Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Qupperneq 6
haf
?
Bjorgvin
í Hedwig
Eins og fram hefur komið á síðum Fókuss
stendur fyrir dyrum frumsýning á söngleiknum
Hedwig á vegum Leikfélags íslands. Reyndar
átti fyrst að frumsýna söngleikinn á vordögum
og voru æfingar langt komnar með leikaranum
Slguröi Eyberg í aðalhlutverki. Vegna pláss-
leysis I sölum Leikfélagsins hefur frumsýning-
unni hins vegar verið frestað nokkrum sinnum
og nú stendur til að úr verði klasslskur sumar-
söngleikur en þeir hafa farið vel í Islendinga
hingað til. Þau tíðindi hafa einnig gerst að búið
er að skipta Sigurði út og mun annar leikari
fara með aöalhlutverkið. Samkvæmt heimild-
um Fókuss mun sá vera Björgvln Franz Gísla-
son sem um þessar mundir er að Ijúka námi í
Leiklistarskólanum. Ef marka má foreldri hans
ætti hann auðveldlega að valda hlutverkinu,
hann er hvorki meira né minna en sonur Gísla
Rúnars Jónssonar og Eddu Björgvinsdóttur.
Uppselt
Tónleikaferð Sigur Rósar um Evrópu er nú haf-
in en fyrstu tónleikarnir voru á sunnudag í
Amsterdam. Undanfarna daga hafa drengirnir
kláraö Frakkland af og er stefnan nú tekin á
Spán og Portúgal. Fram undan er svo rúmur
mánuöur á ferðalagi því eftir Evróputúrinn
munu þeir renna yfir Bandarikin. Fókus hefur
fengið óljósar fréttir af ferðalaginu sem herma
að sala á tónleika sveitarinnar hafi gengið
framar vonum. Það sé reyndar svo komið að
uppselt sé á alla tónleikana. Við getum von-
andi staðfest þessi gleðitíðindi á næstunni.
Reinhardt Ágúst Reinhardtsson er veðurguð Þjóðleikhússins og hefur fengið viður-
nefnið „Rainman". Hann er maðurinn á bak við rigninguna í Syngjandi í rigningunni,
söngleiknum fræga sem nú er loksins kominn á stóra sviðið við Hverfisgötu og
verður frumsýndur í kvöld.
Reg
fékk
Reinhardt sviösstjóri er þrátt fyrir
viöurnefnið ekkert líkur Dustin
Hoffman og langt frá því að vera ein-
hverfur þótt hann blaði stundum í
símaskránni. Tíminn fyrir slíka iðju
hefur reyndar verið lítill undanfarið
því fyrir frumsýningar fer allt á
hvolf í leikhúsinu. Núna var ekki
brugðið út af vananum nema hvað
það varð allt rennblautt líka.
Syngjandi í rigningunni er ekki
bara fyrir veðurfræðinga og aðra
sem hafa gaman af umfjöllun um
veður. Reyndar gefur titiff verksins
nokkuð skakka mynd af söngleikn-
um þvi þetta er frekar sólrík sýning.
Það rignir bara tvisvar en þá er
verulegt úrhelli; hellirigning eins og
hún gerist best í útlöndum.
Síamstvíburar
Reinhardt segir að undirbúningur
fyrir votviðrið hafi hafist snemma í
mars.
„Við Snorri Björnsson höfum stað-
ið í stöðugum tilraunum á verkstæði
Sviðsmynda. Við höfum verið algjör-
ir síamstvíburar,11 segir Reinhardt
og ég kann ekki við að spyrja hvar
þeir tengist. „Við höfum veriö að
þróa kerfið, reynt að finna rétta
stúta og búnað. Þótt það séu til fln
úðunarkerfi þá er ekki um neina
venjulega rigningu að ræða.“
Endanlegar niðurstöður rann-
sókna og prófana eru atvinnuleynd-
armál. Þó er Reinhardt reiðubúinn
að deila því með alþýðu manna að
notaðir eru 110 metrar af vönduðum
garðslöngum, 36 kranar og 9 hausar
af bestu sort.
Fallegt og ungt fólk
Þeir sem héldu að leikhúsvinna
væri þægileg innivinna geta endur-
n maðurinn
OVIUSSLJUmm rLUlllllcllUL I
góðu félagi Vigdísar Gunnarsdóttur
og Þórunnar Lárusdóttur sem fara
með stór hlutverk í Syngjandi í
rigningunni. Reinhardt er í miðjunni.
kvef
skoðað hug
sinn því
Reinhardt
ofkældist í
stanslausri
rigningunni
og kvefaðist illa.
Hann lá í rúm
inu 1 þrjá daga
en reis síðan
upp og keypti
sér vandaða
regnflík. Vel
vatnsvarinn
fylgir Rein-
hardt sýn-
ingunni i
ánægjulegri
fæðingu.
R e i n -
hardt seg-
ist ein-
hvern tímann
hafa séð myndina
Singing in the Rain en
man lítið eftir henni.
