Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
Fréttir
Kjötmjöl hf. á spena hjá Sorpstöð Suðurlands:
1H
Milljónum dælt
milli fýrirtækja
- til að halda rekstri kjötmjölsverksmiðjunnar gangandi
Kjötmjöl hf. í Hraungerðishreppi, Ár-
nessýslu, á nú i miklum rekstrarerfiö-
leikum i kjölfar banns á notkun kjöt-
mjöls í Evrópu vegna riðuveiki. Verk-
smiðjunni hefur þó verið haldið í
rekstri. Henni hefúr m.a. verið haldið
gangandi með því að millifæra milljón-
ir frá Sorpstöð Suðurlands sem er
stærsti eignaraðili í verksmiðjunni.
Mikill ágreiningur er meðal fulltrúa
sveitarfélaganna sem eiga sorpstöðina
um þessa ráðstöfun fjármuna hennar
því margir þeirra telja að Kjötmjöl hf.
stefni beint í gjaldþrot. Auk þess er
gagnrýnt að framkvæmdastjóri Sam-
bands sunnlenskra sveitarfélaga, sem
jafnframt er framkvæmdastjóri Sorp-
Elliheimilisrekstur:
í hæsta máta
óeðlilegt
„Það er alltaf að koma betur og bet-
ur í ljós hvílíkt reginhneyksli samning-
urinn er sem rikisstjómin gerði við
Öldung hf.,“ segir Ögmundur Jónasson
alþingismaður.
Öldungur er sam-
heiti fyrir Securitas
og Aðalverktaka.
Samningurinn gekk
út á að reisa elli-
heimili að Sóltúni 2 í
Reykjavík og er
nýlunda í samninga-
gerð við öldrunar-
stofnanir. Að mati
Ögmundar var ætl-
unin að þetta yrði
gert að gróðavænlegum atvinnurekstri
í stað þess að veita öldmðum þjónustu
eins og hún hefur tiðkast.
„Nú era fiármálamenn svo famir að
bítast um þennan bita á markaði, sem
er ekki geðslegt, og svo gerist það að
miklar líkur eru á að Lyfiaverslun Is-
lands hreppi bitann. Þá vakna spum-
ingar um hvort hagsmunir stangist á.
Á öldrunarstofnunum eru lyf höfð um
hönd og mér finnst í hæsta máti óeðli-
legt að lyfiafyrirtæki sé að reka slíka
stofnun," sagði Ögmundur í samtali
við DV í morgun. -BÞ
Fékk 12 ár
Hæstiréttur sak-
felldi í gær Bergþóra
Guðmundsdóttur af
ákæra um að hafa
banað Hallgrimi Elís-
syni að Leifsgötu 10 á
síðasta ári en lækk-
aði fangelsisrefsingu
héraðsdóms úr 14
árum í 12. Megin-
ástæðan er sú að
dómurinn telur að það hafi ekki verið
ásetningur Bergþóra að deyða Hall-
grím. Refsingin er samt sem áður
hæmi en ella þar sem höfð er hliðsjón
af ítrekunaráhrifum vegna sakarferils
Bergþóra.
í dómnum segir að ákærða hafi játað
að hafa verið ósátt við Hallgrím og
pirrað vegna áreitni hans og hávaða.
Hún hefði barið hann svo að hann fékk
blóðnasir og síðar átt í átökum við
hann og hafi hún verið sveitt og mjög
þreytt eftir þau átök. Framburður hús-
ráöanda staðfesti að átök hennar hafi
verið allharkaleg og hún tekið verulega
á.
Dómurinn telur að ekki verði ve-
fengt með skynsamlegum rökum að
ákærða hafi veitt Hallgrimi þá áverka
sem ollu bana hans og að ekki hafi þar
öðrum verið til að dreifa. -Ótt
Bergþóra
Guðmundsdóttir.
stöðvarinnar og stjómarformaður Kjöt-
mjöls hf„ hafi ekki haft formlega heim-
ild stjómar stöðvarinnar þegar hann
millifærði milljónir króna úr sjóðum
hennar til rekstrar kjötmjölsverksmiðj-
unnar á síðasta ári. Karl Bjömsson,
sveitarstjóri og formaður stjómar Sorp-
stöðvarinnar, sagði við DV að sfióm-
inni hefði verið ljóst að millifærslur
væra í gangL Hann staðfesti að ekki
hefði legið fyrir formleg samþykkt
hennar fyrir þeim. „Þegar erfitt er með
bankaviðskipti eins og nákvæmlega nú
þá hefur þetta fyrirtæki sem er í fóstri
fengið þessa fyrirgreiðslu frá sinum
stærsta eiganda," sagði hann og kvað
Sorpstöðina vera bakhjarl Kjötmjöls hf.
