Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Blaðsíða 50
58 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001 Tilvera I>V lí f iö E F T I R V I N N U TONLEIKAR GRADUALE Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, kl. 20. Á efnisskránni eru verk sem kórinn mun flytja í tónleika- og keppnisferð til Danmerkur og Finnlands á næstunni. Undirleikari er Lára Bryndis Eggertsdóttir og stjómandi er Jón Stefánsson. Kiassík ■ SUMAR HJA SINFONIUNNI Sin- fóníuhljómsveit Islands heldur sum- artónleika í dag í Háskólabíói klukk- an 17. Leikin veröur litrík og skemmtileg tónlist frá ólíkum tímum og löndum. ■ KIRKJULISTAHÁTH) 2001 Dagskrá Kirkjulistaviku í Hallgrímskirkju hefst klukkan 10 meö framhaldi af málþinginu um kirkjuarkitektúr. Klukkan 12 hefst hádegistíðagjörö og dagskránni lýkur með aftansong, klukkan 18. ■ SÖNGTÓNUEIKAR í SALNUM ,Söngtónleikar eru í Salnum kl. 16 þar sem Hlööver Sigurðsson tenór, Olafur Kjartan Sigurðarson baríton og Anlta Havesl Szabó píanóleikari flytja sönglög og aríur. ■ ÚTGÁFUTÓNLEIKAR KANGA Kangakvartettlnn heldur tónleika í tilefni af útgáfu geisladisksins Asan- te sem kemur út núna í maí og veröa tónleikarnir haldnir í Breið- holtskirkju klukkan 17. ■ BÍTLAÐIR KARLAKORSTÓNLEIK- AR Karlakór Akureyrar - Geysir heldur tónleika í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði í kvöld kl. 20.30. ■ PRUFUTÓNLEIKAR Kór Akureyrarkirkju heldur prufutónleika í Ketilhúsinu á morgun, 27.5., kl. 20.30. Opnanir BIRGIR SNÆBJORN I GALL- E_RI@HLEMMUR.IS Sýning á teikningum Blrgls Snæbjörns Blrglssonar veröur opnuö í dag klukkan 16 7 gallerí@hlemmur.is, ■ BRAGI ÁSGEIRS í GALLERÍI SÆVARS KARLS Bragi Asgeirsson myndlistarmaður opnar sýningu á verkum sínum I Galleríi Sævars Karls í dag. ■ AGGI í GALLERÍ SMÍÐAR OG SKART Þórarinn Oskar Þórarinsson (Aggl) opnar Ijósmyndasýningu T Gallerí Smíðar og Skart í dag frá 14-16. Sýninguna nefnir hann Rithöfundar og aðrir rugludallar. ■ GERÐUR Á BÓKASAFNI SELTJARNARNESS Geröur Guömundsdóttir textíllistakona opnar einkasýningu á 24 verkum sínum í Bókasafnf Seltjarnarness í dag klukkan 15. ■ DAÐI í EYJUM Daðl Guðbjörnsson listmálari opnar sýningu í dag kl. 16 í gamla vélasalnum á horni Græðlsbrautar og Vesturvegar í Vestmannaeyjum. " ■ NORRÆNIR HLUTIR Sýningin ®* Norrænlr hlutlr veröur opnuö í Norræna húsinu í dag og í tengslum viö þaö er haldið málþing er hefst ^kl. 14. ■ ÁRLEG VORSYNING Mvndlistar- skólans á Akureyri stendur yfir þessa helgi í Ketilhúsinu í Listagili. ■ UPPBOÐ á ýmsum verömætum munum veröur haldiö í Uppboöshúsi Jes Zimsen, Hafnarstræti, kl. 14. Útskriftarnemendur úr Tilfinni legur uppsku Arleg vorsýning Myndlistaskól- ans á Akureyri var formlega opn- uö á uppstigningardag í húsa- kynnum Myndlistaskólans og Ket- ilhúsinu í Listagili. í Ketilhúsinu sýna útskriftarnemendur sér- deilda - listhönnunardeildar - grafíkskrar hönnunar og fagur- listadeildar. VSð erum framtíöin Það er slegist um nemendur úr grafisku deild Myndlistaskólans á Akureyri og