Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 3
e f n i
Hamingjan
er húsdýr
Ég ólst upp í Vogunum ! Reykjavík. Þaö hefur
sett á mig heilmikla pressu I seinni tíö því
þessir guttar sem maöur lagði hálf í einelti í
barnaskóla eru búnir aö meikaða svo duglega.
Einsi Mási, Frikki og þessir strákar eru orðnir
frægir í útlöndum og allt saman en eftir sit ég,
Pjesi Rnz, svo óþekktur aö foreldrar mínir
gætu ekki boriö kennsl á mig í „læn-öppi“ hjá
löggunni.
Þeir eru hamingjusamir og þekktir en ég er
bara hamingjusamur. Alveg ofboöslega ham-
ingjusamur. Hamingjan er nefnilega frekar ein-
falt fyrirbæri, þannig séö. Hamingjan er húsdýr
og þau eru ekki mjög flókin, allavega ekki fyrr
en maöur fer aö elta skilgreiningar á þeim út í
hið óendanlega. Lamb er lamb. Þaö fæöist,
fitnar og deyr. Siöan étur maður það.
Þegar ég var í sveit ! gamla daga fæddust
lömbin á vorin og dóu á haustin. Alveg eins og
ást min og heimasætunnar. Ég grét heilan vet-
ur. Um vorið fór ég aftur í sveitina og komst að
þv! að heimasætan var ekki lengur heima-
sæta heldur heimafeita eftir allt íambakjöts-
átið um veturinn.
En ókei, lamb er lamb. Maöur hefur ekkert
miklar áhyggjur af þvi vegna þess aö maður
veit hvaö á að gera viö þaö. Eftir að þvi er
slátraö er þaö einfaldlega étiö meö bestu lyst.
Áhyggjurnar eru hlns vegar ef lambið veikist
og deyr þegar þaö á aö lifa og fitna. Þá hefur
eitthvað farið úrskeiðis. Þaö verður nefnilega
að gefa lömbum aö borða og þaö verður helst
aö vera grænfóður.
Vandamálið er bara hvaö á að gefa helvítis
hamingjunni því hún vill ekki grænfóður.
heimasíöan
http ://www. ratem
yrackcom
Ratemyrack eða dæmdu dúllurnar, sem væri
ef til vill islenskt heiti heimasíöu vikunnar, er
afar skemmtileg fyrir bæöi kynin. Konur á öll-
um aldri, hvaðanæva úr heiminum leggja
brjóstmyndir af sér undir dóm netverja. Þá er
átt viö brjóstmyndir i ákaflega bókstaflegri
merkingu. Stór brjóst, lítil brjóst, lafandi og
stinn brjóst, gul, rauö og svört brjóst, silikón-
brjóst og lífrænt ræktuö brjóst. Öll biöa þau
dómsuppkvaðningar á skalanum 1 til 10.
Þetta form býður upp á ótal möguleika.
Næsta skref hlýtur aö vera síðan Count-
mycock eða tippaöu á typpin. Þar sem giskaö
er á sentímetrafjölda fyrir og eftir upprisu.
Vigfús Baldvin Heimisson er rétt rúmlega tvítugur Reykvíking-
ur sem leggur stund á nám í pípulagningum við Borgarholts-
skóla Hann mun á næstunni skunda til Danmerkur til að
keppa á Norðurlandamóti í pípulagningum 21 árs og yngri og
er bara farinn að hlakka heilmikið til.
Maður æfir eins
og maður nennir
„Ég var bara spurður hvort ég
vildi taka þátt í þessu og ákvað að
slá til,“ segir Vigfús Bjarni Heimis-
son þegar hann er fyrst spurður
hvernig það kom til að hann er á
leiðinni út til að keppa við jafnaldra
sina um Norðurlandameistaratitil-
inn í pípulögnum. Vigfús er fyrsti
íslendingurinn til að taka þátt í
slíku móti en mótið er haldið árlega,
þótt mörgum kunni að koma það á
óvart.
