Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001 Fréttir DV og Visir.is fengu þrenn verðlaun á auglýsingahátíð í Bandaríkjunum: „ Þú færð það óþveg- ið“ fékk verðlaun ^ Stuttmyndadagar í Reykjavík: BSI besta stuttmyndin Kvikmyndahátíðinni Stutt- myndadögum í Reykjavík lauk með verðlaunaafhendingu i fyrra- kvöld. Hátíðin þótti takast mjög vel að þessu sinni enda var miklu tjaldað til, meðal annars keppt í erlendum flokki stuttmynda. Dómnefnd átti úr vöndu að ráða en þegar upp var staðið var það BSÍ eftir Þorgeir Guðmundsson sem valin var besta myndin. í heildina tók BSÍ þrenn verðlaun, bronsskreiðina fyrir bestu inn- lendu myndina, verðlaun frá Reykjavíkurborg og DV-áhorf- endaverðlaunin, valin af áhorf- endum. Helena Jónsdóttir og Hálfdán Teódórsson fengu önnur verðlaun fyrir Rauðar rútur og Haukur Már Helgason hlaut þriðju verðlaun. Rejected eftir Don Hertzfeltd fékk bronskreiðina fyrir bestu er- lendu myndina og Jóhann Sig- marsson fékk sérstaka viður- kenningu frá Birni Bjarnasyni menntamálaráöherra fyrir störf sín sem stjórnandi og stofnandi hátíðarinnar. Dómnefnd skipuðu Ólafur H. Torfason, Árni Finns- son og Óskar Jónasson. -HK DV-MYND EINAR ÖRN Þorgeir Guðmundsson með bronskreiðina Fékk verölaun fyrir bestu stuttmynd- ina, BSÍ, áhorfendaverðlaunin og verötaun frá Reykjavíkurborg. - skapandi Fókus-auglýsing orsakaði helmingsaukningu í áskrift 20-25 ára Frá verðlaunaafhendingunni í San Francisco Auöur Guömundsdóttir, markaösstjóri DV, meö verölaunin. Til hægrí er Frits Lahnstein, forseti alþjóöasamtaka markaösfólks á dagblööum, en til vinstri er Dennis O'Neil, ritstjóri tímaritsins Editor & Publisher. Hér var um að ræða sjónvarps- og dagblaðaauglýsingar fyrir Frétta- vefinn, íþróttavefinn, Krakkavef- inn og Fókusvefinn. Efni úr DV er notað á öllum þessum vefjum. Vísisherferðin var unnin af aug- lýsingastofunni Mátturinn og dýrðin í samstarfi við Labrador. „Þetta hafði sérstök áhrif á okk- ur,“ sagði dómnefndin um auglýs- ingaherferð Visir.is. Morgunblaðið fékk ein verð- laun á hátiðinni í flokki almannatengsla. Þær auglýsingar sem voru verðlaunaðar verða birtar í bók- inni „Best in Print“ og „Best in Print TV“ sem dreift er viða um heim. Auður Björk, markaðsstjóri DV, segir að verðlaunin séu mik- il viðurkenning enda hafi ekkert dagblað tekið við eins mörgum verðlaunum á hátíðinni. -Ótt DV og Visir.is hlutu þrenn verð- laun i auglýsingasamkeppni í San Francisco á vegum Alþjóðasamtaka markaðsfólks á dagblöðum og tíma- ritsins Editor & Publisher. Auður Björk Guðmundsdóttir, markaðs- stjóri DV, veitti verðlaununum við- töku á heimsþingi International Newspaper Marketing Association í Kaliforníu þar sem fulltrúar 32 landa voru saman komnir. Valið hafði verið úr 1.300 auglýsingum. Auglýsingaherferðin „Þú færð það óþvegið á föstudaginn" frá mars 2000 þar sem athygli var vak- in á Fókus sem beinskeyttu og skemmtilegu blaði