Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 DV Fréttir Af 28 OECD-þjóðum skila íslensk fyrirtæki lægstu skattana: íslendingar greiða heims- ins hæstu neysluskatta - Danir og íslendingar hæstir í tekjusköttum Fyrirtæki borga lægri skatta á ís- landi en i nokkru öðru af 28 ríkjum OECD, reiknað sem hlutfall af lands- framleiðslu, samkvæmt nýju yfirliti frá OECD. Á það jafnt við um tekju- skattinn einan og að meðtöldum launasköttum og almannatrygginga- gjaldi. Meðalskatthlutfallið var 3-4- falt hærra en hjá OECD 1999. Á hinn bóginn borga einstaklingar hærri skatta á íslandi en í nokkru öðru landi, að Danmörku einni undanskil- inni. Þá er átt við samanlagða tekju- skatta og neysluskatta en íslendingar borga heimsins hæstu neysluskatta. Að gefnu tilefni skal á það bent að fyrirtæki á írlandi borga 150% hærri skatta en íslensk en heimili á írlandi fjórðungi lægri skatta en íslensk. Gróðinn hvergi mínni „Það er rétt athugað að íslenskt at- vinnulíf greiðir mjög lága skatta í samanburði við flest ef ekki öll önnur OECD-ríki," sagði Þórður Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar. En skýringin á lágum tekjusköttum is- lenskra fyrirtækja geti fremur falist í því að þau séu almennt rekin með minni hagnaði en fyrirtæki í öðrum löndum heldur en í skattprósentunni. Athuganir ÞH bendi til að afkoma fyrirtækja virðist gjarnan lakari á ís- landi en í öðrum löndum. Mismun- andi reikningsskil (hinir séríslensku verðbólgureikningar) geri samanburð á afkomu fyrirtækja hér og annars staðar þó fremur torveldan. “Jú, í samanburði við önnur lönd er skattakerfið frekar hagstætt fyrir- tækjum að flestu leyti,“ svaraði Þórð- ur. Það væri einna helst að við skær- um okkur úr með atriði eins og eigna- skatta og stimpilgjöld, sem flestir telji raunar mikilvægt að breyta. Og raun- ar sé mjög erfítt að sjá fyrir sér að stimpilgjöldin geti samrýmst alþjóð- legu fjármálakerfi til lengdar. Auðlindagjald forsenda OECD En framfylgi stjórnvöld þeirri brýnu þörf sem þau virðast telja á að lækka lægstu fyrirtækjaskatta í heimi, er þá ekki hætt við þeir færist yfir á aðra; þ.e. íslensk heimili sem nú þegar borga næsthæstu skatta í heimi? „Jú, miðað við að skattalaga- breytingar verði hlutlausar gagnvart afkomu hins opin- bera, sem OECD leggur mikla áherslu á m.v. nú- verandi aðstæður, þá þýðir það að ein- hverjir aðrir skattar þurfa að hækka á móti.“ Þórður segir tillögur OECD um skattkerfisbreyting- ar byggjast á því að þær yrðu fjármagn- aðar með auðlinda- gjaldi. „Það er grunntónninn i þessu hjá þeim.“ -HEI DV-MYND GVA Vel þess virði að bíða eftir Rammstein Gísli Sigurösson, Páll Reynisson, Þorvaldur Guðlaugsson og Herbert Herbertsson voru fyrstir i langri biöröö eftir miöum á tónleika þýsku þungarokkssveitarinnar Rammstein. Þeir hófu biöina klukkan níu í gærkvöld og voru hinir hressustu í morgun. Skattar OECD-ríkja 1999 - sem hlutfall af landsframleiðslu Skattar á fyrlrtækl Skattar á elnstakllnga m í 3,2 ■I 4,1 4.6 4.7 5,0 7,8 i 8,1 9,0 9,2 C'- 10,0 rnmim mm 12,3 12,8 13,4 MÉÉIBjjl 13,8 14,9 mamÉmmrn g 15,0 15,0 15,5 15,7 16,2 mm 13,2 .t'u't'. jt/-i'' ' —á, J imSSSW 16’° 18,1 10,0 16,6 16,9 mmm 18,2 18,4 19,3 19,9 21,4 flWWBWpi 18,4 H 17,1 sa Reykjavík: Forsætisráðherra vill að Hafró endurskoði grundvöll starfsemi sinnar: Ramm- steinæði - miðar skammtaðir Hátt í tvö hundruð manns biðu þolinmóð fyrir utan verslunina Skífuna við Laugaveg klukkan átta í morgun. Fólkið beið þess að miðasala á seinni tónleika þýsku þungarokkssveitarinnar Ramm- stein hæfist en miöar á fyrri tón- leikana seldust upp á 55 mínútum. Þeir hafa síðan gengið kaupum og sölum á Netinu og verð þeirra jafnvel skipt tugum þúsunda í sumum tilfellum. Þeir sem biðu i morgun áttu þess kost að kaupa miðana á réttu verði en þær upp- lýsingar fengust hjá starfsmanni Skífunnar að miðar yröu nú skammtaðir; fjórir á hvern mann. Þeir fyrstu voru mættir fyrir utan verslunina um níuleytið í gærkvöld og síðan fjölgaði jafnt og þétt í röðinni eftir því sem leið á nóttina. Fólk lét vel af útivistinni, margir létu fara vel um sig í svefn- pokum eða voru með stóla til að sitja á, og að sögn var stemning góð í alla nótt. Rammstein heldur tvenna tónleika hérlendis, 15. og 16. júní. -aþ Vatnspollakenmngar ekki á úthafið Þorskveiöar Ekki hægt að beita svona