Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 7 I>V ■WMfM HEILDARVIDSKIPTI 2.769 m.kr. Hlutabréf 444 m.kr. Spariskírteini 893 m.kr. MEST VIÐSKIPTI SR-mjöi 137 m.kr. Eimskip 62 m.kr. O Lyfjaverslun íslands 54 m.kr. MESTA HÆKKUN OSR-mjöl 5,4% QMP-B'io 5,3% ©Skeljungur 3,8% MESTA LÆKKUN ©ÚA 12,5% ©Opin kerfi 11,1% ©Kögun 4,5% ÚRVALSVÍSITALAN 1.068 stig - Breyting O 0,7% ; Afkomuvið- vörun frá SS Vegna hækkunar fjármagnsliða, ýmissa kostnaðarliða og niður- færslu á hlutafé í Kjötmjöli ehf. er fyrirséð að afkoma Sláturfélags Suð- urlands fyrstu 6 mánuði yfirstand- andi árs verður verulega lakari en afkoma fyrstu 6 mánaða ársins 2000, að því er segir í afkomuviðvörun frá félaginu. Tap hjá Loðnuvinnslunni Fyrstu fjóra mánuði ársins varð 6 milljóna króna tap af rekstri Loðnu- vinnslunnar hf. Á sama tíma í fyrra var 2 milljóna króna hagnaður af rekstrinum. í frétt frá Loðnuvinnslunni hf. er bent á að verksmiðjan tók aðeins á móti 6.000 tonnum af hráefni í febr- úar 2001, þar sem loðnuveiðin var mest fyrir vestan land á þeim tíma en í venjulegu ári hefur febrúar ver- ið besti mánuður verksmiðjunnar hvað hráefni varðar. Þá kemur fram að gengistap vegna langtímalána nemur 37 millj- ónum króna á tímabilinu sem hefur neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu en á móti hafa gengisbreytingarnar jákvæð áhrif á tekjur félagsins. Alls tók verksmiðjan á móti 40.000 tonnum á þessu tímabili á móti 63.000 tonnum á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði er nú 75 milljónir króna en var 41 milljón á sama tímabili 2000. Veltufé frá rekstri nam 48 millj- ónum króna en var 30 milljónir fyrstu 4 mánuðina 2000. Óbreyttir vextir í Bretlandi Bankaráð Englandsbanka ákvað á fundi sínum í gær að halda stýri- vöxtum sínum óbreyttum í 5,25%. Bankinn hefur þrívegis lækkað vexti í ár til þess aö bregðast við samdrætti í efnahagslífi heimsins. Ákvörðun bankans kom þó ekki á óvart að þessu sinni. KAUP SALA ISbollar 104,160 104,690 LikíPund 144,680 145,420 I * Kan. dollar 68,350 68,770 j'lkbönsk kr. 11,8270 11,8920 tHÉáNorsk kr 11,0900 11,1510 SSsænsk kr. 9,4870 9,5390 HHn. mark 14,8320 14,9211 1 J !Fra. franki 13,4440 13,5248 1 Belg. franki 2,1861 2,1992 CJ3I Sviss. franki 57,9100 58,2300 &o!l. gyllini 40,0174 40,2579 ^iÞvskt mark 45,0892 45,3601 OSt. líra 0,045540 0,045820 ^jQAust. sch. 6,4088 6,4473 rTport. escudo 0,4399 0,4425 1« , jSpá. peseti 0,5300 0,5332 | • llap yen 0,866300 0,871500 | ÍLJrskt pund 111,974 112,647 SDR 130,380000 131,170000 {§ECU 88,1868 88,7167 Viðskipti Umsjón: Viöskiptablaöið Samherji tapar hálfum milljarði á einum mánuði Óendurskoðað upp- gjör Samherja hf. fyrir móðurfélagið á íslandi fyrir fyrstu fjóra mán- uði ársins sýnir 252 milljóna króna tap. Fyrstu þrjá mánuði árs- ins var 241 milljón krónu hagnaður af rekstri Samherja. Alls hefur taprekstur félags- ins í apríl því numið 493 milljónum króna. Versnandi afkomu má rekja til lækkunar á gengi íslensku krón- unnar og verkfalls sjómanna. Á aðalfundi Samherja i byrjun april sl. var greint frá rekstraráætl- unum félagsins fyrir árið 2001 sem unnar voru í árslok 2000. Þar kom fram að áætlanir gerðu ráð fyrir að hagnaður fyrir afskrift- ir og fjármagnsliði yrði um 2.175 milljónir króna og hagnaður árs- ins fyrir skatta yrði um 860 milljónir króna. Enn fremur kom fram að í rekstr- aráætluninni væri gert ráð fyrir að