Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Page 6
haf
?
Ali G hefur þvælst
milli landa og kom-
ið viðmælendum
sínum á óvart með
fáránlegum spurn-
ingum. Ali G verður
á RÚV næstu vik-
urnar og byrjar
annan maí.
Osvífinn
og ágengur
Margir hafa á ferðum sínum erlendis séð í
sjónvarpinu breskan gamanþátt sem nefnist
The Ali G Show og byggir á manni sem tekur
viötöl við frægt fólk og kemur því skemmtilega
á óvart með spurningum, látæði og móðgun-
um. Ali G hefur göngu sína í íslensku sjónvarpi
næsta miðvikudag klukkan 22.15 í ríkissjón-
varpinu sem hefur verið á fljúgandi siglingu í
aggresívu bresku grini síðustu vikurnar.
Til að sýna hverju áhorfendur geta átt von á
birtum við hér á engilsaxneskri tungu lítinn
viðtalsbút viö Elton John:
Ali G: Alo! I is ere wiv none uver dan da batty
boy of pop, John Elton. Respect.
Elton John: It’s Elton John actually Ali.
All G: Aiih, whatever. So John, is you always
been abattyboy cause lerd datyou woz once
married - although I also erd dat da missus
was mingin?
Elton John: Well Ali ifyou mean have I always
been gay then probably deep down I was but
maybe fought it because in my younger days
especially it was not socially acceptabie to be
gay'•
Ali G: Fer real, but when you was gettin’jiggy
did you fmk about people like James Dean
and that Jonny Rottweiler who was tarzan so
you wouldn ’t end up wiv a floppy or woz you
trisexual and didn ’t care where you was stick-
in' Mr biggy?
Elton John: Again I probably fought hard to
convince myself I wasn ‘t gay so I never had a
problem maintaining an erection with women.
I now know I am homosexual so I would
probably struggle to get aroused with a wom-
an now.
Ali G: Wow, I fmk I might be homosexual then
cause Mr Biggy wasn ‘t coming out to play last
Saturday night aithough ma Julie says it woz
coz I drank a bottle of Dan Jackiels and had
about 6 spliffs. I fink it woz coz me Julie isn’t
very subtractive now - in fact she's a dog.
Nú eru allir á fullu að skipuleggja sumarfríið sitt og langflesta dreymir um að koma
sér sem fyrst til fjarlægra landa. Það hafa þó ekki allir efni á því að sóla sig í út-
löndum og hér er hugmynd um hvernig megi skipuleggja sólarlandaferð án þess að
fara út úr húsinu.
Sumarfrí á innan
við þúsund kall
Suðræn veðrátta
Útvegaðu nokkrar 150 vatta ljósa-
perur og skiptu um allar perur í
íbúðinni nema í svefnherberginu.
Þetta framkallar skært ljós sem líkist
sterkri sólinni í útlöndum. Hækkaðu
vel í öllum ofnum svo íbúðin verði
hlý en hafðu þó svalahurðina opna
upp á gátt sem oftast svo loftið verði
ekki of þungt og þú getir andað. Hám-
aðu í þig gulrætur, en það hefur ver-
ið sagt að þær geri mann brúnan.
Gakktu um léttklæddur og með sól-
gleraugu.
Umhverfi
Um þetta leyti fyllist póstkassinn
daglega af ýmsum auglýsingabæk-
lingum frá ferðaskrifstofum og versl-
unum. Klipptu út myndir af fallegu,
léttklæddu fólki, sólarströndum og
framandi landslagi og veggfóðraðu öU
herbergin með þeim. Finndu ein-
hverja góða mynd af sólarströnd,
límdu hana á pappa, klipptu þetta til
svo þetta verði á stærð við póstkort
og skrifaðu á það: Ligg hér í makind-
um í sólinni, er alls ekki með heimþrá.
Sendu kortið á vinnustaðinn þinn.
150 vatta Ijósaperur:
8 x 217 = 1736 kr.
Gullfiskar: 3 x 350 = 1050 kr.
Neonfiskar: 7 x 150 = 1050 kr.
Froskur: 500 kr.
Léttvín: 3 x 1000 = 3000 kr.
Bjórkippa: 1000 kr.
Samtals: 8336 kr.
Ekki eru allir jafn heppnir og Ómar Konráðsson, eini nútímaferðalangurinn sem jafnast á við íslendingasagnahetjurnar.
Ómar kemst til útlanda. Fyrir þá sem þurfa að sitja heima er þessi grein nauðsynleg fyrir geðheilsuna.
Farðu í næsta sandkassa og mokaðu
sandi ofan í fótu. Farðu á laun að
kvöldi tU en ef einhver stendur þig að
verki skaltu bera það fyrir þig að þú
borgir þína skatta og eigir því jafn-
mikið ef ekki meira í sandinum en
börnin.