atvinnutilboðum byrjar að rigna inn frá auglýs- ingastofum strax á fyrsta ári. Það er sagt að norðlenska handbragð- ið sjáist langar leiðir því þetta fólk sýni bæði öguð og vönduö vinnubrögð i hönnun sinni. Þau sem útskrifast að þessu sinni eru: Arnar Sigurðsson, Guðný Finns- dóttir og Sverrir Ásgeirsson. Úr fagurlistadeild útskrifast flórir nemendur: Arnfríður Arn- ardóttir, Birgir Rafn Friðriksson, Sunna Björg Sigfríðardóttir og Tinna Ingvarsdóttir. „Við erum framtíðin,“ segja þau, „og stefnum hátt, en fyrst ætlum við að taka okkur smáhvíld því við erum alveg úrvinda. Þetta nám er mjög krefjandi og maður þarf að skoða sjálfan sig svo rosa- lega mikið að það reynir á allan tilfinningaskalann, í rauninni er þetta tilfinningalegur uppskurður. En við ættum að vera fær í flestan sjó því námið býður upp á miklu fleiri möguleika en bara að geta málað. Við höfum hugsað okkur að breyta viðhorfi yfirvalda og al- mennings gagnvart því sköpunar- verki sem myndlistarmenn hafa fram að bjóða og hefur hingað til veriö talið vera einskis virði. Myndlist tengist lifinu miklu meira en fólk gerir sér grein fyrir, m.a. í hönnun ýmissa daglegra nytjahluta, s.s eins og útlitinu á GSM-simum, fötum og jafnvel hár- greiðslu. Öll okkar huglæga vinna tengist nánast flestu því sem hannað er og skapað í samfélag- inu,“ segja iistamenn framtíðar- innar. -W DV-MYND BRINK Útskrlftarnemendur Taliöirá vinstri: Guöný Finnsdóttir, Tinna Ingvarsdóttir, Arnfríöur Arnardóttir, Sunna Björg Sigfríöardóttir og Birgir Rafn Friöriksson. Hinir sem ekki gátu veriö meö á myndinni nema í vasabrotsformi eru: Arnar Sigurösson og Sverrir 4s- grímsson. /VV mttwðíBk Arnfríöur Undirbýr sig fyrir hið fullkomna portrettt. r\ Birgir Rafn Kærleikurinn hengdur út í garö til þerris. Sunna Björg Málar öfugt aftan á gler og skrá- setur heimsmynd sína. Tlnna Viö erum framtíðin - portrett af útskriftarnemum. m\r\ M 0 Barna- og unglingasýning Klassíska listdansskólans: Fegurðin býr í fjölbreytninni SJá nánar: Lífiö eftlr vlnnu á Vísl.ls Ur dansverkinu Doddl í Nauthólsvík Ströndin iöar af lífi og kisa viröist í veiöihug. Dansverkið Doddi í Nauthólsvík er burðarás í bama- og unglinga- sýningu Klassíska listdansskólans í íslensku óperunni í dag sem hefst kl. 14. Það fjallar um strandvörðinn Dodda og við sögu koma líka Eyrna- stór, lögreglan, hress bakari, ferða- menn og fleiri. Höfundur verksins er Guðbjörg Astrid Skúladóttir og flestir aldurshópar skólans taka þátt í verkinu, en þeir eru frá 6 upp í 23 ára. í seinni hluta sýningarinnar eru flutt nokkur nútímaverk. Tvö þeirra eru eftir Ólöfu Ingólfsdóttur, Heitt og kalt og Geimenglarnir. Hany Hadaya er með verk sem kall- ast Laicasi og lokaverkið er eftir Ólöfu Söebech og nefnist Fegurðin býr í fjölbreytninni. Klassíski listdansskólinn hefur verið starfræktur frá öndveröu ári 1994. Þar hafa 80 börn og unglingar stundað nám i vetur og njóta þess aö sýna afraksturinn í Islensku óp- erunni í dag. -Gun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.