Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Qupperneq 29
37 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001_____________________________________________ DV __________________________________________________________________________________________________Helgarblað sem nutu þessarar Vestfjarðaaðstoö- ar sem svo var kölluð. Mér er sagt að eitthvað af þessari aðstoð hafi breyst í hús á Arnarnesinu.“ - Munu ekki allir þeir sem nú eignast kvóta selja hann þegar í stað? „Smábátar eru skuldsettir eins og aðrir bátar og það er því mjög hætt við að slíkt gerist. Nú, svo má ekki gleyma því að í mörgum tilvikum eru það fyrri eigendur smábáta sem eignast þennan kvóta.“ Hvaö vita fiskifræðingar? Karl segir að smábátar hafi ekki farið mikið fram úr áætluöum heildarkvóta og veiðar þeirra á ýsu hafi ekki gengið á ýsustofninn um- fram það sem fiskifræöingar hafi ráðlagt. „Það má líka velta því fyrir sér hvort ráölegt sé að treysta fiskifræð- ingum. Það hafa staðið hér látlausar verndaraðgerðir á þorskstofninum í nærri 20 ár að ráði fiskifræðinga. Þær virðast engan árangur hafa borið og nú er boðað að skera þurfi niður veiðar á þorski. Hvaða vernd felst í þessu? Auk þess eru sérfræð- ingarnir sjálfir farnir að benda á að það séu til nokkrir staöbundnir þorskstofnar í kringum landið. Þar með er eiginlega botninn fallinn undan núverandi fræðum. Stað- bundnir stofnar, sérstaklega smáir, verða tæpast nýttir bærilega nema með staðbundnum veiðarfærum sem ekki geta gengið of nærri stofn- inum?“ Stríðið er ekki tapað - Nú hafa trillukarlar barist fyrir rétti sínum til frjálsra veiða áratug- um saman. Er ekki þeirra stríði lok- ið með algerum ósigri með gildis- töku þessara laga? „Nei, stríðið er ekki tapað. Ef menn myndu spyrja mig að því hvort þeir eigi að róa þá gæti ég ekki sagt nei. Ég vil ekki hvetja til lögbrota en í hjarta mínu veit ég að ég myndi sjálfur róa. Stjórnvöld geta sjálfum sér um kennt ef það veröur uppreisn á miðunum. Við höfum staðið í fiskveiðistríði við aðrar þjóðir. Það sem ríkisstjórnin er að gera er að hún er að lýsa yfir fiskveiðistyrjöld hér innanlands. Nefndin sem á að endurskoða fisk- veiðilöggjöfina er lömuð. Það er eins og kolkrabbi hafi sogiö úr henni ailan mátt. Forsendan fyrir því að Ámi Mathiesen lagði fram þessi lög á sínum tíma var að heild- arendurskoðun laganna væri ekki lokiö og nefndin sefur enn. Síðan er engin umræða í gangi, lögunum er bara skellt á. Hvað á að gera við þessa báta?“ Siðlaus atgangur - Heldur þú að með þessari laga- setningu hafi stjórnvöld gengið of langt og menn muni almennt rísa gegn lögunum? „Bátar verða að róa svo iðandi mannlíf megi áfram verða í byggum landsins. Það er siðlaust að leggja niður mannlif með einni lagasetn- ingu. Ég get ekki séð annað en þetta hafi stórfellt byggðahrun i fór með sér. Það eru engar vitrænar áætlan- ir í gangi af hálfu stjómvalda til að sporna gegn því. Það má líkja viö þessu við móðuharðindin. Þetta er þvílíkt högg fyrir byggðimar að einu líkingarnár sem ná að fanga þessar hörmungar eru hamfarir á borð við móðuharðindin. Það er verið að ganga af byggðunum dauð- um með þessum siðlausa atgangi stjórnvalda. Þessu á augljóslega ekki að linna i tíð þessarar ríkis- stjómar. Það á greinilega að klára verkið og veita dreifbýlinu náðar- höggið, eins og lögin á smábátana bera með sér.