„Söngleikurinn er
hins vegar virkilega
skemmtilegur. Það er
mikið af ungu, kornungu
og hressu fólki. Það kemur
mér alltaf á óvart hvað við
eigum mikið af fallegu og
hæfileikaríka fólki á öllum
sviðum."
Reinhardt ætlar ekki að
mæta í frumsýningarpartíið
að þessu sinni.
„Æ, ætli ég verði ekki bara
heima í hlýjum svefnpoka, heitur
og þurr,“ segir Reinhardt. „Sólar-
hringurinn hefur líka verið svo lang-
ur undanfarið að ég þyrfti ekki nema
eina malt til að lognast út af. Og ég
gæti deilt henni með hundinum.
Það eru milljón túristar á leiðinni til íslands. Dr.
Gunni spáir í hvem djöfulinn þeir vilja hingað.
Hver vill elska dvergþjóð
lengst úti í rassgati?
Þegar Björk mætti á Óskarinn í húðlitum jogging-
galla með dauðan stork latandi utan á sér fóru
þeir plebbalegu hjá sér og óskuðu þess að það
væri ekki alltaf verið að tönnlast á því að hún
væri íslensk. En auðvitað var þetta gott framtak
hjá Björk og hún veit hvað klukkan slær í ferða-
mannabransanum. Ef hún hefði verið í venjuleg-
um kjól og ekki skoriö sig svona úr myndu mun
færri koma til Islands í sumar. Það að Björk
mætti í dauöum stork á Óskarinn hefur meiri
áhrif en til dæmis allt havariið í kringum Lucky
Leif vitleysuna. Þótt utanríkisráðuneytið sendi
tuttugu og fimm vlkingaskip til viðbótar til New
York hefði það samt minni áhrif en kjóllinn henn-
ar Bjarkar.
Kók út um allt
Nú er okkur sagt að enn sé ferðamennskan á
uppleið á íslandi. Að bráðum getum við búist við
allt að milljón útlendingum í heimsókn á ári. Því
verðum við að spyrja: Hvers vegna koma útlend-
ingar í heimsókn til þessarar dvergþjóðar lengst
úti í rassgati? Til að svara þessu getum við litið
í eigin barm og spurt: Hvað vil ég fá út úr ferð-
inni minni þegar ég fer til útlanda? Nú segir þorri
þjóðarinnar annaðhvort: Að geta keypt fulit af
dóti í stærstu verslunarmiðstöð i heimi, eða: Að
liggja rorrandi fullur í sandi og sói. Það sjá allir
að okkar viðmið um ferðir til útlanda gilda ekki
yfir ferðamenn sem koma hingað. Við getum
ekki boðiö eriendum feröamönnum upp á sól-
bað á sandströnd og glætan að þeir muni flykk-
ist til Islands til þess eins að vafra eins og upp-
vakningar um Kringluna eða nýja Smárann. Nei,
ferðamenn sem koma hingað eru að sannreyna
glansmynd sem þeir eru með í hausnum. Ég er
sjálfur með hausinn fullan af svona glansmynd-
um af stöðum sem ég hef ekki komið til. Ef mér
tekst einhvern tímann að komast til Tahiti vil ég
ekki að það fýrsta sem ég rekst á þar sé fólk að
drekka kók og hlusta á Celine Dion, og ekki
myndi ég heldur vilja ganga beint inn í verslunar-
miöstöð sem væri alveg eins og Smárinn. Því
miður er þó líklegt að fólk í Britney Spears bol-
um að hesthúsa í sig úr Cheezy Pop-pokum verði
það fýrsta sem ég sé, en ekki hressir og stoltir
Pólýnesar með bein í gegnum nefið og berbjósta
yngismeyjar sem setja blómakrans um hálsinn á
mér. Ég er 200 árum of seinn því jafnvel þar, í
miðju Kyrrahafinu, er allt orðið eins og það er
alls staðar annars staðar, eða svona næstum
því.
Gömlu íslandsvinirnir
En hvaða glansmynd er þá fólkið sem kemur
hingað með í hausnum? Túristar á Islandi eru
aðailega af tveim ólikum sauðahúsum. Fyrst
skal telja „íslandsvinina" svokölluðu, en þessi
tegund af ferðafólki var sú eina sem kom hing-
að fyrr á árum. Þetta er lið sem á sér lítið líf
heima fyrir og hefur í staðinn legið yfir íslenskum
fornbókmenntum og látið sig dreyma lengi um
að koma hingað. Þetta er aðallega þýskt
mussulið sem kaupir i mesta lagi eina lopa-
peysu í ferðinni og stelur þess meira af sykur-
molum á kaffiteríum úti á landi. Þetta fólk kem-
ur hingað og býst við að sjá káta víkinga þeysa
niður Laugaveginn á hestum og síðskeggiaða
karla fara með vísur á götuhornum. Það fer því
fýlt heim þegar „alheimsþorpið" blasir við því,
nema það hafi verið svo heppiö að hitta á vík-
ingahátíðina í Hafnarfirði. Með þessu fólki má
flokka enn skrýtnara lið sem hefur áhuga á ís-
lenska hestinum og/eða hundinum. Hvað sem
meistari Guöni reynir að sannfæra okkur um að
heimurinn sé fullur af fólki með brennandi áhuga
á þessum furðukvikindum verður þetta alltaf al-
gör minnihlutahópur og eflaust verður hann
ailtaf fámennari en t.d. þeir sem hafa áhuga á
belgísku snjáldurmúsinni eða því aö safna kló-
settpappírsrúllum.
