Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2001, Síða 56
Nýr Opel Corsa
'L as •/ .
W' ./H
FRETTASKOTIÐ
SlMINNSEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2001
Til London fyr-
ir 13 þúsund
- með DV og Go
Eftir helgina mun DV fara af stað
með tilboð sem ætlað er lesendum
blaðsins og boðið er upp á í tilefni af
*■ eins árs afmæli flugs á vegum
breska flugfélagsins Go til íslands.
Um er að ræða ferðir til London fyr-
ir aðeins 13.000 kr. og eru þá allir
skattar meðtaldir. Það sem lesendur
DV þurfa að gera er að safna fjórum
sérstökum Go-merkimiðum sem
birtast í blaðinu frá 29. maí til 1.
júní 2001 og bóka flugið fyrir 4. júní.
Tilboðið gildir fyrir alia þá sem
hafa hug á að ferðast á tímabilinu 3.
júní til 20. júlí og geta dvalið í lág-
mark tvær nætur. Tilboðið gildir
ekki í flug á föstudögum og sunnu-
dögum.
í London er margt hægt að gera
sér til dundurs, fara í leikhús og
söfn, gramsa á mörkuðum, fara á
tónleika og aðra listviðburði auk
þess sem þar er fjölskrúðugt mann-
líf og góðar verslanir. Því ættu allir
að finna eitthvað við sitt hæfi í þess-
ari heimsborg og enginn ætti að láta
þetta frábæra ferðatilboð fram hjá
sér fara. -ÓSB
Verð frá
35.500 EVRÓ
Allar stærðir
Grensásvegi 3
s: 533 1414
DV-MYND BRINK
Ungfrú Gateway
Stúdentsefni í Menntaskólanum á Akureyri dimitteruöu í gær en í dag hefst hjá þeim próflestur. Eins og jafnan á
dimissjón brugöu krakkarnir sér í hin ýmsu gervi og studdust þá við fyrirmyndir úr fréttum og mannlífi vetrarins. Hér
má t.d. sjá hóp sem ákvaö aö ktæöa sig upp sem ungfrú Gateway, en þaö var fyrsta fegurðarsamkeppni kúa á ís-
landi sem haldin hefur verið með þessum hætti.
íslensk miðlun í gjörgæslu hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar:
50 störf og hundr-
uö milljóna í húfi
- möguleiki á
„Það verður fundur í næstu viku
þar sem farið verður yflr stöðuna. Við
segjum ekki meir fyrr en þá,“ sagði
Klemens Ámason, stjórnarmaður í ís-
lenskri miðlun, en fyrirtækið berst nú
fyrir lífi sínu og framtíðarstörfum
fimmtíu starfsmanna. Ljóst er að upp-
bygging fyrirtækisins úti á lands-
byggðinni hefur algerlega mistekist
og er sá draugur sem fyrirtækið
dragnast með eftir að það hóf að ein-
beita sér að verkefnum á höfuðborgar-
svæðinu. íslensk miðlun er markaðs-
fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að
afla og selja upplýsingar fyrir aðra að
erlendri fyrirmynd. Einnig rekur fyr-
irtækið tölvuþjónustu.
„Það er mikið undir þó ég geti ekki
upplýst hversu miklar fjárhæðir er
um að ræða. En við fylgjumst grannt
með því þama eigum við mikilla
hagsmuna að gæta,“ sagði Magnús
Ægir Magnússon hjá Sparisjóði Hafn-
arfjarðar sem verið hefur með ís-
gjaldþroti skoöaður
Hilmar Þór Sævarsson
Brattur þrátt fyrir allt fyrir framan
höfuöstöövarnar á Krókháisi - verk-
efnastaðan atdrei verið betri.
lenska miðlun í viðskiptum og hefur
nú sett fyrirtækið í gjörgæslu með til-
heyrandi ráðstöfunum. Meðal stærstu
hluthafa í íslenskri miðlun eru
Tæknival og KÁ á Selfossi.
Stjórnarformaður íslenskrar miðl-
unar, Fritz Már Jörgensson, lét nýver-
í næstu viku
ið af störfum en framkvæmdastjórinn,
Hilmar Þór Sævarsson, segir verk-
efnastöðuna hafa batnað mjög mikið
að undanförnu: „En það er satt að við
höfum skoðað alla möguleika og þar
með gjaldþrot þó engin ákvörðun hafi
enn verið tekin," sagði Hilmar Þór en
framtíð hans, fyrirtækisins og ann-
arra starfsmanna mun ráðast á stjórn-
arfundinum sem boðaður hefur verið
í næstu viku.
Útstöðvar íslenskrar miðlunar á
landsbyggðinni, sem mistókust allar
og eru nú að sliga fyrirtækið, voru á
Isafirði, Ólafsfirði, Stöðvarfirði og
Raufarhöfn. Þær voru allar reknar í
samvinnu við bæjarfélögin á hverjum
stað sem töpuðu flest hver stórfé á til-
rauninni. Stærstu hluthafar íslenskr-
ar miðlunar hafa þó tapað mestu eða
eins og einn aðstandenda fyrirtækis-
ins orðaði það: „Þetta verður mikill
skellur."
