Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Síða 4
Stuttmyndadagar
í Reykjavík
Viltu vinna
skreið?
Stuttmyndadagar í Reykjavík verða haldnir í
mai. Hátíöin var stofnuð af Jóhanni Sigmar-
syni og er elsta kvikmyndahátíð sinnar teg-
undar á íslandi. Dagarnir eru vettvangur
kvikmyndageröarmanna til að sýna stutt-
myndir sínar opinberlega og er hátíöin meö-
al helstu menningarviðburöa ársins.
í ár verður í fyrsta skipti veittur verölauna-
gripur úr bronsi sem er af islensku skreið-
inni. Stefania Sverrisdóttir hannar gripinn
sem veröur tákn hátíðarinnar í framtíöinni.
Peningaverðlaun
í fréttatiIkynningu frá aðstandendum segir
aö fengnir veröi erlendir fyrirlesarar sem
hafa náö langt á sviöi kvikmyndagerðar til
aö deila reynslu sinni meö íslensku áhuga-
fólki. Myndast hafa tengsl við aðrar hátíöir i
heiminum um aö fá verölaunamyndir þaöan
til sýninga á Stuttmyndadögum í Reykjavik
og telja aöstandendur aö þaö muni styrkja
stööu hátíðarinnar og stækka, jafnt hér
heima og í útlöndum.
Stuttmyndadagar i Reykjavík eru haldnir í ti-
unda skiptið í Háskólabiói í maí og er öllum
heimil þátttaka.
Um þessar mundir
auglýsa Stutt-
myndadagar í
Reykjavík eftir
s t u 11-
myndum
í keppn-
ina. Þær
þurfa að
berast á
mm, Beta,
DV Cam meö upp-
lýsingum um að-
standendur. Þessu
skal skilað til
Kvikmyndasjóös
íslands, Tún-
götu 14, til
Bryndísar Jóhannsdóttur, vandlega merkt
Stuttmyndadögum í Reykjavík, fyrir 6. maí
næstkomandi. Hámarkslengd á stuttmynd-
unum er 15 mínútur og þátttökugiald er
1.500 kr.
Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar
hægt aö nálgast á hjá Bryndísi á skrifstofu
Kvikmyndasjóös eöa á vefnum á slóöinni
www.this.is/shortcut eöa á Fókusvefnum á
Vísi.is.
Peningaverðlaun verða veitt fýrir 1. 2. og 3.
sætið sem borgarstióri veitir I lok hátiöar.
Hljómsveitin Andlát var sigurvegari Músíktilrauna um síðustu helgi og var það í ann-
að sinn á skömmum tíma sem þungt rokk lagðist betur í dómnefndarmeðlimi en
annað. Sveitina skipa fimm drengir úr Reykjavík sem kynntust í gegnum sameigin-
legan áhuga á tónlist en þeir eru skýr afkvæmi harðkjarnabylgjunnar sem riðið hef-
ur yfir landann undanfarið.
Hljómsveitin Andiát sigraði í Músíktiiraunum um síðustu helgi og kom það meðlimunum nokkuð á óvart. Sjálfir héldu þeir varla að þeir kæmust í úrslit eftir að
hafa einungis starfað saman í nokkra mánuði.
„Þetta byrjaði eiginlega bara sem
grín. Við vorum bara eiginlega að
bulla saman en svo byrjuðum við að
spila á harðkjamatónleikum og gekk
mjög vel. Svo ákváðum við bara viku
fyrir Músíktilraunir að skrá okkur,“
segir Sigurður Trausti Traustason,
söngvari Andláts. Það þarf því ekki að
koma á óvart að þeir bjuggust ekki við
sigri. „Við bjuggumst ekki einu sinni
við að komast í úrslit," segja þeir Ingi
Þór Pálsson gítarleikari og Haukur
Valdimar Pálsson bassaleikari.