Hætti í rennismíðinni
Vigfús leggur stund á nám sitt i
Borgarholtsskólá en æfingar fyrir
mótið fara fram í Iðnskólanum í
Hafnarflrði. Pilturinn stefnir á að
ljúka sveinsprófinu innan tíðar en
hann hefur þegar lokið tveim árum
og fjórum mánuöum af náminu og
nemur nú undir leiðsögn meistara.
„Samningurinn minn rennur út í
desember og ég stefni að því að taka
sveinsprófið sumarið eftir,“ segir
Vigfús sem byrjaði að læra renni-
smíði en var fljótur að skipta yfir.
Aðspurður segist hann hafa mjög
gaman af þessu og vera orðinn
nokkuð spenntur.
Ertu þá kominn í stíft œfmga-
prógram?
„Ég æfi alltaf einu sinni í viku og
svo er þetta bara eins og maður
nennir."
Gera ferð úr þessu
„Meistarinn minn fer með mér út
og svo fullt af pípurum. Þetta er hald-
ið í tengslum við stóra pípulagninga-
Vigfús Baldvin Heimisson
æfir sig af fullu
kappi þessa
dagana fyrir
Noröurlanda-
mótiö í pípu-
lagningum 21 árs
og yngri. Hann er sá
fyrsti sem keppir fyrir íslands hönd
á mótinu.
sýningu svo menn gera sér bara ferð
úr þessu. Ég fer út á þriðjudags-
morgninum og skoða aðstæður og
svo byrjar keppnin á miðvikudegin-
um og stendur fram á föstudag," seg-
ir Vigfús sem viðurkennir að þetta
verði örugglega dágóð keyrsla, fullur
vinnudagur alla dagana
sem keppnin
stendur í mai-
mánuði.
meistaranum mínum að þakka.
Hann hefur nefnt þetta við stjórn-
ina.“
Kemur þetta til meó að hjálpa þér
eitthvaö í framtíðinni?
„Já, eflaust á það eftir að gera
það. Þetta er auðvitað mikil reynsla
sem maður fær og þar sem þetta er
svipað og sveinsprófið er þetta mjög
góður undirbúningur.1'
Það hafa líklega fœstir heyrt
af því að keppt sé í pípulagn-
ingum, er litió á þetta sem
listgrein?
„Nei, það held ég örugg-
lega ekki. Það er nefnilega
þannig að það virðist vera
keppt í öllu, hárgreiðslu
eins og fólk þekkir og svo
greinum eins og bólstrim
og dúklagningum, íslend-
ingar hafa bara ekki
tekið þátt,“ segir
Vigfús.
Ekki
listgrein
Vigfús
bendir á að í
öðrum þátt-
tökulöndum
sé alltaf haldin
undankeppni
sem sé mjög góð
æfing fyrir kepp
endur þaðan. Seg-
ir hann að það hefði
auðvitað verið mjög
þægilegt fyrir sig ef
boðið hefði verið upp á
slíka keppni hér en
engu að síður verði
gaman að takast á við
þetta.
En af hverju var
hann valinn, er hann
besti ungi pípulagn-
ingamaðurinn í
bransanunum hér?
„Nei, það held ég
ekki. Ég veit það eig-
inlega ekki, ætli
þetta sé ekki
Á laugardagskvöldið gefst öllum sem eru með eggjaleiðara og brjóst kostur á að
skella sér á djamm þar sem körlum er meinaður aðgangur. Margrét Hugrún hitti
pródúsentana á bak við djammið og spurði þær um þennan viðburð sem fer víst
fram í Kaffileikhúsinu.