hlaut bæði 1. verðlaun í flokki dagblaðaauglýs- inga og 1. verðlaun í flokki út- sends auglýsingaefnis. Herferð- in, sem unnin var af auglýs- ingastofunni Fíton, vakti mikla athygli og umtal. Bréf saman- sett úr úrklipptum stöfum sem mynduðu framangreinda setn- ingu var sent til fólks á aldrin- um 18-30 ára á landinu. Mark- mið auglýsingarinnar var að vekja athygli hópsins á Fókus sem ómissandi þætti í lífi ungs fólks sem vill fylgjast með því helsta sem er að gerast þeirra á meðal meö þvi að fá blaðið með DV í áskrift. Daginn eftir að bréfið var sent unga fólkinu fékk það Fókus inn- pakkaðan í plasti ásamt bréfi og því síðan fylgt eftir með auglýsingum í þfi f®zð ** Ó þvegí® Þ.eS'ar VI* k°“U» ‘á f'Ö 2 tU'Da°Í"" dagblöðum og á strætis- vögnum. „Þetta er mjög skapandi og sýnir hinn sanna grasrótaranda," sagði dómnefndin í San Francisco um Fókusauglýs- inguna. Eftir að herferðin fór af stað jókst lestur aldurshóps- ins 20-25 ára úr 39 prósentum upp í tæp 53 prósent. Fjölgun áskrifenda í meginmarkhópi Fók- uss, 20-25 ára, jókst um helming, úr 11,7 prósentum upp í 23,3 prósent. Visir.is „hafði sérstök áhrif“ á dómnefnd Auglýsingaherferð Visir.is hlaut einnig 1. verðlaun í flokkn- um „On line services" fyrir DV. Veitir ekki af samkeppni „Ég fagna að sjálfsögðu nýjum aðilum á trygginga- markaði. Þeir bjóða væntanlega heim þeim möguleika að samkeppni aukist á þessum markaði og veitir kannski ekki af,“ segir Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB, um nýtt tryggingafélag, íslands- tryggingu, sem tekur væntanlega til starfa innan skamms. Runólfur segir íslandstryggingu á engan hátt tengjast FÍB, enda hafi félagið hvorki lagt fram fé né komið að stofnun hins nýja tryggingafé- lags. Hann kveðst binda vonir við að nýja félagið bjóði hagstæðar tryggingar enda hafi verölag á ið- gjöldum farið upp á við á síðustu misserum. „Það hefur sýnt sig að sá valkost- ur sem við vorum með á boðstólum datt af markaði og þá hefur verðlag á iðgjöldum stóru tryggingafélag- anna hækkað til muna. FÍB-trygg- ing er enn til í grunninn en eftir að útlendingar hættu að vátryggja okk- ur þá stöðvuðust endurtryggingar og eins er ekki hægt að taka við ný- tryggingum. Hvaða leið nýja félagið fer er enn óljóst en vonandi hleypir það nýju lífi í þennan markað," seg- ir Runólfur Ólafsson. -aþ Runólfur Ólafsson. Kortavæðingin: Kreditkortum að fækka Fjöldi kreditkorta í umferð náði hámarki í september í fyrra, í tæp- lega 192.700 kortum. í janúar sl. hafði kortafjöldinn raunar verið nokkurn veginn sá sami í hálft ár, eða frá því í ágúst í fyrra, sam- kvæmt hagtölum Seðlabankans. En í febrúar fækkaði kreditkortum í umferð síðan talsvert. Talsmenn Visa þvertóku fyrir að „kortaklipp- ir“ kæmi þar við sögu, heldur hafi verið tekin út kort sem hætt var að nota. Nú í marslok voru álíka mörg Visakort í umferð og í janúar 2000, um 126.600 kort. Debetkortum er hins vegar