Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Síða 22
22 Helgarblað LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001 I>V Blóðugt uppgjör hjóna: Löggan vissi hvernig fela átti slóðina Daniel „Danny“ Evans hafði ver- ið lögreglumaður í átta ár. Starííð átti hug hans allan en hann tók þó jafnframt þátt í starfsemi áhuga- mannaleikhóps i bænum Carlisle í Englandi viö landamæri Skotlands þar sem hann bjó. Michelle, eigin- kona Daniels, tók einnig þátt i leik- hússtarfinu en hún var augsýnilega meiri hæfileikum gædd en eigin- maðurinn. Hjónaband Daniels og Michelle var ekkert sérstaklega hamingju- ríkt. Danny var sjaldan heima og Michelle, sem þótti lagleg kona, leit- aði sér smám saman afþreyingar annars staðar. Og hún var ekki í neinum erfiðleikum með að vekja athygli hins kynsins. Sama um hliðarspor eigin- konunnar Svo virtist sem Danny stæði hjartanlega á sama um hliðarspor eiginkonunnar, að minnsta kosti til ársins 1993 þegar æfingar á árlegri uppfærslu leikhópsins hófust. Færa átti upp leikritið Morð í prestsbú- staðnum eftir Agöthu Christie. Danny átti að leika lítið hlutverk lögreglumanns og aðstoðarmanns aðaUeynilöggunnar í leikritinu. Malcolm Calm, sem var atvinnu- mmm Húsið sem líkiö var faliö í Þetta hús í bænum Carlisle viö skosku landamærin hafði staöiö autt eftir andlát gamallar konu. Moröingianum þótti þaö tilvalinn felustaöur. ráð fyrir. Þau héldu fjölda einkaæf- inga fyrir leiksýninguna. í fyrstu skipti Danny sér ekki af öllum einkaæfingum eiginkonunnar. Það var ekki fyrr en umhyggjusamir vinir hans bentu honum á að ekki væri allt með felldu sem hann fór á stúfana. Þann 8. maí 1993 veitti hann Michelle eftirför svo lítið bar á. Hann sá þá að viðvörun vinanna hafði ekki verið að ástæðulausu. Sama kvöld rifust hjónin heiftar- lega. Michelle sagði Danny van- hæfan, bæði sem eiginmann og leikara, og taldi upp fjölda vina sem hún hefði átt undanfarin fimm ár. Danny varð æfur og sló til eig- inkonu sinnar. Hann sló hana svo fast í andlitið að hún missti næst- um því meövitund. Síðan gekk hann burt. Eftir aö hafa fengið sér drykk á hverfiskránni hélt hann heim á leið. Honum hafði þá runnið reiðin að mestu og vonaðist til að þau gætu rætt málin. En Michelle beið hans i anddyrinu, vopnuð stórum eldhúshníf. Hún hjó mann sinn í handlegginn. Danny, sem hlotið hafði þjálfun í átökum vegna starfs síns, sló til baka og í átökunum sem fylgdu hlaut Michelle ban- væna stungu í brjóstholið. Sat við lík eiginkonunnar Danny Evans greindi seinna frá því hvernig hann hefði setið lengi við lík eiginkonu sinnar og velt því fyrir sér hvað hann ætti að gera. Hann vissi að hann ætti að kalla fé- lagana á lögreglustöðinni á vett- vang. En hann óttaðist afleiöingarn- ar og aö hann myndi strax hafna í fangelsi vegna manndráps. Hann greip til óskynsamlegs ráðs. Hann reyndi að afmá öll spor eft- ir það sem gerst hafði. Fyrst vaföi hann plasti utan um Michelle og fjarlægði renninginn í anddyrinu. Því næst skrúbbaði hann gólfið í leikari i lausamennsku, fékk hlut- verk leynilöggunnar. Hann var þekktur leikari og hann naut aðdá- unar Michelle Evans. Samleikur Malcolms