Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2001, Qupperneq 14
30
MÁNUDAGUR 19. MARS 2001
9
Sport
DV
Starfsmenn i Bláfjöllum
hafa verið mjög útsjónarsamir
við að nýta þann snjó sem er á
svæðinu og fyrir helgi var gerð
tilraun með að flytja til snjó. Ýtt
var í stóran skafl í Eldborgargili
og þaðan var snjórinn selfluttur
með vörubíl upp í byrjenda-
brekkuna við Bláfjallaskála.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi
aðferð er notuð á skíðasvæði
hérlendis, svo vitað sé. Byrj-
endabrekkan var svo opnuð um
helgina.
í sióustu viku bætti einnig
nokkuð við snjóinn á skíöasvæð-
unum á Norður- og Austurlandi
og eru aðstæður hinar bestu.
Meðal annars var skíðasvæðið í
Tindaöxl á Ólafsfirði opnaö 1
vikunni, en þar hefur verið lok-
að í vetur vegna snjóleysis.
Ástœóa er því til að hvetja
skíðaáhugamenn til að fylgjast
með opnunartíma skíðastað-
anna á næstunni því nú viröist
loksins vera að rofa til í þeim
málum. -HI
- skíðaæfingar stundaðar í KR-heimilinu
%ópavoa
Það er ekki gaman að vera skíða-
maður þegar veturinn er búinn að
vera eins og hann hefur verið í vetur.
Krakkamir sem hafa verið í skíðaæf-
ingum hjá Sigríði Jakobsdóttur í KR-
heimilinu síðan í september hafa ekki
komist nema í eitt skipti í vetur en
þrátt fyrir það er mikið fjör í tímun-
um hjá henni þegar krakkarnir þjálfa
upp ýmsa hluti sem koma sér vel þeg-
ar menn byrja að renna sér.
Hópur Sigríðar samanstendur af
krökkum átta ára og yngri og er
yngsta barnið í hópnum fjögurra ára.
„Upphaflega var gert ráð fyrir að æf-
ingarnar yröu fast einu sinni í viku
innandyra og tVisvar í viku uppi í
fjalli. Það hefur hins vegar ekki verið
hægt að vera í fjallinu vegna snjóleys-
is, nema þá aðeins í byrjun janúar.
Þess vegna höfum við bætt viö inniæf-
ingum til að halda í krakkana. Þetta
hefur gengið mjög vel. Auðvitað koma
öðra hverju svona snjólausir vetur en
það er alls staðar janfmikill undirbún-
ingur fyrir skíöaiðkunina," segir Sig-
riður.
Aö sögn hennar byggjast tímamir á
styrktaræfingum, liðleikaæfmgum,
samhæfingu og snerpuæfingum. „Við
blöndum þessu mikið saman. Við er-
um með margar æfingar þar sem við
notum ýmis áhöld og dýnur og búum
jafhvel til svið f salnum.“
Róleg þrátt fyrir snjóleysið
Yngri krakkamir em ekki eins
stressaðir yfir því að komast ekki sem
fyrst á skíði eins og hinir eldri.
„Yngri krakkarnir hafa farið einu
sinni á Sauðárkrók yfir helgi á skíði
og það er stefnt að því gð gera það aft-
ur síðar í vetur. Þá stefhum við einnig
að Andrésar andar leikunum á Akur-
eyri seinni partinn í apríl. Félagið fer
þangað með hóp af krökkum, þannig
að við gefumst ekkert upp þó að snjó-
leysið hái okkur. Ég held samt að
krakkamir skilji að þegar ekki er
snjór í fjöllunum þá er ekki hægt að
komast á skíði.“
Sigríður er með í kringum 20
krakka í yngsta hópnum og hafa þau
mætt vel í vetur. „Þaö er mjög mikiil
skíðaáhugi meðal yngstu kynslóðar-
innar. Krakkarnir geta byrjað mikiu
fyrr á skíðum nú en áður fyrr og eru
jafnvel farin að skíða sjáif fimm ára
gömul. Flestir krakkamir héma eru
mjög vön. Síöasti vetur var mjög góð-
ur og gaf þeim tækifæri á að skíða
heilmikið."
Lætur sjá sig á endanum
Þegar blaðamaður DV-Sport spjall-
aði aðeins við krakkana virtust þeir
hka hafa það nokkuð vel á hreinu að
þessar æfingar styrktu þá fyrir skíða-
iðkunina. Eitt bamið, sem var reynd-
ar með þeim eldri í hópnum, var þó
þaulvant og hafði skíðað nánast frá
tveggja ára aldri. Þau viðurkenndu þó
að þaö væri dálítið leiðinlegt að hafa
ekki komist mikið á skíði í vetur en
vom þó sannfærð um að snjórinn
myndi á endanum láta sjá sig. -HI
Kópavogur hefur vaxið afar hratt á stuttum tíma - þróast frá því
að vera nokkur hús án nokkurrar þjónustu í að verða næststærsta
sveitarfélag landsins með alla þjónustu.
Þjónustan í Kópavogi nær ekki bara til Kópavogsbúa
heldur er í bæjarfélaginu rekin öflug þjónusta fyrir
allt höfuðborgarsvæðið enda er bærinn afar
miðsvæðis. Ekki má heldur gleyma menningunni
. sem blómstrar í Kópavogi.
í Kópavogi eru mörg öflugustu fyrirtæki
landsins á sviði verslunar og þjónustu og
mikil uppbygging stendur nú yfir á því sviði.
[ Kópavogi er einnig myndarleg höfn.
Umsjón auglýsinga:
Ösp Kristjánsdóttir,
sími 550 5728
netfang: osp@ff.is
Umsjón efnis:
Steinunn Stefánsdóttir
netfang: steina@ff.is
'
*
í sérblaði DV sem kemur út
28. mars næstkomandi
verður fjallað um Kópavog
á fjölbreyttan hátt, þróun
byggðar, verslun, iðnað,
þjónustu og menningu.
Ath. síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudaaurinn 22.
Bland i P oka