Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Blaðsíða 24
28
Tilvera
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001
I>V
lí f iö
E F T I R V r N N U
Dansað á
Laugaveginum
Bæjarfero nefnist nýtt átak
kaupmanna við Laugaveginn í
Reykjavík. Það verðm- fyrstu
helgi hvers mánaðar frá
fimmtudegi til laugardags og
hefst einmitt í dag. Dansarar
munu dansa um Laugaveginn,
harmónikuleikarar spila,
fimleikafólk sýna listir og
gefnar verða blöðrur og góðgæti.
Klassík
■ SUMARTONLEIKAR I STYKKIS-
HOLMSKIRKJU Einir af fjölmörgum
sumartónleikum Stykkishólmskirkju
veröa haldnir í kvöld. Nú treður upp
Kór Rensborgarskólans í Hafnar-
firði. Hrafnhildur Blomsterberg er
kórstjóri og Ólafur Kolbeinn Guð-
mundsson spilar á píanó. ^
Leikhús
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJOTI A
AKRANESI Leikrltið Meó fulla vasa
af grjótl eftir Marie Jones verður
sýnt í Bíóhöllinni, Akranesi, í kvöld
klukkan 20. Miðasala í síma 433
1037.
■ FEÐGAR Á FERÐ Feðearnir Árni
Tryggvason og Orn Árnason eru höf-
undar og leikarar í leikritinu Feögar
á ferð sem er sýnt kl. 20 í kvöld í
lönó. Nokkur sæti laus.
■ FÍFL í HÓFI Gamanleikritið Fífl í
hófi verður sýnt klukkan 20 í kvöld í
Gamla bíói (hús íslensku óperunn-
ar). Leikstjóri er María Siguröardótt-
ir. Miöasala í síma 5114200.
Nokkur sæti laus.
Jazz
■ PIPARBRÆÐINGUR I HUSI MALAR-
ans Fvrsta fimmtudag hvers
mánaðar í sumar veröa tónleikar í
Húsi Máiarans, Bankastræti 7a.
Þar leika Szymon Kuran fiðluleikari,
Hafdís Bjarnadóttir rafgítarleikari og
Þórdís Claessen slagverksleikari
tónlist sem þau kjósa að kalla
Piparbræðing.
fundir
■ FYRIRLESTUR UM KOKHUÓP
Catherine 0. Rlngen, prófessor við
háskólann í lowa heldur fyrirlestur í
boöi íslenska málfræðifélagsins í
dag kl. 16.15 í stofu 304 í
Árnagarði. Fyrirlesturinn nefnist
„The Feature (spread glottis) in
German"
Ferðir
■ GÖNGUFERÐ UM HÓLAVALLAGARÐ
Þjóöminjasafn íslands stendur fyrir
gönguferö um Hólavallagarð viö
Suðurgötu í kvöld og veröur lagt upp
frá þjónustuhúsinu við Ljósvallagötu
kl. 20.
Sýningar
■ HALLA I GALLERI 17 Andlegt
innlit nefnist sýning Höllu
Sigurgeirsdóttur í Gallerí 17. Þar
eru 9 myndir, málaöar meö
vatnslitum.
Síðustu forvöð
■ HAUKUR DOR I SMIÐJUNNÍ NÚ
er sýningu á verkum listamannsins
Hauks Dórs í Smiöjunnl - Art Gall-
erí, Ármúla 36 aö Ijúka.
Sjá nánar: Lífið eftlr vlnnu á Vísi.ls
Anthony Quinn:
Einn fyrsti kvik-
myndatöffarinn
Um síðustu helgi lést kvikmynda-
leikarinn Anthony Quinn, 86 ára
gamall. Quinn lifði litríku lífi og
starfaði í kvikmyndum í sextíu ár og
lék í um það bil 150 kvikmyndum.
Quinn var aldrei þessi dæmigerði
Hollywoodleikari og þegar hann var
fyrst að koma sér á framfæri var
langt í frá að hann gæti treyst á út-
litið. Það voru hæfileikamir sem
hann treysti á og ekki var verra að
fyrsta eiginkona hans var dóttir eins
valdamesta kvikmyndagerðarmanns
í Hollywood, Cecil B. DeMille.
