Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Qupperneq 9
9
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001
DV Fréttir
Dýpkunarframkvæmdir við Hornafjarðarhöfn:
Fuglaáhugamenn mótmæla
- segja að þær raski lífríkinu
Félag fuglaáhugamanna á Horna-
flrði hefur sent mótmæli til bæjar-
ráðs og bæjarstjórnarmanna en
einnig til umhverfisnefndar Horna-
fjarðar þar sem mótmælt er fyrir-
huguðum framkvæmdum við dæl-
ingu úr Hornafjarðarhöfn yfir í Síla-
vík.
Félagið telur að með þeirri fram-
kvæmd verði lífríki Sílavíkur og án-
ingarstaður tugþúsunda vaðfugla á
farleiðum milli sumar- og vetrar-
stöðva eyðilagður. í bréfi fuglaá-
hugamanna segir að á nýsamþykktu
aðalskipulagi fyrir sveitarfélagið
Dýpkunarpramminn Soffía er tilbúinn til dæl-
ingar og veriö er að undirbúa Björn lóös og
Ásgrím Halldórsson til veiöa.
Hornafjörð sé dregin lína
þvert yfir Sílavíkina þar
sem fyrirhugað er að fylla
upp, en með þvi að dæla
óheft (án varnargarðs)
mun efni berast langt út
fyrir þá línu og valda mikl-
um skaða á lífríkinu. Félag
fuglaáhugamanna fer fram
á að fyrirhugaðar fram-
kvæmdir verði stöðvaðar
og bæjarstjórn skoði aðra
möguleika en þá að dæla
yfir í Sílavik og eyðileggja
með því lífríki hennar.
Torfi Friðfinnsson hjá Horna-
íjarðarhöfn segir að ekki verði byrj-
að að dæla upp úr höfninni fyrr en
þessi mál verði komin á hreint og
tilskilin leyfi fengin. Umhverfis-
nefnd væri með þetta í skoðun og á
meðan væri ekkert hægt að gera.
Árlega er dælt 25 þúsund rúmmetr-
um efnis úr höfninni og að þessu
sinni verður mest dælt austan
Álaugaeyjar svo hægt sé að snúa
þar stórum skipum. Á þessu um-
rædda svæði er skipulögð byggð
samkvæmt aðalskipulagi bæjarins.
-JI
Vilhjálmur Egilsson undan feldinum:
Stefnir á áframhaldandi þingmennsku
- margir munu bítast um þingsætin í nýju kjordæmi
DV, SAUDÁRKRÓKI:
Vilhjálmur Egilsson alþingismaður
hefur ákveðið að stefha að áframhald-
andi þingmennsku í nýju sameinuðu
kjördæmi, Norðvesturkjördæmi.
Nokkur óvissa hefur verið um það
hvort Vilhjáimur mundi halda áfram í
pólitíkinni og tók hann veturinn til að
„liggja undir feldi“ eins og félagar
hans orðuðu það og huga að framtíð-
inni í þessum efnum.
Um þessar mundir eru 10 ár frá því
Vilhjálmur var fyrst kjörinn á þing og
stóð hann af því tilefni fyrir spástefnu
á Króknum fyrir helgina, þar sem 10
valinkunnir menn brugðu sér í spá-
mannsgervið og reyndu að gera sér
grein fyrir því hvemig staðan yrði á
Norðurlandi að tíu árum liðnum.
„Ég var mjög ánægður með hvemig
til tókst. Þama komu fram mörg mis-
Vilhjálmur Sturla
Egilsson. Böövarsson.
munandi sjónarmið eins og búist var
við, enda var ekki verið að leita þama
eftir neinum stórasannleik," sagði Vil-
hjálmur um spástefnuna og hann
kvaðst vonast til að sú margvíslega
mynd sem hún brá upp mundi nýtast
bæði sér og öðrum á næstu árum.