ísland, svaka kúl
Þessi gamla tegund af túristum verður eflaust
alltaf við lýði. Nýja tegundin sækir þó í sig veðr-
ið með hverju árinu og er að verða miklu fjöl-
mennari. Það er fólkið sem kemur hingað með
þann óljósa grun í farteskinu að hér sé allt ofsa-
lega kúl og hipp - „Kúl-landsvinina" mætti kalla
það. Þennan grun hefur fólkið fengið með því að
hlusta á Björk og Sigur Rós og með því að skoða
eitthvað af þessu lokkandi túristaefni sem boð-
ið er upp á. Ef ég vissi ekki betur myndi ég líka
halda að hér væri allt rosalega kúl og hipp eftir
að hafa lesið blöð eins og lceland Review og Atl-
antica. Þar snýr svala hliðin alltaf fram. Viðs
fjarri eru þessir endalausu íslensku melir og
móar og fólkið sem hangir i Kringlunni og er f
meirihluta á Islandi. Stundum hefur svo tekist
að gera eitthvað kúl sem er ekki kúl. Ég man t.d.
eftir Ijósmynd af pylsusjoppunni Fröken Reykja-
vfk og meira að segja sú hola, sem seint verður
talin mjög kúl í návígi, var kúl á þessari Ijós-
mynd. Páll Stefánsson Ijósmyndari og þessir
karlar eru ekkert annað en snillingar og ættu á
fá fálkaorðuna strax. Auðvitað er svo bara talað
við kúl fólk I þessum blöðum. Einu sinni var Gus
Gus i hverju tölublaði, en nú er meira talað við
hönnunarsysturnar Hrafnhildi og Báru, sem eru
hvað mest kúl í dag. Allir vita sem er að
alíslenskur plebbismi selur ekki *
sæti f Flugleiðavél. Þegar hingað
koma blaðamenn frá erlendum
blöðum, tímaritum eða sjón-
varpsstöðvum er dregin upp
sama mynd og lceland Revi-
ew og Atlantica draga upp.
Byrjað er á að spjalla við ein-
hvern kúlista sem er með putt-
ann á púlsi kúlsins, svo er farið f
tillasafnið og Bláa lónið, og punkt-
urinnyfiri-iðersvogóðkvöldstund f
á Kaffibarnum. Fólkið sem fellur
fýrir þessari mynd - Kúl-landsvin-
irnir - verða ekki fyrir vonbrigðum eins
lengi og þeir villast ekki út i úthverfin. Helst ætti
að reisa múr utan um 101 þvf ég er ansi hrædd-
ur um að glansmyndin yrði fljót að hrynja f Rúm-
fatalagernum.
The Swinging Reykjavik
Með fólkinu sem leitar að kúlinu flýtur svo hlið-
arhópur túrista: „Klof-landsvinirnir", getum við
kallað þá. Þessir gröðu karlar hafa séð annað
en kúlið út úr öllum þessum greinum um „The
Swinging Reykjavik". Þeir koma hingað til að
detta Iða og riðlast, því i greinunum er alltaf ýjað
Mun fleiri koma til íslands í sumar af því
Björk var í dauðum storki á Óskarnum.
að því að hér sé
auðvelt að fá sér á
broddinn - jafnvel
hægt að ná f kúl píu
sem er í hönnun, ef
heppnin er með. Þess-
ir karlar fara beint í
tillasafnið en hanga
*, svo bólgnir og.slef-
^ andi í pjásu-
holu og muna
mest Iftið eftir
ferðinni þegar
þeir mæta á
skrifstofuna í
Birmingham á
þriðjudagsmorg-
uninn. Ef það væri
bein í nefinu á Ferða-
málaráði myndi það beita
sér fýrir því að t.d. Fischers-
sund yrði gert að gleði-
götu, svona eins og Her-
bertsstrasse. Þetta er allt
á réttri leið, nú ætti bara
Club Clinton að fá styrk hjá
Borginni til að víkka starf-
semina út og taka yfir alla
götuna. Þá myndi gjaldeyris-
forði þjóðarinnar' stækka í
jöfnu hlutfalli við það sem
klofin glennast og kofinn sem
Sögufélagið er i núna fýliist af
fP» Olgum og Natösjum.
6
f Ó k U S 6. apríl 2001