gengi ís- lensku krónunnar yrði óbreytt á árinu og að ekki kæmi til verkfalls sjómanna. í afkomuviðvörun frá Samherja hf. segir að nú liggi fyrir að gengi krónunn- ar hefur fallið um 16% frá áramót- um og að skip félagsins hafa verið frá veiðum vegna sjómannaverk- falls i 50 daga á árinu, þar með tal- inn allur aprílmánuður. Því er ljóst að félagið verður rekið með veru- legu tapi á fyrri hluta árs 2001. Á móti kemur að fari verðlagsþróun ekki úr böndum má ætla að aíkoma félagsins batni á næstu misserum vegna þeirrar hækkunar sem orðið hefur á erlendum gjaldmiðlum. Engu að síður er ljóst að heildaraf- koma ársins verður mun lakari en kynnt var á aðalfundi félagsins. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár- magnsliði verður hins vegar að öll- um likindum ekki langt frá því sem áætlað var. Nettóskuldir félagsins um síöustu áramót voru um 6 milljarðar króna og þann 30. apríl sl. námu þær 6,4 milljörðum króna. Miðað við þær gengisbreytingar sem orðið hafa má gera ráð fyrir að velta móðurfélags- ins á ársgrundvelli verði tæpir 11 milljarðar króna. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf. Reykjavíkurborg tekur Oracle launa- og starfsmannakerfi í notkun Reykjavíkurborg Hjá Reykjavíkurborg eru um tíu þúsund launþegar og því er um mjög flókið og umfangsmikið starfsmanna- og launakerfi að ræða. Fyrsti hluti Oracle e-business suite starfsmannakerfisins frá Skýrr hf. hefur verið tekinn í notk- un hjá Ráðhúsi Reykjavíkur. Það var Anna Helgadóttir, starfs- mannafulltrúi í Ráðhúsi Reykja- víkur, sem framkvæmdi fyrstu vinnsluna í nýja kerfinu. Innleið- ing kerfisins hefur gengið mjög vel en áætlað var að taka þennan hluta í notkun um miðjan október næstkomandi. Þessi áfangi er því rúmum þremur mánuðum á undan áætlun. Ráðhús Reykjavíkur er fyrsta stofnun borgarinnar tO þess að taka þennan hluta starfsmanna- kerfisins í notkun. Áætlað er að allar stofnanir Reykjavíkurborgar veröi farnar að nota fyrsta áfanga kerfisins fyrir 1. október nk. Þessi hraði í uppsetningu er mögulegur vegna þess hvað Oracle e-business suite kerfin eru sveigjanleg og auð- veld í aðlögun fyrir ólíkar þarfir mismunandi aðila. í frétt frá Skýrr hf. kemur fram að allt nýja kerfið verður rekið miðlægt hjá Skýrr og munu not- endur vinna í kerfmu í gegnum Internetið með hefðbundnum internetvafra. Samkvæmt kaup- samningi veröur kerfið afhent í tveimur hlutum, annars vegar nýtt launakerfi fyrir Reykjavíkurborg þann 1. janúár 2002 og starfs- mannakerfi þann 1. apríl 2002. Oracle e-business suite hefur sópað til sín verðlaunum og viður- kenningum og nú síðast töldu um 50% lesenda tímaritsins Infoworld Oracle bestu viðskiptakerfin fyrir rafræn viðskipti, „e-business app- lication of the year“. Hjá Reykjavíkurborg eru um tíu- þúsund launþegar og því er um mjög flókið og umfangsmikið starfs- manna- og launakerfi að ræða. Skýrr hefur áratugalanga þekkingu og reynslu í aðlögun og rekstri á viðskiptakerfum fyrir hið opinbera og þekkir því mjög vel þarfir og óskir stjómsýslunnar. Heimilissýningin endurvak- in í nýrri og breyttri mynd Heimilissýning verður haldin í Laug- ardalshöll 30. ágúst til 4. september næst- komandi. Þar mun fjöldi fyrirtækja kynna þjónustu sína og vöruúrval. Þetta er fyrsta Heimilissýning- in sfðan hinar vinsælu sýningar vora reglu- legur viðburður á 8. og 9. áratugnum. í frétt frá aðstandendum