Anthony Quinn fæddist í Mexíkó
og átti mexíkóska móður og írskan
fóður. Áður en hann hóf feril sem
kvikmyndaleikari vann hann fyrir
sér sem hnefaleikari. í fyrstu voru
hlutverkin ekki stór og fékk hann
nánast eingöngu að leika bófa og
indíána. Viö gerð The Plainsman
(1936), sem Cecil B. DeMille leik-
stýrði, kynntist hann dóttur hans,
Katherine. Þau giftu sig ári síðar og
stóð hjónabandið til ársins 1963.
Tvær eiginkonur fylgdu síðan í kjöl-
farið. Vegur Quinns fór nú að
vænkast en erfitt átti hann með að
losna við indíánahlutverkin og það
var ekki fyrr en hann vann ósk-
arsverðlaun fyrir aukahlutverk í
Viva Zapata (1952), þar sem mótleik-
ari hans var Marlon Brando, að
hann gat farið að velja úr hlutverk-
um. Quinn notfærði sér frelsi sitt til
hins ýtrasta og lék í hverri mynd-
inni á fætur annarri fram á níunda
áratuginn.
Ef Quinn hafði tilkynnt komu sína
meðal hinna bestu í Hollywood í
Viva Zapata þá staöfesti hann það í
kvikmynd Federicos Fellinis La
Strada (1954) þar sem hann tókst á
við hádramatískt hlutverk einfeld-
ings sem ferðast með fimleikamanni.
í Lust for Life (1955) lék hann Paul
Gauguin á móti Kirk Douglas sem
lék Van Gogh og fékk Quinn önnur
óskarsverðlaun sín fyrir aukahlut-
verk. Þá er vert að geta frammistöðu
hans sem Quasimodo í Huncback of
Notre Dame (1957) og Wild Is the
Wind (1957) en fyrir leik sinn í þeirri
kvikmynd fékk hann fyrstu óskar-
stilnefningu sína í aðalhlutverki.
Sjöundi áratugurinn er sjálfsagt sá
besti sem Anthony Quinn átti sem
leikari. Hann lék hvert stórhlutverk-
ið af öðru í kvikmyndum á borð við
The Guns of Navarone (1961),
Requiem for a Heavywight (1962),
Lawrence of Arabia (1964), Barabbas
(1964) og The Shoes of the Fisherman
(1969), svo einhverjar séu nefndar.
Hátindinum á ferlinum náði Ant-
hony Quinn árið 1964 þegar hann lék
Zorba í Zorba, the Greek. Þar skap-
aði hann eftirminnilega persónu,
glaðlyndan grískan bónda sem á
sinn einfalda hátt átti til mikla lífs-
speki sem birtist meðal annars í
dansi. Fyrir það hlutverk hlaut hann
óskarsverðlaun og eftir það var nafn
hans ávallt tengt þessu hlutverki.
Hann lék síðan Zorba á sviði á ní-
unda ártugnum.
Anthony Quinn var eins og Zorba,
lífsglaður maður. Eftir að tók að
halla undan fæti sinnti hann fjöl-
skyldu sinni vel og það er engin smá-
fjölskylda því hann átti allt í allt
þrettán böm. Þá fór hann að mála og
sýndi ótviræða hæfileika í þeirri list-
grein eins og í öllu öðru sem hann
tók sér fyrir hendur. Með Anthony
Quinn er fallinn einn af gömlu hetju-
leikurunum í Hollywood, leikari sem
var einn fyrsti kvikmyndatöffarinn.
-HK
Liv Tyler
Leikur konuna sem karlmennirnir
geta ekki hætt að hugsa um.
Lífið á
McCool’s-
barnum
One Night at McCool’s er ný
gamanmynd sem frumsýnd verður
á morgun. Myndin gerist á stutt-
um tíma og segir frá samböndum
sem myndast á milli einnar konu
og þriggja karlmanna. Þetta byrj-
aði allt saman eitt kvöld á
McCool’s-barnum. Þrír grunlausir
menn og ein ákveðin kona hittast.
Það er mikið að gera og spenna í
andrúmsloftinu. Komið er að lok-
un, Randy (Matt Dillon) er að
vinna á barnum. Lögfræðingurinn
Carl (Paul Reiser) er enn þá inni á
staðnum og rannsóknarlögreglu-
maðurinn Dehling (John Goodm-
an) er nýkominn í hús enda er
staðurinn orðinn að vettvangi
glæps. Hvaö það er sem tengir
þessa þrjá aðila kemur svo í ljós
siðar. Var það líkið sem tengdi
alla aðilana ... eða var það hin
sjóðheita og súpersexí Jewel (Liv
Tyler)? Áður en kvöldið er á enda
er Jewel orðinn afgerandi þáttur í
lífi þeirra allra og þeim er ljóst að
hún er meira en þeir ráða við ... og
einnig að hún ræður við meira en
þá þrjá!