Verksmiðjan hóf starfsemi fyrir
rúmu ári. í fyrstu þóttu rekstrarhorf-
ur bjartar en svo tók að syrta í álinn
þegar ljóst var hún væri að framleiða
afurðir sem ekki seldust. Var þá
millifært úr sjóðum Sorpstöðvarinn-
ar. Þannig voru milljónir króna
millifærðar á síðasta ári. Millifærsl-
unum hefur verið fram haldið á
þessu ári, að sögn Karls Björnssonar.
Hann kvaðst ekki geta staðfest nein-
ar tölur í þessu sambandi. Hann
sagði að vilji sveitarfélaganna væri
sá aö halda rekstrinum áfram.
Á aðalfundinum átti m.a. að ganga
frá því að „láninu" yrði breytt í
hlutafé. Fulltrúar aðildarsveitarfé-
laga stöðvarinnar voru margir hverj-
ir gjörsamlega andvígir því, þar sem
þeir óttast að sveitarfélögin muni
tapa þessum peningum ef verksmiðj-
an fer í gjaldþrot.
Karl sagði að framtíð kjötmjöls-
verksmiðjunnar réðist á næstunni.
Annaðhvort færi hún í þrot eða
nýrra ráða yrði leitað viö reksturinn.
Þar kæmi til greina að selja afurðirn-
ar til nýrra aðila, s.s. í loðdýrafóður
og þá á lægra verði. Þá yrði að
hækka móttökugjöld á hráefni. Bera
yrði það saman við kostnað um að
losa sig við sláturúrgang á annan
hátt, s.s. með urðun sem væri mjög
kostnaðarsöm nú. -JSS
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Hestaferö á Hellishelöi
Feröir um iandiö á baki íslenskra gæöinga njóta æ meiri vinsælda, ekki síst meöal útlendinga. Hér er fariö meö gát
um úfiö hrauniö uppi á heiöi.
Verkfall þroskaþjálfa á sjálfseignarstofnunum skollið á:
Mikill kvíði og hræðsla hjá aðstandendum
- segir foreldraráðgjafi Þroskahjálpar
„Þetta er skelfilegt ástand," sagði
Hrefna Haraldsdóttir, foreldraráö-
gjafi Þroskahjálpar og trúnaðarmaö-
ur fatlaðra í Reykjavík, við DV um
yfirstandandi verkfall þroskaþjálfa.
Þroskaþjálfar hjá Reykjavíkurborg
hafa verið í verkfalli síðan 18. maí sl.
Á miðnætti skall á verkfall þroska-
þjálfa á sjálfseignarstofnunum. Verk-
fall þroskaþjálfa hjá ríkinu hefur ver-
ið boðað 28. þ.m.
Verkfallið á sjálfseignarstofnunum
kemur niður á þjónustu við á annað
hundrað fatlaða einstaklinga. Það
hefur m.a. þau áhrif að þremur stofn-
unum er lokað, þ.e. Lyngási, Bjarkar-
ási og Lækjarási. Þetta eru mjög sér-
Fatlaölr helm
Diddi missir dagvist sína á Lyngási
og foreldrarnir úr vinnu.
hæföir staðir sem veita þeim sem eru
mest fatlaðir, bömum og fullorðnum,
þjónustu. Þá skerðist þjónusta á fiór-
um sambýlum af átta sem eru í
rekstri hjá Styrktarfélagi vangefinna.
Þetta þýöir að 37 börn á Lyngási
missa dagvistina, svo og um 80 ein-
staklingar á Bjarkarási og Lækjarási.
„Þama er m.a. um að ræða mikið
fotluð börn og foreldra þeirra. Þetta
veldur mikilli röskun hjá þessu fólki
og miklu álagi,“ sagði Hrefna. „Ég
fmn mikinn kvíða og hræðslu hjá því
vegna þess að fréttir af gangi samn-
ingaviðræðna eru ekki bjartar. Það
hefur kostað geysilega vinnu að
koma „rútínu" á þessi böm, en eftir
svona áfóll verður að byrja upp á
nýtt. Það er til vansa hvaö dregist
hefur að koma samningum við
þroskaþjálfa í höfn.“ -JSS
Olíubrúðkaup í Fríkirkjunni
- Irving-erfingi kvænist íslenskri konu
Stórbrúðkaup verður í Fríkirkj-
unni á morgun þegar íris Lana
Birgisdóttir og Arthur Irving yngri
ganga í hjónaband. Irving-olíufé-
lagið var áberandi í íslenskum fiöl-
miðlum árið 1994 þegar fyrirtækið
hugðist reisa bensínstöðvar hér á
landi. Irving-fegðar, Arthur eldri,
Kenneth og Arthur yngri, heim-
sóttu landið nokkrum sinnum á
þessu timabili. Arthur yngri
kynntist írisi Lönu hér á landi en
hún er starfandi jógakennari.