Þú þaift ekkert að vera lessa
Hvað segiði, stelpur, eruó þiö að
fara að halda kvennakvöld? „ Já, við
erum að reyna að koma lessunum út
á lífið. Það er ekkert svo mikið
skemmtanalíf fyrir okkur, alltaf
bara Spotlight og svona og þar er
svo mikið stílað inn á hommana
með latexkvöldum og einhverju svo-
leiðis hommaveseni. Nú er kominn
tími til að við fáum að djamma eins
og við viljum, á einhverjum öðrum
stað, á okkar eigin forsendum."
Hvað á aó gerast? „Bryndís Ás-
munds ætlar að mæta og taka nokk-
ur góð lög og svo verður tískusýn-
ing. Stelpurnar sem allir sáu í lesb-
íuþættinum í Djúpu lauginni verða
sýningardömur og sýna okkur fot úr
búð sem heitir DIVAA og er í
Kringlunni. Þær eru búnar að leggja
rosalega mikið á sig fyrir þetta, eru
að fara á námskeið í línudansi á eft-
ir til að hafa þetta allt á hreinu,"
segja stelpurnar og hlæja.
Verður hljómsveit eða dj eða
þannig? „ Já, DJ Peanut mætir og
þeytir skifum á spilurum fram á
nótt. Hún er agnarsmár, svartur,
lesbískur breikdansari. Tekur pott-
þétt nokkur breikspor ef þú spyrð
fallega. Hún ætlar að spila einhverja
góða músík sem við getum allar fil-
að. Þegar hún má svo ekki spila
meira og staðnum verður lokað geta
allir farið á Spotlight á tveir fyrir
einn díl, það er bara 250 kall.“
Mega karlar bara alls ekki koma
inn? „ Nei,“ svara þær ákveðið og
allar í kór, „ekki einu sinni í dular-
gervi. Eina leiðin fyrir þá til að
komast inn er að fara í aðgerð, þú
veist.“
En konur sem eru ekki lesbíur,
mega þœr koma? „ Já, þær mega sko
alveg koma, þetta er bara fyrir kon-
ur, þær þurfa ekkert að útskýra
neitt. Gríma, sem er í miðasölunni,
hún er t.d. ekki lesbía, hún verður
þarna,“ útskýra þær einlægt.
Inga Hrönn: „Við vorum í
Kringlunni um daginn að máta föt-
in fyrir sýninguna og á eftir
skruppum við í Hagkaup. Kona
sem var að vinna þarna á kassa fór
strax að pæla, hafði greinilega
horft á Djúpu laugina. „Hva! Eruð
þið bara alltaf saman núna?“
spurði hún (döh) og þá fór ég að
segja henni frá kvöldinu. Hún varð
rosaæst, vildi bara fá að vita allt,
hvort maður þyrfti að vera lessa,
hvað gerðist o.s.frv. Ætli hún birt-
ist ekki bara þarna í sparifötun-
um!“
Ok. Hvenœr byrjar þetta, hvaö
kostar inn, hvar er Kaffileikhúsió
og hvaó fœr maöur út úr þessu?
„Þetta byrjar kl. 22, skemmtiatrið-
in byrja kl. 23, það kostar 1000 kall
inn, Kaffileikhúsið er á Vestur-
götu, við hliðina á Fríðu frænku."
Og hvaó fœr maóur út úr þessu?
„Það verður bara að koma í ljós
daginn eftir!"
Andlát:
Algjör
dauði
Regnmaðurinn:
Kvefaður í rigning-
unni
Hjalti Snær:
Tiskuþáttur
gáfnaljóss-
ins
101 Reykjavík:
Tilvistarkreppa
rónans
jn I Emlunitgufur:
I úr skúma-
Fullir Akureyringar
www»visir*is/fokus
fokusðfokus-is
rl í f i ö
BHHwm—gaan
Odd Nerdrum er ekki listamaður
Með diarum karlaróm
Stelpuslaaur
Bounce
Bf ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók Einar Ólason af
Steindóri Andersen.
6. apríl 2001 f Ó k U S
3