Það er stórgóður leikarahópur
sem leikur I One Night at
McCool’s og auk þeirra sem nefnd-
ir hafa verið leikur Michael
Douglas mann sem verður á vegi
Jewel. Það er Svíinn Harald Swart
sem leikstýrir en meðal fyrri af-
reka hans er kvikmyndin og sjón-
varpsþættirnir um njósnarann
Hamilton.
Anthony Quinn og Zorba
Anthony Quinn stillir sér upp fyrir framan málverk af sér í hlutverki Zorba.
Bíógagnrýni
Háskólabíó/Laugarásbíó - Along Came a Spider: ★ ★
Athyglissjúkur mannræningi
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Morgan Freeman skapaði í Seven
eftirminnilega lögreglu, persónu sem
hann sótti í þegar hann hóf að leika
lögreglumanninn og sálfræðinginn
Alex Cross í Kiss the Girls. Nú er það
svo aö Cross, sem rithöfundurinn
James Patterson skapaði í skáldsög-
um sínum, er ekki nema tæplega fer-
tugur. Freeman var sextugur þegar
hann lék Cross í fyrsta sinn og að
hætti góðra leikara tókst honum að
gera persónuna það trúverðuga að
meira að segja helstu aðdáendur Alex
Cross sættu sig við að í myndinni var
Cross ekkert unglamb lengur. Free-
man endurtekur svo leikinn í Along
Came a Spider og satt best að segja
bjargar hann miklu með yfirveguð-
um leik í mynd sem er einstaklega
flöt þegar haft er í huga hversu
áhugaverðar persónurnar eru og
söguþráðurinn flókinn.
Along Came a Spider byrjar ekki
illa. Mislukkuð aðgerð sem gerir það
að verkum að aðstoðarkona Cross
lætur lífið verður til þess að hann fer
í sjálfskipaða einangrun. Þetta atriði
er sterkt og myndrænt og lofar góðu
um framhaldið. í einangruninni
fylgist Cross með því í sjónvarpinu
þegar leit er hafin að barni öldunga-
deildarþingmanns sem mannræningi
hefur undir höndum. Síminn hringir
og á hinum endanum er mannræn-
inginn sem vill að Cross sé milli-
göngumaður. Ljóst er hann hefur val-
ið Cross sem verðugan keppinaut.
Þeir sem vanir eru flóknum saka-
málamyndum sjá að í farvatninu er
leikur kattarins að músinni. Cross
lætur vita af sér og áður en hann veit
af er hann orðinn lykilmaðurinn í
lausn mannránsins sem tekur á sig
ýmsar og óvæntar stefnur.
Um leið og Cross verður meira
og meira þátttakandi í ráðabruggi
mannræningjans fara að myndast
holur í söguna sem erfitt er að
fylla í á sannfærandi hátt, mót-
sagnir veröa áberandi og Freeman
á fullt fangi með að halda dampi í
hlutverkinu. Hann er samt aldrei
í vandræðum. Þjálfuð og góö rödd
hans hefur seiðandi áhrif sem ger-
ir það að verkum að ótrúverðugur
texti virkar sannfærandi. Hann
getur þó ekki bjargað því að hinn
óvænti endir er ekki sú háspenna
sem búast hefði mátt við.
Á móti kemur að leikstjórinn,
Lee Tamahori (Once Were Warri-
ors), er fagmaður og góö kvik-
myndataka og klipping, ásamt
tónlist sem passar vel við efnið,
skapar spennuþrungið andrúms-
loft sem fleytir myndinni áfram og
gerir hana að afþreyingu sem er
þess virði að eyöa kvöldstund yfir.
Leikstjóri: Lee Tamahori. Handrit: Marc
Ross eftir skáldsögu James Pattersons.
Kvlkmyndataka: Matthew F. Leonetti. Tón-
list: Jerry Goldsmith. Aöalleikarar: Morgan
Freeman, Monica Potter, Michael Wincott,
Penelope Ann Miller og Michael Moriarty.