Framboðsmál komu ekki til tals á
spástefnunni, hvorki Vilhjálms né
■----
Einar Oddur .Einar Kr.
Kristjánsson. Guöfinnsson
annarra en svo vikið sé að þeim þá
mun nánast ekkert vera farið að ræða
það enn hvemig staðið verði að upp-
röðun á lista, hvorki hjá sjálfstæðis-
mönnum né öðrum flokkum í norð-
vesturkjördæmi, enda mitt kjörtímabO
nú og því nægur tími. Hvorki Vil-
hjálmur né aðrir þingmannskandídat-
ar em því með tryggt sæti á listanum
en Vilhjálmur er vongóður um að ná
kjöri til þings.
Miðað við 10 þingmenn í kjördæm-
inu, níu kjöma og eitt uppbótarsæti, á
Sjálfstæðisflokkurinn trúlega mögu-
leika á þremur tii fjórum mönnum.
Um þau sæti munu auk Vilhjálms að
líkindum bítast núverandi þingmenn,
Sturla Böðvarsson, ráðherra af Vestur-
landi, sem telja verður líklegt að muni
leiða listann og Guðjón Guðmundsson,
einnig af Vesturlandi eða einhver nýr
kandídat. Telja verður líklegt að kona
eða konur muni blanda sér í barátt-
una, hvort sem þær koma af Vestur-
landi eða öðrum svæðum. Á Vestfjörö-
um em síðan fyrir nafnamir Einar Kr.
Guðfmnsson og Einar Oddur Krist-
jánsson, þannig að nógir verða um hit-
una -ÞÁ
DV-MYND GUÐFiNNUR RNNBOGASON.
Boröeyringar fagna
Á þessari mynd af Boröeyri og Borö-
eyringum er 150 ára verstunaraf-
mæli á þessum merka staö fagnaö.
Nú viröist Ijóst aö skólahald veröur
tekiö upp aö nýju á staönum.
Skólahald á
ný á Borðeyri
DV, STRANDASYSLU:
Meiri líkur en minni eru á því að
skólahald hefjist að nýju á Borðeyri
á hausti komanda en það lagðist af
tímabundið fyrir fáum árum vegna
nemendafæðar en frá þeim tíma
hafa nánast orðið kynslóðaskipti.
„Við höfum verið svo lánsamir að
ungt fólk hefur tekið við á mörgum
bæjum í sveitinni," segir Sæmund-
ur Gunnar Benónýsson, oddviti
Bæjarhrepps.
Nýverið samþykkti sveitarstjórn
að auglýsa eftir skólastjóra fyrir
næsta skólaár. Það sem öðru fremur
ýtir undir stefnubreytingu hvað
þetta varðar er að skólahald leggst
af á Reykjum á þessu vori en þang-
að hafa börn úr Bæjarhreppi sótt
skóla hin allra síðustu ár og einnig
að Laugabakka. Lagt er upp með að
1,- 3. bekkur sæki skóla að Borðeyri
en eldri nemendur sæki í austurveg
f í skóla í Húnaþingi vestra. Rúmgóð
húsakynni eru til skólahalds á
Borðeyri sem vel er haldið við. Á
síðasta sumri fannst við borun heitt
vatn við bæinn Laugarholt, skammt
frá Borðeyri, þegar frá líður getur
| það orðið kauptúninu og byggðinni
s allri auðsuppspretta. -GF
■mRpiiMsíMmw
Fullt VERÐ FYRÍR FULLDRÐNA 890 KR
'ENDUR PURFA AO SÆKJA AFSLATTARMIOA A SYNjNGUNA I
STUVEW DV AO ÞVERHDLTI 1 1 .
SM! ÞJÓNUSTUVERS ER EFTIRFARANDÍ:
JR KL. 8.00-20.00, LAUGARDAGUR KL. B.OQ - 14.00
NNU DAGUR KL.16.0Q-22.00
24. - 27. MAÍ
BILASYNING.COM