sýningar- innar kemur fram að á Heimilissýn- ingunni verður aUt sem við kemur heimilinu og fjölskyldunni. Þá verður einnig boðið upp á margvíslega skemmtun og uppákomur á meðan á sýningunni stendur. Málþing um heimilið verður haldið i tengslum við sýninguna en þar verða málefni vinnu og heimilis til umfjöUunar, með áherslu á breytt fjölskyldumynstur og sveigjanlegan vinnutíma. Heimilið og fjölskyldan hefur tekið breytingum á síðustu áram samhliða breyttu þjóðfélags- og efnahagsástandi i landinu. Á síðustu árum hafa rúm 20% þjóðarinnar flutt árlega sam- kvæmt tölum Hagstofu íslands. Það þýðir að um 60.000 manns munu flytja á þessu ári. Því tU við- bótar má gera ráð fyr- ir að um 20.000 manns breyti eða bæti heim- Ui sín á hverju ári. Vaxandi velmegun hefur skUað sér í því að fólk leggur meiri áherslu á lífsgæði en nokkra sinni áður og sést það meðal annars á kauphegðun f mat og drykk, innréttingum, húsbúnaði og ekki síst á íbúðarhúsnæði. Sam- kvæmt neyslukönnun GaUups búa tæp 70% þjóðarinnar í eigin húsnæði og aðeins 15% búa í leiguhúsnæði. Hin 15% búa hjá foreldrum. Langflest- ir búa í einbýlishúsum eða um 46%. Til gamans má geta þess að sam- kvæmt sömu könnun eiga 9,3 % þjóð- arinnar rafknúna espresso-vél, æ færri nota örbylgjuofn, eða 19%, um 70% heimila era nettengd og nær helmingur sparar sér uppvaskið með því að nota uppþvottavél. Búist er við að 30-50 þúsund gestir leggi leið sína í Laugardalinn á Heim- Uið í haust. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru Landssími íslands, Skjár 1 og Búnað- arbanki íslands. Búnaöarbankinn Einn af aðstandendum sýningarinnar. íslenska um- boðssalan opnar nýjan vef íslenska umboðssalan, útflutnings- fyrirtæki á sviði sjávarafurða, hefur opnað nýjan vef. Vefurinn www.isa.is er upplýsingavefur fyrir viðskiptavini fyrirtækisins sem og aðra þá sem hafa áhuga á útflutningi sjávarafurða sem og upplýsingum og nýjungum á því sviði. í næsta áfanga vefgerðarinnar verð- ur opnað sérstakt viðskiptamanna- svæði þar sem viðskiptavinir fyrir- tækisins, innlendir fiskseljendur og erlendir fiskkaupendur, geta farið á sitt eigið svæði á vefnum og fengið upplýsingar um vörur, verð og eigin stöðu í viðskiptum hjá fyrirtækinu. Netspor ehf. vann þarfagreiningu vefjarins fyrir íslensku umboðssöluna ásamt því að sjá um verkstýringu á vefgerðinni. Auglýsingastofan Gullna hliðið sá um útlitshönnun og Spuni hugbúnaðarhús um vefgerðina. í framhaldinu hefur Islenska um- boðssalan samið viö Netspor ehf. um markaðsþjónustu vegna vefjarins. Felst sú þjónusta í vinnu með starfs- mönnum íslensku umboðssölunnar að reglulegu viðhaldi vefjarins og nýt- ingu hans með það að markmiði að hann skili fyrirtækinu, sem og við- skiptavinum þess, sem mestum ár- angri. Subaru LegacyWagon Verð: 1.360.000 Nýskr. 5.1997,2000cc vél, 5 dyra, 5 gíra, grár, ekinn 69 þ. Nissan Urvan Tilboð: 790.000 verð: 990.000 Nýskr. 2.1997,2500cc Diesel vél, 5 dyra, 5 gíra, hvítur, ekinn 79 þ. NX225 VSK-bíll Renault Megane Scenic RN MD209 Nýskr. 10.1997, I600cc vél, 5 dyra, sjálfskiptur, rauður, ekinn 71 þ. Hyundai Sonata GLSi Nýskr. 9.1998,2000cc vél, 4 dyra, sjálfskiptur.grár, ekinn 61 þ. Honda Civic Verð: 790.000 EF0I8 Nýskr. 12.1995, I400cc vél, 5 dyra, sjálfskiptur, blár, ekinn 56 þ úrval af góðum notuðum bílum í síma 575 1230 Grjóthálsi I bilaland.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.