Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 7
7 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 _____________________________________________________ DV Fréttir Bæjarstjórinn á Akureyri segir afla smábáta hafa aukist um tugi þúsunda tonna: Kjaftæði í bæjarstjóranum DV, AKUREYRI:____________________ Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, gerði í hátiðar- ræðu sinni á sjómannadeginum á Akureyri málefni smábátamanna að umræðuefni, meinta illa meðferð á þeim, og sagði þar m.a. „Á síðustu 10 árum hefur svokölluðum smábát- um flölgað um nokkur hundruð og afli þeirra aukist um tugi þúsunda tonna. Aflaaukning smábátanna frá árinu 1984 er meiri en þorskveiði- heimildir allra skipa sem gerð eru út frá Norðurlandi á þessu fiskveiði- ári. Varla getur það talist ill með- ferð. Spyrja má hvers Norðlending- — segir formaður trillukarla á Norðurlandi eystra ar eigi að gjalda þegar smábátarnir hafa fengið að auka stöðugt sínar veiðar meðan lög og reglur hafa haldið aftur af svokölluðum afla- marksskipum sem eru m.a. uppi- staðan í sjávarútvegi Eyjafjarðar- svæðisins." „Það er bara kjaftæði úr Krist- jáni Þór bæjarstjóra að við höfum fengið að auka við okkur afla um tugi þúsunda tonna og hann hefði átt að leita sér upplýsinga hjá okkur áður en hann fór að halda ræðu um þessi mál,“ segir Júlíus Magnússon, formaður Kletts, félags smábátaeig- enda á Norðurlandi eystra. Júlíus segir að á tímabili hafa allt að 40% virkra smá- báta á Norðurlandi eystra verið á aflamarki og sjálfur hafi hann á sinum tíma val- ið að fiska undir því kerfi. „Ég er ekki með á hreinu hvernig þessar tölur eru dag, þær hafa eitthvað lækk- að, en þeir sem eru á afla- markskerfinu eru fastir þar. Stór hluti þessara aflamarksbáta sitja þar fastir með 10-20 tonna afla- heimilda í þorski og við erum sifellt að fá á okkur niðurskurð á þessi fáu tonn. Þeir smábátaeigenda sem völdu frjálsu leiðina á sínum tíma eru vissulega með pálmann í höndunum miðað við okkur og þeir hafa aukið við sig þótt það sé fjarri lagi að það sé eitthvað í líkingu við tölur bæjarstjórans á Ak- ureyri. Hann er ekki með alla þessa hluti á hreinu og gleymir þeim hluta smábát- anna sem eru fastir í afla- markskerfinu“ segir Júlíus Magn- ússon. Kristján Þór sagði í sjómanna- dagsræðu sinni það vera blekking- arleik og afar ódýra lausn margra Kristján Þór Júlíusson. stjórnmálamanna að vekja vonir með fólki í þá veru að bjargráðin í byggðamálum felist í því að unnt sé að nota aflaheimildir til þess að stýra búsetu um landið. Það verði ekki gert nema taka þær frá ein- hverjum og færa öðrum. „Ef stjórn- málamenn telja að úrræði til að bjarga landsbyggðinni felist í þvi að taka aflaheimildir frá fyrirtækjum á stöðum eins og Akureyri og dreifa til annarra byggðarlaga i þeirri von um að efla byggð í landinu þá mun aðgerðin hæglega geta snúist upp í andhverfu sína“ sagði bæjarsstjór- inn. -gk Sögin öll Allt er í heiminum hverfult. Líka stórverstunin Sögin sem margir heimsóttu í Höföatúniö hér á árum áöur. En nú er Sögin öll. Húsiö rifiö og upp rís nýr veruleiki sem mun standa þar til annaö veröur ákveöiö í fyllingu tímans. Rauða kross-deildirnar á Vesturlandi og Félag hjartasjúklinga gáfu stórgjöf: Sjúkrahús tæknivædd með gjöfum DV, AKRANESI:________________________ Það er dapurleg staðreynd en til þess að geta endurnýjað og viðhaldið bráðnauðsynlegum tækjum og búnaði sjúkrahúsa þarf ævinlega að koma til aðstoð frjálsra félagasamtaka. Guðjón Brjánsson, framkvæmdastjóri Sjúkra- húss og Heilsugæslustöðvar Akra- ness, lét þessa getið í ávarpi þegar Rauða kross-deildir og Féiag hjarta- sjúklinga á Vesturlöndum gáfu 4,5 milljóna króna tæki í fyrradag. Guð- jón sagði að ástandið væri ekki bara svona hjá sjúkrahúsinu á Akranesi heldur hjá sjúkrahúsum og heilsu- gæslustöðvum um land allt. Er þetta langstærsta einstaka gjöfln sem Rauða kross-deildirnar á Vestur- landi hafa staðið að, nú í sameigin- legu átaki með Félagi hjartasjúklinga á Vest- urlandi. Auk þess er þetta stærsta tækjagjöf- in sem sjúkrahúsinu hefur borist. Þorkell Guðbrands- son, yfirlæknir lyflækn- ingadeildar Sjúkrahúss Akraness, segir að þessi gjöf komi í góðar þarfir. Lyflækningadeildin hef- ur um áratugaskeið veitt viðtöku sjúk- lingum með hjartabilun eða bráða kransæðasjúkdóma, hjartakveisu og kransæðastíflu. Þessir sjúklingar hafa að sjálfsögðu einkum komið af upp- tökusvæði sjúkrahússins en á sumrin koma einnig sjúklingar úr sumarbú- staðabyggðum í nær- liggjandi héruðum. Með tilkomu Hval- fjaröarganga hefur ekki dregið úr að- sókn þessara sjúk- linga nema siður sé. Tækjabúnaður sá sem lyflækninga- deildin hafði var orð- inn gamall og úr sér genginn. Nýja tækiö er frá HP, hjartahágæslutæki (moni- tor) og fjargæslubúnaður (tele- metriur) til þess að fylgjast megi ná- kvæmlega með sjúklingum á bráða- stigi sjúkdómsins. Fjármagn til kaupa á þessum tækjum hafði ekki fengist úr ríkissjóði. -DVÓ DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON Frá afhendingu stórgjafarinnar Frá vinstri Þorkell Guöbrandsson, Magnús Þorgrímsson og Arinbjörn Kúld. frábær staðsetning, gott inni- og útipiáss vantar bíia á staðinn Sæþota Sea- doo GSX 800 Árg. 1997, kerra og gallar fylgja. Verð 900 þús Volvo 460 GL turbo 1990, ekinn 165 þús. Verð 350 þús. Terrano II Luxury TDI 2,7 Skrá. 4/2001, sjálfskiptur, ekinn 1000 km. Verð 3360 þús Volvo S 40, beinskiptur.Skrá 1/1998, ekinn 45 þús. Verð 1190 þús. Ford Transit sendibíll, 2,5, dísil.Skrá. 12/2000, nýr bill. Verð 2350 þús. M Benz Classic 2,3, sjálfskipturTopplúga cruisecontrol, 18t. álfelgur. Árg. 1996, ekinn 124 þús. Ný bílasala - Bílamiðstöbin v/ Funahöfða - sími 540 5800 Bll_ASALA.NET

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.