Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001 J3V var komið aldrei hafa fundið fyr- ir neinum aldursmun þótt hún væri réttri kynslóð á undan flest- um skólafélögum sínum. Félagar hennar í málaradeiid fóru fljót- lega i Kolaportið og snuðruðu uppi gömlu plöturnar með henni og allir hlustuðu saman á Gerði G. Bjarklind á Rás eitt á föstudög- um með óskalög eldri borgara. „Það er mikil nostalgía í gangi og stundum fannst mér þau jafn gamaldags og ég.“ Málaöi úrelta hluti Lokaverkefni Þuríðar á út- skriftarsýningu Listaháskólans snerist að vissu leyti í kringum þessa eftirsjá eða nostalgíu því það fólst i þvi að hún málaði fjöl- margar myndir af hlutum sem áttu það sameiginlegt að hafa lok- ið upprunalegu hlutverki sínu; vera orðnir úreltir. Þetta eru heimilistæki, hreingerninga- áhöld, ílát en einnig hljómplötur og ýmis tæki til daglegra þarfa og reyndar ekki öll eins gömul og ætla mætti. „Kannski var það vistin i Laug- arnesi sem vísaði mér til fortíðar þvi mér fannst ég vera komin á heimaslóðir aftur í vissum skiln- ingi. Ég málaði allar myndir með hlutina sjálfa að fyrirmynd og þegar ég fór að handleika þá rifj- uðust upp minningabrot sem tengdust þeim.“ Meðal hlutanna sem voru myndir af á sýningunni voru hlutir sem minna meira á nútím- ann, eins og farsími og dömu- bindi. „Hvort tveggja féll undir skil- greininguna að hafa lokið hlut- verki sínu svo mér fannst eðlilegt að hafa þessa tvo hluti með.“ Upprifjun minninga varð til þess að Þuríöur setti saman litla bók með nokkrum textabrotum sem varð hluti sýningarinnar. Brotin tengjast hlutunum sem myndirnar eru af og Þuríður seg- ist líta á þau sem myndir líka. „Orðið hugmynd felur í sér mynd og ég hugsa alltaf í mynd- um og textinn í bókinni er líka í myndum.“ Stefni á sýningu - En hvaö tekur nú við hjá ný- útskrifuðum listamanni? „Ég fékk mjög góðar undirtekt- ir á útskriftarsýningunni og seldi nokkrar myndir. Ég er núna í verkefni í Þorlákshöfn ásamt Markúsi Andréssyni og Ólafi Breiðfjörð, skólabræðrum mín- um. Þetta er hluti verkefnis sem heitir Hringferð en það felst í því að vinna list, tengda staðnum, og er skipulagt af nemendum skól- ans. Það leggst mjög vel í mig. Síðan er ég byrjuð að mála á sýningu sem ég ætla að halda þeg- ar skammdegið er hvað dimmast í vetur. Þar er ég að fást við blóm og hlutverk þeirra og hvernig við litum á náttúruna. Við grátum af gleði yfir sóleyjum og fiflum úti í haganum á vorin en slítum þessi sömu blóm upp af fullkomnu mis- kunnarleysi í görðunum okkar því þar eru þau illgresi. Síðan dreymir mig um að fara og ljúka mastersnámi. Hvernig það verður er óljóst enn en hver veit nema hluta þess verði hægt að taka hér heima. Það er erfitt fyrir fullorðið fólk með fjölskyldu að fara til náms erlendis." Sungiö fyrir striga Þuríður segist í raun alltaf hafa viljað starfa ein utan sviðsljóssins og segist í raun vera feimin og ekki kunna við sviðsljósið. Það er erfitt að trúa því eftir að hafa séð hana á sviði og á sjónvarpsskján- um þar sem hún starfaði sem þula um hríð. „Þá rifjaðist upp fyrir mér hvað ég kunni í raun illa við að vera í svona áberandi starfi. Þetta var orðið ágætt, fólk var hætt að þekkja mig, en svo kom það aftur þegar ég var í sjónvarpinu. En maður bregður sér í hlutverk. Það gera allir.“ Þuríður segist ekki vera hætt að syngja þótt margir virðist halda það. „Ég hef verið að syngja fyrir striga allan tímann sem ég hef verið í skólanum. Ég syng eink- um á árshátíðum, þorrablótum og í einkasamkvæmum og við leik- um tónlist við allra hæfi.“ Að lokum rifjum við saman upp nokkur lög sem Þuríður gerði vin- sæl á ferli sínum sem dægurlaga- söngkona og reynum að ráða í það hvert þeirra lýsi henni best. Hún segir að: Ég ann þér enn sé alltaf hennar uppáhaldslag. Mér finnst lagið: Ég á mig sjálf, eiga mun betur við hana. Það er Þurið- ur. -PÁÁ Brot úr bók Þuríðar Lítum á nokkur brot úr bókinni Ágrip eftir Þuriði Sigurðardóttur: ... tíu ára, með boðskortið í rassvasanum. Sýningin var í Bogasal Þjóðminjasafnsins og ég fylltist lotningu. Allir svo flnir og eftirvænting í loftinu. Ég hafði að- eins skoðað fáein málverk þegar ég var rekin út... ... það var eitthvað lítið um pen- inga. Fötin mín og niðurbrett stíg- vélin féllu ekki í kramið. Ég fékk að finna fyrir því. Þá ákvað ég einn skóladaginn að fara til Glas- gow og Edinborgar. Enginn af mínum nánustu hafði farið til út- Helgarblað landa og því þótti þetta hálfgerð firra. Mér tókst að safna fyrir ferðinni um sumarið, fór utan um haustið, eyddi allri hýrunni og fyllti þrjár ferðatöskur af „Sixtie’s“-hátiskufatnaöi. Þær stríddu mér ekki eftir það... ... í afmælinu hans pabba var maður sem átti fataverksmiðju. Hann sagðist ætla að gefa mér rauða úlpu með skinnkanti á hett- unni. Mikið hlakkaði ég til. Hann kom oft eftir það ... ... Valgerður, sagði þá maður- inn. „Ég er enginn asni.“ 17 Uvorpool- tr&yjur Liverpool-treyjurnar loksins komnar. Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 www.mitre.com , GEFDU Þ É R g ó ) <i n T í M A ÞAR SEM E R ÓDÝRARA A D VERSLA FLUGSTÓÐ LEIFS EIRIKSSONAR -gefðu þér góðan tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.