og Michelle varö fljótt nánari en handritið gerði Leynilöggan og aöstoöarmaöurinn Malcolm Call, til vinstri, og Danny Evans, aöstoöarmaöur hans. Michelle Evans Eiginmaöur hennar var sjaldan heima og leitaöi hún sér smám saman afþreyingar annars staöar. anddyrinu og hreinsaði vandlega blóðbletti af dyrakörmum og þrösk- uldum. Vegna reynslu sinnar úr lög- reglumannsstarfinu vissi hann að nauðsynlegt var að þrífa hvern krók og kima. Því næst þurfti hann að losa sig við líkið. Hann minntist allt í einu nýlegs máls úr vinnunni. Öldruð einstæð kona hafði fundist látin á heimili sínu. Hús hennar stóð autt og var, að mati Dannys, ákjósanleg- ur felustaður. Hann ók af stað i nátt- myrkrinu með lík eiginkonu sinnar í farangursgeymslu bils sins. Þegar MicheUe fyndist átti það að lita út eins og henni hefði verið rænt og nauðgað og hún síðan myrt. Þegar Danny var kominn heim á „Svo virtist sem Danny stæöi hjartan- lega á sama um hlið- arspor eiginkonunnar, aö minnsta kosti til ársins 1993 þegar æf- ingar á árlegri upp- færslu leikhópsins hófust. Færa átti upp leikritið Morð í prestsbústaðnum eft- ir Agöthu Christie.“ ný hringdi hann í Malcolm Call. Leikarinn kvaðst ekki hafa séð MicheUe og það vissi jú Danny auð- vitað. En hann vissi að lögreglan myndi kanna öU simtöl og að símtal hans tU Malcolms myndi sanna að hann hefði sjálfur verið heima. Hann notaði keppinaut sinn sem fjarvistarsönnun. Um níuleytið næsta morgun hringdi Danny til starfsfélaga sinna á lögreglustöðinni og tUkynnti hvarf konu sinnar. Þegar ekkert hafði spurst til hennar í fjóra sólarhringa var hafin umfangsmikil rannsókn á hvarfi hennar. Malcolm CaU var yfirheyrð- ur og viðurkenndi hann samband sitt við MicheUe Evans. Hann vísaði því algerlega á bug að hann heföi skaðað hana á einhvern hátt. QSBl Á þessu stigi málsins beindist grunur lögreglunnar að Danny Evans. Víst þótti að hann hefði vit- að um samband konu sinnar við Malcolm CaU. Þótti það í sjálfu sér næg ástæða til morðs. Og hann hafði verið áberandi rólegur eins og hann vissi eitthvað sem öðrum var ekki kunnugt um. Lögregluforingjanum D.I. CeUard datt skyndilega í hug að skoða skýrslur Dannys Evans undanfama mánuði. Mál gömlu konunnar, sem hafði átt húsið er stóö nú autt, vakti strax athygli hans. Lögregluforing- inn leitaði í húsinu og fann lík MicheUe eins og Danny hafði skUið við það. Féll í klassíska gildru Lögrégluforinginn bað nú Danny að komá og „ræða svolítið við sig“. Þrátt fýrir að Danny væri reyndur lögreglumaður, sem kunni yfir- heyrslutækni, féU hann í klassíska gildru. „Við höfum fundið fingrafórin þín í húsi gömlu konunnar og vitum að þú drapst konuna þína,“ sagði lögregluforinginn. „Það getur ekki verið,“ svaraði Danny. „Ég var með hanska á hönd- unum.“ Við réttarhöldin tók saksóknari rök verjandans til greina og breytti ákærunni í manndráp. Það var einkum hegðun Dannys Evans eftir drápið sem var fordæmd. Hann var dæmdur í 15 ára fangelsi en getur búist við að fá reynslulausn eftir tvö ár. Ovinur samfélagsins Jacques Mesrine var á flótta undan frönsku lögreglunni í nær tvo áratugi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.