Ásamt þeim eru í bandinu Valur
Árni Guðmundsson trommari og
Bjarki Fannar Atlason gítarleikari,
en sveitin hefur starfað frá því í ágúst.
Full-time djobb að vera
rokkstjarna
„Það má segja að tónlistin hjá okk-
ur sé meira svona metal og tilheyrir
meira dauðarokki,“ segja drengimir
þegar þeir em spurðir hvort þeir séu
týpísk harðkjarnasveit. Einhverjir
strákanna hafa verið i öðram hljóm-
sveitum, m.a. er Ingi í Snafu sem hef-
ur verið að gera það ágætt undanfar-
ið, en Andlát hefur aftur á móti ekki
komið mikið fram. Hún hefur þó spil-
að nokkrum sinnum á Kakóbarnum
á tónleikum dordinguls.com auk eins
Stefnumóts og frægrar ferðar til Ak-
ureyrar.
En hvernig kynntust þeir og ákvádu
aö byrja aö spila saman?
„Eiginlega á tónleikum. Þessi sena
er búin að vera í gangi í tvö ár og það
er mikið um tónleika og maður kynn-
ist mikið af fólki þar. Það er alltaf
sama fólkið sem hittist og maður býð-
ur einhverjum í partí og þannig gerist
þetta,“ segja þeir. Andlátsmenn eru
annars á aldrinum 18-19 ára og koma
úr Breiðholti, Mosfellsbæ og Kópa-
vogi, sumir eru í skóla en aðrir að
vinna, „það er bara full-time djobb að
vera rokkstjarna," eins og Siggi segir
með glott á vör.
Textar með boðskap
Allir textar Andláts eru á ensku,
enn sem komið er, að þvi er þeir segja.
Þeir segjast þó hafa reynt sig við ís-
lenskuna en það hafl ekki komið vel
út.
En um hvaö syngja þeir?
„Ja, sumt er nú bara væl í mér um
lífið og tilveruna," segir Siggi sem
semur textana. „Einn textinn er til
dæmis anti-kynþáttahatur. Eftir að
hafa séð þessa umræðu í blöðunum
fannst manni þetta ekki sniöugt.
Þetta eru bara fávitar," bætir hann
við og samþykkir að þeir reyni að
vera með einhvern boðskap í textun-
, um.
Er einhver saga á bak viö nafn
hljómsveitarinnar?
„Nei, þetta kom eiginlega bara upp
í einhverju djóki. Þetta var bara eitt-
hvað svo dæmigert fyrir dauðarokks-
hljómsveit," segir Ingi. „Við hugsuð-
um líka að þessi hljómsveit væri svo
mikill dauði að hún ætti bara að
heita Andlát," segja þeir hlæjandi.
„Svo hélt ég að við ætluðum ekkert
að nota það en svo var byrjað að gera
heimasíðu fyrir okkur og þá var þetta
bara kornið."
Popptónlist er leiðinleg
Þó Andlát spili mjög þungt rokk
segjast strákarnir hlusta á alls kyns
tónlist, alla vega alls kyns rokk. En
var eitthvað vit í einhverjum öðrum
á þessum tilraunum?
„Já, Halim sem lenti í öðru sæti
var mjög góð. Það var náttúrlega
stjarna i bandinu," segir Siggi og þeir
rifja upp að söngvari Halims hafi gef-
ið út plötu þegar hann var 12 ára.
Upp spinnast umræður um að
trommarinn hafi verið í Buttercup.
„Þeir hafa örugglega fengið mínus
fyrir það. Popptónlist er mjög leiðin-
leg en Buttercup, Jesús Kristur," seg-
ir Siggi.