afmörkuðum vatnspollakenningum á úthafíð, segir Davíð. duga | Davíð Oddsson forsætisráðherra I segir að ekki sé j hægt að neita því að það hafi orðið | alvarleg skekkja við mælingu | þorskstofnsins, og jafnvel fleiri fiski- stofna. Það segi öllum að visinda- f grundvöllurinn undir þessum fræðum hafi ekki verið ; nógu öflugur sem sé alvarlegt þar sem öll þessi speki hafi úrslitaáhrif I um ákvarðanir sem geta kostað þjóð- arbúið milljarða króna til eða frá. I Hafrannsóknastofnun verði að endur- | skoða grundvöll starfsemi sinnar og ! reikna með að niðurstöður séu ekki alltaf þær einu réttu. Ofmat stofnun- j arinnar á ástandi þorskstofnsins j verði hins vegar ekki til þess að veikja efnahagslíf þjóðarinnar, meira þurfi til. Það séu hins vegar mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að byggja upp fiski- stofnana og því séu vænt- ingarnar ekki jafnmiklar. Áfall þeirra sem stundi fisk- veiðar og fiskvinnslu sé auðvitað eitthvert en kannski minna en haldið hefur verið fram í umræð- unni. „Vandinn er sá að við sjá- um ekki að einhver önnur aðferð sé betri en þessi nið- urstaða kennir okkur það að við erum ekki komin að hinum eina og sanna fræðilega grundvelli og þurfum að taka okkur tak. Við höfum ekki fundið hinn stóra sannleika í þessum fræðum. Sjávarútvegsráðherra mun skoða þetta mál allt vandlega á næstu vikum og kynna siðan ríkisstjóminni sína ákvörðun í þeim efnum. Það hef- ur heyrst í umræðunni að það þurfi að veiða meira af stofninum en ég hef ekki þekkingu til að meta það, enda deila fræðimennirnir. Sumir tala um að það sé ekki hægt að beita svona af- mörkuðum vatnspollakenningum á úthafið sjálft, og það má vel vera. En ef ég vissi það væri ég ekki í starfi forsætisráðherra heldur niðri á Haf- rannsóknastofnun," sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra. -GG Davíö Oddsson wmrnrœz? Deilt um virkjun Friðrik Sophus- son, forstjóri Lands- virkjunar, segir að ný virkjun Orku- veitu Reykjavíkur geti tæpast verið í nokkru samhengi við ný raforkulög og hugsanlega sam- keppni í smásölu sem þeim fylgja. - RÚV greindi frá. Spennandi heimur Kona var í fyrsta skipti ráðin yf- irmaður í virkjun Landsvirkjunar er Rán Jónsdóttir rafmagnsverk- fræðingur var ráðin stöðvarstjóri Blönduvirkjunar. í aflstöðvunum hafa fram að þessu ekki unnið kon- ur í tæknistörfum. Viðgeröin dýr Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- SIF, sem laskaðist á flugi yfir Snæ- fellsnesi fyrir tæpum tveimur vik- um, verður llklegast ekki tekin í notkun að nýju fyrr en eftir miðjan júlí og jafnvel enn síðar. Fréttablað- ið greindi frá. Stjórnin í uppsveiflu Samkvæmt nýrri könnun Gallups bættu stjórnarflokkarnir við fylgi sitt í síðasta mánuði. Sjálfstæðis- flokkurinn nýtur nú fylgis 43% kjós- enda og Framsóknarflokkurinn 15%. Endurmat á stefnu Kristinn H. Gunnarsson telur hrakfarir Hafrann- sóknastofnunar kalla á umræðu um stjórn fiskveiða. Stefnan sem átti að tryggja vöxt fisk- stofha og viðhalda þeim virðist ekki hafa gengið eftir. Samherji tapar Samherji tapaði 252 miljónum króna fyrstu 4 mánuði ársins. Fyrstu 3 mánuðina hagnaðist Sam- herji um 241 miljón króna. Afkoman hefur þannig versnað um tæpan hálfan milljarð á einum mánuði og má rekja breytinguna til lækkunar á gengi íslensku krónunnar og verk- falls sjómanna. Sala Eiða staðfest Bæjarstjórn Aust- ur-Héraðs sam- þykkti á fundi sín- um í dag samnings- drög við óstofnað hlutafélag Sigurjóns Sighvatssonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar um sölu eignum Eiðastaðar. ekki verið gefið upp. Grænmeti lækkar ekki Tollar á grænmeti lækka ekki og verðmyndun verður óbreytt fram á haust í það minnsta. Tillögur starfs- hóps landbúnaðarráðherra um að lækka verð á grænmeti til neytenda verða ekki tilbúnar fyrr en í vetrar- byrjun. Þekkingarsetur Á undanfornum misserum hefur Þróunarfélagið Lundur unnið að út- færslu hugmyndar um uppbyggingu þekkingarseturs í landi Lundar við Nýbýlaveg í Kópavogi. Aflahæstur Langaflahæsti smábáturinn á síð- asta ári var sex tonna þorskaflahá- marksbáturinn Guðmundur Einars- son ÍS frá Bolungarvík með 828 tonn í 255 róðrum. Það gerir 3,25 tonn að meðaltali í róðri. Aflaverðmætið er 84,8 milljónir króna. Báturinn einnig efstur 1999. - BB greindi frá. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.