax inn á þjónustusvæði eftir regndekkjum en ólíkt öðmm fóm Ferrari-ökumennimir á milligerð af regndekkjum og það átti eftir að reyn- ast þeim happasælt. í kjölfar rigningarinnar var öryggis- bíllinn kallaður út því örstutt hitabelt- isskúr hafði gert hluta brautarinnar óökufæran og ökumenn hrundu eins og flugur út úr keppninni. Á eftir öryg- gisbílnum leiddi David Coulthard keppnina en eftir mikil vandræði á þjónustusvæði Ferrari-liðsins höfðu þeir Schumacher og Barrichello fallið niður í ellefta og tólfta sæti. Um leið og öryggisbillinn hafði yfir- gefið brautina fór allt á fúllt en bftarn- ir rauðu frá Mugello vom í sérflokki og fóru að tína upp andstæðinga sína einn af öðmm og vora á innan við tíu hringjum komnir í forystu á ný. Juku þeir forskot sitt í kjölfar þess og var tvöfaldur sigur Ferrari aldrei i hættu eftir það. McLaren í vandræöum Keppnin um fiórða sætið var löng og jöfh en eftir að Jos Verstappen og Hákkinen höfðu barist til þrautar tókst Jordan-ökumanninum Frentzen að krækja í plássið eftir mistök Finnans og þjónustuhlé Hollendingsins. Mjög kom á óvart hversu illa McLaren gekk um helgina og greinilegt að þeir eiga langt í land með að nálgast hraða og eiginleika Ferrari-bílsins. Þegar Ar- rows-bíll, með eins litið fiármagn og raun ber vitni, er farinn að standa í Mika Hákkinen á McLaren, sem hefúr einna hæstu fiárhagsáætlun keppn- isliðanna, er eitthvað alvarlegt að. Næsta keppni verður háð í Brasilíu eft- ir hálfan mánuö. -ÓSG David Coulthard, McLaren, er hér á feröinni í úrhellinu sem gerði snemma keppninnar. Reuters Urslit á Sepang: 1. Michael Schumacher, Ferrari 2. Rubens Barrichello, Ferrari 3. David Coulthard, McLaren 4. Heinz-Harald Frentzen, Jordan 5. Ralf Schumacher, Williams 6. Mika Hákkinen, McLaren Staða ökumanna 1. Michael Scumacher, Ferrari 20 2. David Coulthard, McLaren 10 3. Rubens Barricheilo, Ferrari 10 4. Heinz-Harald Frentzen, Jordan S 5. Nick Heidfeld, Sauber 3 Staða bílasmiða 1. Ferrari 30 stig 2. McLaren n stig 3. Jordan 5 stig 4. Sauber 4 stig 5. Williams 2 stig Bensín dropar Eftir timatökur á laugardag var árang- ur Arrows-ökumanníins Etirique Bernoldi dæmdur ógUdukeftir að eftir- litsmenn .FIA höfðu tnælt tvamvæng á bíl hans ólöglegan. Hann var of nærri yfirborði brautarinnar og er það um- svifaíaus brottvísun. En fyrir einhverja náð'og miskunn fékk hann að veraineð í kóppninni með því skUyrði að ræsa síðástur. Hann var ekki lengi þar þyí Fiáichella bættist aftan við hann | í seinni ræsingunni. European Minardi fagnaði vel pftir keppnlna i gær því báðir ökumenn liðs- ins klárúðukeppnina þrátt fyrir nokk- ur sk;ik\id.iölL Tarso-Marqaés varð fyr- ir því óláni að annar afturhjólbarðinn missti þrýsting með þeim afleiðingum að hann tættist af féjjgunni og skemmdi afturvæng bUsins./Eimiig féU út allt samskiptakerfi li,ásins vjð ökumenn þess og varð því/áð notast viö „gömlu“ aðferðina sem e'r að koma skilaboðum til ökumanna af þjónustuveggnuin með þar til gerþum spjötdum. Einnig/ þurfti Fernando Alonso taka fimm þjónustuhlé, en sökum ei prófaha og reynsluleysis tók Minardi- liöið rangar ákvarðanir í