Arthur og íris Lana eru búsett í
Saint John á Nýfundnalandi þar
sem Arthur stýrir söludeild olíufé-
lagsins auk fiölda
veitingahúsa í
eigu fiölskyldunn-
ar. Arthur er tal-
inn líklegur arf-
taki föður síns í
æðstu stjóm fyrir-
tækisins.
Faðir brúð-
Arthur gumans, Arthur Ir-
Irving. ving, er einn
þriggja bræðra
sem eiga og reka Irving-olíufélagið.
Irving-bræður eru forríkir, metnir í
viðskiptatímaritum á um 600 millj-
aröa íslenskra króna. Þeir skipa 2.
sætiö yfir ríkustu menn Kanada. Þá
eru þeir stærstu einkalandeigendur
í Kanada og eiga rúmlega 700 bens-
ínstöðvar í Kanada og Bandaríkjun-
um.
DV hefur heimildir fyrir því að
um 30 meðlimir Irving-fiölskyldunn-
ar muni samgleðjast ungu hjónun-
um hér á landi á morgun. „Þetta
verður látlaust brúðkaup. Brúö-
hjónin em ekki mikið fyrir að vera
í sviðsljósinu," sagði heimildamað-
ur blaðsins um fyrirhugað brúð-
kaup en að lokinni athöfn verður
boðið til hádegisveröar í Apótekinu.
-aþ
Vill alla tolla burt
Búist er við stað-
festingu landbúnað-
arráðherra um lækk-
un grænmetistolla
samkvæmt áliti
nefndar á vegum
landbúnaðarráðu-
neytisins. Jóhannes
Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, vill að allir
tollar á þessari hollustuvöra verði
afnumdir. - Fréttablaðið greindi frá.
Ríkið tapar milljörðum
Samkvæmt áætlun fiármálaráðu-
neytisins er gert ráð fyrir að heildar-
tekjur ríkissjóðs af ökutækjum og elds-
neyti lækki um tæplega 2,5 milljarða á
árinu 2001 og nemi 25 milljörðum
króna. Þetta samsvarar um 3,5% af
áætlaðri landsframleiðslu.
Stórskemmd á vatnsleiðslu
Komið hefur í ljós skemmd á
annarri vamsleiðslunni mitt á milli
Elliðaeyjar og innsiglingarinnar til
Vestmannaeyja. Kafarar könnuðu
vatnsleiðslurnar og við athugun í
morgun kom í ljós að stór hrúga af
snurvoðartóg lá yfir seinni vatnsleiðsl-
unni. Er leiöslan skemmd á um 50
metra kafla.
Fjármálaráðherra
segir ástand efna-
hagsmála ekki sem
best. Verðbólga er
meiri, gengi krón-
unnar er í lágmarki,
ríkissjóður hefur á
ný hafið lántöku og
viðskiptahallinn er
mikill. Geir H. Haarde er samt vongóð-
ur um að hægt veröi að ná verðbólg-
unni niður í 2,5 prósent fyrir árið 2003.
Skjálfti við Kleifarvatn
Jarðskjálfti upp á 3,3 á Richter varð
við suðvesturhom Kleifarvatns um
áttaleytið í gærkvöld. Skjálftar af þess-
ari stærð era nokkuð algengir á þess-
um slóðum.
Kaupir Fóðurblönduna
Búnaðarbanki íslands hf. hefur
keypt Fóðurblönduna hfi, stærsta fóð-
urvöruframleiðanda landsins. Skrifað
var undir samninga þar að lútandi í
gær.
Mikið um smábáta
Samkvæmt heimildum frá Tilkynn-
ingarskyldunni era um 650 bátar úti á
miðunum í dag. Aö sögn talsmanns
þykir þetta hærri tala en ella en mikið
er um smærri báta úti á miðunum og
er það tíðarfarið sem spilar þar stórt
hlutverk.
Stefnir Flutningsjöfnunarsjóði
Skeljungur hefur stefnt Flutnings-
jöfnunarsjóði olíuvara fyrir að fara
ekki eftir dómsúrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 1999 um að Krossanes-
höfn á Akureyri skuli flokkuð sem inn-
flutningshöfn. Vegna þess telur félagið
sig hafa orðið af á sjöttu milljón króna.
Missum af möguleikum
Við inngöngu
nýrra ríkja í Evrópu-
sambandið verður Is-
land af möguleikum
við sölu sjávarafurða
sem nú era fyrir
hendi samkvæmt frí-
verslunarsamningi
EFTA við flest um-
sóknarrikjanna. Þetta kemur fram í
skýrslu utanríkisráðuneytisins um
stækkun Evrópusambandsins.
Umsvif vegna Rammstein
Lögreglan og slökkvilið verða með
mikinn viðbúnað þegar þýska hljóm-
sveitin Rammstein skemmtir landan-
um í Laugardalshöllinni í kvöld og
annað kvöld en uppselt er á hvora-
tveggju tónleikana. -HKr.
Ekki gott