Sólarströnd á baðinu
Kauptu þér þrjá gullfiska, sjö
neonfiska og einn frosk i gælu-
dýraverslun. Fáðu upplýsingar um
hvert hitastig vatnsins á að vera til
að dýrin lifi af, hvað þau éta og svo
framvegis. Farðu heim, stráðu sandi í
botnin á baðkarinu og fylltu það af
vatni. Klipptu af nokkrum plöntum í
stofunni og láttu þær fljóta í baðinu.
Slepptu svo fiskunum og froskinum
ofan i. Loks skaltu þekja baðherberg-
isgólfið með 20-25 sentímetra lagi af
mjúkum sandi. Baðherbergið þitt er
nú orðið að strönd þar sem þú getur
buslað meö framandi fiskum og legið
í sandinum undir 150 vatta ljósaper-
unni.
Djammið
Breyttu stofunni í diskótek a la út-
lönd. Stráðu sandi á gólfið, slökktu öll
ljós og spilaðu tónlist frá árinu 1994.
Bjóddu ókunnugu fólki (til dæmis sem
þú kynnist á Netinu) í heimsókn til að
dansa með þér og biddu það um að
skiptast á að slökkva og kveikja í loft-
inu til að búa til diskóljós. Kauptu 3
flöskur af ódýru léttvíni og eina kippu
af bjór sem þú hefur aldrei bragðað
áður. Farðu svo í miðnæturbusl með
froskinum og co í „sjónum“.
Svefnherbergið
Breyttu herberginu þínu i týpiskt
hótelherbergi í útlöndum. Límdu
miða utan á dyrnar með númerinu
237 og fáðu þér lykla að herberginu
sem þú festir sama númer á. Losaðu
þig við sængina og notaðu aðeins lak
til að breiða yfir þig. Settu alla per-
sónulega muni i geymslu og láttu að-
eins simaskrá og biblíu liggja frammi.
Fáðu vin þinn til að segja alltaf rúm
sörviss þegar þú hringir í gemsann
hans.
Kapítalisminn hefur sigrað og nú og að eilifu verður allt og all-
ir til sölu. Til hamingju með það, segir dr. Gunni.
erum öll hórur
Góður vinur minn, sem er jafnvel enn yngri en
ég, fór alveg yfirum um daginn þegar hann sá
auglýsinguna frá Íslandssíma um eitthvert nýtt
símakort. í stað þess að froðufella af gleði yfir
snilldinni og fá sér kort þegar í staö hafði aug-
lýsingin þveröfug áhrif. Nokkru áður hafði Is-
landssími lætt inn á hann þjónustu sinni með
gylliþoðum, en nú var vinurinn sjóðandi fúll og
hringdi til að slíta öllum viðskiptum við fyrir-
tækið. Honum fannst auglýsingin svona lika
viöbjóðsleg og gat ekki hugsað sér aö styðja
málstaðinn.
Brosa og glenna
Svona, svona, sagöi ég og stríddi honum meö
því að herma eftir gamalli nöldurskjóðu að
hringja í Þjóðarsálina. En honum varð ekki
haggað og sagði mér svo sigursæll seinna aö
hann hefði frétt að margir aðrir hefðu gert það
sama og hann. Nú er vini mínum vorkunn,
hann á börn og svona og er orðinn ægilega
settlegur. Sjálfur hefði ég aldrei brugðist svona
viö, því þessi blessuð auglýsing er ekki
sjokkerandi I mínum huga. Hún er aðallega
hallærisleg. Þarna er gaurinn með kambinn
enn og aftur að sýna sér á skaufann (það hef-
ur örugglega ekki þurft aö borga honum), ein-
hverjar Manson-gærur að ærslast, Jón Mýrdal
á delanum og svo er það sjálfur hardkor-Tarfur-
inn sem slummar framan í áhorfendur og veif-
ar vörunni. Vá, voða er þetta á brúninni, mað-
ur. Hvar fær maöur svona kort?
Reyndar ætti ég ekki að vera að auglýsa þessa
auglýsingu, nóga athygli hefur hún fengiö í
þáttum á SkjáEinum, en samt; þó hún sé hall-
ærisleg og ekki frumleg eða ögrandi (nema fyr-
ir barnafólk eins og vin minn), er hún gott
dæmi um þá staðreynd sem við sitjum uppi
með: Kapítalisminn hefur sigrað og það er ekk-
ert hægt að gera annaö en að brosa og glenna
upp klofið, annaðhvort í líkamlegum eða and-
legum skilningi. Við erum óll oröin hórur og
ættum að fara okkur varlega í aö dissa stelp-
urnar á pjásukössunum. Nákvæmlega allt ertil
sölu, jafnvel það sem á að vera ögrandi, nýtt
og ferskt. Og þá blasir það augljósa við: Ekkert
er lengur ögrandi, nýtt eöa ferskt, nema
kannski í mesta lagi rámirgamlingjarfrá Kúbu,
sem þó eru gefnir út af stórfyrirtæki og seldir
eins og hvert annað kjarnfóður.