“ - En væru aðgerðir til mótvægis þessari lagasetningu ekki 'komnar fram ef ríkisstjómin hefði einhvern pólitískan áhuga á því? „Það getur vel verið að þeir ætli að rétta fram einhvern blómvönd. Annars veit ég ekki hverjir eru tals- menn þessarar ríkisstjórnar, þeir virðast vera orðnir ansi margir og ekki allir innan stjórnarinnar." Fyrir stórútgerðarmenn - Gengur ríkisstjórnin þá erinda stórútgeröarmanna að þínu áliti? „Niðurstaðan er að minnsta kosti þeim í vil. Það er verið að loka kerf- inu og stöðugt færri einstaklingar koma að útgerð. Fyrir átta árum áttu 20 stærstu fyrirtækin í sjávar- útvegi 36% veiðiheimilda. Nú eiga 20 stærstu fyrirtækin 60% kvótans. Þetta er skýr stefna og ríkisstjómin er að ganga erinda þessara hags- muna. Þetta er stjórn sem trúir á hina stóru og sterku. Hagfræði rík- isstjórnarinnar er að setja öU eggin í sömu körfuna." Má ekki drepa Bjart Þegar Karl var ungur maður á SnæfeUsnesi kynntist hann triUu- sjómennsku og reri á bátum föður síns og gerði síðar út með frænda sínum frá HeUnum. Hann segir að triUukarlinn sé Bjartur í Sumarhús- um nútímans, sjálfstæðislöngun ís- lendingsins holdi klædd. „Þetta er lífsstíll sem leyfir sjálf- stæði mannsins aö njóta sín og leggja á djúpið á eigin vegum og Drottins. Þetta er Bjartur í Sumar- húsum og það má ekki drepa hann.“ Hann átti síðan triUu í svoköll- uðu dagakerfl þegar hann var prest- ur á Suðureyri, átti trUlu með öðr- um á Tálknafirði og nú á hann lít- inn Færeying sem hann keypti fyrir tveimur árum og hefur leyfi til að veiða í soðið en blátt bann er lagt við því að hann selji einn einasta fisk. Eins og spiiavíti En hefur hann hagnast af því að kaupa og selja triUur og hefur hann eignast kvóta í gegnum þetta kerfi? „Nei, ég hef aldrei hagnast á þessu og konan mín telur að mín út- gerðarsaga hafl sjaldan verið til mikils ábata. Þegar ég seldi trilluna ásamt veiðiréttinum á Suðureyri hefði ég sjálfsagt getað grætt kring- um 10 miUjónir með því að bíða í nokkur ár. En það var ekki mark- miðið og ég var ekkert að hugsa út í það. Sá sem keypti hana lét saga upp í kjölinn og úrelda en flutti veiðidagana á aðra trillu og hagnað- ist eflaust. Kvótakerfið er eins og spilavíti sem snýst í kringum þenn- an aðalatvinnuveg þjóðarinnar þar sem menn eru að veðja á alls konar kerfisbreytingar. Það eru alls konar menn að að hagnast á því að selja rétt sinn og veiðileyfi." Eru ailir á leið í bæinn? Margir virðast hafa þá ímynd af landsbyggðinni að þar séu bókstaf- lega allir á leiðinni í bæinn. Hvers „Það má líkja þessu við móðuharðindin. Þetta er þvílíkt högg fyrir byggð- irnar að einu likingamar sem ná að fanga þessar hörmungar eru hamfarir á borð við móðurharðind- in. Það er verið að ganga af byggðunum dauðum með þessum siðlausa at- gangi stjómvalda. Þessu á augljóslega ekki að linna í tíð þessarar ríkis- stjórnar. Það á greinilega að klára verkið og veita dreifbýlinu náðarhöggið, eins og lögin á smábát- ana bera með sér. “ vegna flytur fólk? „Það er margar ástæður og ég held að betra menntakerfi og meira öryggi í atvinnuuppbyggingu skipti miklu máli. En við eigum að staldra