Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Side 40
48
Formúla 1
Hf
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001
■
■ ■
I
i,
Rúnar Jónsson er einn af okkar bestu
ökumönnum hér á landi enda tífaldur Is-
landsmeistari í rallakstri. Hann hefur fylgst
vel með Formúlu 1 undanfarin ár og er því
ekki úr vegi að spyrja hann nokkurra
spuminga um þau mál sem brenna á mönn-
um þessa dagana.
David Coulthard og Michael
Schumacher keppa um efstu stöðuna á
stigalistanum, kemrn- Coulthard á óvart?
„Ég átti von á því að Coulthard myndi
verða öflugur þar sem hann sýndi vaxandi
styrk á síðasta ári. Hann undirbjó sig mun
betur fyrir timabilið heldur en Hákkinen og
þar af leiðandi kemur það ekki á óvart að hann skuli vera aðalkeppinautur
Schmnacher þessa stundina."
Hvað með gengi Williams, kemiu- það þér á óvart hversu snemma
fyrsti sigrn- Williams, BMW og Michelin varð að veruleika?
„Gengi Williams hefur vaxið jafnt og þétt síðasta árið og þeir hafa staðið
mjög vel að öllum sínum málum varðandi þróun á bilnum. Jafnframt hafa
þeir mjög öfluga vél sem skilar þeim í toppbaráttuna. Þeir hafa einnig átt
stóran þátt í þvi að þróa Michelin-dekkin svo að sigur hjá þeim lá í loftinu
að mínu mati. I framhaldinu á ég von á því að þeir muni sigra fleiri keppn-
ir á þessu ári og stimpla sig inn sem eitt af toppliðunum í Formúlu 1 í dag.“
Nú var beðið með mikilh eftirvæntingu eftir Montoya. Hefur hann
staðið undir væntingum?
„Montoya hefur komið mjög öflugur inn í þetta tímabil en verið svolítið
óheppinn á köflum sem er ekki neitt óeðlilegt þar sem hann er á sínu fyrsta
ári og vantar því stöðugleika á við þá bestu. Ég hef trú á að hann muni ná
að sigra keppni eða keppnir á þessu tímabili þar sem hann hefur alla burði
til þess. Ég átti von á honum sem mesta kryddinu í Formúlunni þetta árið
og hann hefur staðið undir mínum væntingum."
Gerði hann rétt gegn M. Schumacher á 16. hring í austurríska
kappakstrinum fyrir hálfum mánuði. Var þetta klaufaskapur eða
snihd?
„Að mínu mati gerði hann ekkert annað en að verja sína stöðu á réttmæt-
an hátt. Þetta var keppnisharka af bestu gerð sem endaði kannski hálfklaufa-
lega fyrir báða.“
Nú hefur Jacques Viheneuve verið talinn einn af betri ökumönnum
i Formúlu 1 síðustu ára en nú virðist sem gamh jaxhnn, Oliver Panis,
sé að hrista hann ærlega til?
„Villeneuve hefur átt í erfiðleikum eftir slysið i Ástraliu á meðan Panis
hefur getað látið fara lítið fyrir sér og er ekki undir neinni pressu sem skil-
ar honum mjög góðum árangri. En Villeneuve kemur til með að eflast þegar
líður á tímabilið."
Mika Hákkinen hefur gengið iha að undanfómu. Hefur þetta verið
óheppni eða hreinlega minni áhugi og viljastyrkur?
„Mitt mat er að hann er ekki andlega tilbúinn í þennan slag.“
Er hann á leið úr Formúlu 1 eða á hann enn möguleika á að keppa
um titihnn?
„Það verður erfitt fyrir hann að ná titlinum í hús þetta árið en hann hef-
ur alla burði til að verða heimsmeistari aftur.“
Var rétt hjá Ferrari að biðja Barricheho að færa sig fyrir
Schumacher í lok síðustu keppni?
„Mín skoðun er sú að þetta sé heldur snemmt þar sem Barrichello á enn
þá sjálfur góða möguleika á titlinum en það er ljóst hver er hæstráðandi í
þessu liði.“
Á McLaren að beita sömu skipunum?
„Þeir þurfa að fara að huga að því en það er það mikið eftir af tímabilinu
að mér fmnst það ekki réttmætt alveg strax."
Besta keppnin það sem af er ári?
„Brasilía."
Spá fyrir Monaco-kappaksturinn um helgina?
1. Montoya, 2. M. Schumacher, 3. Coulthard, 4. Hákkinen, 5. R.
Schumacher, 6. Villeneuve.
TjjF' .
s- ibr r' í
STAÐAN í HEIMSMEISTARAKEPPNINNI
Ökumaður
Lið
01. Michael Schumacher 42 McLaren 42
02. David Coulthard 38 Ferrari 60
03. Rubens Barrichello 18 Williams 18
04. Ralf Schumacher 12 Benetton 1
05. Nick Heidfeld 8 Jordan 13
06. Jarno Trulli 7 BAR 9
07. Juan Pablo Montoya 6 Arrows 1
08. Heinz-Harald Frentzen 6 Sauber 12
09. Olivier Panis 5 Jaguar 0
10. Villeneuve/Hákkinen/Reikkonen 4 Prost 0
Án nokkurs vafa er
kappakstur helgarinnar
einn sá litríkasti og mest
heillandi í Formúlu 1
mótaröðinni ár hvert. Saga Formúlu 1
hefur markað spor um stræti
skattaparadísarinnar þar sem allir
bestu ökumenn síðastliðin 50 ár hafa
ekið um þröngar götur Monte-Carlo og
ævinlegar hafa risarnir staðið upp úr:
Graham Hill, Jackie Stewart, Alain
Prost, Aryton Senna og Michael
Schumacher sem allir hafa sigrað oftar
en aðrir á þessari braut sem krefst full-
kominnar athygli og einbeitni hvern
einasta hring. Ekkert svigrúm er fyrir
mistök þar sem akstursleiðin er umvaf-
in vegriðum og öryggissvæðin eru eng-
in. Mónakó-brautin gefur engin grið.