Varla er neitt gert lengur nema hægt sé að
græða á því - „Hvað fæ ég út úr því?“ spyrja
allir og kjammsa á aðalorðinu í dag: Ég, ég, ég.
Síðasta vígið Megas
Það gerist þó alltaf að tímarnir breytast, sem
betur fer, og einhvern tímann fær fólk leiða á
pirrandi verömiðunum sem lafa á öllu og öllum
í dag. Allt breytist. Eöa getur einhver ímyndað
sér auglýsingu svipaðri þessari frá síma-
kompaníinu fara I loftið árið 1982? Bubbi
Morthens að veifa göndlinum fyrir Alþýðubank-
ann? Steinþór f Fræbbblunum að slumma
framan í okkur í boði Spur? Bjarni móhíkani að
sparka Ellý í Q4U út í tjörn til að kynna nýjan
matseðil á Kokkhúsinu? Nei, auðvitað ekki.
Sigur kapítalismans var enn tvísýnn þá og ungt
fólk hafði smá-attitjúd, smá-sjálfsvirðingu og
geröi ekki hvað sem var fyrir peninga. Kannski
sé ég þó þetta tímabil bara í skókku Ijósi.
Kannski buðust bara ekki tækifæri til að selja
sig. Engum datt í hug að selja út á þetta „jaö-
ar"-fólk, enginn kom auga á markhópinn.
Nú gera flestir flest fyrir rétta prísinn: Johnny
National sér um skemmtiatriðin hjá deCode,
Quarashi rappa og rokka í kokkteilpartíum
Wathne-systra, Hallgrimur Helgason sér um
sprellið í Versló. Það eru helst alvöru lista-
menn/steintröll eins og Megas sem taka ekki
þátt í hóririinu. Þó veit ég að Megas hefur feng-
ið fjölmörg tækifæri til að selja á sér rassgat-
ið, t.d. verið boðiö mörg hundruð þúsund fyrir
að nota Reykjavíkumætur í auglýsingum Flug-
leiða, en nei; alltaf þvert nei. Þegar þú sérö
eða heyrir Megas í auglýsingu geturðu því ver-
ið alveg viss um að síöasta vígið er fallið og
kapitalisminn er endanlega búinn að æla sér
yfir aulaeyjuna okkar.
Tíðarandinn Eyþór
Sjálfur aöaldúddinn hjá símakompaníinu,
hann Eyþór Arnalds, hefði ekki heldur auglýst á
sér rassgatið 1982. Þá var normið aö vera
reiður og ungur, og því var Eyþór reiður og rót-
tækur, fjölritaði kjaftfort anarkistablað og boð-
aði byltingu.
Um daginn var hann i Skotsilfri á Skjánum.
Sama dag var Egill Helgason að reyna aö kryfja
tíðarandann í sínum þætti. Ekki hefði þurft að
leita svona langt yfir skammt því svarið var að
finna I Skotsilfri. Spyrillinn staðhæfði að margt
ungt fólk liti upp til Eyþórs og vildi vera í hans
sporum í lífinu; hvort hann ætti einhver ráð í
pokahorninu fyrir þetta unga fólk á uppleið?
Gamli anarkistinn og sellóleikarinn strauk á
sér ístruna og bindið og kom svo með nokkur
hollráð fyrir unga fólkið.
Hvaða grin er nú þetta? Áriö 2001 og ungt fólk
vill verða eins og Eyþór Arnalds? Þessi fullyrö-
ing hefði kannski meikaö einhvern sens á síö-
ustu öld en nú er þetta svona álika og Albert
Guðmundsson hefði verið spuröur árið 1982
hvort hann ætti einhver ráö fyrir allt unga fólk-
ið sem dreymdi um aö verða eins og hann.
Maður gæti því spurt: Er ungt fólk upp til hópa
slefandi hálfvitar í dag? Eru þetta allt heimskir
rasistar á E blaðrandi í gemsa? Er tómhyggjan
og græðgin alveg búin að taka völdin? Er allt
að fara til fjandans eða er ég bara að verða
gamall?
P.S. Titill þessa skika er sóttur til ensku hljóm-
sveitarinnarThe Pop Group sem söng: „We are
all prostitutes, everyone has their price" í
kringum 1980. Mér fannst þetta sniðug lína þá
(og hún hefur öðlast dýpri merkingu í dag) og
lét bróöir minn kaupa bol með spekinni þegar
hann fór til London. Á bolnum var líka mynd af
Magreti Thatcher. Ég ætlaði aö vera svaka
ögrandi og fara í þessum bol í vinnuna, en þá
var ég gjaldkerl í Landsbankanum. Auðvitað
þorði ég það aldrei.
6
f Ó k U S 27. april 2001