-EIR
Hörgárdalur:
Reöurinn fær
heimsókn
Á sunnudaginn á Páll Arason í
Bugu í Hörgárdal von á heimsókn
bandarískra kvik-
myndagerðar-
manna sem ætla að
fræðast um reður
hans. Páll er 86 ára
og hefur öðlast
landsfrægð fyrir að
hafa ánafnað Reður-
safninu í Reykjavík
lim sinn við andlát.
„Þetta er fimmti
alþjóðlegi kvikmyndagerðarhópurinn
sem heimsækir mig vegna málsins
þannig að ég hlýt að verða heimsfræg-
ur bráðum,“ segir Páll Arason, sem
þegar hefur komið fram í frönsku,
ensku og dönsku sjónvarpi og er nú á
leið í það bandaríska. -EIR
Selfoss:
Þjófnaðaralda
Lögreglan á Selfossi á í vök að
verjast fyrir þjófagengi sem herjar
bæði bæinn og sumarhúsabyggðir í
nágrenni hans. Nánast daglega er
brotist inn í bíla og íbúðarhús á Sel-
fossi svo og í sumarhús f Grímsnesi
og í uppsveitum Árnessýslu. Telja
lögreglumenn næsta víst að þjófarn-
ir séu ekki innanbæjarmenn heldur
séu leiðangrar gerðir út frá Reykja-
vík í þvi augnamiði að ræna eigur
manna austan fjalls. Mikil spjöll á
innanstokksmunum fylgja undan-
tekningarlítið innbrotum þessum og
verksummerki um margt lík. -EIR
Bolungarvík:
Fyrirtækið heit-
ir Bakkavík
Gengið var frá stofnun nýrrar
rækjuverksmiðju í Bolungarvík í
gær sem kaupir þrotabú Nasco-Bol-
ungarvíkur fyrir liðlega 236 milljón-
ir króna. Þetta var þriðja atlagan að
þvf að stofna félagið en í fyrri skipt-
in var ekki hægt að ganga frá mál-
inu þar sem ágreiningur reis milli
Byggðastofnunar og Sparisjóðs Bol-
ungarvíkur um skiptingu kostnaðar
vegna þrotabús Nasco-Bolungarvík-
ur. Auk Sparisjóðsins eiga Bolung-
arvíkurkaupstaður og Verkalýðs- og
sjómannafélag Bolungarvíkur hlut í
hinu nýja sjávarútvegsfyrirtæki en
enginn framkvæmdastjóra eða for-
manna þessara aðila var þó við-
staddur undirskrift kaupsamnings-
ins.
Agnar Ebenesersson verður fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins sem
heita mun Bakkavík. Agnar reiknar
með að rækjuvinnslan hefiist strax
eftir hvítasunnuna, eða 5. til 6. júní.
Vinnsla hefur legið niöri síðan í
byrjun desembermánaðar sl. -GG
Ragnheiður Clausen hætt á Stöð 2:
Var aldrei velkomin
Ragnheiður Clausen, sem hvarf frá
Ríkissjónvarpinu yfir til Stöðvar 2
fyrir hálfu ári, fann sig aldrei vel-
komna á nýjum vinnustað og hefur
því sagt upp og er hætt:
„Ég fann mig aldrei sem einn af
umsjónarmönnum íslands í dag og
varð því óánægð. Það var Páll Magn-
ússon sem réð mig til starfa en hann
hætti svo sjálfur nokkrum dögum síð-
ar,“ segir Ragnheiður sem þá var til-
kynnt af samstarfsfólki sínu að vernd-
arengillinn væri horfinn á braut. Og
það reyndust orð að sönnu. Ragnheið-
ur Clausen telur að viðmót ýmissa
samstarfsmanna sinna á Stöð 2 megi
líkja við einelti. Hún hafi mætt til
leiks með opinn hug en samkvæmt
heimildum DV mætti hún fordómum
og í versta falli illvilja.
„Ég veit að sjónvarpsvinna á vel
við mig en þarna fékk ég aidrei tæki-
færi til að blómstra. Nú er ég bara úti
í garði að reyta arfa. Ég ætla að rækta
garðinn minn og sjálfa mig,“ segir
Ragnheiður Clausen sem um árabil
hefur heillað sjónvarpsáhorfendur
með sjaldgæfri útgeislun á skjánum.
„Ég tjái mig ekki um málefni starfs-
manna,“ segir Karl Garðarsson,
fréttastjóri Stöðvar 2, þegar hann er
inntur eftir ástæðum fyrir brotthvarfi
Ragnheiðar Clausen úr herbúðum
hans. -EIR
Ragnheiður reytir arfa í gærkvöld
Nú ætlar hún aö rækta garöinn sinn og sjálfa sig.