dekkjavalil þegaj- það byrjaði að rigna. Þessi reynsla hefur þó kennt þeim eitthvai sem þeir geta byggt á í framtiðini „Það jákvæða við þetta allt er að ég fékk mikla réynslu við þessar aðstæður, og ég er viss utn-aðvið verðum.mún betur undirbúnir fyrir BfásHíSkappaksturinn eftir háUan mánuð,“ sagði Alonso eftir keppnina í gær. Ross Brawn, tæknisyóri Ferrari, kall- aði vitlausan bíl inn á' þjónustusvaxiið eftir að rigningin byijaði og varð það til þess að rángir þjólbarðar fóru undir bil Barriphellos. Þar sem hjólbarðar mega ekkj ruglast á milli liðsfélaga varð að skiþta út börðum og kostaði það lahgan tífna. Á meðan beið Schumacher aftan ð Barrichello í rúmlega mínútu qg var eflaust orðinn óþreyjufullur. En |r rétt dekkjaval náðu þeir að rétta úr jtútnum og sigra. Sigur Michaels Schumachers í Málasíu í gær var hans annar í röð á Sepáng og sjötti 1 röð síðan hann sigraði eftirmirtnllega á Monzajfyfra og sá 46. á ferlinum. Emnig var þetta í þriðja skiptið sem hann jæsir af ráspól í Malasíu og var ferlinum. „Þessi ekki máli enþ er hvern sei máli hve -su margar kepp meistara itla þú vinnur, þeim. lans 34. ráspóll á mig í raun að heyra ein- ,ð skiptir ekki heims- hvemig éru unnir. Það skiptir i | segir heimsmeistarinn þú Keppnin i gcer var ekkert sérstaklega árjægjuleg fyrir BAR-liðið því tiáðir ökumen liðsins voru dottnir úr leik áð- ur\en Qórir hringir vom afstaðnjr af keppninni. Fljótlega eftir ræsingu pilaði oliukerfið í bíl Oliver Panis og eftir að hóf að rigna réð Jacques Villeneuve ekkert viAbíl sinn og hannjenti út af. Ralf Schumacher átti frábæra tíma- töku á laugardag þar sem hann barðist hart við bróður smn um ráspólinn en varð að lokum að sætfa sig við þriðja sætið. En það fór allt í yaskinn þegar hann lenti í, samstuði við Rubens Barrichello j fjTstu beygju képpninnar og hann var allt annað en ánægður með akstur Ferrari-ökumannsins. .Jlann ætti að læra reglumar,“ var haft eftir Ralf, „þetta er í annað skiptið í röð Sem hanplendir í samstuði við þýskan öku- i í jafh mörgum keppnum og hann að fara sér varlega þvi allt svopa kemur í bakið á manni seinna.“ Juan Pablo Montoya átti ekki fai^æla keppnishelgi því á fostudag gat hann ekki ekið nema nokkra hritígf sökum bilana. Á laúgardag gekirhonum mjög vel í tímatökum og náði sjötta rásstað. En í seinni ræsingunni drap BMW-vél- in á sér og lið hams kom henni ekki í gang. Varð haun þvi að hlaupa í vara- bílinn sem haún kei'Tði svo út af þegar það byrjaði að rigna. „Ég er mjög óhress þvi bíllinn var mjög góður og ég ræsti jgf mjög góðum rásst Verstappen kom verulega á óvart í ipninni í gær og átti mjög góða. rats- Hann ræsti af átjánda rásstað og fram úr tólf bílum á fyrsta hring og itökk við það upp í sjötta sæti. Eftir harða baráttu við Hákkinen, Frentzen Ralf Schumacher varð hann að sig við sjöunda sætið eftir að' hafa þurft að taka þrjú viðgerðarhjél „Við því besta út úr bílnujn, og mér, sérstáklega í ræsingunni og ég held að þetta sé murbesta'framtil þessa,“ sagði Verstappen að lokinni viðburðaríkri keppni á Sepang í gær. -ÓSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.