enn að fjölga umtalsvert þótt yfir 300.000 slík séu í umferð. Og kortaveltan er enn að aukast. Árið 2000 veltu landsmenn nær 410 milljörðum króna gegnum kortin sín, þ.e. 1.450 þús. kr. á mann eða um 5,8 milljónum að meöaltali á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Þar af var 276.000 kr. eytt erlendis. -hei Vi;ArlA i kviilil Sol.irKíiiijíur oji sj.ivarfoll Aáníi RtYKJAVIK Hlýtt á Norður- og Vesturlandi Noröaustan 5 til 10 m/s en 10 til 15 á Vestfjörðum. Dálítil rigning eða súld meö köflum, einkum sunnanlands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast til landsins á Noröur- og Vesturlandi. SBSiœsÆ Júnímánuður nálgast Júnímánuöur er á næsta leiti því þaö er ekki nema rúm vika eftir af maímánuöi. Þaö er því um aö gera að njóta þess aö vera úti þegar fer aö hlýna og sólin aö skína. Þá er upplagt aö fara í gönguferö, skella sér í sund eöa jafnvel í nestisferð í sveitina. Sólarlag í kvöld 23.13 23.28 Sólarupprás á morgun 03.36 02.51 Síódegisflóö 20.52 01.25 Árdegisflóó á morgun 09.23 13.56 Skýringar á ve&urtáknum ^VINDÁTT 10 °4— HITI -10° SVINDSTYRKUR VnjnsT i njetrtim á twkúndu ^ 1 O LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ V,, Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA /S? ÉUASANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR HEIOSKlRT Lítils háttar Hgning á Suðuriandi Austlæg átt, 5 til 10 m/s. Lítils háttar rigning sunnan- og austanlands en skýjaö meö köflum og þurrt norövestan til. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast vestanlands. !W>*!il!ílií|?U Vindur: ^ 5-10 m/s Hiti 6° «1 15” l.»i irtHi<!;iíí|ir Vindur: /* 5-15 m/s Hiti 5° tii 15' Austlæg átt, 5 tll 10 m/s. Utlls háttar rignlng sunnan- og austanlands en skýjaó meó köflum og þurrt norövestan til. Hlti 6 tll 15 stlg. NA-átt og rignlng austan- og noröanlands en víöa bjart veöur suövestan tll. Hltl 5 til 15 stlg, hlýjast suövestanlands. Fremur hæg norölæg átt. Slydduél eöa skúrir noröaustanlands en súld eöa rignlng suöaustan til. Annars viöa bjartviöri. Heldur kólnandi. Veðrift kl. 12 AKUREYRI skýjaö 8 BERGS5TAÐIR skýjað 9 BOLUNGARVÍK skýjaö 7 EGILSSTAÐIR 9 KIRKJUBÆJARKL. rigning 9 KEFLAVÍK skýjaö 10 RAUFARHÖFN alskýjað 5 REYKJAVÍK skýjaö 12 STÓRHÖFÐI rigning 8 BERGEN skýjaö 12 HELSINKI úrkoma 6 KAUPMANNAHOFN skýjaö 15 ÓSLÓ léttskýjaö 15 STOKKHÓLMUR 12 ÞÓRSHÖFN þoka 9 ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjaö 9 ALGARVE léttskýjað 25 AMSTERDAM léttskýjaö 20 BARCELONA mistur 21 BERLÍN léttskýjaö 21 CHICAGO þokumóöa 9 DUBLIN þokumóöa 18 HALIFAX léttskýjaö 9 FRANKFURT léttskýjaö 24 HAMBORG léttskýjaö 18 JAN MAYEN súld 1 LONDON skýjaö 17 LÚXEMBORG léttskýjað 24 MALLORCA léttskýjaö 24 MONTREAL 17 NARSSARSSUAQ hálfskýjaö 5 NEW YORK súld 13 ORLANDO skýjaö 22 PARÍS léttskýjaö 25 VÍN skýjaö 26 WASHINGTON alskýjaö 17 WINNIPEG skýjaö 8 Mnmzxnjzæzm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.