Verða að standa undir
nafni
„Við ætlum örugglega að gefa út
plötu og gerum það þá bara sjálfir í
samvinnu við Harðkjarna. Við gáfum
reyndar út demó með einhverjum sex
lögum sem var tekið upp i bílskúrn-
um hjá trommaranum. Það voru bara
gerð 30-40 eintök af þessu sem seld-
ust fljótt upp. Við gefum kannski eitt-
hvað meira af því út ef fólk biður
okkur um það,“ segja þeir aðspurðir
um væntanlega útgáfu. Þeir segjast
nú ætla að hella sér í að semja nýtt
efni fyrir plötu því elstu lögin séu
ekki nærri því eins góð og þau nýju.
„Þetta er eiginlega hætt að vera
djók hjá okkur. Fyrst vomm við bara
með eitt riff í lögunum," segja þeir
hlæjandi. „Fyrst vorum við alltaf
með mottó um að semja eitt lag á æf-
ingu en nú ætlum við að leggja meiri
vinnu í þetta. Við verðum nú að
standa undir því að vera valin besta
hljómsveitin."
hvaö er á seyöi hjá herbert guömundssyni
Nýr Hebbi á íslensku
„Það er ný plata í gangi. Ég er
búinn að vera á annað ár að taka
upp og á henni verða 13 lög,“ segir
Herbert Guðmundsson eilífðar-
eightiestöffari um óendanlega end-
urkomu sína í tónlistarbransann.
Hann fellst á að ljóstra upp titlin-
um á nýju plötunni. „Svo honum
verði ekki stolið,“ segir hann glett-
inn. Platan á að heita „Herbert
Guðmundsson á íslenska tungu“.
Hebbi hefur tekið U-beygju í tón-
listinni því allir textar verða á ís-
lensku. „Ég er búinn að syngja á
ensku allan ferilinn og nú er öll
unga kynslóðin farin að syngja á
ensku. Það má því segja að braut-
ryðjendastarfí mínu er lokið. Þetta
er líka skemmtileg nálgun fyrir
mig, „nýr Hebbi,“ eins og vinur
minn sagði,“ segir kóngurinn kát-
ur. Plöturnar veröa orðnar ellefu
þegar „Herbert Guðmundsson, Á
íslenskri tungu“, ratar í rekka
hljómplötuverslana. En Hebbi hef-
ur verið viðloðandi tónlistina sið-
an ‘85, meira og minna. Fyrstu lög-
in af plötunni ættu að heyrast þeg-
ar um mitt vor. „Það lag sem heyr-
ist líklega fyrst heitir í allar áttir.
Það er um landið, fjöllin, náttúr-
una og góða veðrið," segir Hebbi
hress. „Svo er annað lag sem heitir
Svaraðu. Það er meira svona
kynjatal. Gaurinn kominn á ystu
nöf og er að kalla á dömuna,"
skeytir hann við. „Ég stefni á sum-
arplötu, en það fer eftir því hversu
vel mér gengur að fjármagna
hana.“ Hebbi fjármagnar alla
plötuútgáfu sjálfur. Hann sér um
markaðs- og sölumál hjá tslensku
bókaútgáfunni þess á milli og er í
þann mund að lóðsa Vegahandbók-
ina í prentun. „Svo er ég alltaf að
syngja þó að þú sjáir mig ekki aug-
lýstan. Um síðustu helgi var ég hjá
Fjölbrautaskóla Vesturlands og um
næstu helgi verð ég á árshátíð
Kaupþings.“ Það er því greinilegt
að Hebbaæðið er ekki dautt en goð-
ið fer varlega í yfirlýsingar um tón-
listin og að tískan frá miðjum ní-
unda áratugnum sé að koma aftur
af fullum krafti. „Það er samt ein-
hver sjarmi eða dulúö í þessu tíma-
bOi sem krakkarnir virðast fíla.“
Hebbi Guö hefur ekki legiö í leti þó ekkert hafi heyrst frá honum undanfarið.
Með vorinu ætlar hann aö dúndra út nýrri plötu meö alíslenskum textum. „Nýr
Hebbi,“ segja þeir og skyldi enginn undrast þótt Möröur brosti úr sér
framtennurnar.
f Ó k U S 6. apríl 2001