við og spyrja okkur: Hvernig íslandi viljum við búa í? Viljum við t.d. að það verði byggð á Blönduósi eða eig- um við að vera svo hagkvæm að fara með jarðýtuna á þorpið af því að það borgar sig ekki að neinn búi þar. Heilu sjávarþorpin geta rúmast auðveldlega í einni blokk í Reykja- vík en hvar er frelsið í slíkri hag- kvæmni. Þeir tímar voru uppi að fólk vildi búa úti á landi og byggði sín hús þar. Það hafði trú á framtíð- inni og þeirri vinnu sem þarna bauðst. Þegar skipin sigla burt og engin fiskur berst á land þá fer fólk- iö líka.“ Hægt að selja norðurljósin - En hvernig eigum við að bjarga landsbyggðinni frá því að leggjast í auðn og er það í valdi stjórnvalda? „Opinberir aðilar hafa ekki staðið sem skyldi að atvinnuuppbyggingu. Viö vitum vel að fjarvinnslan sem átti að bjarga hinum dreifðu byggð- um var eitt allsherjar hneyksli. Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein í heiminum og mér flnnst að við ætt- um að snúa okkur meira að þorsk- eldi og nota það til uppbyggingar á landsbyggðinni enda hef ég í félagi við aðra þingmenn Samfylkingar- innar lagt fram þingsályktun um eflingu þorskeldis hér. í löndunum í kringum okkur eru menn á fullri ferð í þessu. Það er þegar hafið kapphlaup um strandlengju íslands í þessu tilliti og þar eru stórir há- karlar fremstir i flokki. Þetta er hin sama hagfræði eggjakörfunnar. Þeg- ar eitt stórt fyrirtæki ræður öllu í einu byggðarlagi þá eru öll eggin í sömu körfunni. í Noregi, Nýja-Sjá- landi og Kanada er mikið hugsað um þorskeldi og miklar áætlanir uppi. Annað stórundarlegt mál er aö þótt stöðugt fleiri ferðamenn komi til íslands yfir veturinn þá koma þeir allt of lítið út á lands- byggðina. Þaö er svigrúm til að gera stórátak í þessum efnum. Ég veit um stað á Snæfellsnesi þar sem 20 Japanar heimsóttu sveitabæ til þess eins að fylgjast með norðurljósun- um. Það er hægt að selja norðurljós- in og þaö meira að segja aftur og aft- ur. Vilji er allt sem þarf.“ Prestur gegn vímu Nú hefur þú mikið beitt þér í for- varnarmálum. Hvað viltu gera í þeim málum? „Ég hef setið í stjórn SÁÁ og haft mikinn áhuga á því að vinna gegn áfengis- og flkniefnabölinu. Þetta er eins og faraldur í samfélaginu eins og landlæknir hefur sagt. Og þar er ekkert ofsagt. Við verður að grípa til róttækra aðgerða til að stemma stigu við þessum óþverra. Það þarf að margfalda forvarnir og byrja að fræða unga fólkið miklu fyrr og með miklu meira afgerandi hætti. Ég hef séð það í prestsstarfi mínu að það er miklu meira illt sem hlýst af áfeng- isneyslunni en menn gera sér grein fyrir. Þunglyndi, slys og alls kyns ömurleiki. Fólk verður ófullnægt og áfengið vinnur gegn og drepur nið- ur lífsgleðina. Lífið er allt of gott og dýrmætt til að menn kasti því á glæ með því að láta undan freistingum.“ -PÁÁ Karl hefur fengist vlð trilluútgerð árum saman og er réttnefndur smábátaprestur „Ég hef aldrei hagnast á þessu og konan mín telur að mín útgerðarsaga hafi sjaldan veriö til mikils ábata. Þegar ég seldi trilluna ásamt veiðiréttinum á Suöur- eyri hefði ég sjálfsagt getað grætt kringum 10 milljónir með því aö bíða í nokkur ár. En það var ekki markmiðiö og ég var ekkert aö hugsa út í þaö. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.