Þótt hún sé sú stysta og hægasta í móta-
röðinni þá reynir hún geysilega mikið
á bil og ökumann.
Mikilvægar tímatökur
í gegnum hverja einustu beygju fram
hjá vegriðunum má ekkert bera út af,
ekki síst í tímatökum sem eru hvergi
mikilvægari en í Mónakó, þar sem tí-
undi hluti úr sekúndu getur skilið á
milli ráspóls og fimmta sætis.
„Með því rétt að nudda girðingarnar
getur maður unnið sér inn nokkra tí-
unduhluta og i timatökum getur það
þýtt nokkrar rásraðir," segir Benetton-
ökumaðurinn Gianicarlo Fisichella.
Þar sem framúrakstur er nær ómögu-
legur getur það borgað sig að fara eftir
ráðum Fisichella en þá fara millímetr-
arnir að skipta máli í vali á aksturslín-
um og stutt er þá á milli hetjunnar og
skúrksins. „Það er mjög auðvelt að
klessa bílinn áður en maður setur besta
tímann sinn,“ segir Rubens Barrichello
sem á síðasta ári kláraði i öðru sæti.
„Það þarf að hafa fullkominn skiln-
ing á því hvemig bíllinn hegðar sér og
það breytist frá ári til árs.“ Þar sem
beygjurnar eru krappar og hraðinn lít-
ill þurfa tæknimenn liðanna að setja
fulla vængpressu á bílana og hjólbarð-
arnir verða með mýkra móti. Michelin
hefur ekki ekið í Mónakó síðan 1985 en
hefur verið að undirbúa sig eftir bestu
getu á Valencia-brautinni á Spáni.
„Fyrir dekkin er hún meira helvíti en
himnaríki. Brautin er þakin sérstak-
lega sleipri götumálningu og vegkant-
arnir og göturæsin bjóða hættunni
heim varðandi skemmdir á dekkjun-
um,“ segir Pierre Dupasquier frá
Michelin um Mónakó-brautina. „Svo
eru ökumenn alltaf að nuddast utan í
vegriðunum," bætir hann við.
Ökumenn hræddir viö ræsinguna
Eftir að fjórir búar sátu eftir í ræs-
ingunni í Austurriki fyrir um hálfum
mánuði. er ræsi-stýringar bílanna
brugðust, hafa verið vangaveltur um
hvað gæti gerast í Mónakó komi slíkt
upp aftur. Þar sem ráslínan á Al-ring-
brautinni í Austurríki er breið var
nægilegt rými fyrir ökumenn til að
sveigja fram hjá þeim sem eftir sátu og
kom sem betur fer ekki til óhappa. Ann-
að er upp á teningnum um þessa helgi
því mjórri gerast brautimar ekki en í
Mónakó og svigrúmið er nærri því ekk-
ert. Báðir Jordan-ökumennirnir, þeir
Frentzen og Trulli, sem hvorugur
komst af stað í síðustu keppni, hafa
ákveðið að nota handvirka ræsingu í
stað nýju rafeindahjálparinnar sem
leyfð var frá og með spánska kappakstr-
inum fyrir mánuði.
Sama er að segja um önnur lið sem
sum hver hafa ákveðið að fara sömu
leið og Jordan, ekki síst þar sem liðin
fá engin tækifæri um helgina til að
prófa búnaðinn. Aðeins er leyfilegt að
prófa ræsistýringuna á þjónustusvæð-
um en þar sem plássið þar er með allra
minnsta móti i Mónakó verður það al-
veg bannað. Þvi verða liðin algerlega að
forrita ræsinguna „blint“ og það eru
menn ekki tilbúnir að gera í aðeins
þriðju keppni eftir að búnaðurinn var
leyfður.
Einstök og spennandi
Undanfarin níu ár hefur Michael
Schumacher sigrað Qórum sinnum i
Mónakó og á síðasta ári brást Ferrari-
bíllinn honum er hann var í forystu.
David Coulthard sigraði í kjölfar þess
og komst þar með í þann eftirsótta hóp
manna sem unnið hafa stærstu perluna
í festi Formúlu 1. Félagi hans, Mika
Hákkinen, er einn þeirra sem sigrað
hafa í Monte Carlo. „Ég nýt þess alltaf
að keppa í Mónakó. Þetta er alveg ein-
stök, spennandi akstursbraut, umleikin
sögu sem býður upp á allt aðrar áskor-
anir en nokkur önnur braut í keppnis-
röðinni." -ÓSG
Mika Hákkinen:
Núeða
aldrei!
Ef það er eitthvað sem hefúr komið á
óvart í þeim sex keppnum sem lokið er af
keppnistímabili ársins i Formúlu 1 þá er
það hin geysilega óheppni og slakur ár-
angur hins tvöfalda heimsmeistara, Mika
Hákkinens. Flestir biðu með öndina í
hálsinum eftir hinum óslipaða demanti,
Juan Pablo Montoya, og héldu að hann
fangaði athygli áhorfenda en annað hefur
komið á daginn. Mika Hákkinen hefur
stolið senunni í ár og það ekki fyrir glæsi-
legan árangur heldur hitt, að vera aðeins
með 4 stig á lista sínum þegar keppnis-
tímabilið er rétt í þann mund að nálgast
háifa leið. Þriðji heimsmeistaratitill hans
virðist ekki vera í augsýn þessa dagana.